Morgunblaðið - 18.01.1983, Page 26

Morgunblaðið - 18.01.1983, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 Fólk og fréttir í máli og myndum Búningur numer 9 er Englendingum heilagur MEÐ PAUL MARINER sem markaskorara í 1—0, sigri yffir Ungverjalandi, ruddi England sér braut til HM-keppninnar á Spáni síðastliðið sumar. En hinn 28 ára gamli framherji frá Ipswich fékk ekki að dvelja lengi í sjöunda himni þrátt fyrir markið. Ákúrunum rigndi yffír hann og stór spurningamerkí voru sett við það hvort Mariner væri rétti maðurinn til að bera treyju númer 9. Mariner rak í rogastans er hann fann þessar mót- bárur. „Á einn eöa annan máta reyna þessir menn að ýta mér til hliðar, en þetta minnir mig aðeins á að það bíður alltaf einn reiðubúinn, ef ég virkilega bregst. Það er opinber staðreynd, að sá sem í landsliðinu hleypur um í peysu númer 9 má gera svo vel að þola sérstaklega harðar ákúrur. Ég man hvernig Bob Latchford spílaði hvern úrvalsleikinn á fætur öðrum með landsliðinu í framlínunni með Kevin Keegan sér við hlið. Engu að síður heimtuðu menn að annar maður yrði settur fram.“ Hin sígilda númeraniöurrööun leikmanna, eftir því hvar þeir sþila á vellinum, hefur haft mikið að segja gegnum árin. Sérstaklega þó sem afleiöing breyttra leikskipu- laga, og af því aö liöin þyggja spil sitt á föstum númerum — aöallega í heims- eöa Evrópumeistara- keppnum. Þessar merkingar hafa samt sem áöur ekki náö aö afmá þaö mikla aðdráttarafl sem fylgir hverju ákveöna númeri. Til aö mynda á maðurinn sem byggir upp spiliö á miöjunni búning nr. 10 í mörgum löndum. í Vestur-Þýskalandi var það auka álag að spila sem leik- maöur nr. 5 í landsliðinu og Bayern Munchen eftir að Beckenbauer fór til Bandaríkjanna. Þar var staöa „libero” (sú staöa sem Beckenbau- er spilaöi) sett í samband viö þann sem spilaði best af öllum. Þaö sama má segja um töluná 9, enda þótt í hinu útbreidda 4—4—2-leikkerfi sé ekki alltaf pláss fyrir miðframherja sem stjórnanda. Þessi uppstilling bygg- ist á því aö tveir menn eru í því sem kalla má aö ydda sóknina (kallaöir yddarar erlendis), spanna þveran völlinn og reyna aö komast í skotfæri, og ekki síður aö búa til pláss fyrir þá sem eru á miöjunni. Allavega viröist þaö vera rótgróin skoöun aö leikmaður númer 9 skuli vera meö í því aö skora mörk. Standi hann sig ekki i því er hann um leið einskis nýtur. Þetta kemur hvergi eins skýrt fram og i Eng- landi. Þar hafa á undanförnum 10 árum verið miklar mannabreyt- ingar hvað þessa stöðu varöar undir stjórn landsliösfram- kvæmdastjóranna Alf Ramsey, Don Revie og Ron Greenwood. Síðan áriö 1976 hafa 11 leikmenn klæðst treyju númer 9 og 6 af þeim spiluöu aöeins 8 leiki og þar undir. Paul Mariner hefur veriö rúmlega 4 ár aö ná 18 leikjum, og getur stát- aö sig af 6 mörkum í landsliöinu. Þaö er enginn vafi aö Mariner er sá maöur sem Greenwood hefur mestar mætur á sem miðfram- herja. Það að segja aö hann sé frábær, væri þó ekkert annað en vanmat á öörum leikmönnum. Hvaö þá með Trevor Francis kunna menn að spyrja. Það er um hann að segja að hann á frekar erfitt meö aö skapa sér tækifæri, þ.e.a.s. viss skilyröi veröa aö vera uppfyllt. Hans spil kemur best út þegar hann fær tækifæri til aö vera afturliggjandi sóknarleikmaður, þaöan sem hann getur bæöi út frá breidinni og lengdinni rokiö fram Molar * Enski boxarinn Dave Green fór að skæla þegar framkvæmda- stjóri hans Andy Smith þreif hljóónemann í hléi í leik á móti Reg Ford og tilkynnti