Morgunblaðið - 18.01.1983, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 18.01.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 13 Uppsögn blaðafulltrúa ASÍ: Ræða málið ekki fyrir miðstjórnarfund ASÍ — segir Asmundur Stefánsson „HAUKUR hefur sagt í samtali við Morgunblaðið, að hann vilji ekki tjá sig frekar um málið þar til eftir mið- stjórnarfund ASÍ, sem væntanlega verður á fimmtudaginn og ætli þaö sé ekki rökrétt að ég bíði einnig og raunar hef ég engu við það að bæta sem ég sagði í útvarpinu um þetta mál.“ Þetta sagði Ásmundur Stef- ánsson, forseti Alþýðusambands ís- lands, i samtali við Morgunblaðið, er hann var spurður hvort hann vildi eitthvað segja um deilumálið sem upp kom milli Búlandstinds hf. á Djúpavogi og kanadískra stúlkna er þar unnu, og eftirmál þeirra innan ASÍ. Eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu, taldi Haukur Már Haraldsson, blaðafulltrúi ASÍ, í útvarpsviðtali, að ýmislegt væri við málstað Búlandstinds í málinu að athuga. Siðar kvað Ásmundur hins vegar upp úr með að svo væri ekki og framkvæmdastjóri Bú- landstinds hefur sagt opinberlega, að forseti ASÍ hafi beðist afsökun- ar á ummælum blaðafulltrúans. Það leiddi svo aftur til þess að Haukur Már sagði upp störfum sem blaðafulltrúi Álþýðusam- bandsins. Keflavík: Þriðja áfanga sjúkra- hússins flýtt með aðstoð sparisjóðsins „VIÐ höfum mikinn áhuga á að (lýta þriðja áfanga sjúkrahúss Keflavík- urlæknishéraðs eins og unnt er, þar sem mikill skortur er hér á sjúkra- rými fyrir langlegusjúklinga, sér- staklega fyrir aldrað fólk. Við höfum verið að athuga möguleika á því að hraða verkinu með því að útvega til þess bráðabirgðafjármagn. Spari- sjóður Keflavíkur hefur gefiö vilyrði fyrir því að fjármagna verkið til bráðabirgða ef við fáum samþykki heilbrigðisyfirvalda fyrir því að fara þessa leið. Það leyfi erum við ekki búnir að fá, og munum við óska eftir viðræðum við heilbrigðisráðherra um þessi mál allra næstu daga,“ sagði Steinþór Júliusson bæjarstjóri í Keflavík er Morgunblaðið innti hann fregna af áformum bæjaryfir- valda um að flýta byggingu þriðja áfanga sjúkrahússins með því að fá til þess utanaðkomandi fjármagn, í stað þess að vinna verkið eftir þvi sem skammtað yrði á fjárlögum hverju sinni. „Samkvæmt athugun fyrir árið 1982 var hér talin bráð þörf fyrir 30 langlegurúm, en læknar halda fram að hún sé miklu meiri. Þess Tæp 8 kíló af kannabisefnum tekin í fyrra TÆP ÁTTA kíló af kannabisefnum voru tekin á síðastliðnu ári og lætur það nærri að vera sambærilegt við árið á undan. Mest var tekið af hassi, rúm 6 kíló, og liðlega V/í kiló af marijúana. Tekin voru liðlega 342 grömm af hassolíu, sem er meira en á undanförnum árum, en hassolían er um fjórum sinnum sterkari en hassið. Þá voru tekin 73 grömm af amf- etamíni og 7 grömm af kókaíni. Ekki mikið magn en sýnir, að efni þessi eru í vaxandi mæli á íslenzk- um fíkniefnamarkaði. Þá má geta þess, að 57 kannabisplöntur voru gerðar upptækar á árinu. Langstærsta fíkniefnasending- in, sem til landsins barst, voru að sjálfsögðu þau 200 kíló af marijú- ana, sem tekin voru í Bandaríkj- unum og send áfram hingað í von um að málið upplýstist. Enn hefur ekkert komið fram, sem gefur vísbendingu um hverjir stóðu að baki þeirri sendingu, sem var stíl- uð á Eimskipafélag íslands og send frá Jamaica. vegna erum við með öll