Morgunblaðið - 13.01.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
15
svo skýrt komu í ljós í þessu máli í
upphafi stjórnmálaferils hans
hafa einkennt hinn langa stjórn-
málaferil hans síðan. Það held ég
að jafnt samherjar hans og and-
stæðingar taki undir.
Ég vil svo aðeins ljúka þessari
afmæliskveðju með beztu þökkum
og árnaðaróskum afmælisbarninu
til handa. Megir þú sem lengst, og
við sem bezta heilsu, njóta þess að
sitja á friðarstóli ævikvöldsins að
loknum löngum og stormasömum
starfsdegi!
Ólafur Björnsson
Þegar ég er setztur við ritvélina
með þeim ásetningi að senda
Hannibal Valdimarssyni kveðju
mína á áttræðisafmæli hans, þá
kemur mér fyrst í hug, að honum
kunni að þykja það síðbúin kveðja,
enda finnst mér það líka. Svo óra-
langt er síðan vegir okkar skildu,
ekki bara landfræðilega heldur
einnig á mislitu og örlagaríku
landabréfi stjórnmálanna.
En því sendi ég Hannibal þessa
stuttu kveðju mína nú, að hann
megi vita, að ég hafi ekki gleymt
samskiptum okkar á ísafjarðarár-
unum. Þangað kom ég fremur
ungur að árum, meðan Isafjörður
var enn „rauði bærinn", og svip-
miklir og eftirminnilegir stjórn-
málaskörungar Alþýðuflokksins
réðu þar lögum og lofum, enda
höfðu þeir þá þegar byggt upp á
ísafirði blómlegt athafna- og at-
vinnulíf á rústum einkaframtaks-
ins og heimskreppunnar. Glæsi-
legur skipastóll Samvinnufélags-
ins og Njarðar var talandi tákn
um dugnað og stórhug þessara
manna, og þá stóðu líka sjómenn
og verkafólk sem órofin heild að
baki forystumanna sinna.
Fljótlega komst ég í kynni við
þessa ísfirzku stjórnmálaskör-
unga Alþýðuflokksins, því að ég
var þegar kominn til liðs við Al-
þýðuflokkinn, áður en fundum
okkar bar saman. Þá ákvörðun
mun ég fyrst og fremst hafa tekið
við kennaraborðið á þeim tíma,
þegar börnin báru augljóst vitni í
klæðaburði og útliti um misjafnan
efnahag heimilapna.
Lengra verður ekki haldið út í
þá sálma hér en vikið að því, hver
urðu í raun og veru fyrstu kynni
okkar Hannibals Valdimarssonar,
sem þá var einmitt einn af þessum
forystumönnum Alþýðuflokksins
á ísafirði. Ég stundaði sjó-
mennsku á sumrin og gekk því
fljótlega í Sjómannafélag Isfirð-
inga. Þá var það dag einn, þegar
auglýstur hafði verið aðalfundur
félagsins, að Hannibal biður mig
að finna sig. Hans erindi við mig
var þá að biðja mig að gefa kost á
mér í sæti formanns í félaginu. Ég
mun ekki hafa verið óðfús til
þeirra starfa. Taldi mig ekki hafa
næga reynslu til að veita forstöðu
svo stóru félagi. En þeir sem
þekkja Hannibal geta vel ímyndað
sér að honum hafi ekki reynzt erf-
itt að kveða mig í kútinn.
Svo fór líka að ég gerðist for-
maður Sjómannafélags ísfirðinga
og gegndi því starfi í 17 ár. Síðar
átti ég sæti í stjórn Alþýðusam-
bands Vestfjarða um nokkurt ára-
bil. Hvort tveggja þetta reyndist
mér góður skóli og dýrmæt lífs-
reynsla, sem ég met mikils. Um
þau störf á ég margar minningar
um góða menn og málefni. Tel ég
þar drengilegan stuðning Hanni-
bals þungan á metum, því að öðr-
um harðduglegri og einlægari bar-
áttumanni í verkalýðshreyfing-
unni hefi ég ekki kynnzt.