almenningi að þetta væri síðasta keppni Green. Þetta var þegar fimmtu lotu var lokiö og Green allur út- ataður blóði og þrábarinn. Andy Smith tók ákvörðunina. Dave Green keppti í sjö ár, samtals 41 leik sem atvinnumaður og tapaði aöeins fjórum. Það var á móti Jergen Hansen á rothöggi í þriðju lotu í Evrópukeppni, Carlos Pal- omino á rothöggí í elleftu lotu, Sugar Ray Leonard á rothöggi í fjóröu lotu. Fjórða tap hans var svo í síðustu keppni hans á móti Reg Ford. — O — Hinn stórkostlegí langhlaupari frá Ástralíu, Ron Clarke, gekkst nýverið undir stórvægilega hjartaaðgerð. Það var Clarke sem árið 1956 tendraöi ólympíueldinn í Melbourne, en varö fyrir því óhappi aö brenna sig alvarlega er hann hugðist bera eld að kerinu. Eftir það setti hann samt 17 heimsmet, eins og t.d. í 5000 m og 10000 m hlaupum, auk þess sem hann hirti bronsverðlaunin á Ólympíuleikunum í Tokyo 1964. — O — Ameríska íþróttatímaritið „Sports lllustrated", sem viku- lega selst í 2.250.000 eintökum, valdi sem kunnugt er Sugar Ray Leonard íþróttamann ársins 1982. Það voru ekki aðeins sigrar hans á Ayub Kalule og Thomas Hearns í keppninni um heimsmeistaratit- ilinn í létt-þungavigt sem réðu valí blaðsins. Það var einnig táknræn og einstaklega fáguö framkoma utan boxhringsins sem gerði þaö að verkum að hann varð fyrir valinu. Enginn hefur sótt um að fá að halda heimsmeistarakeppnina í hnefaleikum áhugamanna árið 1986. Áhuginn er sagður lítill vegna þess hversu illa Þjóöverjar fóru út úr leikunum í MUnchen, en þar var hallinn á mótinu um fimm og hálf milljón króna. — O — Slagsmál með berum hnúum er einn þáttur í því aö spila sem atvinnumaður í íshokký í Kanada og Ameríku. Thomas Gradin, Svíi sem spilar meö Vancouver Cank- us í „The National Hockey League“ fínnst þessar aðfarir í stakasta lagi. „Þetta er langt frá því að vera jafn hættulegt og þegar menn eru barðir með spöðunum og sparkað í þá með skautunum, eins og mjög algengt er í Evrópu-íshokký — vel að merkja þegar dómarinn snýr baki í þá.“ — O — Wojtek Fibak, pólskur tennis- leikari á heimsmælikvarða, hefur engan veginn gleymt hinu nauð- studda heimalandi sínu, þótt hann dvelji lengst af árinu úti í heimi við æfingar og keppnir. Þegar tími gefst, kemur Fibak til Póllands og dvelur þá í heimabæ sínum Poznan, auk þess sem hann legur mikla rækt við mál- verkasafn sitt, sem krefst mikilla peninga og tíma. Fibak segir að landar sínir tveir, Jóhannes Páll páfi annar og Lech Walesa, séu þeir menn sem hann virði mest utan íþróttaheimsins. „Þegar ég hætti aö spila tennis gæti ég vel hugsaö mér að verða fulltrúi Pól- lands í hinum vestræna heimi,“ segir Fibak. „Ég myndi verða stoltur af því að kynna land mitt og menningu þess, Þaö yrði gam- an að geta veriö með í því að brúa bilið á milli Póllands og vestur- þjóða, en það verður best gert með listum, kvikmyndum og bókmenntum.“ — O — Steve Edwards, 20 ára gamall, var á árinu 1980 dæmdur í fang- elsi í eitt og hálft ár fyrir þjófnaö, en fékk hins vegar að losna 6 mánuðum fyrr vegna góðrar hegðunar. Þrem dögum síöar var hann búinn aö skrifa undir samn- ing við Bristol Rovers í þriöju deild. Á meðan Steve afplánaöi dóm sínum lék hann þegar tæki- færi gafst í áhugamannaliði, þökk sé fangaverðinum Don Morgan sem er mikill áhugamaður um fótbolta. Þegar framkvæmda- stjóri Bristol Rovers, Bobby Gould, frétti af þessum unga hæfileikamanni setti hann sig í samband við hann og bauð hon- um aö leika prufuleik. Það varð úr, og í