Morgunblaðið - 13.01.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
27
Frambjóðendur í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins
í Vesturlandskjördæmi
PRÓFKJÖR Sjálfstæðis-
flokksins í Vesturlandskjör-
dæmi fer fram um næstu
helgi, 15. og 16. janúar,
klukkan 14—22 báða dag-
ana. í framboði til prófkjörs
eru sjö menn og konur;
Davíð Pétursson, bóndi
Grund Borgarfjarðarsýslu,
Friðjón Pétursson, ráðherra
Stykkishólmi, Inga Jóna
Þórðardóttir, framkvæmda-
stjóri Akranesi, Kristjana
Agústsdóttir, Búðardal,
Kristófer Þorleifsson, hér-
aðslæknir Ólafsvík, Sturia
Böðvarsson, sveitarstjóri
Stykkishólmi og Valdimar
Indriðason, framkvæmda-
stjóri Akranesi.
Kjörstaðir í prófkjörinu eru
sem hér segir:
Akranes: Sjálfstæðishúsið,
Heiðargerði 20. Borgarfjarðar-
sýsla: Heiðarskóli, Leirársveit,
Logaland, Reykholtsdal. Mýra-
sýsla: Skrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins, Borgarbraut 1, Borg-
arnesi. Dalasýsla: Dalabúð, Búð-
ardal, Tjarnarlundur, Saurbæj-
arhreppi, Staðarfell, Fellsstrand-
arhreppi. Snæfellsnes- og
Hnappadalssýsla: Lionshúsið,
Stykkishólmi, Skrifstofa Guð-
mundar Runólfssonar hf.,
Grundarfirði, Skrifstofa Hrað-
frystihúss Ólafsvíkur, Snæfellsás
7, Hellissandi, Lýsuhóll, Stað-
arsveit, Lindartunga, Kol-
beinsstaðarhreppi.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
er í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
Reykjavík, í dag og á morgun kl.
9— 12 og 13—17, og laugardag kl.
10— 12, einnig á kjörstöðum á
Akranesi, Grundarfirði og
Ólafsvík í dag og á morgun kl.
18-19.
Atkvæðisrétt hafa stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins í
Vesturlandskjördæmi sem náð
hafa 20 ára aldri 1. apríl 1983,
svo og flokksbundnir sjálfstæð-
ismenn á aldrinum 16—20 ára. A
atkvæðisseðilinn skal merkja
með tölustöfum við 3 til 5 nöfn.
Inga Jóna Þórðardóttir framkvæmda-
stjóri, Akranesi.
Sturla Böðvarsson sveitarstjóri,
Stykkishólmi.
Davíð Pétursson bóndi Grund,
Borgarfjarðarsýslu.
Kristjana Ágústsdóttir verzlunarmað-
ur, Búðardal.
Valdimar Indriðason framkvæmda-
stjóri, Akranesi.
Friðjón Þórðarson ráðherra, Stykkis-
hólmi.
Kristófer Þorleifsson, héraðslæknir,
Olafsvík.
Aldraðir í
umferðinni
AÐ FRUMKVÆÐI Norðurlanda-
ráðs hefur verið ákveðið að árið
1983 verði helgað baráttu gegn um-
ferðarslysum. Hefur því verið valið
heitið Norrænt umferðaröryggisár.
Er ákveðið að beina sérstakri athygli
að hinum svonefndu óvörðu vegfar-
endum, þ.e. öldruðum, fótluðum,
börnum, gangandi fólki og hjólreiða-
mönnum.
Af þessu tiiefni hefur verið
stofnað til samstarfs milli öldrun-
arráðs íslands og Umferðarráðs
um að efna til fundar um aldraða í
umferðinni. Er ákveðið að fundur-
inn verði haldinn föstudaginn 21.
þ.m. að Borgartúni 6, 4. hæð.