spjót úti að reyna leysa þetta sem fljótast. Þar sem við erum að byggja heilsugæzlustöð, annan áfanga sjúkrahússins, sem við vonumst til að geta klárað á árinu, eru fram- kvæmdir við þriðja áfangann enn ekki hafnar, en þar er gert ráð fyrir rúmum fyrir 60 langlegu- sjúklinga, auk ýmissa stoðdeilda," sagði Steinþór. Steinþór sagði litla möguleika á að fá bráðabirgðahúsnæði til að leysa þennan vanda nema þá með því að setja fé í hluti sem ekki nýttust í framtíðinni. Framtíðar- lausnin væri að koma þriðja áf- anganum upp, og teldu bæjaryf- irvöld viturlegast að flýta honum með' því að útvega bráða- birgðafjármagn. „Við höfum ekkert komizt áfram með þennan áfanga þar sem fjárveitingar til heilbrigðis- mála í landinu eru ekki í samræmi við þarfirnar, sem fyrir hendi eru. Við hyggjumst útvega bráða- birgðafé til að gera áfangann fokheldan og taka eina hæð í notk- un strax undir legurúm. Hitt myndum við byggja eftir því sem fjárveitingar fengjust á fjárlög- um,“ sagði Steinþór. Steinþór sagði bæjaryfirvöld í Keflavík telja sig búin að fá viður- kenningu fyrir að mega fara þessa leið þar sem fengist hefði fjárveit- ing til hönnunar. „En þetta eru viðkvæm mál, samanber deilu Reykjavíkurborgar við ríkið um endurgreiðslur á þeim peningum sem borgin er búin að setja í spít- alann. Við viljum tryggja okkur þannig að öruggt verði að við fáum 85% byggingarkostnaðar frá ríkinu, eins og lög kveða á um, og þá með fjármagnskostnaði. Ef far- in verður sú leið sem við erum að undirbúa er von til þess að hægt verði að taka fyrsta hluta þriðja áfangans í notkun síðast á árinu 1984,“ sagði Steinþór Júlíusson að lokum. Sólborg Guðbrands- dóttir - Leiðrétting FYRIRSöGN á minningargrein um Sólborgu Guðbrandsdóttur, sem birtist hér í blaðinu á laugardag- inn, misritaðist, en þar stóð Guð- mundsdóttir. Biður blaðið að- standendur hennar og greinarhöf. afsökunar um leið og það leiðréttir þessi mistök. Núeru skíðaferðimar til Austumlds hafnar! Uppselt 13. febrúar örfá sæti laus 30. janúar, 27. febrúar og 13. mars: Verð frá 10.625.00 krónum !* Þátttakan í skíðaferðunum hefur sjaldan verið meiri en nú, -aðeins fáein sæti laus í beina leigufluginu til Innsbruck. Þess vegna bendum við sérstaklega á þann möguleika að fljúga til Luxemborgar og aka þaðan í bílaleigubíl til skíðastaðanna. Austurrfska skíðaparadísin bfður þfn: Kitzbúhel, Zillertal, Lech eða Badgastein. Fyrsta flokks hótel, vinaleg „pensjónöt", litlir bjálka- kofar, stór þakskegg, gluggahlerar, bitar í loftum, vingjarnlegt fólk, - hlýlegt andrúmsloft! T-lyftur, stólalyftur, svifbrautir, skíðaskólar, kennarar í rauðum úlpum, brautir merktar miðað við getu skíða- mannsins, barnabrekkur, safarileiðir - endalaus skfðasvæði! Veitingahús í miðjum brekkum, pylsur, fjallabrauð, heiður himinn, gúllassúpa, Jágertee, tært fjallaloft, öl, sólstólar, Obstler, útsýni — Gluhwein! Gufuböð, sundlaugar, sleðaferðir, matsölustaðir, róman- tískar gönguferðir, dans, kaffihús, söngur - austurrísk stemning! Skíðaferðirnar til Austurríkis eru draumaferðir fyrir alla. öll aðstaða er frábær og hentar jafnt skussum sem skíðameisturum — skíðakunnáttan verður eiginlega að aukaatriði! ‘Miðað er við gistingu í 2ja manna herbergi með morgunmat I 2 vikur. Miðað er við gengi 14.1. 1983. ÚTSÝN URVAL FLUGLEIDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.