Morgunblaðið - 18.01.1983, Side 5

Morgunblaðið - 18.01.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. JANÚAR 1983 5 Doktorspróf í læknisfræöi Alþýðubandalagið á Suðurlandi: Tuttugu og tveir fram- bjóðendur í forvali UM HELGINA lauk í Suðurlandskjördæmi talningu úr fyrri umferð forvals Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi, og hefur Morgunblaðið fengið til birtingar nöfn þeirra er taka þátt í síðari umferð. Tilnefndir eru tveir frá hverju félagi í kjördæminu og bætt við þingmanni og öðrum er hlutu flest atkvæði samanlagt úr heildaratkvæðagreiðslu. Atkvæðatölur úr fyrri umferð eru ekki gefnar upp. Þessir eru í framboði í forvalinu í Suðurlandi: f OKTÓBER síðastliðnum lauk Stef- án Karlsson, læknir, doktorsprófi frá Lundúnaháskóla. Doktorsritgerð Stefáns nefnist á ensku „Biochemical and Genetic- al Aspects of Glycopróteins in human tissues" og fjallar um byggingu sykurkeðja próteina og hvernig þeirri byggingu er stjórn- að erfðafræðilega. Slíkar sykur- keðjur eru mjög mikilvægar, eink- um utan á frumum til að taka við hvers kyns „skilaboðum" frá einni frumu til annarrar og gegna m.a. mikilvægu hlutverki í byggingu A,B,0 blóðflokkaefna. Keðjur þessar eru óeðlilegar að byggingu í ýmsum sjúkum frumum t.d. krabbameinsfrumum. Stefán Karlsson rannsakaði einkum sam- eind í þvagi, sem hann uppgötvaði ásamt samstarfsmönnum í Lond- on og París. Jafnframt var bygg- ing sykurkeðju rannsökuð í ýms- um sjúkdómum, einkum cystic fibrosis, arfgengum efnaskipta- sjúkdómi, sem veldur alvarlegum sjúkdómseinkennum frá lungum og meltingarfærum. Stefán hefur notið styrkja til rannsóknanna frá eftirtöldum að- ilum á íslandi og í Bretlandi: Vís- indasjóði íslands, Heilbrigðis- ráðuneytinu og Ríkisspítölum og Blóðgjafafélagi íslands, British Council og Cystic Fibrosis Re- search Trust. Dr. Stefán Karlsson lauk kandi- datsprófi í læknisfræði frá lækna- deild Háskóla íslands árið 1976. Hann var námskandidat á Borg- arspítala, Vífilsstöðum og Land- spítala 1976—1977 og gegndi störfum heilsugæslulæknis á Fá- skrúðsfirði og Bolungarvík. Hann hóf sérnám í læknisfræði- legri erfðafræði við Blóðbankann, Reykjavík, 1977—1979 og eftir það Keflavík: Hótelbygging í athugun „JÚ, ÞAÐ er rétt, við erum að athuga möguleika á því að reisa hótel hér I Keflavík. Hér vantar tilfinnanlega hótel, það er ekkert hótel hér á Suður- nesjum," sagði Steinþór Júlíusson bæjarstjóri í Keflavík i samtali við Morgunblaðið. „Eg er að vinna í því þessa stund- ina að reyna að safna saman aðilum hér á Suðurnesjum til að leggja fé i bygginguna, en sú bygging sem við erum með í huga í bili, kostar milli 15 og 20 milljónir á núverandi verð- lagi. Ég geri ráð fyrir því að þegar við erum komnir að niðurstöðu, sem hér erum, munum við leita til fleiri aðila, þar sem við erum ekki sér- fræðingar í hótelrekstri. Forsaga málsins er sú, að hér í bæ er verið að byggja samkomuhús. Það er Karlakór Keflavíkur sem hefur í raun og veru byggt það á sitt eindæmi. Búið er að steypa allt upp og húsið orðið fokhelt, en það er á tveimur hæðum. Karlakórinn er að vinna í efri hæðinni, en leggur ekki í neðri hæðina, þar sem er aðalsalur með leiksviði, hliðarsalir og eldhús. Kórinn hefur óskað eftir að bærinn tæki við samkomuhúsinu eins og það er og kláraði það. Þetta hafa bæjaryfirvöld fallist á að gera. I tengslum við þetta datt mönnum í hug að heppilegt væri að byggja minni háttar hótel, með um 40 til 50 rúm, á lóð sem bærinn á við hliðina á þessu húsi. Þar yrði um að ræða hótel með veitingaaðstöðu og eldhúsi, sem gæti þjónað bæði