Morgunblaðið - 18.01.1983, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
Peninga-
markaðurinn
GENGISSKRÁNING
NR. 9 — 17. JANÚAR
1983
Nýkr. Nýkr.
Kaup Sala
Eining Kl. 09.15
1 Bandankjadollar
1 Sterlingspund
1 Kanadadollari
1 Dönsk króna
1 Norsk króna
1 Sænsk króna
1 Finnskt mark
1 Franskur franki
1 Belg franki
1 Svissn. franki
1 Hollenzkt gyllini
1 V-þýzkt mark
1 ítölsk líra
1 Austurr. sch.
1 Portúg. escudo
1 Spánskur peseti
1 Japansktyen
1 írskt pund
(Sérstök
dréttarréttindi)
14/01
18,350 18,410
29,158 29,253
15,012 15,061
2,2043 2,2115
2,6280 2,6366
2,5265 2,5348
3,4840 3,4953
2,7403 2,7493
0,3958 0,3971
9,4381 9,4689
7,0509 7,0740
7,7672 7,7926
0,01353 0,01357
1,1064 1,1100
0,1921 0,1928
0,1460 0,1465
0,07957 0,07983
25,768 25,852
20,2812 20,3475
GENGISSKRÁNING
FERDAMANNAGJALDEYRIS
17. JAN. 1983
— TOLLGENGI í JAN. —
Eining Kl. 09.15
1 Bandaríkjadollar
1 Sterlingspund
1 Kanadadoll ar
1 Dönsk króna
1 Norsk króna
1 Sænsk króna
1 Finnskt mark
1 Franskur franki
1 Belg. franki
1 Svissn. franki
1 Hollenzk florina
1 V-þýzkt mark
1 ítölsk líra
1 Austurr. sch.
1 Portúg. escudo
1 Spánskur peseti
1 Japansktyen
1 írskt pund
Nýkr. Toll-
Sala gengi
20,251 18,170
32,187 29,526
16,567 14,769
2,4327 2,1908
2,9003 2,6136
2,7883 2,4750
3,8448 3,4662
3,0242 2,7237
0,4368 0,3929
10,4158 9,2105
7,7814 6,9831
8,5719 7,7237
0.01493 0,01339
1,2210 1,0995
0,2121 0,1996
0,1612 0,1462
0,08781 0,07937
28,437 25,665
Vextir: (ársvextir)
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóðsbækur 42,0%
2. Sparisjóösreikningar. 3 mán.1) 45,0%
3. Sparisjóðsreikningar. 12. mán. 1).. 47,0%
4. Verðtryggöir 3 mán. reikningar ... 0,0%
5. Verðtryggðir 12 mán. reikningar.... 1,0%
6. Avisana- og hlaupareikningar . 27,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæður i dollurum 8,0%
b. innstæður i sterlingspundum 7,0%
c. innstæöur i v-þýzkum mörkum... . 5,0%
d. innstæöur i dönskum krónum.... 8,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
(Verðbótaþáttur í sviga)
1. Víxlar, forvextir...... (32,5%) 38,0%
2. Hlaupareikningar ...... (34,0%) 39,0%
3. Afurðalán ............. (25,5%) 29,0%
4. Skulóabréf ............ (40,5%) 47,0%
5. Visitölubundin skuldabréf:
a. Lánstími minnst 9 mán. 2,0%
b. Lánstimi minnst 2% ár 2,5%
c. Lánstimi minnst 5 ár 3,0%
6. Vanskilavextir á mán............5,0%
Lífeyrissjóðslán:
Lifeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæð er nú 150 þúsund ný-
krónur og er lánið vísitölubundiö meö
lánskjaravisitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veö er í er lítilfjörleg, þá
getur sjóðurinn stytt lánstímann.
Lifeyrissjóóur verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóðnum 81.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 7.000 nýkrónur, unz
sjóðsfélagi hefur náö 5 ára aöild aö
sjóðnum A tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóðsaðild bætast viö höfuðstól leyfi-
legrar lánsupphæðar 3.500 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára
sjóðsaöild er lánsupphæöin orðin
210.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aöild
bætast viö 1.750 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóróung sem liöur Því er í raun ekk-
ert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstiminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir janúar 1982 er
488 stig og er þá miöaö við vísitöluna
100 1. júní 1979.
Byggingavísitala fyrir janúar er 1482
stig og er þá miöaö við 100 í október
1975
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum Algengustu ársvextir eru nú
18-20%.
