Morgunblaðið - 13.01.1983, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
21
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JOHN KIFNER
Götumynd frá Krakow. Pélskir hermenn halda rifflum sínum fyrir aftan bak meðan þeir ganga um aðaltorg
borgarinnar.
Yfirmenn vestrænna fréttastofa í Póllandi uggandi vegna
pólskra starfsmanna sinna:
Stjórnvöld neita að
endurnýja starfsleyfi
Pólskir starfsmenn vestrænna sendiráða og fréttastofa eiga nú undir
högg að sækja hjá yfirvöldum, sem meina þeim um endurnýjun starfs-
leyfa sinna.
Pólsk yfirvöld hafa nú neitað að
endurnýja starfsleyfi til handa
pólskum starfsmönnum vestrænna
fréttastofa og hafa einnig í fram-
haldi af því gert slikt hið sama við
pólska starfsmenn vestrænna
sendiráða í landinu.
Aðgerðir þessar koma ekki á
óvart þar sem þær koma í
kjölfar síversnandi samskipta
Bandaríkjanna og Póllands og
sitja önnur vestræn ríki þar við
sama borð, þrátt fyrir að banda-
ríska sendiráðið verði verst úti.
Þar hafa til skamms tíma starf-
að 41 pólskra starfsmanna og
eru nú leyfi þeirra útrunnin inn-
an skamms og hefur ekki fengist
vilyrði fyrir endurnýjun þeirra.
Þetta er 20 prósent allra
starfsmanna bandaríska sendi-
ráðsins þar í landi, þannig að
mikið er í húfi verði þeim öllum
meinað að starfa.
Öll starfsleyfi fyrir þetta ár
renna út á föstudag, 14. janúar,
og hefur fjölmörgum verið neit-
að um áframhaldandi starfsleyfi
á undanförnum dögum. Þeim
sem meinað hefur verið um
áframhaldandi starf í landinu
eru túlkar og aðstoðarmenn er-
lendu fréttastofanna, svo sem
starfsmenn New York Times,
ABC News, CBS News, AP, Un-
ited Press International og
Reuter.
í sumum tilfellum er ekki um
neina útskýringu að ræða frá
stjórnvöldum, en öðrum er tjáð
að þeir hafi brotið í bága við lög
sem starfsleyfunum fylgja með
því að blanda sér í mál sem þeim
koma ekki við ... Svo mörg eru
þau orð.
Fulltrúar hinna fjórtán er-
iendu fréttastofa í Póllandi
sendu síðastliðinn mánudag bréf
til Stefan Olszowskis, utanríkis-
ráðherra, en mál þessi varða
ráðuneyti hans. í bréfi þessu er
farið fram á aðstoð hans við að
fá framlengingu leyfa pólsku
starfsmannanna og þeim rökum
þar beitt, að neitun á framleng-
ingu þeirra hefði „alvarleg áhrif
á getu fréttastofanna til að full-
nægja þeim skilyrðum sem af
þeim er krafist í Póllandi".
Þennan sama dag var tveimur
beiðnum um framlengingu á
starfsleyfum hafnað af yfirvöld-
um án nokkurra útskýringa,
þ.á m. annarri frá fréttastofunni
New York Times.
Vestrænir stjórnarerindrekar
í Póllandi líta á þessar aðgerðir
stjórnvalda sem skýr merki þess,
að sambúð pólskra stjórnvalda
og vestrænna ríkja fari nú hríð-
versnandi.
Pólsk stjórnvöld eru greini-
lega óánægð með þær viðtökur
sem tilkynning þeirra um afnám
herlaga i landinu hlaut á Vestur-
löndum, en þannig túlka þau
þann varnagla sem sleginn var á
Vesturlöndum er tilkynningin
var birt. I framhaldi af þessari
óánægju sinni tilkynntu pólsk
stjórnvöld síðan þann 14. des-
ember síðastliðinn, að þau hefðu
sett auknar hömlur á vegabréfs-
áritanir til Bandaríkjanna og
einnig hefði verið skorið á öli
vísinda- og menningarleg tengsl
við þau vegna „afskipta þeirra af
innanríkismálum Póllands". í
yfirlýsingu þeirra þann dag seg-
ir einnig: „Stjórnvöld í Póllandi
voru neydd til að taka þessa
ákvörðun til að vernda stjórn-
mála-, vísinda- og menningar-
lega hagsmuni þjóðarinnar."
