Morgunblaðið - 13.01.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
19
Jákvætt hugarfar
Allt mælir því með því, að nú sé
skynsamlegast að venda kvæði
sínu í kross og taka til við að
byggja upp ákveðna en fáa lykil-
staði úti á landi, sem yrðu þess
megnugir að verða þjónustumið-
stöðvar fyrir sína landshluta og
standa undir þeirri iðnaðarupp-
byggingu, sem koma skal. Hér
beinast augun fyrst að Akureyri.
Akureyri er eini staðurinn utan
Reykjavíkur í dag, sem tiltölulega
auðvelt væri að efla og gera að
þjónustumiðstöð fyrir allt Norð-
urland og skapa þannig mótvægi
við höfuðborgarsvæðið. Það væri
þjóðhagslega hagkvæmt að mynda
svo öflugan þéttbýliskjarna við
Eyjafjörð, að hann gæti tekið við
því hlutverki að vera undirstaða
atvipnulífs og menningar á öllu
Norðurlandi. Þetta er ekki aðeins
þjóðhagslega hagkvæmt, heldur
þjóðarnauðsyn. Ef fólk á Norður-
landi og á Akureyri fer að flykkj-
ast til höfuðborgarinnar í at-
vinnuleit og í von um betri lífsaf-
komu fer illa fyrir þjóðinni allri
og ekki sízt höfuðborginni, sem
engan veginn getur staðið undir
meiri fólksfjölda þar eins og áður
var sagt. Það þarf því að koma
þjóðarátak til þess að styrkja
byggð á Akureyri og lyfta upp at-
vinnulífi þar. Þar þarf að myndast
á tiltölulega fáum árum um 30
þúsund manna bær til þess að geta
sinnt því hlutverki að verða sá
bakhjarl, sem er nauðsynlegur
sveitunum, kauptúnum og smærri
kaupstöðum á öllu Norðurlandi.
Með þjóðarátaki á ég við, m.a.,
að samgöngur við Akureyri verði
efldar og fái forgang. Lokið verði
við að leggja veg með bundnu slit-
lagi alla leið frá Blönduósi um Ak-
ureyri til Húsavíkur svo og til
Ólafsfjarðar, Siglufjarðar og
Sauðárkróks. Þá má ekki gleyma
vegalagningu um sveitir Eyja-
fjarðar, sem hafa orðið út undan í
vegamálum um langt skeið. Flug-
samgöngur og skipaflutningar
með Akureyri sem miðstöð verði
efld. Til þess að fjölga fólki í bæn-
um má stuðla að því, að útibú frá
sem flestum ríkisstofnunum verði
sett upp á Akureyri og má þá
minna á hugmyndir, sem áður
hafa komið fram um undibún-
ingsdeildir fyrir Háskóla íslands á
Akureyri svo og, að Tækniskóli ís-
lands flytjist til Akureyrar.
Sams konar þéttbýliskjarnar
þurfa að myndast í öðrum lands-
hlutum þótt síðar verði og ef til
vill í smærri stíl. Þetta er í mínum
huga byggðastefna, sem hefur í
för með sér jafnvægi í byggð
landsins fremur en núverandi
dreifbýlisstefna, sem mun áður en
langt um liður leggja alla byggð á
landinu, utan Reykjavíkur, í auðn.
Kína:
Breyting-
ar í vændum
1‘eking, 10. janúar. AP.
KÍNVERSKIR umbótasinnar hafa
unnið sigur á þeim sem engar
breytingar vilja á efnahagsmálum
og hleypt af stokkunum umfangs-
miklum breytingum í þá átt að
styrkja einkarekstur og binda enda
á þá aldagömlu hefð að allir borða
úr sömu skálinni.
Vestrænir fréttaskýrendur
segja þessar breytingar hafa ver-
ið samþykktar fyrir nokkru og í
því sambandi segir hið opinbera
kínverska dagblað sem ritað er á
ensku, „China Daily“, í dag:
„Breytingar eru djarfar en örugg-
ar ... Hrísgrjónapotturinn og
skálin sem borðað er sameigin-
lega úr verða að hverfa."
