Morgunblaðið - 18.01.1983, Side 19

Morgunblaðið - 18.01.1983, Side 19
1 I MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 19 Mynd þessi sýnir Frank Bough, sem er kynnir í hinni nýju morgunverðardagskrá BBC, skenkja samstarfs- mönnum sínum í þættinum kampavín eftir aö velheppnaðri útsendingu lauk í morgun. Bretland: Fjölbreytni í morgun- útsendingum sjónvarps Lundúnum, 17. janúar. AP. BRETUM var boðið upp á ör- lítinn skammt af sjónvarps- efni, sem gjarnan hefur verið kennt við Bandaríkin á und- anförnum árum, með ristaða brauðinu og sultunni í morg- un. Hingað til hafa sjónvarpsút- sendingar í Bretlandi að morgni ekki vakið mikla athygli og það er þess vegna sem margir telja dagskrá þá sem hófst í morgun — og er keimlík því sem Banda- ríkjamenn hafa haft fyrir aug- unum í þrjá áratugi — vera bylt- ingu á sviði fjölmiðlunar þar í landi. Aðstandendur sjón- varpsstöðvanna, sem hafa slíka „morgunverðardagskrá" í huga, vonast til að geta lokkað sem flesta frá útvarpstækjunum að skjánum ef vel tekst til með efn- isval. BBC-sjónvarpsstöðin reið á vaðið í morgun með „morgun- verðarþætti" sínum sem stóð frá 6.30 til 9. Þar var boðið upp á alls kyns efni af léttara taginu, en skeytt var inn í fregnum hvað- anæva ásamt fréttum af veðri og færð. Aðrar sjónvarpsstöðvar, aug- lýsingastöðvarnar, hefja útsend- ingar á þessum sama tíma þann 1. febrúar næstkomandi. Veður víða um heim Akureyri Amsterdam Aþena Barcelona Beirut Berlín Brussel Buenos Aires Chicago Dublin Feneyjar Frankfurt Genf Helsinki Hong Kong Jerúsalem Kaupmannahöfn Las Palmas London Madrid Malaga Mallorca Mexico City Miami Moskva New York Nýja Delhf Ósló París Peking Reykjavík Róm San Francisco Stokkhólmur Tókýó Toronto Vancouver Vfn Þórshöfn -13 hálfskýjaö 6 skýjað 11 heiöskírt 14 heiöríkt 13 rigning 8 rigníng 11 skýjaö 24 rigning -4 skýjaö 10 heiðskýrt 2 þoka 7 rigning 8 skýjaö 1 skýjað 20 skýjaö 9 rigning 4 rigning 19 skýjaö 11 skýjaö 15 heiöskfrt 16 heiöskírt 15 lótt 15 heióskfrt 20 skýjaö 1 skýjaó 1 snjókoma 19 skýjaó -5 skýjaó 11 skýjað 3 heíðskírt -7 skýjaö 13 heiðskírt 14 skýjaö -2 snjókoma 12 heiöskfrt -6 skýjaö 8 skýjaö 7 skýjaó 0 snjókoma Kjarnaofninn stefn- ir inn í gufuhvolfið um miðjan febrúar Moskvu, 17. janúar. AP. SOVÉSK yfirvöld tilkynntu á laugardag að kjarnaofn hins kjarnorkuknúna gervitungls, sem stefnir nú stjórnlaust til jarðar, komi inn í gufuhvolf jarðarinnar um miðjan febrúar. Sovéskur yfirmaður tilkynnti að geislavirkir hlutar verði að mestu brunnir upp í efri lögum gufuhvolfsins og ekki sé um neina hættu að ræða frá öðrum hlutum sem hugsanlega falli til ERLENT jarðar. Geislavirkni þeirra myndi ekki fara yfir alþjóðleg hættumörk. Tilkynning þessi var lesin í aðalfréttatíma sovéska. sjón- varpsins á laugardagskvöld og var einnig dreift af sovésku fréttastofunni TASS. Einnig kemur fram að „aðalhluti" gervitunglsins Cosmos komi inn í gufuhvolfið síðla í janúar og annar hluti þess hafi brunn- ið upp í gufuhvolfinu 30. desem- ber síðastliðinn. Tilkynningin á laugardag var önnur tilkynning Sovétmanna um erfiðleika gervitunglsins síðan bandaríska varnarmála- ráðuneytið tilkynnti um gervi- tunglið, sem stefnir nú stjórn- laust til jarðar. Liðsandi lélegur meðal sovéskra? Moskva, 17. janúar. AP. HART er lagt að óbreyttum afgönsk- um verkamönnum þessa dagana að þeir stofni varðliðasveitir til varnar verksmiðjum og bóndabýlum, eftir því sem sovéska fréttastofan Tass segir. Varðliðasveitir þessar eiga að sporna við árásum og áreitni „skæru- Kirsten Thorup fær „dönsku gullberin“ DANSKA skáldkonan Kirsten Thorup fékk verðlaun samtaka danskra gagn- rýnenda og bóksala, „Gyldne laur- bær“, nú fyrir helgina. Verðlaunin hlýtur hún fyrir tveggja binda skáld- verk sitt „Himmel og helvede" sem sagt var frá í þættinum Erlendar bæk- ur í Mbl. í sl. viku. Þetta var í 34. skipti sem laurberjunum er úthlutað. Meðal höfunda sem hafa hlotið þau eru flestir þekktustu höfundar I)an- merkur. Fram að þessu hefur verkið