Hljóðvarp kl. 23.15:
„Við köllum hann róna“
— þáttur um útigangsmenn
Á dagskrá hljóðvarps kl. 23.15
er þáttur sem nefnist „Við köllum
hann róna“. Stjórnandi: Ásgeir
Hannes Kiríksson.
„Þetta verða þrír þættir alls
og fjalla um útigangsmennina
hérna í Reykjavík," sagði Ásgeir
i
Ásgeir Hannes Eiriksson verður
með þátt um útigangsmenn í hljóð-
varpi kl. 23.15.
Hannes, „og aðallega byggt á
viðtölum, bæði við mennina
sjálfa og aðra sem tengjast þeim
á einhvern hátt, í starfi eða með
öðrum hætti. Þessi stétt er á öru
undanhaldi, það er alveg ljóst.
Það er vegna þess að komið hafa
til sögunnar alls konar félög og
stofnanir sem hafa breytt miklu
um stöðu þeirra. Og „hráefnið"
hefur minnkað; það koma t.d.
fram í þættinum athyglisverðar
tölur um fullnustu dóma hjá
unglingum. Það virðist vera svo,
þó að e.t.v. sé of snemmt að ráða
í þessar tölur, sem afbrotum
unglinga fari fækkandi hér í
borginni. En sem sagt, úti-
gangsmenn eru ekki það vanda-
mál sem þeir voru. Að vísu sefur
einn og einn maður í bátaslipp-
um eða á ámóta stöðum, en að
svo sé ástatt um hópa þessara
manna eins og var, það er liðin
tíð. Farsótt, SÁÁ, Hvítasunnu-
menn, ríkið og fleiri aðilar hafa
séð til þess. Og viðhorfin til
þeirra hafa líka breyst. Hér áður
fyrr var litið á þá eins og hver
önnur óþægindi, og menn tóku á
sig krók. Nú hefur samfélagið
komið til móts við þá og það seg-
ir til sín.“
Sjónvarp kl. 21.40:
ÚTLEGÐ
— nýr þýskur framhaldsmyndaflokkur
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.40 er
fyrsti þáttur af sjö í nýjum þýskum
framhaldsflokki, Útlegð (Exil),
sem byggöur er á sögu eftir Lion
Feuchtwanger.
Leikstjóri er Egon Gúnther,
en í aðalhlutverkum Klaus Löw-
itsch, Louise Martini, Valdim
Glowna, Constanze Engelbrecht
og Ivan Desny.
Sagan gerist í París á árunum
fyrir síðari heimsstyrjöld og
greinir frá örlögum Þjóðverja
sem þangað hafa flúið undan
ógnarstjórn nasista.
Þessi mynd er tekin I Shwe Dagon-hofinu I Burma. Búdda liggur með
hönd undir kinn. Allir, sem leggja leið sina i hofið til að gera benir sínar,
láta eitthvað af höndum rakna og skilja eftir við eiuhverja af hinum
fjölmörgu styttum sem þarna eru.
Andlejft líf í Austurheimi kl. 20.40:
Búdda- og andatrú I Burma
Á dagskrá sjónvarps kl. 20.40 er
fimmti þátturinn i myndaflokkn-
um Andlegt lif I Auaturhetmi og
nefnist hann Búdda- og andatrú í
Burma.
Búddatrú er allsráðandi í
Burma, en trú á anda framlið-
inna hefur einnig mikil áhrif á
trúarlíf og listir.
Hljóóvarp kl. 11.30:
„Skammdegisþankar“
— með nýársósk
Á dagskrá hljóðvarps kl. 11.30
er þáttur sem nefnist „Skammdeg-
isþankar". Anna María Þórisdóttir
flytur.
— Ég byrja á að lesa nokkrar
skammdegisvísur eftir Þorstein
Gíslason, sagði Anna María.
— Svo verður þetta sundurlaust
rabb um það sem í hugann hefur
komið núna í blásvartasta
skammdeginu. Ég tala um veðr-
ið, nánasta umhverfi, snjóinn,
trén og snjótittlingana og minn-
ist á stjörnuskoðun. Svo þakka
ég og ræði um nokkra góða út-
varpsþætti nú yfir jól og áramót.
