Morgunblaðið - 18.01.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
31
Þingflokkar fjölluðu
um kjördæmamálið
Dagskrármál tekin út:
Alþingi kom saman til starfa í gær. Gunnar Thoroddscn, forsætisráð-
herra, las upp, eins og venja stendur til, forsetabréf, er kvað á um að
Alþingi komi saman til framhaldsfunda.
Forseti sameinaðs þings, Jón
Helgason, gat þess, að fram
væru lögð í lestrarsal þingsins
erindi frá Æðstaráði Sovétríkj-
anna og hreppsnefnd Mosfells-
sveitar.
Eina dagskrármál þessa fund-
ar í sameinuðu þingi var tillaga
til þingsályktunar um stefnu-
mörkun í landbúnaði. Það var
tekið út af dagskrá.
Fundir vóru settir í báðum
þingdeildum. í efri deild var eitt
mál á dagskrá, önnur umræða
um stjórnarfrumvarp um efna-
hagsaðgerðir (bráðabirgðalög
ríkisstjórnarinnar frá í ágúst-
mánuði sl.). í neðri deild var og
eitt mál á dagskrá, stjórnar-
frumvarp um olíusjóð fiskiskipa,
sem sagt var frá í baksíðufrétt í
Mbl. sl. sunnudag. Bæði málin
vóru tekin út af dagskrá.
Ástæða þess að ekkert dag-
skrármála þessa fyrsta starfs-
dags Alþingis, eftir fjögurra
vikna þinghlé, fékk umfjöllun,
var sú, að þingflokkar þurftu
tíma til að fjalla um kjördæma-
málið, sem formenn stjórnmála-
flokkanna hafa þingað um síð-
ustu vikur, en líkur eru taldar á
því að stutt sé í sátt í því máli,
þ.e. að draga úr misvægi at-
kvæða kjósenda eftir búsetu
þeirra.
í dag verða fundir í báðum
þingdeildum og fyrir tekin þau
mál er að framan greinir. Þess
er vænzt að frumvarp um olíu-
sjóð verði afgreitt til þingnefnd-
ar í dag, en búast má við nokkr-
um umræðum um málið, enda
skiptar skoðanir um „upptöku
sjóðakerfis" í sjávarútvegi á ný
og millifærslu fjármuna til
„tapfyrirtækja". Hinsvegar má
gera ráð fyrir að bráðabirgða-
lögin þurfi aftur til þingnefndar
í efri deild, bæði vegna þess að
sjávarútvegsráðherra hefur boð-
að breytingartillögu við frum-
varpið og vegna láglaunabóta,
svonefndra, en framkvæmd
þeirra sýnist hafa valdið megnri
óánægju í þjóðfélaginu. Af þess-
um sökum verður að telja ólík-
legt að þetta mál verði afgreitt
til neðri deildar í dag, eins og
hugur ýmissa stóð til.
Siggeir Björnsson, bóndi, tók
sæti á Alþingi í gær, í fjarveru
Eggerts Haukdal (S) vegna anna
þess síðarnefnda.
Stykkishólmur:
Sæfell kaupir 150 lesta stál-
bát, sem fer til netaveiða
Stykkishólmi, 17. janúar.
í FYRRAKVÖLD kom hingað til
Stykkishólms 150 lesta stálbátur,
sem útgerðarfélagið Sæfell hefur
keypt frá Keflavík. Hét hann áður
Ólafur Ingi og þar áður Sigurður
Jónsson, og var gerður út frá Breið-
dalsvík.
Bátur þessi fer senn á netaveið-
ar og er undirbúningur að því haf-
inn og verður skipstjóri á honum
Páll Guðmundsson. Með tilkomu
þess báts hafa bætzt tvö ný skip í
flota okkar hér í Stykkishólmi.
— Fréttaritari.
Ný byrjendanámskeið hefjast 17. janúar.
NÝJUNG: Kodokan goshin jutsu sjálfsvarnartímar
fyrir kvenfólk og karlmenn.
Kennari er Yoshihiko lura, kodokan 5. Dan.
Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla virka
daga frá kl. 13—22.
JÚDÓDEILD ÁRMANNS
ARMÚLA 32.
Gerið
svo
vel
að
líta
inn
Útsölu-
markaður
í Kjörgarði (kjallara)
Góðar vörur á lágu
verði
Fatnaður ffyrir alla
fjölskylduna
Barnaúlpur verö frá kr. 390.
Dömuúlpur verö frá kr. 490.
Herraúlpur verö frá kr. 490.
Flauelsbuxur verö frá kr. 195 stæröir 2—12.
Flauelsbuxur stæröir 26—40 kr. 295.
Barnapeysur frá kr. 90.
Fulloröinspeysur frá kr. 150.
Vynilstígvél verð frá kr. 295—395.
Sokkar — vetlingar — húfur
og margt margt fleira.
Sendum í póstkröfu
sími 28640
Útsölumarkaðurinn
í kjallara Kjörgarös