Morgunblaðið - 13.01.1983, Síða 48
—A
^/Vskriftar-
síminn er 830 33
^Yglýsinga-
síminn er 2 24 80
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
Ljósm. Mbl. Ragnar Axelsson.
Stóísk ró og forvitni, auk þoss að kunna hið bezta að meta „matarbúr“ Rifshafnarbotns, einkenndi allar athafnir Rifshafnarrostungsins, er Mbl. leit
þar við í gaer. Sjá frásögn á miðopnu.
Cargolux leggur þremur þotum:
Allt að 100 starfsmönn-
um sagt upp á næstunni
Vestmannaeyjar:
Japanskt
skip tók niðri
Yestmannaeyjum, 12. janúar.
LAUST fyrir klukkan fjögur i dag
strandaði japanskt flutningaskip rétt
fyrir innan syðri hafnargarðinn í Vest-
mannaeyjahöfn á móts við loðnuþrær
FES. Lóðsinum tókst að ná skipinu á
flot aftur skömmu eftir að það tók
niðri.
Hér var á ferðinni skipiö Star
Ling frá Tokyo, sem á að lesta hér
fryst karfaflök. Skipið tók ekki
hafnsögumann um borð eins og
venjan er, heldur sigldi inn í höfn-
ina á eftir Herjólfi sem var að koma
frá Þorlákshöfn. Hvöss norðanátt
var hér í dag og lenti skipið of
sunnarlega í innsiglingarrennunni
og tók niðri á sandgrynningum. Svo
vel vildi til að flóð var og því tókst
vel til er lóðsinn kom á vettvang og
dró hann hið japanska skip áreynslu-
lítið á flot.
- Hkj
Keflavík:
Yfir 200 at-
vinnulausir
„VIÐ gáfum út 199 dagpeningavott-
orð síðasta föstudag og það hefur
stöðugt verið að bætast á atvinnuleys-
isskrána í þessari viku svo það eru
hátt á þriðja hundrað manns atvinnu-
lausir í Keflavík í dag,“ sagði Björg-
vin Árnason félagsmálafulltrúi i
Keflavík í samtali við Mbl. i gær.
Björgvin sagði að gott ástand
hefði verið í atvinnumálum í Kefla-
vík allt fram undir jól, en síðan
hefði atvinnuleysisskriða runnið af
stað. „Við búumst við að það eigi
eftir að verða veruleg fjölgun at-
vinnuleysingja á næstunni, en stór
hluti þess fólks fer af skránni þegar
bátarnir byrja að róa,“ sagði
Björgvin.
Þá sagði Björgvin að karlmenn
væru fleiri á skránni en undanfarin
ár. Astandið væri fyrst og fremst
til komið vegna stöðvunar í útgerð-
inni.
Willí
Boskovsky
til landsins
Konsertmcistarinn og hljóm-
sveitarstjórinn Willi Boskovsky er
væntanlegur hingað til lands í
næsta mánuði og mun hann þá
stjórna Hinfóniuhljómsvcit íslands
á Vínarkvöldi 10. febrúar.
Boskovsky er þekktastur fyrir
það, að hafa stjórnað nýárs-
konsert fílharmoníuhljómsveit-
arinnar í Vín síðastliðin 25 ár,
en þeim tónleikum er sjónvarp-
að víða um heim, meðal annars
eru þeir sýndir í íslenzka sjón-
varpinu. Eloskovsky leikur einn-
ig á fiðlu og var hann konsert-
meistari við fílharmoníu-
hljómsveitina í Vín og mun
hann einnig grípa í fiðluna á
Vínarkvöldi Sinfóníuhljómsveit-
arinnar hér. Boskovsky hefur nú
látið af stjórn nýárskonsertsins,
en er enn í fullu fjöri að sögn
Sigurðar Björnssonar, fram-
kvæmdastjóra Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, og áður en hann
kemur hingað til lands. mun
hann fara í hljómleikaferðir til
Bandaríkjanna og Filippseyja.
STJÓRN Cargolux-flugfélagsins í
Luxemborg hefur tekið ákvörðun um
að leggja annarri Boeing 747, Júmbó-
þotu, félagsins, og tveimur DC-8-þot-
um, sem það hefur haft í rekstri síð-
ustu árin. Félagið verður því aðeins
með eina Boeing 747, Júmbóþotu, i
rekstri á næstunni, að sögn Sigurðar
Helgasonar, forstjóra Flugleiða, sem
sæti á í stjórn Cargolux.
Sigurður Helgason- sagði enn-
fremur, að reynt yrði áfram að
finna vélunum þremur verkefni, og
hefði Jóhannes Einarsson, sem ver-
ið hefur framkvæmdastjóri hjá fé-
laginu, fengið það verkefni.
