Morgunblaðið - 18.01.1983, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
21
• Ásgeir Sigurvinseon, sem hér leikur á einn al varnarmönnum Fortuna DUsseidorf, hefur mikið skánað af
meiðslunum sem háá hefa honum undanfama mánuði, en segist þó ekki orðinn alveg nógu góður.
Stuttgart-liöið er nýkemið úr erfiöri æfingaferð frá Frakklandi, og þá lék liðið einn leik við Bayern MUnchen
og tapaöi með einu marki gegn engu. Ásgeir segist aldrei vilja fara til Bayern aftur, en mikið hefur verið
skrifað um það í blöðum ytra, að hann hafi veriö seldur of snemma frá félaginu. i.jósmjnd skaptí Haiigrímsson
Asgeir leikur meö a laugardaginn:
„Færi aldrei aftur
tii Bayern Munchen“
STUTTGART-liðið er nýkomið heim úr langri og strangri æfingaferð.
Liðið dvaldi í Cannes í Frakklandi og lék þar þrjá æfingaleiki og æfði
stíft, síðan var haldið til Sviss og þar var leikinn vináttuleikur gegn
Bayern MUnchen. Ég spilaði alla þessa leiki og var inná ailan tímann,
þrátt fyrir að ég sé nú ekki orðinn alveg nægilega góður ennþá eftir
uppskurðinn, sagði Ásgeir Sigurvinsson er Mbl. spjallaöi við hann í
gærkvöldi.
— Ég á svolítiö erfitt meö aö
taka stutta og snögga spretti, þá
fæ ég verk í nárann. En ég verö
betri meö hverjum degi og finn aö
ég er alveg aö ná mér af þessu,
sem betur fer. í augnablikinu er ég
þreyttur eftir æfingabúöirnar og
æfingaleikina, enda ekki spilaö og
æft í langan tíma. Þaö tekur alltaf
tíma aö komast í gang aftur. En ég
á samt ekki von á ööru en aö ég
leiki fyrsta leikinn í síðari umferö-
inni sem hefst á laugardaginn. Viö
eigum þá aö mæta Dortmund á
heimavelli.
Ég er bjartsýnn á aö Stuttgart
gangi vel í síöari umferöinni. Viö
eigum aö geta náö UEFA-sæti og
ég hef trú aö viö náum langt í bik-
arkeppninni.
Nú hefur verið rætt um þaö í
blöðum og sjónvarpi í V-Þýska-
landi aö þú hafir verið seldur of
fljótt frá Bayern, hvaö vilt þú
segja um þau mál?
— Já, ég hef heyrt um ummæli
bæöi Breitners og Rummenigge
og séö greinar um þaö í blööum aö
ég hafi veriö seldur of fljótt frá
Bayern. En þaö er alltaf hægt aö
segja svona eftir á. Ég er mjög feg-
inn því aö vera farinn frá Bayern
og myndi aldrei fara þangaö aftur.
Eitt ár var meira en nóg. Mér líkar
afarvel hér hjá Stuttgart-liöinu og
vona bara aö mér gangi jafn vel
núna þegar ég byrja aö leika aftur
og í upphafi keppnistímabilsins,
sagöi Ásgeir sem ef að líkum lætur
veröur mættur í slaginn aftur
næsta laugardag meö liöi sinu,
Stuttgart, eftir langt hlé vegna
slæmra meiðsla.
— ÞR.
Pétur lagöi
upp þrjú
markanna
PÉTUR Pétursson kom heldur bet-
ur viö sögu um helgina er lið hans
Antwerpen sigraöi Gent 5—1.
Framan af leiknum var Antwerpen
í hálfgeröum vandræðum og
hvorki gekk né rak. Antwerpen
tókst þó aö ná forystunni í leikn-
um, 2—1. Pétur var ekki í byrjun-
arliöinu, en þegar 20 mínútur voru
eftir af leiknum var Pétur settur inn
á í framlínuna. Pétur hefur eflaust
veriö fariö aö langa aö komast í
snertingu viö boltann, því aö hann
fór hamförum á vellinum. Geröi
mikinn usla í vörn Gent. Splundr-
aöi henni hvaö eftir annaö og lagöi
upp þrjú mörk fyrir liö sitt. Ant-
werpen náöi því stórum sigri,
5—1, þó svo aö hann kæmi á síö-
ustu stundu.
— ÞR
• Pétur Pétursson fagnaði stórsigri um hslgina sr lið hans, Antwerp-
en, sigraöi 5—1. Pétur átti stóran þátt Iþremur síðustu mðrkunum.
