Morgunblaðið - 18.01.1983, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
Ekifjörður:
Sáu til sólar í
fyrsta sinn á árinu
Kskifjörður, 14. janúar.
í I)AG sáum við á Kskifirði sólina í
fyrsta skipti á árinu og það á réttum
dcgi því að það er einmitt 14. janúar
sem hún sést fyrst, er hún gægist
upp fyrir Suðurfjöllin, sunnan við
Keyðarfjörð, en þá hefur sólin ekki
sést í rúman mánuð frá bænum.
Það verða því víða pönnukökur
á borðum í dag. Veður er gott,
hægviðri og bjart og hiti um
frostmark. Við höfum að mestu
sloppið við óveður þau sem herjað
hafa víða. Snjór er ekki mikill á
jörðu. Til dæmis hefur skíðalyftan
í Oddsskarði ekki verið opnuð enn
vegna snjóleysis.
Ævar
Gaukur Jörunds-
son settur hæsta-
réttardómari
PRÓFESSOR Gaukur Jörunds-
son hefur verið settur hæsta-
réttardómari til júníloka næst-
komandi. Hann tekur við stöðu
Guðmundar Jenssonar, sem var
settur hæstaréttardómari, en
skipaður 1. janúar síðastliðinn.
Gaukur er 48 ára að aldri, út-
skrifaðist frá Háskóla Islands
1959 og stundaði framhaldsnám
í Noregi, Danmörku og Þýzka-
landi.
Gaukur Jörundsson
Sigfús Schopka, fiskifræðingur:
Búast má við svipaðri
vertíð og á síðasta ári
„AFLAMAGN á komandi vetrar-
vertíð mun ráðast mikið af því
hvernig þorskárgangurinn frá 1976
kemur inn á vertíðinni. Helmingur
árgangsins verður kynþroska í ár
svo hann ætti að ganga á vertíðina
í nokkrum mæli. Verði svo má bú-
ast við að veiðin á komandi vertíð
verði nokkru meiri en á síðasta
ári, en þá varð hún um 140.000
(170.000) lestir við Suðvesturland
eða 215.000 (280.000) á landinu
öllu á tímabilinu janúar til maí,“
sagði Sigfús Schopka, fiskifræð-
ingur, meðal annars er Morgun-
blaðið ræddi við hann um hugsan-
legt aflamagn á komandi vetrar-
vertíð.
Bandalag jafnaðarmanna:
Ríkisstjórninni ber að sitja áfram
— þrátt fyrir getuleysi og mistök, segir ! stjórnmálaályktun
í stjórnmálaályktun Bandalags
jafnaðarmanna, sem stofnað var sl.
laugardag, segir, að miðstjórn
bandalagsins líti svo á, að það sé
frumskylda Alþingis að kynna þjóð-
inni drög að nýrri stjórnarskrá og
kjördæmamál að undangenginni
umræðu í þjóðfélaginu. Af þeim
ástæðum beri ríkisstjórninni, „þrátt
fyrir getuleysi og mistök" að sitja
eitthvað áfram. Segi hún af sér engu
að síður, beri Alþingi að setja á lagg-
irnar minnihlutastjórn eða jafnvel
utanþingsstjórn meðan fundin sé
lausn á stjórnarskrár- og kjördæma-
málum. Miðstjórn Bandalags jafnað-
armanna skipa 34, formaður er
Vilmundur Gylfason, ritarar Guð-
mundur Einarsson og Kristín S.
Kvaran, gjaldkerar Lára H. Einars-
dóttir og Þórður H. Ólafsson.
Þá egir í stjórnmálaályktuninni
að úr því sem komið sé, skipti það
engu höfuðmáli, hvort ríkisstjórn-
in situr mánuðinum lengur eða
skemur. Þá leggur miðstjórnin
áherslu á, að ekki sé verjandi fyrir
núverandi stjórnarandstöðu að
bregða fæti fyrir fiskverðsákvörð-
un, sem tekin hafi verið „þrátt
fyrir hið úrelta verðlagskerfi sjáv-
arútvegsins“. Miðstjórnin segir
fiskverðsákvörðun eiga að vera
samningsmál kaupenda og selj-
enda, án afskipta ríkisvaldsins og
segir fiskverðsákvörðunina um
áramótin táknræna fyrir þær
ógöngur sem núverandi fyrir-
komulag leiði til. Þá segir, að enn
dæmigerðari sé hótun sjávarút-
vegsráðherra um að samþykki Al-
þingi ekki hliðarráðstafanir og
komi til stöðvunar og verkfalla, þá
verði þjóðin að fara þegar í stað i
kosningar í skugga verkfalla og
jafnvel atvinnuleysis. „Þessar yf-
irlýsingar undirstrika gjaldþrot
og getuleysi, ekki aðeins núver-
andi ríkisstjórnar, heldur þess
stjórnmálakerfis sem hún byggir
á,“ segir í stjórnmálaályktuninni.
