Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
Dauðadóms krafist
yfir 260 mönnum
Ankara, 12. janúar. AP.
MESTU fjöldaréttarhöld í Tyrklandi til þessa hófust í dag í borginni Amasya
en sakborningarnir eru samtals 740 að tölu.
Við upphaf réttarhaldanna
krafðist ríkissaksóknarinn þess,
að 260 mannanna yrðu dæmdir til
lifláts og gaf hann þeim að sök að
hafa ætlað að steypa stjórninni og
koma á kommúnísku einræði.
Fyrir hina fór hánn fram á fimm
til fimmtán ára fangelsi.
Allir eru sakborningarnir félag-
ar í Dev Yol-samtökunum, sem
hafa marxismann að leiðarljósi og
hafa staðið fyrir mörgum hryðju-
verkum í Tyrklandi. Aðalákæran
hljóðar upp á tilraun til stjórnar-
byltingar, sem átti að hefjast með
töku borgarinnar Fatsa á Svarta-
hafsströndinni. Þeir eru einnig
sakaðir um 90 pólitísk morð, 36
morðtilraunir, mannrán,
sprengjutilræði og rán, sem fram-
in hafa verið sl. tvö ár. Búist er við
að réttarhöldin muni standa árið
út.
Síðustu tvö árin áður en herinn
tók völdin í Tyrklandi féllu 5.000
manns í pólitískum ofbeldisverk-
um. Síðan hafa 23.752 manns verið
fangelsaðir og 16 hengdir fyrir
morð.
MacArthur fékk
lífstlðarfangelsi
Dyninni, 12. janúar. AP.
MALCOLM MacArthur, sem hand-
tekinn var í ágúst sl. fyrir tvö morð,
var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi
fyrir annað morðanna, á hálfþrítugri
hjúkrunarkonu. Búist hafði verið við
löngum réttarhöldum en á öðrum
degi þeirra játaði MacArthur skyndi-
lega á sig glæpinn.
Heilbrigð-
isráðherrann
sagði af sér
Washington, 12. janúar. AP.
HEILBRIGÐIS- og þjónustumála-
ráðherra Bandaríkjanna, Richard S.
Schweiker, sagði af sér í gær, en
Ronald Reagan forseti skipaði strax
frú Margret Heckler í hans stað. Er
hún önnur konan sem tekið hefur
sæti í stjórn Reagans á síðustu 2
vikum. Schweiker gaf engar skýr-
ingar á ákvörðun sinni í gær, en hét
því að gefa út tilkynningu þar um í
dag. Hann er fjórði ráðherrann sem
segir af sér úe upprunalegri stjórn
Reagans og annar ráðherrann á
tveimur vikum.
„Hann var mjög hæfur maður í
sinni stöðu og það var með sem-
ingi að ég samþykkti uppsögn
hans,“ sagði Ronald Reagan. Eft-
irmaðurinn, Margret Heckler, er
frá Massachusetts og hafði verið
átta tímabil á þinginu uns hún féll
í nóvember. Hún var upprifin yfir
stöðuveitingunni og sagði: „Þetta
er stórkostlegt, stærsta stund lífs
míns og erfiðasta verkefnið."
MacArthur, sem er 36 ára að
aldri, var handtekinn í íbúð ríkis-
saksóknara írlands, Patrick Conn-
ollys, og olli það miklu hneyksli,
sem ekki bitnaði hvað síst á þáver-
andi forsætisráðherra, Charles
Haughey, nánum vini Connollys.
Sex stundum eftir handtökuna fór
Connolly til Bandaríkjanna en
sagði af sér embætti þremur dög-
um síðar þegar Haughey hafði
skipað honum að koma heim.
Connolly hélt því fram, að hann
hefði ekki haft hugmynd um að
MacArthur, vinur hans, væri eft-
irlýstur maður.
Minnihlutastjórn Haugheys og
flokks hans, Fianna Fail, féll í at-
kvæðagreiðslu um vantraust 1.
nóv. sl. og tapaði síðan þingkosn-
ingunum nú fyrir skemmstu.
