Morgunblaðið - 18.01.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
3
- -
Matthías Bjarnason
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
Einar K. Guöfinnsson
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum ákveðinn:
Tillaga kjörnefndar um
skipan listans samþykkt
FRAMBOÐSLISTI Sjálf-
stæðisflokksins í Vestfjarða-
kjördæmi var ákveðinn á
fundi kjördæmisráðs flokks-
ins sem haldinn var um helg-
ina, samkvæmt upplýsingum
sem Mbl. fékk hjá Engilbert
Ingvarssyni, formanni kjör-
dæmisráðsins.
Listinn er þannig skipaður: 1.
sæti: Matthías Bjarnason alþing-
ismaður, 2. sæti: Þorvaldur Garð-
„ÞAÐ er auóvitaö kjörinna fulltrúa
aö ákveöa með hvaöa hætti fram-
boðslistinn er lagöur fram og ákveð-
inn og það hefur komið í Ijós aö
meirihlutinn lagðist gegn prófkjöri
og síðan fór kjördæmisráöið í það að
skipa listann,** sagði Matthías
Bjarnason alþingismaður í samtali
við Morgunblaðið.
Matthías skipar efsta sæti
ar Kristjánsson alþingismaður, 3.
sæti: Einar K. Guðfinnsson út-
gerðarstjóri, 4. sæti: Hilmar
Jónsson sparisjóðsstjóri, 5. sæti:
Engilbert Ingvarsson bóndi, 6.
sæti: Sigrún Halldórsdóttir
skrifstofumaður, 7. sæti: Guð-
mundur Jónsson bóndi, 8. sæti:
Anna Pálsdóttir meinatæknir, 9.
sæti: Sigríður Harðardóttir
hreppsnefndarmaður og 10. sæti:
Asgeir Guðbjartsson skipstjóri.
A fundinum kom fram tillaga
um að viðhafa prófkjör í kjör-
dæminu, en hún var felld með 26
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í Vestfjarðakjördæmi. „Fyrir
mitt leyti fagna ég úrslitum kosn-
ingarinnar í kjördæmisráðinu og
ég hef ekkert nema gott að segja
um allt það fólk sem listann skip-
ar og vona að hann nái sem best-
um árangri fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn og þar með fyrir þjóðina alla,“
sagði Matthías Bjarnason.
atkvæðum gegn 17. Kosið var um
menn í nokkur sæti listans. í
fyrsta sætið var kosið um Matthí-
as Bjarnason og Sigurlaugu
Bjarnadóttur og fékk Matthías 34
atkvæði, en Sigurlaug 4. í annað
sæti var sjálfkjörið. í 3. sætið
fékk Einar K. Guðfinnsson 33 at-
kvæði, en Sigurlaug Bjarnadóttir
6 atkvæði. I fjórða sætið fékk
Hilmar Jónsson 27 atkvæði, en
Sigrún Halldórsdóttir 14 at-
kvæði. í 5. sætið fékk Engilbert
Ingvarsson 29 atkvæði og Anna
Pálsdóttir 12 atkvæði.
Kjörnefnd gerði tillögu um
skipan framboðslistans og var
hún studd í öllum atriðum en á
fundinum voru gerðar tillögur úr
sal. í kjörnefndinni eiga 13
manns sæti, en þar varð enginn
ágreiningur, samkvæmt upplýs-
ingum Engilberts. Engilbert gat
þess að kjörnefnd hefði óskað
þess að á fundinum yrði tekin af-
staða til prófkjörs, þar sem engin
tillaga lá fyrir um hvort það
skyldi viðhafa. Tillaga um próf-'
kjör var síðan felld með 26 at-
kvæðum gegn 17, eins og áður
gat. Enga ósk kvað Engilbert
hafa komið fram um að fresta
fundinum.
Morgunblaðið ræddi við þrjá
efstu menn framboðslistans, auk
Sigurlaugar Bjarnadóttur, og
fara viðtölin hér á eftir.
Matthías Bjarnason alþingismaður:
Fagna úrslitum
fyrir mitt leyti
Þorvaldur Garðar Kristjánsson alþm.:
Vona að aflasæld fylgi
þessum framboðslista
„ÉG ER ánægður með það að skipa
2. sætið á framboðslistanum og
þakklátur fyrir það traust sem kjör-
dæmisráðið sýndi mér,“ sagði Þor-
valdur Garðar Kristjánsson alþingis-
maður í samtali við Mbl., en hann
skipar 2. sæti framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins á Vestfjörðum.
„Þá vil ég lýsa ánægju minni
með að Matthías Bjarnason skipar
áfram fyrsta sæti listans, og eru
því tvö efstu sæti hans óbreytt frá
síðustu kosningum. Það er og
ánægjulegt að í tveimur næstu
sætum sitja ungir og dugandi
menn, sem eru þeir Einar K.
Guðfinnsson og Hilmar Jónsson.
Þá er það einnig gott að hafa Eng-
ilbert Ingvarsson í 5. sæti listans,
en hann hefur verið kjölfestan í
flokksstarfinu á Vestfjörðum á
undanförnum árum og unnið þar
ómetanlegt starf," sagði Þorvald-
ur.
