Morgunblaðið - 18.01.1983, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 18.01.1983, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 Að skemmta skrattanum? — eftir Ágúst Sig- urðsson, Geitaskarði Ég hef undanfarnar vikur verið að velta því fyrir mér hvað vakti fyrir þeim Morgunblaðsmönnum, þegar þeir fjölluðu um úrslit prófkjörs Sjálfstaeðismanna í Norðurlandskjördæmi vestra. „Þad er síður en svo að ég hafi á móti því að Moggi reki garnirnar úr Ingólfi Guðna- syni, en það væri skemmti- legra að þær yfirheyrslur fjölluðu um málefni sem Ing- ólfi eru ofurlítið kunnug.“ Því hefur oft verið hreyft við starfsmenn Morgunblaðsins, að lítt væri haft samband við frétta- ritara blaðsins. En í öndverðum nóvember síðastliðnum var mér tjáð að þetta stæði allt til bóta, búið væri að skikka sérstakan blaðamann, sem ætti að vera tengiliður við landsbyggðarfrétta- ritarana. Þetta þóttu mér góð tíð- indi, vegna þess að fréttamat mitt og Morgunblaðsins fer ekki alltaf saman. En þrátt fyrir tengiliðinn góða, þá hef ég ekki verið ónáðað- ur verulega með símtölum frá Mogga til þessa. Auðvitað getur vel verið að Morgunblaðsmenn telji að hér gerist aldrei neitt, eða þá að aðrir séu Mogga meira að skapi sem heimildarmenn. Þegar Mogginn baslaði sem mest við að koma framsóknar- stimplinum á áðurnefnt prófkjör, þá var ekki leitað frétta hjá mér, og ég veit ekki til að aðrir frétta- ritarar Mbl. hér um slóðir hafi verið spurðir álits. Hins vegar var Ingólfi Guðnasyni, framsóknar- þingmanni, hlýtt vandlega yfir varðandi tilhögun prófkjörsins. Og sjá: Ingólfur upplýsir að sér hafi verið tjáð að ekkert væri því til fyrirstöðu að hann tæki þátt í prófkjörinu. Þetta vissu allir sem vildu vita, því að tvo fyrri próf- kjörsdagana var öllum heimil þátttaka, án nokkurra skuldbind- inga. Hefðu Vestur-Húnvetningar sagt Ingólfi eitthvað annað, þá hefðu þeir um leið verið að skrökva, og það er ljótt að skrökva. Mesta kjörfylgi D-listans hér er 1900 atkvæði. I fyrrnefndu próf- kjöri tóku þátt um 1850 kjósendur, en kjörfylgi listans við síðustu al- þingiskosningar var rúm 1600 at- kvæði. Til samanburðar er rétt að geta þess, að við síðustu alþingis- kosningar var kjörfylgi B-listans rúm 2500 atkvæði, var áður tæp 1900 atkvæði. Mogga þótti við hæfi að hafa það eftir Ingólfi Guðnasyni, að í þessu prófkjöri hefði Sjálfstæð- isflokkurinn fengið talsvert af aU kvæðum „að láni“ hjá Framsókn. í þessar upplýsingar fyrrnefnds Ingólfs var síðan þráfaldlega vitn- að, bæði í leiðaraskrifum blaðsins, svo og í Staksteinum. Þetta þótti mér merkilegur málflutningur, því vart var hægt að skilja annað á Mogga, en að bæði Ingólfur og Moggi væru sammála um að hæfi- legt væri að D-listinn hér fengi 1600 atkvæði a.m.k. um fyrir- sjáanlega framtíð. Allt þar fram yfir væru lánsatkvæði. Ég minnist þess ekki að Morgunblaðið hafi áður haldið svona á málum. Þá ætla ég að víkja aftur að „upplýsingum" Ingólfs, þar sem hann heldur því fram að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi fengið þessi 250 atkvæði „til láns“. Ég hélt að góðir blaðamenn sannreyndu heimildir sínar, áður en þær eru notaðar til að búa til úr þeim stór- frétt. Ef það hefði verið gert, þá hefði komið í ljós að í síðustu al- þingiskosningum fékk B-listinn rúmlega 600 atkvæði að láni frá góðviljuðum mönnum, og það voru einmitt þessi lánsatkvæði, sem fleyttu margnefndum Ingólfi inn á þing. Það er álitamál hvort kjósendur hér um slóðir dást svo mjög að afrekum Ingólfs Guðnasonar á þingi, að ástæða þyki til að fram- lengja lánið. Mér er ekki grun- laust