Til fundarins eru sérstaklega
boðaðir fulltrúar aðila Öldrunar-
ráðs Islands og fulltrúar í Um-
ferðarráði. Auk þess er fundurinn
opinn öllum öðrum sem áhuga
hafa á baráttu gegn umferðarslys-
um aldraðra, svo sem fulltrúum
félaga og stofnana, sem ætla má
að vilji sérstaklega sinna þessu
málefni á árinu. Er markmið
fundarins m.a. að reyna að sam-
ræma aðgerðir þeirra.
FrúUaiilkynninj' frá 1'mferAarráAi.
Jafntefli réðu ríkjum í Gausdal
MIKIÐ var um jafntefli á alþjóðlega skákmótinu í Gausdal i Noregi i gær. ’l vær
umferóir voru tefldar. Margeir Pétursson tefldi við Guðmund Sigurjónsson og var
um hörkuskák að ræða. Margeir fórnaði manni fyrir mikla sókn, en (iuðmundur
varðist vel og eftir 30 leiki sömdu þeir jafntefli eftir að þrátefli kom upp og vakti
skák þeirra mikla athygli. Karl Þorsteins gerði jafntefli við Binham frá Kinnlandi
en skák Sævars Bjarnasonar og Westerinen fór í bið.
Sjötta umferðin var tefld í gærdag
og tefldi Guðmundur Sigurjónsson
þá við Kudrin frá Bandaríkjunum,
landflótta Sovétmann. Viðureign
þeirra varð æsispennandi og vakti
skák þeirra mikla athygli. Guð-
mundur fórnaði manni fyrir mikla
sókn en Kudrin varðist vel og lyktaði
skákinni með jafntefli. Margeir Pét-
ursson tefldi við Binham frá Finn-
landi og gerðu þeir jafntefli, Sævar
Bjarnason gerði jafntefli við Berg
frá Danmörku en Karl Þorsteins
tapaði fyrir Wedberg frá Svíþjóð.
Kudrin og Ögaard, Noregi, eru
efstir og jafnir með 4 vinninga og
innbyrðis biðskák, sem líklega endar
með jafntefli. í 3.-6. sæti eru Mar-
geir, Wedberg, King, Englandi, og
Binham með 4 vinninga. Guðmundur
og Karl Þorsteins hafa hlotið 3'/2
vinning.
Nýtt happdrættisár HHI að hefjast:
Háskólinn byggir eingöngu fyr
ir happdrættisfé á þessu ári
HEILDARFJÁRHÆÐ vinninga í
Happdrætti Háskóla íslands á
happdrættisárinu sem nú er að
hefjast er kr. 22.800.000,- og svarar
sú upphæð nær 1000 krónum á
hvert mannsbarn í landinu. Vinn-
ingar eru alls 135.000.- Hæsti vinn-
ingur er nú kr. 500.000.-, þannig að
ef hinn heppni á alla 9 miöana af
sama númeri, fær hann kr.
4.500.000.-. Endurnýjunarverð
miða hefur hækkað í 50 krónur og
er það til samræmis við almenna
verðþróun í landinu.
Þessar upplýsingar og ýmsar
fleiri komu fram á fundi, sem
happdrættið efndi til með blaða-
mönnum og nokkrum heppnum
vinningshöfum frá síðasta ári.
Um happdrættið sjálft kom
eftirfarandi fram:
HHI tekur í notkun tölvu
„Forsvarsmenn Happdrættis
Háskóla íslands eru bjartsýnir
um horfurnar í rekstrinum á ár-
inu 1983. Viðskiptavinirnir spila
í happdrættinu sér til ánægju og
í von um vinning. HHÍ er eina
happdrættið, sem að lögum
greiðir vinninga sína út í reiðufé.
Allir vinningar þess eru undan-
þegnir tekjusköttum. En jafn-
framt styrkja viðskiptamenn og
efla Háskóla Islands og stuðla
þannig að aukinni þekkingu og
bættri menntun í landinu. Þörf-
in fyrir happdrættisfé í þessum
tilgangi hefur sennilega aldrei
verið brýnni en nú.
