Morgunblaðið - 18.01.1983, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
Ný hárgreiðslustofa
við Skeggjagötu
NÝLEGA var opnuð hárgreiðslustofa að Skeggjagötu 2, á horni
Snorrabrautar og Skeggjagötu, gegnt nýju Skátabúðinni. Eigandi
hinnar nýju stofu er Guðrún Hrönn Einarsdóttir hárgreiðslumeist-
ari og ber stofan hennar nafn. Guðrún starfaði áður á hárgreiðslu-
stofunni Kristu. Hún hefur tekið þátt í íslandsmótum HMFI 1979
og 1981 varð hún Islandsmeistari í klippingu og blæstri. Með Guð-
rúnu á myndinni er Svandís Pálína Kristjansen, en hún vinnur hjá
Guðrúnu Hrönn. Hárgreiðslustofa Guðrúnar Hrannar veitir alla
almenna hársnyrtiþjónutu, s.s. klippingu, permanent, blástur, lit-
anir o.þ.h.
Forval Alþýðubandalags á Norðurlandi eystra:
Steingrímur Sigfússon
efstur í fyrri umferð
FYRRI umferð í forvali Alþýðu-
bandalagsins i Norðurlandskjördæmi
eystra fór fram um helgina. í gær-
kveldi var verið að Ijúka talningu, og
var Ijóst, að Steingrímur Sigfússon
jarðfræðingur (og iþróttafréttamaður
í sjónvarpi), Þistilfirði, varð efstur. í
öðru sæti varð Svanfríður Jónasdótt-
ir, kennari á Ilalvík, Soffía Guð-
mundsdóttir, tónlistarkennari á Ak-
ureyri, varð i þriðja, fjórði varð Helgi
Guðmundsson, trésmiður á Akureyri
og fímmti varð Kristján Asgeirsson,
útgerðarstjóri á Húsavík.
Síðari umferð forvalsins fer
fram að þremur til fjórum vikum
liðnum, samkvæmt upplýsingum er
Morgunblaðið fékk í gær hjá
Ráðstefna
SUS í kvöld
um stjórnar-
skrármálið
SAMBAND ungra sjálfstæóismanna
gengst í kvöld fyrir stuttri ráðstefnu
um stjórnarskrármálið, þar sem rædd-
ar verða ýmsar hliðar þess.
Ræðumenn á ráðstefnunni verða
Sigurður Líndal prófessor, sem
fjalla mun um hlutverk stjórn-
arskrárinnar, Ragnar Halldórsson
forstjóri, sem fjalla mun um stjórn-
arskrána og atvinnulífið, Friðrik
Sophusson alþingismaður, en hann
mun taia um kjördæmamálið og
Haraldur Blöndal lögfræðingur,
sem fjalla mun um heimildir til út-
gáfu bráðabirgðalaga og þingrof.
Ráðstefnustjóri verður Geir H.
Haarde, formaður SUS. Að sögn
hans er búizt við fróðlegum umræð-
um um þessi mál á ráðstefnunni,
ekki sízt í ljósi tillagna stjórnar-
skrárnefndar, sem fram voru lagð-
ar í gær. Ráðstefnan hefst í Valhöll
klukkan 20.30 og er opin öllu áhuga-
fólki.
skrifstofu Alþýðubandalagsins á
Akureyri. F’rambjóðendur verða
þeir fimm er hér eru nefndir að
framan, auk þriggja þeirra næstu,
og tveimur til viðbótar er kjör-
nefnd gerir tillögu um. í gærkveldi
var ekki unnt að fá nöfn þeirra er
urðu í 6.-8. sæti, þar sem ekki
hafði náðst til þeirra til að segja
þeim úrslitin. Atkvæðatölur úr for-
valinu voru ekki gefnar upp.
Orgeltónleikar
í Dómkirkjunni
FRANSKI orgelleikarinn Jacques
Taddéi heldur tónleika í Dómkirkj-
unni, miðvikudaginn 19. janúar kl.