um að lánið verði allt gjald- fallið þegar næst verður gengið að kjörborðinu. Það er síður en svo að ég hafi á móti því að Moggi reki garnirnar úr Ingólfi Guðnasyni, en það væri skemmtilegra að þær yfirheyrslur fjölluðu um málefni sem Ingólfi eru ofurlítið kunnug. Ég get t.d. upplýst Morgunblaðsmenn um, að sú saga gengur hér fjöllunum hærra, að títtnefndur Ingólfur af- segi með öllu að taka sæti á fram- boðslista Framsóknarflokksins í komandi alþingiskosningum ef Páll Pétursson, formaður þing- flokks Framsóknar, verður þar í 1. eða 2. sæti. Þetta ætti Ingólfur að geta staðfest eða borið til baka, og ef Mogginn innti hann eftir þessu, þá stendur líklega ekki á svarinu. Merkilegt þótti mér og, að þegar Moggi birti viðtöl við frambjóð- endur prófkjörsins, að afloknu kjöri, þá var skotið þar inn inn- rammaðri tilvitnun í séra Gunnar Gíslason, formann kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins hér, þar sem segir að prófkjör séu til þess eins fallin að skemmta Skrattanum. Ekki dettur mér í hug að rengja það að séra Gunnar viti gjörla um hvað má helst verða Skrattanum til skemmtunar. Hitt veit ég, að síðan ég fór að taka þátt í störfum kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks- ins hér, þá hefur séra Gunnar aldrei legið á þeirri skoðun sinni að prófkjör væri vond aðferð við að velja fólk á framboðslista. Þessi skoðun prestsins virðist þó ekki verða fréttnæm fyrr en eftir að úrslit prófkjörsins lágu fyrir. Ég fæ ekki betur séð en að Morgunblaðið hafi reynt, eins og hægt var með góðu móti, að gera úrslit þessa prófkjörs sem tor- tryggilegust. Það er mín skoðun að þessi málflutningur blaðsins sé ekki lík- legur til að stuðla að sáttum og samheldni í flokknum, og lái mér hver sem vill. Athyglisvert er og, að niður- stöður úr prófkjörinu hér lágu fyrir um svipað leyti og niðurstöð- ur voru birtar úr prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. Öll- um er í fersku minni hve rauna- lega útreið formaður Sjálfstæðis- flokksins fékk í því prófkjöri. Það hefur meira en hvarflað að mér að Morgunblaðið hafi notað „Ingólfsfréttina", sem átyllu til að þurfa ekki að fjalla nema sem minnst um úrslitin í Reykjavík, sem vissulega voru miklu frétt- næmari en úrslitin hér. Hvort heldur sem er, þá tel ég að þessi umfjöllun Moggans hafi ekki verið flokknum til góðs á nokkurn hátt, og það er aðalatrið- ið í þessu máli. Jafnvel þó að Árvakur hf., eigi Morgunblaðið, þá hef ég, til þessa, álitið Morgunblaðið traustasta málsvara sjálfstæðisstefnunnar, og ég er ekki einn um þá skoðun. Með ósk um gleðilegt nýár. Geitaskarði 1. jan. 1983. Einleikstónleikar Tónlist Jón Ásgeirsson Gunnar Kvaran cellóleikari hélt tónleika í Bústaðakirkju sl. sunnu- dag og lék tvær svítur eftir J.S. Bach og Serenöðu eftir Hans Werner Henze. Tónleikarnir hóf- ust á fyrstu svítunni, þeirri í G- dúr. Gunnar lék verkið mjög yfir- vegað, með þungum og sterkum tóni, án þess að ofgera verkinu með of sterkum tilfinningum. Annað verkið á tónleikunum var Serenaða fyrir einleikscelló eftir Hans Werner Henze. Henze lærði hjár Fortner, Leibowitz og Rufer og er ferill hans sem tónskálds nokkuð fjölbreytilegur. Hann byrjar sem ný-klassiker, tekur síð- an upp tólftóna raðtækni, reynir svolítið við jazz og snýst svo gegn tólftóna raðtækninni og tekur upp frjálsan stíl, jafnvel með tilvitn- unum í eldri tónskáld og að lokum hafnar hann stofnanakerfinu og reynir að vinna tónlist sína eftir marxistiskum hugmyndum og notar til þess allt það sem nýtist til hljóðmyndunar. Eftir Henze liggja mjög mörg