jafnteflisleik, 2—2 á móti Newport, skoraði Steve eitt mark og átti hörkuleik. Þetta varð til þess að Gould fór á fund fangels- ísstjórans og bað um að dómur- inn yrði mildaður — gegn því aö Gould tæki ábyrgð á Steve út reynslutímabililö. — O — Gillian Gilks, sem er númer eitt á metoröalistanum yfir badmin- tonleika í Englandi, afþakkaði boð um að taka þátt í alþjóðlegu meistarakeppninni. Ástæðan var sú að hún var höfð númer 3. „Keppnisnúmer sem þetta skað- ar mannorð mitt,“ segir Gillian Gilks. • Hinn marksækni og eitilharði Paul Mariner í kröppum dans á knattspyrnuvellinum. og tvístrað vörninni. Þetta spil hans krefst hins vegar mikils pláss til aö hann geti athafnað sig. Paul Mariner átti engan stórleik á móti Ungverjum þrátt fyrir mark- ið. Hann vantaöi ró og yfirvegun á afdrifaríkum augnablikum sem jafnvel varð þess valdandi aö sig- urinn varö ekki enn stærri. Alla- vega gekk mikið á eftir leikinn og á íþróttasíðum dagblaðanna var heimtaö með stórum fyrirsögnum aö Paul Mariner yrði látinn fjúka. „Ég átti viö meiðsli aö stríöa í nára og átti í miklum erfiðleikum með magavöðvana," segir Paul Mariner. „Það þýddi að ég varð að taka mér hvíld eftir leikinn viö Ungverja. Þegar ég kom aftur var ég orðinn fullkomlega góður í fyrsta skipti I heilt ár. Nú gildir það aö ná toppnum eitt tímabil meö Ipswich og sýna jafnframt fram á það að ég er númer eitt hjá lands- liðinu hvað miöframherja varöar. Ég er ekkert sér á báti hvað þessar mótbárur varðar. Allir verða aö berjast fyrir sæti sínu í landsliö- inu.“ Peter Shilton, landsliðsmark- maðurinn frægi, segir Paul Mariner hafa alla eiginleika góðs sóknar- ieikmanns, mikla skothörku og mjög útsjónarsamur, auk þess sem hann nær alltaf mjög góöu sambandi viö aöra samherja á vellinum. Mariner þarf síöur en svo að vera haldinn nokkurri minnimátt- arkennd, þegar hann rennir yfir lista þeirra manna sem borið hafa treyju með „töfratölunni 9“. Bún- ingur númer 9 er Englendingum nokkurn veginn heilagur að því leyti að enginn fær að nota hann ætli hann sér aö haga spili liösins eftir sínu höfði. Það sýndi sig best árið 1965 þegar Alf Ramsey lét Nobby Stiles leika númer 9, þegar England vann Vestur-Þýskaland 1—0 á Wembley. Þetta var hans fyrsta og síðasta skipti í þeim bún- ingi. Brasilíska knattspyrnufélagiö Vasco da Gama var lengi vel á árinu 1978 á höttunum eftir mið- vallarleikmanninum Carlos Al- berto. Áður en skrifaö var undir samninga kom fram hjartagalli hjá Carlos í læknisskoöun. Vasco da Gama þakkaöi aö vonum fyrir sig með þeim orðum aö hann yröi aö hætta aö spila fótbolta þar sem hann ætti á hættu aö láta lífið, ef hann héldi áfram. Carlos Alberto lést nýverið, 28 ára að aldri, í knattspyrnuleik með Sport de Recife þegar tutt- ugu og sex mínútur voru liönar af leiknum. Haföi hann fengiö hjartaáfall, og allar lífgunartil- raunir reyndust árangurslausar. Carlos var alls ómenntaöur, og gat því ekki snúið sér aö neinu ööru starfi. Hann tók því áhætt- una og hélt áfram á fótboltavell- inum til aö framfleyta sér og fjöl- skyldu sinni. — O — Hvaö skyldu heimsins bestu tennisieikarar aðhafast á milli móta? Peter McNamara eyddi frí- tíma sínum fyrir „World Team Cup“ í DUsseldorf með konu sinni og syni. Þar haföi fjölskyld- an þaö náöugt, sótti skemmti- staöina, og keypti sér nýjan BMW-bíl til aö feröast á milli. Þegar keppnin var afstaöin, var bíllinn sendur heim til Ástraliu með skipi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.