Morgunblaðið - 18.01.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.01.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 Upp með lýðræðið Nýlega tóku hundruö Korsíkubúa þátt í friðsamlegum mótmælaaðgerðum sem haldnar voru til að knýja á um frið á eyjunni, en róstusamt hefur verið þar að undanfómu, sprengjutilræði og skotbardagar stríðandi afla, sem annars vegar vilja slit á tengslum við Frakkland og hins vegar vilja halda þeim böndum. A boröanum stendur eitthvað á þessa leið: Stöðvið ofbeldið, upp með lýðræði og efnahags- og menningarlegar framfarir. símamynd ap. Kaþólskur dómari myrtur á götu úti Itelfast, 17. janúar. AP. KUNNUR norður-írskur dómari var veginn á götu í Belfast á sunnudaginn. Hann hét William Doyle og var hann skotinn er hann hugðist setjast upp í bifreið sína eftir að hafa hlýtt á messu í rómversk-kaþólskri kirkju. Fjöldi manns varð vitni að ódæðinu, en banamenn Doyles, sem voru tveir, hurfu inn í mannþröngina og komust undan. Vitni sögðu að byssumennirnir hefðu gengið í hægðum sínum fast að Doyle er hann nálgaðist bifreið sína og hleypt af fimm skotum af stuttu færi. Var hann látinn er í sjúkrahús kom. Oidruð kona varð einnig fyrir skoti, en hún særðist ekki lífshættulega. írski lýðveldisherinn lýsti sagði m.a. í yfirlýsingu, að Doyle ábyrgðinni á hendur sér í gær og Jarðskjálftar í Grikklandi Aþenu, 17. janúar. Al*. JARÐSKJÁLFTI sem mældist 6,5 stig á Richters-kvarða varð í Suð- vestur-Grikklandi á hádegi í dag og olli miklu öngþveiti og hræöslu á götum úti. Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á mönnum, en nokkrar skemmdir munu hafa orðið á hús- um. Talsmaður jarðskjálftastofnun- arinnar í Aþenu sagði að jarð- skjálftinn hafi orðið um klukkan 12.45 og hafi hann átt upptök sín á hafsbotni, um 300 kílómetra suð- austur af Aþenu. Jarðskjálftans varð einnig vart á Suður-Ítalíu, en ekki var kunn- ugt um slys á mönnum eða skemmdir á mannvirkjum þar. hefði verið „líflátinn vegna þess að hann væri einn hlekkur í breskum yfirráðum á Norður-írlandi og þau yfirráð hefðu á sér heims- valdasinnaðan blæ“. Doyle var kaþólskur, eins og flestir félagar IRA, en í yfirlýsingu lýðveldis- hersins var þess getið að trú Doyl- es hefði verið aukaatriði. Hann hefur tekið fyrir mál öfgamanna úr báðum trúarhópunum og sitja margir inni fyrir hans tilstilli. í tilkynningu IRA var þess einnig getið að þrátt fyrir að Doyle hafi verið kaþólskur hafi hann verið stuðningsmaður mótmælenda- valdsins á Norður-írlandi og allir slíkir séu nánast réttdræpir að þeirra áliti. Þrátt fyrir að tveir aðrir dómar- ar hafi verið felldir á Norður- írlandi síðustu tvö árin og setið hafi verið um aðra, vildi Doyle aldrei hafa um sig sveit lífvarða eins og margir af kollegum hans gera. Hann taldi sér óhætt. Aður óþekktar Chaplin- myndir fundust í Sviss Lundúnum, 17. janúar. AP. í BRESKA sjónvarpinu er ver- ið að sýna þessa dagana þrjá klukkustundarlanga þætti með grínmyndakóngnum Charlie Chaplin; kvikmyndaspólur sem aldrei hafa komið fyrir manna sjónir fyrr, enda eyðilagði Chaplin nær undantekninga- laust allar þær spólur sem hann notaði ekki. Það voru bresku kvikmynda- áhugamennirnir Kevin Brown- low og David Gill, sem fundu myndirnar í læstum peninga- skáp á heimili Chaplins heitins i