verk, m.a. sin- fóníur, óperur, ballettar, óratoríó og fjöldi smærri verka. Serenaðan sem Gunnar flutti samdi Henze er hann var tuttugu og þriggja ára og líklega enn við nám. Verkið er í áheyrilegum nýklassiskum stíl, ekki tilþrifamikið en hljómþýtt eins og vera ber í ástarljoði á næt- urþeli. Síðasta verkið var svo önn- ur svítan eftir Bach. Svo sem eins og í fyrri svítunni var leikur Gunnars sterkur og yfirvegaður. Saraböndurnar eru með stystu köflunum í svítunum en slegnar þvílíkum galdri, hvað snertir feg- urð, að fátt verður þar til saman- burðar. Þennan kafla í annarri svítunni lék Gunnar svo fallega að Giinnar Kvaran unun var á að hlýða. Vonandi gefst hljómleikagestum tækifæri til að heyra Gunnar leika allar svíturnar áður en langt líður. Tónlist Úr Töfraflautunni. íslenska óperan ársgömul Egill Friöleifsson Um þessar mundir er liðið rúmt ár frá því að Islenska óper- an hélt fyrstu frumsýningu sína í eigin húsnæði, Gamla Bíói í Reykjavík. Eitt ár er ekki langur tími, en þó er ástæða til að staldra við og gleðjast með þeim framsæknu bjartsýnismönnum sem af stórhug og áræði gerðu óperudrauminn að veruleika. Is- lensku óperunni hefur verið vel tekið af almenningi. Á þessu eina ári hafa um 47 þúsund manns sótt sýningar hennar, sem teljast verður mjög góður árangur. Þessi jákvæðu viðbrögð fólksins í landinu gefa ástæðu til að ætla að raunverulegur grund- völlur fyrir rekstri óperuhúss í Reykjavík sé fyrir hendi, en það drógu margir í efa fyrir rúmu ári. Úrtölumenn fagurlista hafa nú hægt um sig, enda gróskan í menningarlífinu, og þá ekki síst í tónlistinni, með ólíkindum. Nú er bara að vona, að þegar nýja- brumið fer að fölna og grámi hversdagsins tekur við, reynist hópur óperugesta, velunnara og styrktarfélaga nægilega stór og öflugur til að treysta grundvöll óperunnar og tryggja henni áframhaldandi lifdaga. Fjárveit- ingavaldið mætti einnig gefa því gaum, hvern hljómgrunn óperan Hrönn Ingibjörg Hafliðadóttir hefur hlotið hjá almenningi og stuðla að vexti hennar og við- gangi. Undirritaður átti þess kost að sjá Töfraflautu Mozarts sl. sunnudagskvöld, en þá var árs- áfanganum í eigin húsnæði minnst. Hér í blaðinu hefur tví- vegis verið fjallað um uppfærslu óperunnar og því væri að bera í bakkafullan lækinn að bæta þar einhverju við. Þó er ástæða til að ■ iiiuiui iiouiuouutiui CI nú tók við hlutverki þriðju hirðmeyjar næturdrottningar- innar af Önnu Júlíönnu Sveins- dóttur. Hrönn kannast flestir við frá því hún starfaði sem þulur við sjónvarpið á sínum tíma. Undanfarin ár hefur hún verið við söngnám, fyrst hér heima, en frá 1981 í Vínarborg, og er þetta hennar fyrsta hlutverk á fjölun- um í Gamla Bíói. Hlutverkið er ekki stórt og því lítið af því ráðið hversu Hrönn er megnug á óperusviðinu, en hún gerði því góð skil. Hún kom vel fyrir og sómdi sér ágætlega við hlið þeirra Sieglinde Kahmann og Elínar Sigurvinsdóttur. I hléinu ávarpaði Þorsteinn Gylfason óperugesti og minntist m.a. þeirra heiðurshjóna Sigur- liða Kristjánssonar og Helgu Jónsdóttur sem með höfðinglegri dánargjöf sinni gerðu óperunni kleift að eignast þetta ágæta hús. Viðstaddir vottuðu minn- ingu þeirra hjóna virðingu sína með því að rísa úr sætum. Á eft- ir var svo skálað fyrir öllu sam- an í kampavíni. Héðan eru Islensku óperunni sendar bestu afmæliskveðjur með ósk um áframhaldandi vel- gengni. I næsta mánuði er von á nýrri óperu á fjalirnar, nefnilega Mikado eftir Gilbert og Sullivan. Óperugestir geta þegar farið að hlakka til. Egill Friðleifsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.