Morgunblaðið - 18.01.1983, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
Toni Schumacher:
Syndaselur HM-keppninnar
á Spáni síðasta sumar
„Á aöeins þremur sekúndum gleymdu menn öllu sem
ég hafði áður gert. Allt var gleymt sem ég hafði áður
afrekað fyrir lið mitt oa landslíðiö.“ Eftir brotið á Frakk-
anum Battiston var Schumacher talinn syndaselur
heimsmeistarakeppninnar. Hann er sá Þjóðverji sem
mest var hataður. Hann varð að líða fyrir allt sem gerðist
hjá vestur-þýska landsliðinu, þ.e.a.s. tapið fyrir Alsír,
„svindlleikinn“ gegn Austurríkismönnum og agaleysi
ýmissa leikmanna meðan á keppninni stóð.
„Ég var svívirtur og mér var hótað. Það var tilgangs-
laust fyrir mig að reyna að réttlæta brotiö á Battiston á
nokkurn hátt. Hatrið á mér var slíkt að það var sama
hvað ég gerði á þessum tíma, öllu var snúið gegn mér.
Ég átti ekki uppreisnar von. Ég sá að eína leiðín út úr
þessum vanda var að leika betur í markinu en nokkru
sinni fyrr, annars var öllu lokiö fyrir mér.“
• Schumacher er óumdehantega beatt markvðrdur í V-Þýskalandi í
dag og einn aá besti sem fram hefur komió {mörg ár.
• Schumacher er farinn að broea aftur eftir að hafa orðið fyrir aðkasti
úr ýmsum áttum. Eins og leea má f greininni hér á síðunni hefur hann
ekki átt sjö dagana sæla.
„Það var tyrst í leiknum gegn
Glasgow Rangers aö ég fann sjálf-
an mig aftur og ég leyföi mér aftur
aö vera ég sjálfur! Þá loksins losn-
aöi um þá brynju sem haföi smám
saman hlaöist upp hjá mér og þaö
losnaöi um mig. Þessi leikur virk-
aöi fyrir mig eins og vítamín-
sprauta. Ég kyssti sjónvarpskvik-
myndavél sem var viö hliöarlínu
vallarins. Margir töldu þaö hroka
af minni hálfu. Fyrir mig er knatt-
spyrnan „show“. Ég tel aö meö lát-
bragöi mínu geti ég betur tengst
áhorfendum. Eftir aö viö unnum
þennan leik 5:0 fannst mér aö erf-
iöasti tíminn frá brotinu á Battiston
væri liöinn hjá. Ég gat aftur slegiö
á létta strengi, hlegiö og haföi
fengiö sjálfstraustiö aftur. Aftur á
móti eru enn margir sem hafa ekki
gleymt þessu atviki og því var ekki
um annað aö ræöa en aö ég fengi
mér leyninúmer fyrir mína allra
nánustu vini. Svo viröíst sem gamli
góöi Toni sé búinn aö ná sér aftur,
aö vísu meö nokkrum undantekn-
ingum. Hann hefur lært á þessum
þremur mánuöum aö þaö borgar
sig ekki aö vera mjög opinn, aö
ræöa málin opinskátt við fjölmiöla,
heldur veröur aö hugsa sig tvisvar
um áöur en nokkuð er sagt.
Af hverju var ég svona baráttu-
gjarn og af hverju vildi ég standa
mig svo vel á HM? Ég vildi, og
stefndi að því, aö verða heims-
meistari. Ég vildi veröa heims-
meistari þrátt fyrir þaö agaleysi
sem ríkti í herbúðum vestur-þýska
landsliösins fyrir HM. í æfingabúö-
um munaði minnstu að ég væri bú-
inn aö fá mig fullsaddann og íhug-
aöi ég á tímabili aö gefa ekki kost
á mér í landsliöiö.
Eftir samstuöiö viö Battiston var
þaö aöeins einn sem sagöi: Við
skulum fara meö blómvönd á
sjúkrahúsiö. Auövitaö heföi ég
fundið þaö upp hjá sjálfum mér.
Seinna þegar ég fór aö eigin frum-
kvæöi til Patricks á sjúkrahúsiö f
Metz, sagöi hann viö mig: „Toni,
ég erfi þetta samstuö ekki viö þig.
Þaö heföi alveg eins getaö veriö
þú sem lægir hér í staö mín.“ Því
svaraði ég á þessa leiö: „Patrick,
þess vegna er ég kominn hingaö til
þin, og til að biðjast fyrirgefn-
ingar“. Því, aö ég skyldi fara og
biöjast fyrirgefningar var snúiö
gegn mér. Daglega mátti ég lesa í
dagblööum, þar sem mér var líkt
viö SS-mann og Nazista. Þaö var
sama hvar ég kom, alls staöar var
baulaö á mig og fólk kastaöi í mig
steinum og fúlum eggjum. I vin-
áttuleik sem Köln lék í París fyrfr
keppnistímabiliö, varö ég aö fá
lögreglufylgd út af leikvanginum.
