Morgunblaðið - 18.01.1983, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 18.01.1983, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 Minning: Júníus Kristins- son skjalavöröur Fæddur 12. febrúar 1944 Dáinn 7. janúar 1983 Þá var lífið fullt af eftirvænt- ingu, gleði og fyrirheitum. Tveir æskumenn sem kynntust í skóla bundust traustum vináttuböndum. Báðir trúðu því að vináttan myndi endast til æviloka og til þess að innsigla hana gáfu þeir hvor öðr- um loforð. I stað þess að ganga undir jarðarmen og heita því að hefna hvors annars, sem þá var líka löngu komið úr tísku á ís- landi, bundu þeir fastmælum að sá sem lengur lifði skyldi rita eftir- mæli eftir hinn. Slíkt loforð var auðvitað óþarfi milli vina og hugmyndin ber vott um það áhyggjuleysi og jafnvel alvöru- leysi sem oft einkennir viðhorf æskumanna til lífsins — og dauð- ans. Hvor fyrir sig mun hafa hugsað að það yrði ekki fyrr en eftir langa viðburðaríka ævi að þetta ungæð- islega heit yrði rifjað upp. Reyndar gerði ég alltaf ráð fyrir að það kæmi í hlut Júníusar vinar míns að leysa verkið af hendi. Alltaf fannst mér hann manna líklegastur til þess að verða lang- lífur og betur hefði hann kunnað en ég að velja réttu orðin við slíkt tækifæri. Síst af öllu varði mig að hann myndi svo skamma hríð dvelja meðal okkar sem dáðum hann og nutum liðveislu hans. I Menntaskólanum í Reykjavík vakti hann strax á sér athygli fyrir leiftrandi mælsku, þekkingu á íslenskri tungu og bókmenntum og einarðar stjórnmálaskoðanir sem hann var ávailt tilbúinn að kappræða. Hann átti glæsilegan feril í fé- lagslífi skólans sem ritstjóri, ræðusnillingur og embættismaður - er naut óvenjulegrar hylli meðal nemenda. Er hann hafði lokið menntaskólanáminu með sóma bjuggust flestir við að hann myndi j framvegis verða meðal þeirra sem sviðsljósin beinast að í þjóðfélag- inu. Június valdi sér annað hlut- skipti, vafalaust af því að hann taldi það betra: að vinna kyrrlátt starf og að lifa einföldu ánægju- ríku lífi, sem hann helgaði fjöl- skyldu sinni öðru fremur. Aðrir kunna betur en ég að greina frá störfum hans í þágu sagnfræðinn- ar, sem hann nam í háskóla og gerði síðan að ævistarfi. Ég þykist þó vita að þar hafi ýmsir af eðlis- kostum hans notið sín vel, ekki síst samviskusemin, nákvæmnin og dugnaðurinn. Júníus fæddist í sveit og sleit þar barnsskónum. Hann var kannski alltaf svolítið brot af bónda. Hann unni náttúrunni, þekkti flestar íslenskar jurtir, hafði yndi af að fylgjast með lifn- aðarháttum fugla og var glöggur á veður, snjóalög og gróðurfar eins og best gerist um bónda. Við heimili sitt ræktaði hann ásamt eiginkonu sinni fagran garð sem er til vitnis um smekkvísina og ræktunaráhugann. Ef ég reyndi í alvöru að lýsa mannkostum Júníusar eins og þeir birtust mér og öðrum vinum hans, yrði ég í jafnmiklum vanda að byrja og að enda og þó má ég til að bæta við nokkrum fátæklegum orðum. Hann tók karlmannlega afstöðu til lífsins. I okkar augum var hann ævinlega hinn sterki. Aldrei heyrðist hann kvarta og aldrei virtist hann sjálfur eiga við vandamál að stríða. Þó var hann gagnrýninn á þjóðfélagið, hafði samúð með lítilmagnanum og var ævinlega tilbúinn til að taka þátt í vandamálum annarra og veitti ráð að vandlega íhuguðu máli og sagði þá vinum sínum stundum til vamms ef honum fannst að það yrði þeim til góðs. Orð hans stóðu jafnan sem staf- ur á bók og hann ætlaðist til þess af vinum sinum að þeir létu ekki óáreiðanleika í orðum verða til vináttuspillis. Vel kunni hann að vera með höfðingjum, enda var hann kappsfullur í leikjum, mælskur, söngmaður góður og hrókur alls fagnaðar í góðum fé- lagsskap, en þó hygg ég að hann hafi best kunnað við sig innan um alþýðufólk, en hvorki fals né sýnd; armennska voru honum að skapi. I viðskiptum