Sviss. Fundurinn kom mjög á óvart, einnig ásigkomulag þeirra, en þær voru í mjög góðu ástandi. Ekkja Chaplins, Oona, gaf þeim Brownlow og Gill leyfi til þess að gera úr spólunni þrjá klukkustundarlanga þætti og það er Thames-sjónvarpsstöðin sem hefur þættina til sýningar. „Þetta var sambærilegur fundur og ef við hefðum fundið upp- kastsmyndir Rembrandts," sagði Gill upphafinn. Vinsældir Chaplins hafa dvín- Charlie Chaplin að mikið síðan að andlát hans bar að á jóladag 1977, þá 88 ára gamall, en margir telja að þess- ar nýju myndir muni blása lífi í vinsældaglæðurnar. Hann hafði aldrei handrit í höndunum til að vinna eftir og vildi aldrei að starfshættir sínir yrðu gerðir opinberir, taldi það myndi svipta Hómanum af grínmyndum hans. I umræddum, áður óþekktum myndum má m.a. sjá Chaplin að störfum, æfandi skopleg atvik og endurtaka þau hvað eftir annað til að fullkomna þau. Hann endurtekur sama atvikið allt upp í 300 sinnum. Sem dæmi um þetta má nefna er hann vann að gerð myndar- innar „Klondike". Hann fór þá með allt kvikmyndalið sitt norð- ur til Alaska, til Klondike, og dögum saman sat flokkurinn að- gerðarlaus og skalf í kuldanum meðan Chaplin velti fyrir sér hvernig best væri að fram- kvæma hlutina. Hann notaði fleiri þúsund metra af filmu, en henti síðan megninu og tók allt upp á nýtt í kvikmyndaveri sínu. Blaðamenn breska blaðsins The Sun: „Framkoma Díönu jaðr- ar vid ofsóknarbriálæði" liondon. 17. ianúar. AP. l>ondon, 17. janúar. AP. ENN HEFUR kuldinn milli breskra blaðamanna og krúnuarfshjónanna bresku aukist og bresk blöð hafa sak- að Díönu um að hafa neitað að af- henda verðlaun veitt af breskum blöðum, en segja hana áður hafa gef- ið vilyrði fyrir því. Talsmenn krún- unnar hafa neitað því að Díana hafi svikið blaðaheiminn með þessum hætti, segja hana aldrei hafa skuld- bundið sig til að veita umrædd verð- laun. „Prinsessan einbeitir sér að þeim mannamótum sem hún hefur fyrir löngu ákveðið að koma fram á, hún hefur aldrei þegið aö veita blaða- verðlaunin og því ekki um það að ræða að hún hafi hætt við eitt eða neitt slíkt,“ sagði í tilkynningu frá Buckinghamhöll. Þessar skærur koma í kjölfarið á reiði kóngafólksins í garð frétta- manna, sem eltu Díönu og Karl á röndum í skíðaferðalagi hjónanna í Austurríki. Fór það svo í taugarnar á Díönu að hún neitaði að sitja fyrir á fréttamyndum og neitaði einnig að ræða við blaðamenn, sem hreinlega renndu sér á skíðum við hlið hennar niður brekkurnar. Voru blaðamennirnir sakaðir um að eyðileggja frí þeirra hjóna, sem er hið fyrsta síðan að þau eignuð- ust ríkisarfa. Eftir ákúrur frá Buckingham-höll drógu blaða- mennirnir sig mjög í hlé, 40 þeirra fluttu burt af hóteli því sem ríkis- arfarnir bjuggu á og ekkert blað ritaði lengri frétt um skíða- mennsku þeirra en upp á 20 línur. Aðeins blaðamenn „The Sun“ halda eftirförinni áfram, og þeir hafa sakað Díönu um að þjást af ofsóknarbrjálæði. Fríi hjónakorn- anna lauk í gær, en síðustu dagana bjuggu þau í Vaduz, hjá Franz Jos- ef II. þjóðhöfðingja Lichtenstein. 