Og loks tala ég nokkuð um sam-
búð okkar við landið, um klæðn-
að, rafvæðingu og jarðhita og
skógrækt og kem í lokin með
kannski dálítið sérstæða nýárs-
ósk til þjóðarinnar.
í þætti sínum, „Skammdegisþank-
ar“, talar Anna Maria Þórisdóttir
m.a. um snjóinn, trén og snjótittl-
ingana.
Útvarp Reykjavík
ÞRIÐJUDKGUR
18. janúar
MORGUNNINN
7.00 Veðurfrcgnir. Fréttir. Bæn.
Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Endurt. þáttur
Árna Böðvarssonar frá kvöldinu
áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð: Magnús Karel
Hannesson talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„LíF‘ eftir Else Chappel.
Gunnvör Braga les þýðingu sina
(9). •
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. 9.45
Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Man ég það sem löngu
leið“
Ragnheiður Viggósdóttir sér um
þáttinn.
11.00 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja
11.30 „Skammdegisþankar“
Anna María Þórisdóttir flytur.
12.00 Tónleikar. Dagskrá. Tón-
leikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
SÍDDEGID____________________
Þriðjudagssyrpa — Páll Þor-
steinsson og Þorgeir Ástvalds-
son. V.
14.30 „Tunglskin í trjánum",
ferðaþættir frá Indlandi eftir
Sigvalda Hjálmarsson. Hjörtur
Pálsson les (3).
15.00 Miðdegistónleikar: Tónlist
eftir Ludwig van Beethoven
Arthur Grumiaux og Concert-
gebouw-hljómsveitin í Amster-
dam leika Rómönsu nr. 2 í F-
dúr op. 50 / Ivo Pogorelich leik-
ur Píanósónötu nr. 32 í c-moll
op. 111.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Sögur úr Snæfjöllum
Barnamynd frá Tékkóslóvakíu.
Þýðandi Jón Gunnarsson.
Sögumaöur Þórhallur Sigurös-
son.
20.40 Andlegt líf í Austurheimi
5. Búdda- og andatrú í Burma
Búddatrú er allsráöandi í
Burma en trú á anda framlið-
inna hefur einnig mikil áhrif á
trúarlíf og listir.
Þýöandi Þorsteinn Helgason.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Lagið mitt
Helga Þ. Stephcnsen kynnir
óskalög barna.
17.00 Spútnik. Sitthvað úr heimi
vísindanna. Dr. Þór Jakobsson
sér um þáttinn.
17.20 Sjóndeildarhringurinn
Umsjón: Ólafur Torfason
(RÚVAK).
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
21.40 Utlegð
(Exil)
Nýr flokkur — Fyrsti þóttur.
Benjamín.
Þýskur framhaldsflokkur í sjö
þáttum byggður á sögu eftir
Lion Feuchtwanger.
Leikstjóri Egon Giinther.
Aðalhlutverk: Klaus Löwitsch,
Louise Martini, Valdim
Glowna, Constanze Engelbrecht
og Ivan Desny.
Sagan gerist í París á árunum
fyrir síðari heimsstyrjöld og
greinir frá örlögum Þjóðverja
sem þangað hafa flúið undan
ógnarstjórn nasista.
Þýðandi Veturliði Guðnason.
23.00 .Dagskrárlok
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Kvöldfréttir.
19.45 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Kammertónleikar
a. Michel Chapuis leikur á
orgel Prelúdíu og fúgu í e-moll
eftir Johann Sebastian Bach.
b. Auréle Nicolet og Christiana
Jaccottet leika Flautusónötu nr.
2 í E-dúr eftir Carl Philipp Em-
anuel Bach.
c. Poul Crossley leikur á píanó
„Prelúdíu, aríu og finale“ eftir
Cesar Franck.
d. Beaux Arts-tríóið leikur Pí-
anótrió í e-moll eftir Antonín
Dvorák.
e. Enska kammersveitin ieikur
„Serenata notturna" í D-dúr
K239 eftir Wolfgang Amadeus
Mozart; Benjamin Britten stj.
21.40 Útvarpssagan: „Sonur him-
ins og jarðar" eftir Káre Holt.
Sigurður Gunnarsson les þýð-
ingu sína (6).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 „Fæddur, skírður...“
Umsjón: Benóný Ægisson og
Magnea Matthíasdóttir.
23.15 „Við köllum hann róna“
Þáttur um utangarðsfólk.
Stjórnandi: Ásgeir Hannes Ei-
ríksson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
18. janúar