Af framansögðu má ljóst vera,
að þátttöku mína í verkalýðs-
hreyfingunni má skrifa á reikning
Hannibals Valdimarssonar, þó að
bókhaldsmeistarar sögunnar hafi
það að sjálfsögðu í hendi sér,
hvort þeir færa honum þá smá-
muni til gjalda eða tekna. Sjálfur
ætla ég hins vegar að kveða upp
þann úrskurð, að á því pólitíska
landabréfi hafi leiðir okkar
Hannibals aldrei skilist.
Hér eru þó ekki öll kurl komin
til grafar í samskiptum okkar
Hannibals á ísafirði. Ég átti eftir
að vinna með honum í nokkrum
kosningabardögum, bæði í bæjar-
Ljósm. Mbl. ACiA
Húsavík:
Rakarameistarinn flytur
Rúnar Birgisson, rakarameistari, hefur rekið rakarastofu á Húsavík undan-
farin 10 ár og hefur verið í leiguhúsnæði á Garðarsbraut 15. Nú fyrir jólin
flutti hann rakarastofuna í nýtt eigið húsnæði að Stóragarði 11 og er þar í
hinum vistlegustu húsakynnum.
Tvö rit um sveitastjórnarmál
stjórnarkosningum og tvennum
alþingiskosningum, þegar hann
bauð sig fram á ísafirði fyrir Al-
þýðuflokkinn.
Þegar ég lít til baka til þeirra
tíma, finnst mér notalegt að
minnast þess, hvernig bjartsýni
hans og eldheitur áhugi fór eins og
stormsveipur um sali, þar sem
hann var á ferðinni og hreif okkur
með sér. Sannarlega væri þörf á
svipuðum gusti nú til að blása
ofurlítið á þá skammdegisfýlu,
sem yfirskyggir íslenzka pólitík
um þessar mundir.
Á þessum árum var Hannibal
líka ritstjóri Skutuls, blaðs Al-
þýðuflokksins á Vestfjörðum, og
þar átti hann einnig sinn þátt í því
að koma mér í kynni við blaða-
mennsku með því að gera mig að
aðstoðarmanni sínum á blaðinu,
bæði í kosningum og einnig meðan
hann var fjarverandi á þingi.
Um leið og ég sendi Hannibal
mínar beztu heillaóskir á þessu
stóra afmæli hans með óskum um
góðan bata, þar sem hann liggur
nú á sjúkrahúsi, vil ég einnig og
sérstaklega nota tækifærið, þótt
seint sé, að þakka honum og hans
ágætu konu, Sólveigu Ólafsdóttur,
fyrir þær mörgu hlýlegu og
skemmtilegu stundir, sem ég naut
á heimili þeirra, meðan þau
bjuggu á ísafirði. Þar eru börn
þeirra heldur ekki undanskilin.
Um þau á ég einnig góðar minn-
ingar, bæði á heimili þeirra og í
skólanum. Sólveigu og börnunum
sendi ég einnig góðar kveðjur.
Jón H. Guðmundsson
„Hann er áttræður sá gamli á
fimmtudaginn," var sagt við mig
fyrir nokkrum dögum. „Já,“ sagði
ég, „þú átt auðvitað við hann
Hannibal." Jú, það var rétt tii get-
ið. Sá aldna kempa fyllir áttunda
tuginn í dag og eru honum færðar
hugheilar afmælisóskir héðan að
vestan.
Ekki er það ætlun mín að tíunda
hér æviferil Hannibals Valdi-
marssonar, enda munu aðrir og
mér færari koma þar til skjala og
gera starfi hans og striti í þágu
íslenskrar alþýðu vegleg skil.