„Sú breyting er á listanum frá
síðustu kosningum að Sigurlaug
Bjarnadóttir á þar ekki sæti og
það er að sjálfsögðu sjónarsviptir
að henni, því hún hefur unnið
flokknum vel. Á listanum er samt
sem áður mikið kvennaval, þar -
sem eru Sigrún Halldórsdóttir,
Anna Pálsdóttir og Sigríður
Harðardóttir. Mér þykir gott að á
þessum framboðslista skuli vera
bóndi úr Árneshreppi, Guðmund-
ur Jónsson, úr þessari jaðarbyggð
Vestfjarða, sem er mikilvægt að
styðja og efla, svo ekki fari fleiri
byggðir í eyði í kjördæminu. Þá
má heldur ekki gleyma því, að
heiðurssæti listans skipar hinn
kunni og vinsæli aflaskipstjóri,
Ásgeir Guðbjartsson, og það er
von mín að aflasæld fylgi þessum
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins,“ sagði Þorvaldur Garðar
Kristjánsson.
Einar K. Guðfinnsson útgerðarstjóri:
Ríour á miklu að
sýna samstöðu,
virkni og baráttuhug
„MÉR er efst í huga á þessari stundu
þakklæti til félaga minna og flokks-
systkina í kjördæmisráðinu fyrir það
traust og þann trúnað sem þau sýndu
mér með því að velja mig til setu í 3.
sæti framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins við næstu alþingiskosningar,"
sagði Einar K. Guðfinnsson, útgerðar-
stjóri, í samtali við Morgunblaðið, þeg-
ar hann var spurður álits á úrslitum
kosningarinnar i kjördæmisráði
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum.
„Mér er engin launung á því, að
þegar ég kom til kjördæmisráðs-
fundarins, bjóst ég frekar við því að
prófkjör yrði viðhaft og var sann-
arlega reiðubúinn að taka þátt í því
af einurð og einlægni. Þegar ljóst
varð að ekki myndi viðhaft prófkjör
að þessu sinni, þá var kölluð saman
kjörnefnd og þar kom fram ótvíræð-
ur vilji til endurnýjunar á þriðja
sæti listans og með það í huga að ég
skipaði 4. sæti listans við síðustu
alþingiskosningar, býst ég við að
ekki hafi verið talið óeðlilegt að leit-
að yrði til mín. Ég vil taka það fram,
m.a. af gefnu tilefni, að ég sóttist
ekki eftir því að skipa þetta sæti nú,
en vil endurtaka þakkir mínar til
kjördæmisráðsins, fyrir að hafa
sýnt mér þennan trúnað," sagði Ein-
ar.
„Ég vil svo að lokum brýna það
fyrir sjálfstæðismönnum á Vest-
fjörðum, að þrátt fyrir að nú liggi
fyrir framboðslisti sjálfstæð-
ismanna í kjördæminu, þá er sjálf
baráttan eftir. Hún verður mjög
erfið og háð við annarlegar og und-
arlegar kringumstæður, kringum-
stæður sem ég hygg að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi ekki staðið frammi
fyrir áður. Þess vegna ríður á miklu
að við sjálfstæðismenn á Vestfjörð-
um sýnum samstöðu, virkni og bar-
áttuhug, þegar út í sjálfan kosn-
ingaslaginn kemur," sagði Einar K.
Guðfinnsson.
legum hætti. Þau þröngsýnis- og
hræðslusjónarmið, er þar hafa yfir-
höndina, skaða flokkinn stórlega og
því meir sem þau fá lengur að ráða.
Hér er beinlínis boðið upp á sundr-
ungu og jafnvel klofning innan
flokksins. Þingmenn kjördæmisins
sem bak við tjöldin halda þarna í
taumana, þó þeir segi annað, mættu
hafa þetta í huga.
Það er ekki nein byltingarlöngun,
sem ræður ósk manna um prófkjör.
Fólk vill einfaldlega fá að hafa sitt
að segja í þessu máli, skýra línurn-
ar og hreinsa um leið andrúmsloftið
innan flokksins. Prófkjör hafa
vissulega sína galla, það hefur
reynslan sýnt. Mergurinn málsins
er þó auðvitað sá, að gildi þeirra
stendur eða fellur með fram-
kvæmdinni, að frambjóðendur og
aðrir hlutaðeigandi aðilar gangi til
verks af hófsemi og drengskap.
Við finnum trúlega aldrei þá að-
ferð við ákvörðun framboðs, sem
geti fyrirbyggt það baktjaldamakk,
bolabrögð og ógeðfellt persónupot,
sem nú tröllríður íslensku stjórn-
málalífi og kyndir um leið undir
vantrú og lítilsvirðingu almennings
á stjórnmálamönnum. Siðgæði og
virðing fyrir heiðarlegum leikregl-
um er það sem hér skiptir megin-
máli.
Að lokum vil ég segja: Ég álít
ekki að mér hafi nú verið hafnað af
Vestfirðingum, heldur af klíku-
meirihluta innan kjördæmisráðs
undir þrýstingi frá áhrifaöflum bak
við tjöldin," sagði Sigurlaug
Bjarnadóttir.
Nýr
mazoa
sýndur um næstu helgi!
BÍLABORG HF
Smiðshöföa 23 sími 812 99