kunni hann vel að sjá hag sínum borgið, en aldrei vildi hann ganga lengra en svo að kaup- in væru sanngjörn á báða bóga. Ekki var hann maður auðugur af fé en þó var hann einn af örfáum sem taldi sig ekki þurfa meira en hann hafði, enda þarf annaðhvort litla peninga eða enga til að kaupa þau gæði sem hann sóttist eftir í lífi sínu. Nú eiga margir um sárt að binda vegna fráfalls Júníusar: eig- inkona hans og börn, foreldrar, systkini, aðrir ættingjar og vinir; þeir fjölmörgu sem áttu hjá hon- um ást, vináttu, hald og traust. Öllum þessum votta ég innilegustu samúð mína. Það er einlæg ósk mín að harmurinn víki og í stað- inn komi þakklæti fyrir allt það sem við fengum að njóta i sam- skiptunum ið góðan dreng. Arni Einarsson Kr Jn'gar öflgir ungir falla s«-m sígi í ægi sól á dagmálum. Hjarni Thorarensen í dag er gerð frá Bústaðakirkju útför Júníusar Kristinssonar skjalavarðar, sem andaðist á heimili sínu að Sogavegi 206 hér í borg aðfaranótt hins 7. janúar 1983, aðeins 38 ára að aldri. Eins og nærri má geta, er andlát hans þungt áfall, ekki aðeins fjölskyldu hans, heldur einnig samstarfs- mönnum hans og vinum. Júníus var mikill hæfileikamað- ur og fágætlega vel starfi sínu vaxinn. Hann var hamhleypa til allra verka, en um leið vandvirkur, glöggur og gætinn. Þjóðskjala- safninu var það mikið happ, þegar hann réðst í þjónustu þess hinn 1. desember 1972, fyrst sem stað- gengill annars skjalavarðar, sem var í orlofi, en síðan fastur starfs- maður, þegar er fjárveiting fékkst fyrir nýju embætti. Eins og að líkum lætur vann Júníus að röðun og skrásetningu skjala, en sinnti afgreiðslustörf- um aðeins í viðlögum eins og aðrir skjalaverðir. Fyrst tók hann fyrir skjalasöfn klausturumboða og sáttanefnda, sem raunar hafði verið sinnt nokkuð áður, en veitti báðum þessum söfnum nýjan og miklu betri umbúnað. Síðan réðst hann í nýja röðun og skrásetningu margvíslegra persónulegra skjala- gagna, sem smám saman höfðu borist safninu og mörg hver lágu í lítt skipulögðum skjalabögglum, sem sumum var gefið flokksheitið „Varia", öðrum „Syrpa" og hinum þriðju „Personalia". Frá öllu þessu gekk hann í eina skipulega heild og gerði yfir hana haganlega og handhæga skrá. Að þessu loknu réðst hann ótrauður í röðun, skrásetningu og umbúnað sýslu- skjalasafna, sem frá upphafi hafa búið við bráðabirgðaskrásetningu, sem dr. Jón Þorkelsson hafði lagt grundvöllinn að af sínum alkunna dugnaði og haldið hafði verið áfram með sama hætti eftir hans dag. Verk sitt hóf Júníus á skjala- safni Norður-Múlasýslu og Seyð- isfjarðarkaupstaðar og lauk við þann hluta, en var fyrir ekki alls löngu byrjaður á Suður-Múla- sýslu, þegar hann féll frá. Enn er eftir að telja eitt verk Júniusar, sem hefur nokkra sér- stöðu og þarfnast auk þess nokk- urrar skýringar af minni hálfu. Öllum þeim, sem leggja leið sína í Þjóðskjalasafn, er vel kunnugt, að næstum öll aðalmanntöl, sem tek- in voru á árabilinu 1835—1930, hafa verið vélrituð, ekki þó fyrst og fremst notendum til hægðar- auka, heldur framar öllu til að hlífa frumritunum við frekara sliti en orðið var. Aðalmanntalið 1801, hið næsta varðveitta og óskerta manntal eftir 1703, var þó ekki vélritað í sömu lotu og hin, enda ritað á slitþolnari pappír. Auk þess var það miklu erfiðara til eftirritunar sökum orðmynda og málfars, sem átti að heita danska, þó að íslensku áhrifin leyni sér ekki. Ættfræðifélagið lauk við útgáfu Manntals á íslandi 1816 árið 1974. Stóðst þá á endum, að handrit manntalsins 1801 var tekið að lýj- ast og að félagið fékk augastað á því manntali sem næsta útgáfu- verkefni. Ég sá þegar í hendi mér, að það væri ekki á færi nema sér- hæfðs starfsmanns að gera af því gott og gilt eftirrit. Taldi ég því affarasælast, að Þjóðskjalasafnið legði til traust eftirrit og