verið gefið út í fimmtán þúsund eintök- um og væntanlega mun nú koma hressilegur kippur í söluna að sögn blaða. Suzanne Brögger fékk verð- laun þessi í fyrra fyrir „Tone“, þar rp, áður Tage Schou Hansen og 1980 Klrslen Thorup fékk Johannes Möllehave þau. Kirsten Thorup hefur áður sgnt leikritagerð. Hún vakti fyrst veru- frá sér nokkrar ljóðabækur og lega athygli með skáldsögunni Baby skáldsögur og hún hefur fengizt við sem kom út 1973. Langlífir tvíburar ÞEIM ER ekki físjað saman þessum gömlu á meðfylgjandi mynd. Ef einhver væri spurður um líkurnar á því að tviburar myndu báðir lifa til 100 ára aldurs, yrði honum sennilega svarafátt. En að þeir yrðu báðir 101 árs? Það er raunin með þessar systur, tvíburana Lucy Brown Coleman og Lizzy Brown English, en 13. janúar síðastliðinn héldu þær upp á 101 árs afmæli sín í McRae í Kaliforníu. Nakasone væntanleg- ur til Bandarlkjanna liða“, eins og Tass orðar það. Þessar þreifingar þykja benda til þess að vaxandi óánægja sé í röðum hinna áætluðu 100.000 sovésku her- manna sem þátt taka í stríðinu, liðsandinn sé ekki upp á það besta. Tass gat þess ekki hversu marg- ar varðliðasveitir af þessu tagi hefðu sprottið upp, né heldur hversu öflugar þær væru. Eitt dæmi var þó tiltekið, í tengslum við Textil-fyrirtæki í Begrami. Þar skipa varðliðasveitina 360 starfs- menn fyrirtækisins og vinna þeir á vöktum eftir að vinnu lýkur á kvöldin. „Sveitunum hefur verið séð fyrir vopnum svo þær geti stað- ist heimsvaldasinnana og uppþots- mennina, svo ekki sé minnst á málaliða þeirra í andbyltingar- flokkunum," segir Tass. Washington, 17. janúar. AP. JAPANSKI forsætisráðherrann, Yasuhiro Nakasaone, er væntanlegur í opinhera heimsókn til Bandaríkj- anna i kvöld þar sem George P. Schultz mun taka á móti honum. Hann mun síðan ræða við Ron- ald Reagan Bandaríkaforseta á morgun og er þess vænst að hann reyni að fá bandarísk stjórnvöld ofan af þeirri áætlun sinni, að koma í veg fyrir atvinnuleysi í Bandaríkjúnum með því að setja hömlur á innflutning frá Japan. Bandaríkjaforseti mun hins veg- ar leggja áherslu á að fá fram til- slakanir varðandi viðskipta- og varnarmál, en bandarískir yfir- menn hafa látið í ljós þá skoðun að heimsókn Nakasaone nú muni ekki koma til með að leysa deilumál þjóðanna tveggja, til þess þurfi frekari umræður. Mikil reiði hefur ríkt í Banda- ríkjunum að undanförnu vegna „innrásar" japanskra vörutegunda á bandarískan markað, sem taki atvinnuna frá fjölda Bandaríkja- manna og valdi tekjuhalla sem nemur allt að 20 milljörðum doll- ara á ári. Bretar sáttir við Koo? Lundúnum, 17. janúar. AP. BRETAR hafa gefíð grænt ljós á ástarsamband Andrews prins og Koo Stark ef marka má niðurstöður skoðanakannanar sem birt var þar í landi í dag. Sjö af hverjum tíu karl- mönnum og sex af hverjum tíu konum sögðu það ágætt ef Andr- ew, sém er 22ja ára gamall, tæki sig til og bæði Koo Stark, sem er 26 ára gömul bandarísk leikkona og lék á sínum yngri árum í nokkrum klámmyndum. Skoðanakönnun þessi, sem náði til 525 manns, var gerð fyrir blað- ið Sun. Norðaustur-Bandaríkin: Ofsaveður yfir helgina New Vork. 17. janúar. AP. NOKKRAR borgir í Norðaustur- Bandaríkjunum urðu illa úti í stór- hrið um helgina og var sums staðar allt að sextíu sentimetra jafnfallinn snjór yfír öllu. Hann skóf síðan í skafla og truflanir urðu jafnt á um- ferð og rafmagni. Margir íbúar Nýja Englands, sem minntust blindbyls frá árinu 1978, voru viðbúnir hinu versta og héldu sig heima, en þrátt fyrir það urðu mörg slys á mönnum sökum veðurs. Maður frá Massachusetts drukknaði snemma á sunnu- dagsmorgun í nánd við Boston, en hann var þar ásamt félögum sín- um á strönd, sem ber nafnið Nan- tasket. Sviptist hann var svipt með vindhviðu á haf út. I Albany var 56 sentimetra jafnfallinn sjór yfir öllu og er það mesti snjór sem þar hefur mælst frá upphafi mælinga þar, fyrir einni öld. i i i i i ( I < < < < i i \ i i \ i I 1 I i \ i \

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.