Einnig er haft eftir vestrænum
fréttaskýrendum að umbótasinn-
ar eins og Deng Xiaoping, Hu
Yaobang og Zhao Ziyang hafi
stutt breytingarnar og ákveðið að
þetta væri rétti tíníinn til að láta
þær fram ganga.
Miklar deilur hafa verið und-
anfarin ár um þessi atriði og hafa
margir sett sig upp á móti breyt-
ingum í þessa átt, þar sem þær
þjóni einungis þeim tilgangi að
„snúa aftur til þjóðskipulags kap-
ítalismans".
eftir Emil Magnús-
son, Grundarfirði
HELGINA 15. og 16. þ.m. fer fram
prófkjör hjá sjálfstæðismönnum á
Vesturlandi vegna komandi kosn-
inga til Alþingis síðar á þessu ári.
Nokkurrar eftirvæntingar gætir í
sambandi við prófkjör og ber þar
einkum tvennt til. Hið fyrra er að
á meðal þeirra, sem gefa kost á sér
í prófkjörinu, er núverandi
dómsmálaráðherra Friðjón Þórð-
arson, sem skipaði efsta sæti lista
sjálfstæðismanna við síðustu
kosningar. Hið síðara er, að sá,
sem þá var í öðru sæti, Jósep
Þorgeirsson, alþingismaður, tekur
ekki þátt í þessu prófkjöri.
Nokkuð hefur borið á því að viss
öfl, einkum utan raða sjálfstæð-
ismanna, gera mikið veður út af
þeim ágreiningi sem varð við
myndun núverandi ríkisstjórnar
og telja gengi flokksins í lágmarki
af þeim sökum. En hér er mikill
misskilningur á ferðinni. Ég
minnist þess ekki að hafa í annan
tíma heyrt meiri baráttuhug í
mönnum hér um slóðir en einmitt
nú.
Friðjón Þórðarson hefur átt hér
sívaxandi velgengni og virðingu að
fagna, og er það að maklegleikum.
Hann hefur upplýst það frammi
fyrir alþjóð hver er afstaða hans
fyrir og eftir þessar kosningar og
þarf enginn að vera í vafa þar um.
Allt holtaþokuvæl undan hlíðum
beggja vegna Skarðsheiðar breyta
hér engu. Hann er og þeirrar ger-
ðar að geta öðrum mönnum frem-
ur borið klæði á vopnin og sætt
ólík sjónarmið. Það er skoðun fjöl-
margra hér heima í héraði að for-
ysta flokksins í þessu kjördæmi sé
hvergi betur komin en einmitt
með því að skipa Friðjóni Þórðar-
syni sem veglegastan sess í kom-
andi prófkjöri. Góðu heilli er það
ennþá svo, að fjölmörgum finnst
Friðjón Þórðarson
það kostur á hverjum manni að
þora að hafa sannfæringu og
fylgja henni.
TOYOTA
Fjórir sterkir og öruggir
við allar aðstæður...
TERCEL 4x4
Þennan bíl köllum viö bíl framtíöarinnar. Sparneytinn
með 1500 cc vél. Drif á öllum hjólum. 6 gírar áfram.
Bíll meö þægindi fólksbíls — notagildi jeppans og útlit
framtíöarbílsins.
LAND CRUISER STATION
Glæsilegur bíll meö styrkleika jeppans, en aksturseig-
inleika og þægindi fólksbílsins. Bíll til aö mæta þörf
þeirra sem ferðast mikið. Vökvastýri, veltistýri, 6 cyl.
diselvél 3900 cc. 4ra gíra 4x4, 5 dyra.
HI-LUX
Lipur og sparneytinn. Vinnutæki sem hentar öllum. 2ja
og 4ra hjóla drifinn. Bensílvél 2000 cc, 4ra gíra.
LAND CRUISER JEPPI
Bíll sem fengiö hefur viöurkenningu um allan heim fyrir
styrkleika og gæöi.
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOÐIÐ
NYBYLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SIMI44144