Eftirtaldir skipa miðstjórn
Bandalags jafnaðarmanna: Agúst
Guðjónsson matsveinn, Amalia
Sverrisdóttir skrifstofumaður,
Árni Sigurbjörnsson deildarstjóri,
Ásdis Matthíasdóttir skrifstofu-
maður, Bolli Þór Bollason hag-
fræðingur, Eggert Þór Bern-
harðsson nemi, Frosti Bergsson
tæknifræðingur, Garðar Sverris-
son nemi, Guðmundur Einarsson
lektor, ritari, Guðmundur Páll
Jónsson nemi, Guðni Baldursson
viðskiptafræðingur, Guðrún
Ragnarsdóttir þjóðfélagsfræðing-
ur, Helga G. Guðmundsdóttir for-
ritari, Hulda Lilliendal læknarit-
ari, Ingi B. Jónasson bifvélavirki,
Karítas Gunnarsdóttir nemi, Karl
Th. Birgisson nemi, Kristín S.
Kvaran fóstra, ritari, Lára H. Ein-
arsdóttir skrifstofumaður, gjald-
keri, Lilja Kristjánsdóttir versl-
unarmaður, Loftur A1 Þorsteins-
son verkfræðingur, Óðinn Jónsson
nemi, Sigurjón Skæringsson
bankamaður, Sonja Berg húsmóð-
ir, Stefán Benediktsson arkitekt,
Stefán Ólafsson lektor, Valdimar
Unnar Valdimarsson sagnfræð-
ingur, Vilborg Halldórsdóttir
nemi, Vilmundur Gylfason alþing-
ismaður, formaður, Þórður H.
Ólafsson tæknifræðingur, gjald-
keri, Þorsteinn Einarsson verk-
fræðingur, Þorsteinn Valur Bald-
vinsson verkamaður, Þröstur Guð-
laugsson iðnnemi, Ögmundur
Kristinsson prentari.
„Það er nú svo, að ekki bólaði
eins mikið á þessum árgangi á
liðnu ári og við höfðum reiknað
með. Hann var í veiðinni fyrri-
hluta ársins, en kom minna fram í
sumar og haust og töldum við því,
að sá árgangur hefði getað verið
ofmetinn hjá okkur. Einnig leidd-
um við líkur að því, að skýringin
gæti verið sú, að þar sem lítið var
um æti á þessum slóðum, hefði
hann ekki þéttst nægilega til að
verða veiðanlegur. Ef við gerum
ráð fyrir því, að hann sé ekki eins
stór og upphaflega var ætlað, þá
má reikna með, að vertíðin, sem
fer í hönd, verði svipuð og vertíðin
í fyrra, en ef hann skilar sér má
búast við nokkru betri vertíð.
Fremur ólíklegt að hún verði lak-
ari.
Þá má geta þess, að vertíðarnar
1980 og 1981 voru mjög góðar og
þá fengum við viðbót í göngufiski
frá Grænlandi og það hefur alltaf
talsverð áhrif á gang vertíða hér,
hvað þaðan kemur. Útlitið við
Grænland er þannig nú, að einn
stór árgangur er að verða kyn-
þroska við Vestur-Græniand á
þessari vertíð, 1977 árgangurinn,
en það er mjög sjaldan að eitthvað
af sex ára fiski komi hingað yfir,
þannig að ekki er hægt að búast
við viðbót þaðan nú. Ef eitthvað
kæmi frá Grænlandi, þá yrði það
frekar á vertíðinni 1984. Þá skiptir
máli hve mikil loðnugengdin aust-
ur með landinu verður nú því gera
má ráð fyrir að þorskurinn þéttist
i henni á leið sinni til hrygningar,"
sagði Sigfús.
4 Sendibilar / sérflokki 4
Sendibílarnir frá MITSUBISHI eru í algjörum sérflokki,
hvaö viökemur verói, gæöum og útliti.
Þú getur valió um þrjár mismunandi útfærslur.
Komió, sjáið og sannfærist.
Laugavegi 170-172 Sími 21240