En verst af öllu voru þó þegar
árásir sem voru geröar aö fjöl-
skyldu minni; foreldrum, konu og
syni.
Allir sem vilja setja sig í mín
spor hljóta aö sjá, aö þessi tími var
gífurlega erfiöur fyrir mig, erfltt
reyndist aö einbeita sér aö
knattspyrnunni. Ég er sérstaklega
þákklátur þjálfara mínum Rinus
Michels fyrir aö standa fullkomlega
meö mér. Vinir mínir hafa elnnig
haft skilning á því að óg er gjör-
breyttur maöur eftir allt þaö sem
gerst hefur. Ég tel aö ég hafi aldrei
leikiö betur í markinu en nú, en
þaö verður alltaf hindrun fyrir mlg í
hvert skipti sem mér lendir saman
viö útileikmann eftir úthlaup úr
markinu, veröur mér kennt um
brotiö, jafnvel þó aö brotiö sé á
mér. Þaö hef ég upplifaö í nokkr-
um leikjum. Ég held samt sem áö-
ur áfram aö vera óhræddur í návigi
ef aö svo ber undir, raunverulega
veit maður aldrei sem markmaður
hvort aö maöur kemur heill úr
þessum úthlaupum sem hver
markvöröur upplifir í hverjum
knattspyrnuleik ... “
3 mánaða vandræði:
8. júlí: f undanúrslitum HM í
leik Frakka og Vestur-Þjóðverja í
Sevilla, hleypur Toni Schumacher
Frakkann Battiston gróflega niöur.
Dómari leiksins sér ekkert athuga-
vert viö þetta glæfralega samstuö.
Hann sér ekkert reglubrot, en
heimspressan var á annarri skoö-
uij: „Ljótasta brot sem nokkurn
tíma hefur sést á HM“, stóö meöal
annars í „Daily Mail.“ Franska
blaðiö „Parissien" sagöi: „Schu-
macher sparkaöi Battiston niður.“
Afleiöingar af árekstri Schumacher
viö Battiston: hálshryggjarliöur
brotinn, tvær tennur brotnar.
Schumacher bregst hranalega viö:
„Ég skal borga kragann um háls-
inn“. Klukkan 4 um nóttina hringir
hann í konu sína og foreldra:
„Þetta var óviljandi, ég vildi ekki
meiöa hann“.
14. jÚIÍ:Schumacher hringir í
Battiston í Metz og biöur um fyrir-
gefningu og skilning. Battiston:
„Schumacher virkaöi mjög miöur
sín“.
15. júlí: Schumacher fer til
Metz til aö biöjast persónulega
fyrirgefningar. Atvlnnuknatt-
spyrnumennirnir takast í hendur
og telja aö málinu sé lokiö. Ekki
aldeilis. Fjölmiðlar láta enn í sér
heyra og afsakanir hans eru túlk-
aöar sem hrein yfirborösmennska.
Jafnvel þótt Battiston segi: „Ég tek
afsökun Tonis fullgilda".
31. júlí: 1 FC. Köln tekur þátt
í alþjóölegu mótl ( Freiburg í
Vestur-Þýskalandi. Hótunarbréf
berast og Toni er hótaö lífláti. Sér-
stakur lögregluflokkur er haföur
fyrir aftan markiö í hverjum leik
sem hann spllar.
3. ágúst: 1 FC. Köln tekur
þátt í alþjóölegri keppni í París.
Enn moröhótanir. Lögregluvernd.
Hann er grýttur meö tómötum og
fúlum eggjum. Plaköt um allan
leikvanginn, Toni Schumacher
SS-maöur ...
21. ágúðt: Toni leikur meö
Köln í Bundesligunni gegn
Braunschweig. Bak við marklö
hrópa áhangendur Braun-
schweigs: „Moröingi, moröingi."
11. september: Enn í leik í
Bundesligunni gegn Dortmund.
Hann er grýttur meö tómötum,
lauk, rakettum, glerílátum og
grjótí.
22. september: Landsleikur
Vestur-Þýskaland — Wales. Eig-
inlega átti Toni ekki aó leika.
Markvöröurinn Bernd Franke
meiöir sig á síöustu stundu. Toni
er látinn leika. Áhorfendur (
Múnchen taka Toni vel og hrópa
aö þeir standi meö honum. Toni
lætur þakka fyrir sig í hálfleik. Eftir
leikinn sagði Toni: „Aldrei hefur
mér liöiö eins vel á ævinni og mun
ævinlega veröa Munchenarbúum
þakklátur fyrir þennan móralska
stuöning."
13. október: Landsleikur
England — Vestur-Þýskaland.
Fyrir leikinn er Toni lýst sem
HM-skúrknum. Aö leik loknum
mátti lesa: „Heimsklassa frammi-
staöa“. Toni haföi fengið uppreisn
æru sinnar.
3. nóvember: UEFA-keppn-
in: Köln gegn Glasgow Rangers.
Köln vinnur 5:0. Toni kyssir sjón-
varpsmyndavélina.
• Toni moð konu sinni Msrllos og bflmum sínum tvoimur.