Með tæknilegum breytingum,
sem gerðar hafa verið á rekstri
HHÍ á árinu 1982 þ.e. tölvu-
vinnslu, er nú auðveldara en áð-
ur, þrátt fyrir aukna sölu, að út-
vega miða með ákveðnum núm-
erum, t.d. þegar viðskiptavinur-
inn vill fjölga við sig miðum af
sama númeri. Þeir, sem vilja
notfæra sér þetta, þurfa að hafa
samband við umboðsmenn sína
sem allra fyrst.'
komu fram um húsnæðismál
Háskóla íslands:
„Fjöldi nemenda í Háskóla ís-
lands verður á þessu ári um
4.000. Eins og fram hefur komið
í fréttum hefur aðsókn aukist
mikið á síðustu árum. Nær þriðji
hver tvítugur íslendingur tekur
nú stúdentspróf í stað sjöunda
hvers árið 1970 auk þess sem
þeir sem eru 20—25 ára eru fleiri
en áður.
Af þessum ástæðum, auknum
rannsóknarumsvifum o.fl. er
Ijóst að háskólinn þarf á auknu
húsnæði að halda.
Eigið húsnæði háskólans er
um 21.500 m2 Af þessu rými eru
18.700 m2 í varanlegum húsum á
háskólasvæði. Þá hefur háskól-
inn húsnæði á leigu víðs vegar
um bæinn, samtals rösklega
5.000 m2
Samkvæmt breskum staðli
ætti háskóli af okkar stærð og að
teknu tilliti til skiptingar nem-
enda milli deilda að vera um
50.000 m2 í stað 26.500 m2
Húsnæði í byggingu er: Bygg-
ing á Landspítalalóð (mið- og
suðurkjarni) í þágu lækna- og
tannlæknadeildar, svonefnt
Hugvísindahús á háskólalóð við.
Sturlugötu (fyrri áfangi) og
grafið hefur verið fyrir næsta
áfanga fyrir verkfræði- og
raunvísindadeild vestan Suður-
götu. Tannlæknakennsla er að
flytjast á 2 hæðir í hinu nýja
húsi á Landspítalalóð. Sakir
fjárskorts verður ekki unnt að
halda áfram á fyrirhuguðum
framkvæmdahraða á þessu ári.
Allt fé úr ríkissjóði til fram-
kvæmda fer beint til greiðslu
opinberra gjalda af tækjum til
tannlæknadeildar. Verður því
einvörðungu byggt fyrir happ-
drættisfé á þessu ári. Þess ber að
geta að hluti af ágóða happ-
drættisins fer til viðhalds á eldri
byggingum, innréttingu á nýju
leiguhúsnæði og til tækjakaupa í
þágu allra deilda og námsbrauta.
Þá renna 20% af rekstraraf-
gangi happdrættisins til rann-
sóknastofnana atvinnuveganna."
4.000 nemendur í HÍ
Eftirfarandi upplýsingar
Heppnir vinnendur ásamt Guðmundi Magnússyni háskólarektor og Jóhannesi L.L. Ilelgasyni, framkvæmd-
astjóra HHÍ. Þetta voru hjónin Helga Karlsdóttir og Haukur Gíslason, (t.h.) sem hluiu hæsta vinning, kr.
200.000.- í desembcr 1982. Þau áttu trompmióann og einn venjulegan miða af vinningsnúmerinu og hlutu því
samtals kr. 1.200.000.- Ennfremur hjónin Lilja Gísladóttir og Marteinn Níelsson (t.v.). Þau hafa unnió þrisvar á
nífaldan miða á árinu 1982, þar á meðal hæsta vinning, kr. 20.000,- í júlí og fengu því kr. 180.000.- í þeim flokki.