Haughey hefur mjög átt í vök að
verjast innan flokksins að undan-
förnu enda hvert hneykslismálið
rekið annað og sér ekki fyrir end-
ann á þeim enn. Nú er nefnilega
búist við að Garret Fitzgerald,
forsætisráðherra, muni einhvern
næstu daga skýra frá rannsókn á
meintum hlerunum, sem Haughey
á að hafa heimilað á símum póli-
tískra andstæðinga sinna og
blaðamanna þegar hann var
forsætisráðherra. Irsk lög leyfa
aðeins símahleranir ef öryggi
ríkisins er í veði. Yfirvöld hafa
einnig til rannsóknar þær ákærur
á fyrrum dómsmálaráðherra í
stjórn Haugheys, að hann hafi
haft afskipti af gangi sumra mála
fyrir rétti og störfum lögreglunn-
ar.
Laganeminn Barbro Andenes, sem stóð háttsettan starfsmann í norska ríkisbókhaldinu að því að skera út síður
úr verðmætum landakortum, með „Den Danske Atlas" sér við hlið.
Háttsettur embættismaður
uppvís að miklum þjófnaði
Noregur:
— skar 300 landakort og teikningar úr fágæt-
ustu bókunum á Háskólabókasafninu í Osló
Osló. 12. janúar. Al*.
HÁTTSETTUR og virtur emb-
ættismaður í norska ríkisbók-
haldinu var í dag ákærður fyrir
að hafa stolið a.m.k. 300 landa-
kortum og teikningum úr fágæt-
ustu bókunum á Háskólabóka-
safninu í Ósló. Er hér um að
ræða mikil verðmæti.
Norska ríkisútvarpið skýrði í
dag frá nafni mannsins en
hann er Kjell Kvavik, 52ja ára
gamall og næstæðsti yfirmað-
ur ríkisbókhaldsins. Kjell var
staðinn að verki þegar hann
var að skera nokkrar blaðsíður
úr sjaldgæfri bók og hefur nú
verið krafist gæsluvarðhalds
yfir honum í tvær vikur. Lög-
reglan vill nota þann tíma til
að kanna hvort hann hafi einn-
ig látið greipar sópa um önnur
söfn í Noregi og erlendis.
Að sögn aðalbókavarðarins í
Háskólabókasafninu, Bendic
Rugaas, eru sum kortin metin
á allt að 20.000 ísl. kr. og eru úr
bókum frá 15., 16. og 17. öld.
Það var ung kona og lagastúd-
ent, Barbro Andenæs, sem stóð
Kjell Kvavik að verki en hún
kom að honum þar sem hann
var að skera síður úr hinni
frægu bók Eriks Pontoppidans,
„Dansk Atlas“, frá 1764 og lét
safnverðina strax vita af því.
Meðal þess, sem Kvavik hef-
ur stolið, eru sjaldgæf kort af
Bretlandseyjum en þau hafði
hann raunar selt fornbóksala í
Ósló og er óttast, að svo sé um
fleiri. Einnig hafði hann skorið
teikningar úr hinni víðfrægu
bók Olaus Magnus um Norður-
löndin, sem gefin var út í Róm
árið 1539. Er þar um að ræða
fyrstu lituðu kortin af Norður-
löndum, sem vitað er um, og
þykja hin mesta gersemi.
Þetta mál hefur vakið mikla
athygli í Noregi og raunar víð-
ar. Kjeil Kvavik hefur jafnan
notið virðingar samborgara
sinna og safnverðirnir treystu
honum fullkomlega. Barbro
Andenæs segir svo frá, að þeg-
ar hún sá hvað Kvavik hafðist
að, hafi hún fyrst ræskt sig til
að gefa til kynna að hún vissi
hvað hann væri að gera, en þá
hefði hann bara fært sig um
set og haldið áfram að skera út
síðurnar eins og ekkert væri.
„Þá gekk ég að honum og sagð-
ist verða að segja til hans,“
sagði Andenæs. „Hann umlaði
bara eitthvað og ég sneri mér
til safnvarðarins."
„Þú hlýtur að sjá ofsjónir,"
sagði safnvörðurinn þegar
Andenæs hafði sagt honum allt
af létta. „Maðurinn er kunnur
embættismaður í ríkisbókhald-
inu og virtur lögfræðingur.“
Andenæs sat þó við sinn keip
og þá var farið að athuga mál-
í fullum gangi
Opiö í kvöW til kl. 20
TJ APIT ATTT> Skeifunni 15
IlAuIiAU 1 Reykjavík