20.30, á vegum menningardeildar
franska sendiráðsins.
Á tónleikunum leikur hann verk
eftir Couperin, Liszt, Franck og
Vierne og ennfremur tilbrigði við
stef úr íslenzkri tónlist. Miðar eru
seldir við innganginn.
Jacques Taddéi fæddist í Nice
árið 1946. Hann lagði fyrst stund á
píanóleik en sneri sér síðar að
orgelleik. Hann hefur unnið til
margra verðlauna fyrir list sína.
Helga Guðmundsdóttir
keypt til Stykkishólms
Slykkishólmi, 17. januar.
ÚTGERDARFÉLAGIÐ Þórsnes í
Stykkishólmi hefur nýlega keypt
hingað til bæjarins 169 lesta stálskip
frá l'atreksfírði, sem áður bar nafnið
llelga Guðmundsdóttir.
Fyrir skömmu var farið að sækja
skipið og er þegar farið að útbúa það
til netaveiða. Skipstjóri verður
Kristinn Ó. Jónsson.
FrétUriUri
Prófkjör Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi:
Jóhann Einvarðsson alþing-
ismaður varð í fyrsta sæti
Markús Á. Einarsson ekki kosinn á listann
Á KJÖRD/EMISMNGI Framsókn-
arflokksins i Reykjaneskjördæmi um
helgina, var valið í þrjú efstu sæti á
framboðslista flokksins við næstu al-
þingiskosningar. Á fundinum voru
269 fulltrúar og kosið var um þrjú
efstu sætin, þó þannig að kosið var i
hvert sæti sérstaklega. Áður höfðu
sex fulltrúar af tíu verið valdir til
þátttöku i prófkjörinu á fundinum.
Atkvæði féllu þannig að í fyrsta sæti
varð Jóhann Einvarðsson alþingis-
maður kjörinn með 245 atkvæðum;
en Markús Á. Einarsson fékk 10. I
annað sætið var kjörinn Helgi H.
Jónsson með 130 atkvæðum, Markús
fékk 85 atkvæði og Arnþrúður
Karlsdóttir fékk 45, en aðrir færri. í
þriðja sætið var Arnþrúður kosin, en
hún hlaut 95 atkvæði, Markús 91 at-
kvæði og Inga Þyri Kjartansdóttir 70
atkvæði en aðrir færri.
„Eg er afskaplega þakklátur
fulltrúum á þinginu fyrir að veita
mér það mikla traust sem þeir
sýndu mér með því að endurkjósa
mig með svona miklu atkvæða-
magni í fyrsta sætið," sagði Jó-
hann Einvarðsson alþingismaður í
gær. „Ég hlýt að lýsa ánægju
minni með það. Staðreyndin er sú
að ég er afskaplega kátur og hlýt
að meta það svo, að þó auðvitað
séu umræður um einstök mál, þá
séu menn a.m.k. ekki mjög
óánægðir með mín störf," sagði Jó-
hann.
„Ég er mjög ánægður með þessi
úrslit og þakka öllum þeim sem
mig studdu," sagði Helgi H. Jóns-
son í gær. „Ég naut stuðnings
góðra manna víðsvegar úr kjör-
dæminu og er þakklátur þeim öll-
um,“ sagði Helgi. Helgi var spurð-
ur um framtíð sína hjá ríkisút-
varpinu, en hann er fréttamaður
þar. Hann sagði að samkvæmt
reglum, þá yrði hann að hætta að
koma fram í útvarpi nokkrum vik-
um fyrir kosningar, en aðrar regl-
ur giltu ekki.
„Ég segi ekki mörg orð, en ég er
ánægð með þessi úrslit og vona að
þau komi flokknum til góða,“ sagði
Arnþrúður Karlsdóttir í gær. „Ég
gaf kost á mér í þetta prófkjör i
fullri alvöru til þess að takast á
um baráttusætið innan listans. Ég
fann það að ég hafði stuðning og
þá gat ég allt eins átt von á þessum
úrslitum," sagði Arnþrúður. Varð-
andi framtíð sína í ríkisútvarpinu
sagði hún aðspurð að hún yrði að
hætta að koma fram mánuði fyrir
kosningar, en að öðru leyti væri
það mál óljóst.
