Morgunblaðið - 18.01.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.01.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 15 Samanburður á rekstri togara BÚR og Útgerðarfélags Akureyringa: Kostnaður togara BUR fór 3% fram úr tekjum - sami kostnaður ÚA 82% af tekjum togaranna TEKJUR Útgerðarfélags Akureyringa voru rúmlega 3% hærri en tekjur Bæjar- útgerðar Reykjavíkur árið 1981, þrátt fyrir að BÚR hafi verið með einum togara fleira hálft það ár, en þá var BÚR með 6 togara en ÚA með 5. Breytilegur kostnaður togara BÚR fór 3% fram úr tekjum þeirra á árinu, en sami kostnaður ÚA var aðeins 82% af tekjum. Á sama tímabili var löndunarkostnaður ÚA 45% lægri en BÚR og viðhaldskostnaður 35,5% lægri hjá ÚA en BÚR. Þetta kemur fram í skýrslu frá Rekstrarstofunni, en hún bar sam- an tekjur og breytilegan kostnað hjá togurum þessara fyrirtækja fyrir árið 1981. í skýrslu Rekstrarstofunnar kemur ennfremur fram að heildar- afli BÚR sé nokkru meiri en ÚA, en hins vegar hafi þar verið um verð- minni fisk að ræða, vegna óhag- stæðari aflasamsetningar. Togarar BÚR öfluðu 26.579 tonna á árinu, en togarar ÚA 24.947 tonna. Hins veg- ar er afli hvern úthaldsdag ivið meiri hjá ÚA, eða 17,93 tonn, en hjá BÚR 17,13 tonn. Olíunotkun miðað við hvern úthaldsdag er 13.428 krónur hjá BÚR en 13.946 krónur hjá ÚA, en viðhaldskostnaður er hins vegar 35,5% lægri hjá Útgerð- arfélaginu, en togarar þess brenna gasolíu en togarar BÚR svartolíu. Þá má nefna að launagreiðslur eru nokkuð sambærilegar hjá fyrirtæk- inu, 33,3% af tekjum togara BÚR, en 32,4% af tekjum togara ÚA. Olíukostnaður er 25,5% af tekjum BÚR, en 23,0% af tekjum ÚA. Hins vegar er veiðarfærakostnaður mið- að við hvern úthaldsdag 43,4% lægri hjá ÚA en BÚR, en veiðarfæri vega 8,4% af tekjum togara BÚR, en 4,1% hjá ÚA. Þá er fæðiskostn- aður hærri hjá BÚR en ÚA, 75,05 kr. á úthaldsdag á móti 66,81 kr. Þá sýnir samanburðurinn að breytilegur kostnaður togara BÚR er 103% af tekjum þeirra, þ.e. kostnaður fer 3% fram úr tekjum, en sami kostnaður Útgerðarfélags- ins er 82,0% af tekjum togaranna. Breytilegur kostnaður BÚR var á þessu ári, 1981, 84.463 milljónir, en hjá ÚA var hann 69.076 milljónir. „Á þessum samanburði sést að það er nauðsynlegt að gera þegar í stað verulegar skipulagsbreytingar á rekstri fyrirtækisins í heild," sagði Ragnar Júlíusson formaður útgerðarráðs BÚR í samtali við Mbl. „Ég tel að allir sem að fyrir- tækinu starfa, á einn eða annan hátt, verði að taka höndum saman um að snúa þessari óheillaþróun við og gera BÚR að sjálfstæðu fyrir- tæki,“ sagði Ragnar Júlíusson. Samanburóur á tekjum og breytilegum kostnaói togara I 3.Ö.R. 22 O.A. fyrir 1981. Tekjur BÖR þús.kr. ÖA þús.kr. Seldur afli hérlendis 75 723 81 332 Seldur afli erlendis 2 849 1 020 Aórar tekjur 3 059 1 864 Samtals 81 .631 100% 84 216 100% Laun 27 205 33,3% 27 251 32,4% Launatengd gjöld 4 131 5,1% 2 702 3,2% Oliur 20 841 25,5% 19 399 23,0% Veiöarfæri 6 867 8,4% 3 482 4,1% Löndunarkostnaður 5 525 6,8% 3 129 3,7% Tryggingar 3 411 4,2% 1 628 1,9% K*óiskostnaður 2 348 2,9% 1 980 2,4% Annar breytil. kostnaður 2 127 2,6% 2 561 3,0% Viðhald 12 008 14,7% 6 944 8,2% Breytilegur kostnaður samt. 84 463 103% 69 076 82,0% Fjöldi úthaldsdaga 1 552 1 391 Afli tonn 26 597 24 947 Afli pr. úthaldsdag tonn 17,13 17,93 sem % 100 104,7 Olia pr. úthaldsd. kr/dag 13 428 13 946 Veiðarf. pr. úth.d. kr/dag 4 425 2 503 Viðhald pr. útli.d. kr/dag 7 737 4 992 Olia 1. pr. úthaldsdag 6 619 5 402 Kostnaöur á fæöisdag 75,05 66,81 KLÚBBAR FÉLAGAS AMT ÖK FYRIRTÆKI Amarhóll býður ykkur aðstöðu til fastra hádegisverðafunda jafnt sem einstakra og einnig einkasamkvæma. ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR: Smærri hópa (frá 10 manns) hádegi og kvöld alla virka daga(í koníakssal). ____EINKASAMKVÆMI Stórar veislur jafnt sem smáar. Sama hvert tilefnið er, brúðkaup, afmæli, fermingar, próflok, Amarhóll annar öllu. ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR: Stærri samkvæmi (allt að 100 manna matarveislur og 200 manna hanastél til kl. 18.00) hádegi laugardaga og sunnudaga. Gestir utan af landi - Ópera - Leikhús ______________________ AmarhóII tekur á móti hóppöntunum óperu- og leikhúsgesta utan af landi. Auk hinnar margrómuðu þjónustu, sem ásamt hlýlegu umhverfi og fjölbreyttum matseðli hafa aflað veitingahúsinu svo mikilla vinsælda, eykur AmarhóII enn við umsvif sín. Við hinn almenna veitingarekstur hefur berlega komið í Ijós að margir afviðskíptavinum Amarhóls hafa brýna þörf fyrir aðstöðu til Iokaðra funda og samkvæma. Til þess að koma til móts við þessar þarfir gesta sinna hafa aðstandendur Amarhóls ákveðið að veita þessa þjónustu og eins og alltaf þegar AmarhóII er annars vegar situr fjölbreytnin í fyrirrúmi. Að aflokinni hagræðingu á salarkynnum veitingastaðarins getur Amarhóll nú boðið fjölbreyttum hópí viðskiptavina sinna margvíslega þjónustu. Aukín KENWOOD / eldhúsið B Eigum fyrirliggjandi: Kæliskápa, frystiskápa og eldhúsviftur Á GAMLA VERÐIIMU RAFTÆKJADEILD LAUGAVEGI 170-172 SIMAR 11687 • 21240 PRISMA 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.