I fregnum frá vestrænum
stjórnarerindrekum í Póllandi
segir einnig að pólskir starfs-
menn bandaríska sendiráðsins í
Varsjá hafi að undanförnu orðið
að þola ásakanir af ýmsu tagi að
undanförnu, svo sem að skera á
hjólbarða, líma myndir af
Bandaríkjamönnum á bíla og
annað þvíumlíkt.
Einnig hefur komið fram að
hópar lögreglu hafa að undan-
förnu staðið fyrir utan banda-
ríska sendiráðið í þeim tilgangi
að krefja pólska starfsmenn þar
um skilríki, pappíra og starfs-
leyfi þeirra. Einnig mun nokkr-
um pólskum starfsmönnum hafa
verið skipað til yfirheyrslu seint
að kvöldi, þegar þeir voru á
heimleið að loknum vinnudegi.
Tengsl milli pólskra stjórn-
valda og erlendra fréttamanna
hafa breyst mikið að undanförnu
og eru nú þvinguð og stirð. Það
var í fyrsta skipti í byrjun janú-
ar á þessu ári sem fréttamenn
voru látnir undirrita strangar
reglugerðir áður en þeir fengu
starfsleyfi sín.
(Heimild: New York Times.)
Aðalfundur
fulltrúa-
ráðsins
Aöalfundur fulltrúaráös
Sjálfstæöisfélaganna í
Reykjavík veröur haldinn
fimmtudaginn 13. janúar
nk. kl. 20.30
í Valhöll.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöal-
fundarstörf.
2. Davíö Oddsson,
borgarstjóri flytur
ræöu.
Stjórn fulltrúaráösins.
Verzlunarskóli
íslands
- starfsnám
Tímabiliö 17. janúar til 25. mars 1983 mun Verzl-
unarskóli Islands halda námskeið fyrir starfandi
fólk í atvinnulífinu sem hér segir:
1. Vélritun 60 st. kr. 2.000.-
Fingrasetning, uppsetning bréfa o.fl., hraöaæfing
og notkun diktaphons. Stefnt aö vélritunarhraða
40 orð á mínútu.
2. Tölvufræði 60 st. kr. 3.600.-
Kynning á tölvunotkun, tölvum og helstu hugtök-
um viö tölvuvinnslu. Undirstööuatriði BASIC forit-
unarmáls, kennd og unnin æfingaverkefni, forrit
lesin og skýrö. Skráargerð á kasettu og diskettu
kynnt, svo og útprentun þeirra ásamt tölvuvæddri
skýrslugerð og bókhaldi.
3. Bókfærsla í 60 st. kr. 1.800.-
Almenn færslutækni í tvöföldu bókhaldi og upp-
gjör. Æfingaverkefni.
4. Ensk verzlunarbréf 40 st. kr. 1.200.-
Orðaforði og uppsetning enskra bréfa, telexskeyta
og í símtölum. Stílagerð og málæfingar.
5. Rekstrarhagfræði 40 st. kr. 1.200.-
Helstu grundvallarhugtök rekstrarhagfræðinnar
kynnt og farið yfir æfingar í rekstri verzlunarfyrir-
tækja og gerð greiðsluáætlana. Raunhæf dæmi
með aðstoð tölvu.
Kennsla fer fram í húsakynnum skólans kl.
17.30—20.30 þrjá daga vikunnar.
Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu skól-
ans og ber aö skila þeim útfylltum ásamt greiðslu
fyrir námskeiðsgjöldum fyrir 15. janúar 1983.
Fræðslusjóður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
styrkir fullgilda félagsmenn til þátttöku í starfs-
náminu. Endurgreiðsla hluta námskeiðsgjaldsins
fæst á skrifstofu félagsins.
Verzlunarskóli íslands
Grundarstíg 24, Reykjavík, sími 13550.