ábyrgð- ist texta þess, en Ættfræðifélagið bæri fjárhagslegan veg og vanda af útgáfunni. Við eftirgrennslan kom í ljós, að Júníusi var það mjög ljúft verk að gera slíkt eftirrit. Réðst hann fljótlega í að gera því sem næst stafrétt endurrit text- ans (með smávegis tilslökunum, t.d. um lítinn og stóran upphafs- staf, auk þess sem af uppsetn- ingarástæðum þurfti að grípa til kerfisbundinna skammstafana um hjúskaparstöðu fólks). Ég bar þessa uppskrift Júníusar saman við frumrit og aðstoðaði lítils háttar við prófarkalestur. Satt að segja undraðist ég bæði vinnu- hraða og nákvæmni Júniusar við verkið. Eg hef orðið þess lítið eitt var, að ráðsmennska mín í þessu útgáfumáli hafi sætt gagnrýni, en ég á bágt með að trúa því, að ég nái nokkurn tíma svo háum aldri, að ég iðrist gerða minna í þessu efni. Útgáfa manntalsins hefur þegar sýnt, að ekki er þörf 'á að nota frumritið nema í hreinum undantekningatilfellum. Útgáfa manntalsins 1801 er í þremur vænum bindum, sem komu út á árunum 1978—1980. Að undanförnu höfum við Júní- us unnið saman að útgáfu á prestastefnudómum og bréfabók Gísla biskups á Hólum Þorláks- sonar. Sú bók er II. bindi í ritröð- inni Heimildaútgáfa Þjóðskjala- safns, og er bókin væntanleg úr prentsmiðju nú á næstunni. Júní- us bjó til prentunar bréfabók Gísla (1666—1676), sem er meiri hluti textans, og ritaði sagnfræði- legan inngang að verkinu um æviferil Gisla og stöðu hans í þjóðarsögunni. Samvinnan við Júníus við þetta verk var einstakl- ega ánægjuleg, enda nutu hæfi- leikar hans sín prýðilega á þessu sviði. Fyrir utan störf Júníusar í safn- inu vann hann með öðrum íslensk- um sagnfræðingum að rannsókn Vesturheimsferða frá íslandi. Er bráðlega von á skrá um íslenska vesturfara á tímabilinu um 1870—1914, algerlega unnin af Júníusi. Ekki leikur vafi á, að það verður hið gagnlegasta verk frá ýmsum sjónarmiðum séð. Júníus var ritari Hugvísinda- deildar Vísindasjóðs frá 1. mars 1982 til dauðadags. Júníus var manna ljúfastur í allri viðkynningu, skemmtilegur og ræðinn, en þó dulur á sjálfs sín hagi, jafnvel svo, að það gat villt nánum samstarfsmönnum hans sýn. Hann var sérstaklega vel lát- inn af öllu starfsliði Þjóðskjala- safns og mér er óhætt að segja öllum þeim, sem störfum gegna í Safnahúsinu. Það var hrein unun bæði að taka þátt í störfum með honum og fela honum verk. En vegna þess hve dulur hann var, gerði ég mér ekki ljóst fyrr en um seinan að hann var sárþjáður maður. Sannaðist á honum, að enginn veit, hvað undir annars stakki býr og „Hugur einn það veit, er býr hjarta n*r, einn er hann sér um sefa", eins og fornkveðið er. Það er sárt að sjá á bak svo ungum manni, svo vöskum og vel gerðum, sem Júníus var. Astvinir, samverkamenn og félagar eiga miklu á bak að sjá. En árin segja ekki allt um skammlífi og langlífi, eins og Jónas Hallgrímsson hefur fært okkur heim sanninn um í lífi og ljóði: „Hvaó er langlífi? Lífsnautnin frjóa, alefling andans og athöfn þörf.“ Júníus var maður víðsýnn og þroskaði vel með sér góðar eðlis- gáfur. Hann vann hvert þarfa- verkið öðru meira, meðan heilsa og kraftar entust. Um meira verð- ur enginn krafinn, þó að allir, sem til hans þekktu, hefðu átt þá ósk heitasta, að honum hefði enst ald- ur til að ávaxta lengur hið góða pund sitt. Júníus Kristinsson var fæddur 12. febrúar 1944 að Rútsstöðum í Flóa, yngsta barn hjónanna Krist- ins Júníussonar og Margrétar Guðnadóttur, sem bæði lifa son sinn, búsett hér í borg. Júníus fluttist með foreldrum sínum til Reykjavíkur árið 1958. Hann lauk stúdentsprófi við Menntaskólann í Reykjavík vorið 1964 og kandí- datsprófi í sagnfræði við Háskóla íslands 1972. A stúdentsárum sínum vann Júníus fyrir sér með kennslu. Einnig tók hann þátt í félagslífi stúdenta og átti um hríð sæti í stúdentaráði. Á