45 manns fórust í flugslysi í Ankara Ankara, Tyrklandi, 17. janúar. AP. TYRKNESK þota af gerðinni Boeing 727, á leið frá Istanbul til Ankara, fórst í snjóstormi í gær í lendingu á flugvellinum í Ankara og létu 45 manns lífið, aö því er segir í opinber- um heimildum í dag. Margaret Thatcher: „Vesturlönd mega ekki minnka kjarnorkuvopnabirgðir sínar“ Lundúnum, 17. janúar. AP. „SOVÉTMENN eru klókir og harðir í horn að taka,“ sagði Margaret Thatcber forsætisráðherra Breta m.a. í klukkustundar löngu viðtali sem við hana var tekið í breska sjónvarpinu í gær þar sem hún hvatti Vesturlönd til að treysta varnir sínar gegn hugsanlegum árásum Sovétríkjanna. Hún sagði einnig, að þrátt 'fyrir andstöðu fjölmargra og mótmælaaðgerðir, myndu Bretar koma fyrir stýriflaugum í Bretlandi. „Að annar aðilinn sé veikur fyrir eykur hættuna á því að hinn sterkari láti til skarar skríða og því eiga Vesturlönd ekki að gefa eftir,“ sagði frú Thatcher enn fremur. Thatcher sagði einnig: „Ég skil ekki þá sem heimta skilyrðis- lausa afvopnun Vestur-Evrópu. Ég get með góðri samvisku sagt að ég sé afvopnunarsinni og ég held frið, frjálsræði og réttlæti. Ef Sovétmenn hafa áhuga á því að hefja afvopnun, verða þeir að sanna það fyrir okkur á áþreif- anlegan hátt, þeir verða að sýna vilja sinn í verki. Þeir vilja að Vesturlönd séu veik fyrir svo þeir virki ógnvekjandi. Þeir hafa viljandi til þessa tafið afvopnun- arviðræður með því að krefjast þess af okkur að við endurnýjum ekki okkar kjarnorkuvopn. Þeir hafa sagt okkur að þeir vilji ekki ræða afvopnun nema við göng- um að þessu, en á sama tíma Margaret Thatcher. auka þeir hernaðarmátt sinn eins og þeim sýnist. Þetta er dæmigert fyrir Rússana og það var ekki fyrr en við höfðum gert þeim fyllilega skiljanlegt að við myndum aldrei fallast á slíka kosti, að þeir drógu í land og virðast nú tilbúnir til viðræðna." Thatcher var einnig spurð að því hvers vegna hún kysi að Bretar bættu hinum umdeildu stýriflaugum við safn sitt þar sem andstaðan væri jafn mikil og raun er. Hún svaraði því til að hér væri alls ekki um eldflauga- fjölgun að ræða. „Fyrir hverri stýriflaug, sem við komum fyrir, víkur önnur eldri. Við erum ein- ungis að endurnýja vopnabúrið, ekki að stækka það,“ svaraði Thatcher. Sextíu farþegar voru um borð í þotunni og sjö manna áhöfn og lifðu fimmtán farþegar slysið af ásamt allri áhöfninni. Forsætisráðherra Tyrklands, Bul- end UIusu, sem aðstoðaði við stjórn- un björgunaraðgerða, sagði frétta- mönnum að orsök slyssins væri ókunn og væri þegar hafin opinber rannsókn á aðstæðum og öllu sem að málinu sneri. Vélin mun hafa hrapað í lendingu og brotnað í tvennt eftir að stélið snerti flugbrautina, en hinn svokall- aði „svarti kassi" sem geymir sam- töl áhafnar og flugturns, sem og upplýsingar um tæknileg atriði, fannst í kvöld og er þess vænst að það flýti fyrir rannsókn slyssins. Kreppu- lok 1984? Kuwait, 17. janúar. AP. FRÉTTASTOFA í Kuwait, hefur það eftir A.W. ('lausen, bankastjóra Al- þjóðahankans, að árið 1984 gæti vel farið svo að Evrópa rísi upp úr kreppu þeirri sem steöjar að um þessar mundir. „Þróunarlöndin gætu þó sett strik í reikninginn, það verður mun erfiðara fyrir þau að rífa sig upp úr kreppunni," segir Clausen í um- ræddu viðtali. Clausen ræddi fyrir skömmu við Jabbar A1 Sabha, þjóðhöfðingja Kuwait. Eftir þann fund tjáði hann fréttamönnum að Alþjóðabankinn myndi fara fram á vaxandi sam- skipti bankans og OPEC-landanna á næstu misserum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.