Júlíus Hafstein:
„Páll hefur ekki
næga yfirsýn“
nÉg tel ástæðulaust að vera að
fjalla nokkuð um bréf það sem
Páll Eiríksson skrifaði stjóm HSÍ,
að svo komnu máli.“ Ég tel að
Páll Eiríksson geðlæknir hafi ekki
þá yfirsýn yfir stðrf stjórnar HSÍ
og landsliðsnefndar aö hann geti
gagnrýnt hana eins og hann gerði
í Morgunblaðinu síðasta laugar-
dag. Stjórn HSÍ og landsliösnefnd
vinna eins vel og samviskusam-
lega að undirbúningi landsliösins
fyrir B-keppnina eins og nokkur
kostur er, sagöi formaður HSÍ,
Júlíus Hafstein er hann var inntur
álits á gagnrýni þeirri, sem Páll
Eiríksson læknir setti fram í blað-
inu í viðtali á laugardaginn.
Bréf Páls til stjórnarinnar hefur
ekki enn veriö tekið formlega
fyrir á stjórnarfundi hjá HSÍ en
ætlunin var að fjalla um það í
gærkvöldi.
— ÞR.
Stökk yfir 1,80 m án atrennu:
Glæsilegt met
hjá Sigurði
• Sigurður Matthíasson, há-
stðkkvarinn ungi og efnilegi,
bætti eigið met í hástðkki án at-
rennu.
DALVÍKINGURINN kraftmikli Sig-
urður Matthíasson setti nýtt fs-
landsmet í hástðkki án atrennu
síöastliðið föstudagskvðld. Sig-
urður stökk 1,80 metra sem er
glæsilegur árangur og átti Sig-
urður sjálfur gamla metið sem
var 1,77 metrar.
Siguröur átti mjög góöar tilraun-
ir við 1,86 metra en felldi naum-
lega. Veröur þess varla langt aö
btða aö hann stökkvi yfir þá hæö.
Sigurður býr yfir geysilega miklum
stökkkrafti, og er jafnframt fjöl-
hæfur íþróttamaöur. Hann stundar
nám viö íþróttakennaraskólann á
Laugarvatni. Siguröur mun keppa
á meistaramóti íslands í atrennu-
lausum stökkum um næstu helgi,
og þá veröur fróölegt að sjá hvern-
ig honum tekst upp. — ÞR.
Þjálfarinn kynnist
leikmönnum fyrst í
gegn um myndbandió
RÚSSNESKI knattspyrnuþjálfar-
inn Gennady Logofet sem Vík-
ingar hafa ráöið til starfa er vænt-
anlegur til landsins í lok janúar.
Eitt fyrsta verk hans þegar hann
kemur til starfa er að fara yfir alla
knattspyrnuleikí meistaraflokks
Víkings i knattspyrnu á síöasta
keppnistímabili.
Leikirnir eru allir til á myndseg-
ulbandi. Þaö mun taka Logofet í
kringum 50 klukkustundir aö horfa
á leikina á myndböndum. En hann
verður væntanlega fróöari um
leikmenn Víkings og liðiö í heild.
Hans fyrstu kynni af leikmönnum
veröa því í af myndþandi. Er þetta
gott dæmi um þær miklu breyt-
ingar sem hafa átt sér staö, og
tæknina sem knattspyrnufélögin
hafa tekiö í sína þjónustu.
— ÞR.
Litlar líkur á
að HM-keppnin
verði í Brasilíu
GIULITE Coutinho var í gær
endurkjörinn formaður brasilíska
knattspyrnusambandsins og er
talið aö það verði til þess að
minnka verulega líkurnar á því að
Brasilía haldi næstu HM-keppni í
knattspyrnu.
Coutinho og Joao Havelange,
forseti FIFA, eru ekkert allt of góö-
ir vinir, en Havelange er einnig
Brasilíumaður. Þeir hafa deilt
harölega undanfariö á opinberum
vettvangi, og Havalange sagöi ný-
lega aö Cautinho væri ekki sterkur
leiötogi.
Kólombía, sem ætlaöi aö halda
keppnina, hætti viö nýlega, eins og
við höfum sagt frá, og talið var aö
Brasitía kæmi til greina í staöinn.
FIFA fer fram á margar og strang-
ar kröfur viö það land sem halda
mun keppnina, og hann sagöi ný-
lega, aö „án styrks frá ríkisstjórn-
inni“ gæti Brasilía ekki haldið
keppnina. Þjóöin er hins vegar
mjög illa fjárhagslega stödd og
Cautinho hefur ekki getaö kynt
undir áhuga forráðamanna aö
halda keppnina. Þær þjóöir sem
koma nú helst til greina eru þvi
Bandaríkin, Kanada og Mexikó.