hót- eli, veitingasal og samkomusal. Ég hef verið að kanna möguleik- ana á því að fá einhverja fjársterka aðila til að leggja fé í hlutafélag til að byggja húsið, en það er ekki komið langt áleiðis. Gerðar hafa verið hugmyndateikningar að hót- elinu til að gefa mönnum hugmynd- ir um hvernig þetta liti út og hvern- ig fyrirkomulag yrði, en engar end- anlegar teikningar eru til,“ sagði Steinþór. á Calton Laboratory, University College, London, 1979—1982. Hann var viðurkenndur sérfræð- ingur í læknisfræðilegri erfða- fræði í nóvember 1982. Það er fyrsta viðurkenning af þessu tagi hérlendis. Stefán Karlsson er sonur Ólafar Stefánsdóttur og Karls Ómars Jónssonar, verkfræðings. Stefán er kvæntur Sigurborgu Ragnars- dóttur, þau eiga tvo syni. Dr. Stefán hefur unnið í Blóð- bankanum síðustu 4 mánuði, en er nú á förum til Bandaríkjanna til frekari rannsókna í erfðafræði, einkum á sviði erfðatækni (erfða- verkfræði). Hann mun starfa við Clinical Hematology Branch, Nat- ional Institutes of Health í Mary- land. Hann mun vinna með Dr. Arthur W. Nienhuis, sem sagt var Dr. Stefán Kartwoa. frá í tímaritinu Times Magazine 20. desember síðastliðinn. Sá læknir og samstarfsmenn hans vöktu mikla athygli vegna rann- sókna á arfgengu blóðleysi og nýrra aðferða sem þeir beittu til lækninga á slíkum sjúkdómum. Ármann Ægir Magnússon húsa- smiður Selfossi, Baldur Óskarsson framkvæmdastjóri Reykjavík, Dagný Jónsdóttir verkamaður Selfossi, Dóra Kristín Halldórs- dóttir kennari Landsveit, Edda Tegeder bréfberi Vestm., Garðar Sigurðsson alþm. Vestm., Guð- mundur Birgir Þorkelsson bóndi Laugardal, Guðmundur J. Al- bertsson kennari Hellu, Gunnar Stefánsson bóndi Mýrdal, Gunnar Sverrisson bóndi Biskupstungum, Halla Guðmundsdóttir húsmóðir Gnúpverjahreppi, Hansína Á. Stefánsdóttir skrifstofumaður Selfossi, Inga Dröfn Ármanns- dóttir skrifstofum. Vestm., Kol- brún Guðnadóttir kennari Sel- fossi, Magnús Á. Ágústsson líf- fræðingur Hveragerði, Margrét Frimannsdóttir oddviti Stokks- eyri, Margrét Gunnarsdóttir hús- móðir Laugarvatni, Ragnar Óskarsson kennari Vestm., Sveinn A. Snæland garðyrkjubóndi Bisk- upstungum, Úlfur Björnsson kennari Hveragerði, Þorvarður Hjaltason kennari Selfossi, Þór Vigfússon kennari Ölfusi. Hagkvæmir flutningar í höndum fagmanna. Meó beinum tengslum vió erlenda flutningamiðlara hefur FLUTNINGSMIÐLUNIN á nokkrum árum gert flutninga erlendis þægilegri og öruggari. Sækjum sem fyrr vörur viö verksmiójuvegg og sjáum um flutning og skylda þjónustu til áfangastaöar. Fljótari flutningar Öruggari flutningar Hagkvæmari flutningar Gámaflutningar Trukkflutningar Járnbrautarflutningar Skipa- og flugflutningar Frá Norðursjávarhöfnum getur þú valið um fjölmargar áætlunarferðir hjá þremur skipafélögum auk flugferða. Meginland Evrópu — til Norðursjávarhafna Nokkur dæmi: Frá MÍLANÓ Feröir alla virka daga. Frá PARÍS — 3-4 feróir á viku. Frá TORINO — 2-4 feróir á viku. Frá BASEL — 2-4 ferðir á viku Frá VÍN — 2-4 ferðir á viku. Frá LINZ — 2-4 ferðir á viku. Frá BARCELÓNA — 1-2 ferðir á viku. Frá VALENCIA — 1-2 ferðir á viku. Frá LISSABON — 1-2 ferðir á viku. Frá OPORTO — 1-2 feröir á viku. Frá AÞENU — 1-2 ferðir á viku. Frá MARIBOR (Júgósl.) 1 -2 feröir á viku. Auk ferða frá fjölmörgum borgum í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu flesta virka daga. Samstarfsaðiiar í Stóra Bretlandi, Eina íslenska fyrirtækið | N-Ameríku og víðar. ^ fM mss FLUTNINGSMIÐLUNIN ^ KLAPPARSTÍG 29 — 101 REYKJAVÍK SÍMAR 29671 — 29073 REYNSLAN TRYGGIR GÆÐIN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.