Aðspurður sagði Sigurður Helga-
son ennfremur, að þessi samdráttur
í starfsemi félagsins á næstunni
myndi hafa það í för með sér, að
allt að 100 starfsmönnum þess yrði
sagt upp störfum í þessum mánuði.
Um endanlegan fjölda væri hins
vegar ekki hægt að fullyrða á þess-
ari stundu.
Eins og kunnugt er hefur Cargo-
lux átt við gríðarlega rekstrarerfið-
leika að stríða undanfarið, sem m.a.
leiddi til þess, að hátt í tvöhundruð
starfsmönnum var sagt upp sl.
haust.
Aðalástæður vandræða félagsins,
eru annars vegar aukin samkeppni
og minnkandi flutningar, og hins
vegar erfið fjármögnun Boeing
747-véIa félagsins. Vélarnar voru
síðan endurfjármagnaðar á síðasta
ári á betri kjörum, en hins vegar
hefur ekki tekizt að finna vélum fé-
lagsins aukin verkefni.
Leitað var eftir aðstoð frá ríkis-
stjórn Luxemborgar, auk þess sem
tilraunir voru gerðar til að endur-
fjármagna fyrirtækið. Niðurstaðan
af því varð síðan sú, að ríkisstjórn
Luxemborgar keypti flugskýli fé-
lagsins á Findel-flugvelli og endur-
Ieigir félaginu þau. Síðan var
ákveðið að auka hlutafé félagsins
og ákveðið, að ríkisbankinn „Société
Nationale de Credits et d’In-
TVEIR af ellefu framkvæmdarstjórnar-
mönnum Alþýóuflokksins, þeir Ágúst
Einarsson, gjaldkeri flokksins og vara-
þingmaóur, og Garðar Hveinn Árnason,
fyrrum framkvæmdastjóri Alþýðuflokks-
ins, sögðu sig í gær úr framkvæmda-
stjórninni, og Ágúst sagði um leið af sér
stöðu gjaldkera. Tilkynntu þeir fram-
kvæmdastjórn flokksins þessa ákvörðun
sína í gærkveldi á fundi hennar, og viku
síðan af fundinum.
„Ástæður úrsagnar minnar úr
framkvæmdastjórninni eru sambland
persónulegra og pólitískra ástæðna",
sagði Ágúst Einarsson er blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi við hann í
gærkveldi. „Innan Alþýðuflokksins
hafa undanfarið komið upp mörg
vestissements í samvinnu við aðra
banka í Luxemborg yrði nýr hlut-
hafi.
Flugleiðir, sem áttu 25% hluta-
fjár, lýstu því hins vegar yfir, að
félagið hefði ekki bolmagn til að
koma inn með aukið hlutafé og er
því ljóst, að hlutur þess mun rýrna
verulega á næstunni. Á aukaaðal-
fundi 29- desember sl. var uppruna-
deilumál, sum kunn er, önnur hafa
farið lægra", sagði Ágúst ennfremur,
„og úrsögn mín tengist þeim.“ Er
hann var spurður hvort hann hefði
einnig sagt sig úr Alþýðuflokknum
sagði hann: „Ekki ennþá." Hann var
þá spurður, hvort hann myndi hugs-
anlega ganga til liðs við Bandalag
jafnaðarmanna, sem Vilmundur
Gylfason hefur tilkynnt að verði
stofnað innan tíðar, og sagði hann:
„Ég hef áfram jafnmikinn áhuga á
jafnaðarstefnunni og á stjórnmálum
almennt, það hefur ekki breyst. Annað
vil ég ekki segja um þetta atriði að svo
komnu."
Garðar Sveinn Árnason sagði í gær
legt hlutafé félagsins minnkað úr
400 milljónum franka í 100 milljón-
ir, en síðan verður það aukið á nýj-
an leik um allt að 600 milljónir
franka, þannig að það verði allt að
700 milljónir franka. Sigurður
Helgason sagði hins vegar aðspurð-
ur, að endanleg ákvörðun um hluta-
fjáraukninguna yrði ekki tekin fyrr
en í marzmánuði nk.
er blaðamaður Morgunblaðsins ræddi
við hann, að hann hefði í sumar er leið
verið búinn að ákveða að hætta í
framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins.
Síðan hefði flokksþingið í haust verið
sögulegt eins og mönnum væri í
fersku minni, og hefði hann þá orðið
við óskum manna um að gefa kost á
sér áfram. „Ég tilkynnti formanni
flokksins það í haust að ég vildi
hætta“, sagði Garðar, „en féllst síðar
á að vera áfram. Ég sé nú að sú ákvörð-
un mín var röng, en hin fyrri rétt, og
sagði mig því úr framkvæmdastjórn-
inni.“ Garðar sagðist ekki, að svo
stöddu að minnska kosti, segja sig úr
Alþýðuflokknum.
Alþýðuflokkurinn:
Tveir stjórnarmenn segja
sig úr framkvæmdastjórn