„Á tímabili ætlaði ég ekki að
taka þátt í þessari skoðanakönnun
og hef haft mig lítið í frammi,"
sagði Markús Á. Einarsson í gær.
„Eftir á að hyggja er ég hins vegar
mjög feginn að ég skyldi vera með.
Ég hef þar með fengið til umhugs-
unar val þingfulltrúa á mér og
störfum mínum," sagði Markús Á.
Einarsson.
GRÉTAR Þorsteinsson varð efstur i
forvali Alþýóubandalagsins í Reykja-
vík um helgina, fékk 91 atkvæði.
Samtals kusu 203 i forvalinu að sögn
Arnmundar Backmann, formanns
kjörnefndar, og sagði hann það vera
um 25% kjörsókn. Flokksbundnir al-
þýðubandalagsmcnn höfðu atkvæðis-
rétt. Siðari umferð forvalsins fer
fram að hálfum mánuði liðnum, og þá
verður valið milli þeirra er urðu í tólf
efstu sætunum nú, og þingmanna
flokksins i kjördæminu.
Jóhann Einvarðsson
Arnþrúður Karlsdóttir
BANDARÍSKI pianóleikarinn Yvar
Mikhasoff mun halda tónleika að
Kjarvalsstöðum miðvikudagnn 19.
jan. kl. 20.30. Efnisskráin verður
bandarísk píanótónlist frá þessari
öld, og mun hann flytja skýringar
með.
Mikhasoff er þekktur píanóleik-
ari víða um lönd, einkum fyrir
túlkun sína á samtímatónlist.
Hann kom fyrst fram opinberlega í
New York 14 ára, en auk píanóleiks
hefur hann einnig verið atkvæða-
mikill kennari og tónskáld. Mörg
þekktustu tónskáld vorra daga
hafa samið verk sérstaklega fyrir
hann. Hingað kemur hann eftir
umfangsmikla tónleikaferð um
Evrópu (þar sem hann m.a. kom 30
sinnum fram á hollensku listahá-
tíðinni).
í öðru sæti í forvalinu nú varð
Guðrún Hallgrímsdóttir með 70 at-
kvæði, Guðjón Jónsson hlaut 66,
Margrét Björnsdóttir 63, Álfheiður
Ingadóttir 52, Guðrún Ágústsdóttir
44, Vilborg Harðardóttir 38, Ás-
mundur Stefánsson 37, Adda Bára
Sigfúsdóttir 30, Arnór Pétursson
23, Ragna Ólafsdóttir 22 og Þröstur
Ólafsson hlaut einnig 22 atkvæði.
Að sögn Arnmundar var dreifing
atkvæða mikil, og fengu fleiri tugir
mapna tvö og þrjú atkvæði og litlu
fleiri.
Helgi H. Jónsson,
Markús Á. Einarsson
Eftir tónleika Yvars Mikhasoff á
Louisiana-safninu í Danmörku,
lýsti eitt blaðanna því svo, að það
hefðu verið tónleikar ársins i
Danmörku. Þá mun hann hafa leik-
ið svipaða efnisskrá og hann mun
flytja hér nk. miðvikudagskvöld.
/Kréiuiilkrnnini)
Yvar Mikhasoff
Aðstaða —
ekki afstaða
í VIDTALI í sunnudagsblaði við
Gunnlaug Pétursson varð prentvilla,
sem hrcnglaði merkingu. Þar átti að
standa aðstaða, ekki afstaða. Setn-
ingin átti að vera: „En að vísu hafði
eini ópólitíski borgarstjórinn allt aðra
aðstöðu til framkvæmda."
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Grétar Þorsteinsson
efstur með 91 atkvæði
Kjörsókn um 25% \ fyrri umferð forvals
Píanótónleikar á
Kjarvalsstöðum