Ég hreifst persónulega á unga
aldri af eldmóði þessarar vígreifu
kempu, bæði í hinni pólitísku bar-
áttu hans, en ekki síður baráttu
hans til framdráttar málstað lít-
ilmagnans í þjóðfélaginu, barátt-
unni fyrir auknum mannréttind-
um og bættum kjörum hinna
snauðu. Auðvitað hlaut svo að
fara, að jafn aðsópsmikill baráttu-
maður og Hannibal var, yrði um-
deiidur og um hann næddu naprir
norðanvindar og hinn þíði sunnan-
blær, enda mun öllum ljóst sem á
einhvern hátt til þekkja, að í því
skiptust á skin og skúrir. Varla
gat öðru vísi farið í starfi svo víg-
reifrar, sókndjarfrar og baráttu-
glaðrar kempu sem Hannibal var.
Ég veit að á þessum tímamótum
í ævi þinni, Hannibal, er víðast
hvar af landinu, kannski mismun-
andi mikið, hugsað til þín, til
þeirra ára er þú stóðst í fylk-
ingarbrjósti í fremstu víglínu og í
forystu fyrir þeim, sem vildu
leggja lóð á vogarskál fyrir lítil-
magnann í þjóðfélaginu. Megi sá
kraftur, sú fórnfýsi og trú á bar-
áttuna og málstaðinn, sem þú
sýndir í þínu starfi, verða vegvísir
og leiðarljós þeim, sem við
merkinu hafa tekið og kunna að
taka síðar.
Ég veit ég mæli fyrir munn
allra velunnara þinna hér á Vest-
fjörðum, þegar ég óska þér inni-
lega til hamingju á áttugasta af-
mælisdeginum þínum og bið þess,
að ævikvöldið verði bjart og þú
megir sem lengst ylja þér við
minningar viðburðaríks og árang-
ursríks ævistarfs, ekki síst frá
störfum þínum hér vestra.
Lifðu heill, gamli vinur.
Karvel Pálmason
HANNIBAL Valdimarsson, fyrrv.
ráðherra og forseti ASÍ, er áttræöur í
dag, fimmtudaginn 13. janúar.
Vegna sjúkrahúsdvalar þessa dag-
ana getur hann ekki veitt viðtöku
vinum og vandamönnum, sem hefðu
viljað samfagna honum á áttræðis-
afmælinu.
Hann hefur hins vegar fullan hug
á að gera það innan skamms. Það
verður auglýst sérstaklega síðar.
BÆNDASKÓLINN á Hvanneyri
hefur gefið út tvö rit eftir Björn S.
Stefánsson, dr. scient., um sveitar-
stjórnarmál. í öðru þeirra, Hrepp-
stjórn og héraðsstjórn, er greint frá
starfsemi sveitahreppa, atvinnu-
rekstri sveitarfélaga í þéttbýli og
strjálbýli, starfsemi sýslufélaga og
samstarfi sveitarfélaga (fjölrit nr.
41/ 1982).
í hinu ritinu, Nýskipan sveit-
arstjórnar á íslandi — tilraunir
og árangur (fjölrit nr. 42/ 1982),
er fjailað um stækkun sveitarfé-
laga sem verið hefur á dagskrá
undanfarna þrjá áratugi, þar
sem markmiðið hefur verið svo
stór sveitarfélög, að fela mætti
þeim verkefni sem ríkið hefur
með höndum og hvernig ekki hef-
ur tekist að benda á þá gerð
sveitarfélaga sem heppileg væri
að þessu leyti.
Verkið var unnið á vegum
stjórnmálafræðisambands. Norð-
urlanda með fjárstyrk úr Vís-
indasjóði og menningarmálasjóði
Norðurlanda og í samstarfi við
stjórnmálafræðinga á Norður-
löndum sem fjölluðu um skyld
mál í sínum löndum, tveir frá
hverju landi.
Opiö
til kl. 6
á laugardag
Útsala
Mikil verðlækkun