menntaskólaárun- um var hann einnig félagslyndur, og síðasta ár sitt þar var hann inspector scholæ, sem er mikil virðingarstaða. Eftirlifandi kona Júníusar (20. júlí 1967) er Guðrún Guðlaugs- dóttir, þjóðkunn sem fréttamaður útvarpsins. Börn þeirra eru: Ragnheiður, gift Ævari Ágústssyni, á eitt barn. Ásgerður, Móeiður, Kristinn, Guð- laugur. Ég votta Guðrúnu og börnum þeirra, foreldrum Júníusar og systkinum og öðru venslafólki ein- læga samúð mína og bið þeim öll- um styrks í sorg þeirra. Vinarkveðjur mínar fylgja Júní- usi yfir djúpið mikla. Hér í Þjóð- skjalasafni verður hans jafnan minnst þakklátum huga, með virð- ingu og sárum söknuði. Bjarni Vilhjálmsson „Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama: en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur.“ (Hávamál) Af veikum burðum langar mig að minnast með fáum orðum mágs míns, Júníusar Hafsteins Krist- inssonar, en útför hans fer fram í dag frá Bústaðakirkju. Hann lést á heimili sínu að Sogavegi 206, hinn 7. janúar sl. Júníus var fæddur á Rútsstöð- um í Gaulverjabæjarhreppi, hinn 12. febrúar árið 1944, sonur hjón- anna Kristins Júníussonar og Margrétar Guðnadóttur, er þar bjuggu þá. Hann ólst upp með for- eldrum sínum og systkinum á fögru alþýðuheimili. Fegurð bernskuheimilis hans fólst ekki í skartgripum eða ytra tildri. Hún fólst í samhygð, trú og virðingu fyrir þeirr^siðum og venjum sem best hafa gefist íslenskri þjóð. Af- inn og amman voru ekki á elli- heimili. Þau deildu lífi sínu með húsráðendum og æskufólkinu. Þegar Júníus óx úr grasi varð þess fljótt vart að hann var skýr í hugsun og þyrstur í ömmu- og afa- sögur og annað það er fullorðna fólkið veitti honum vitneskju um. Hann spurði af hógværð og at- hygli. Með honum bjó fróðleiks- fýsn. Árið 1957 létu foreldrar hans af búskap og fluttust til Reykjavíkur. Á því aldursskeiði sem Júníus var þá, var þessi breyting honum áreiðanlega erfið, en hann gekk mót viðfangsefnum sínum af festu og áræði. Hann lauk tilskyldri skólagöngu að fermingu lokinni og settist siðan á skólabekk í Menntaskólanum í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1%4. Námið var honum auðvelt og kom þar vel fram hin augljósa fróðleiksfýsn er vart varð í fari hans á bernskuárum og áður er að vikið. Á menntaskólaárum sínum naut hann mikils trausts kennara og nemenda. Að stúdentsprófi loknu innritaðist hann í Háskóla íslands og lauk frá þeirri stofnun prófi í norrænum fræðum. En eft- ir það réðist hann starfsmaður við Þjóðskjalasafnið og vann þar til dánardægurs. Júníus giftist árið 1967 heitmey sinni, Guðrúnu Guðlaugsdóttur Einarssonar hæstaréttarlög- manns og Nönnu Elíasdóttur. Þau eiga fimm börn sem eru: Ragn- heiður, gift Ævari Ágústssyni, Ásgerður 14 ára, Móheiður 10 ára, Kristinn og Guðlaugur 6 ára. I myrkri harms og trega lýsir í huga mínum minningin um góðan dreng, öðlinginn sem jafnt í bernsku, æsku og á manndómsár- um var ætíð hýr, kurteis og for- dómalaus um hvaðeina sem hann bar huga að. Hann var dulur í lund, flíkaði ekki sínum innri til- finningum og felldi ekki dóma um atriði sem hann taldi sig ekki hafa íhugað eða sá af skarpri greind sinni að til lítils væri að ræða um. í minningunni um hann lýsir hin tæra fegurð trúmennskunnar við hvert það verkefni sem hann sinnti og breytti þar engu hvort um var að ræða starf snúninga- drengsins í sveitinni, nemandans eða starf fræðimannsins, öll voru þau leyst af hendi með heilum og björtum huga. Júníus var mikill heimilis- og fjölskyldufaðir, umhyggjusamur og skilningsríkur. Gestrisinn á gamla vísu og hélt í heiðri hefðum og siður fyrri kynslóða. Öldruðum foreldrum sínum var hann traust stoð og minnugur vel á þeirra um- hyggju og hjálp í uppvexti sínum. Og nú eru vegamót. Mikill ljúfl- ingur er látinn langt um aldur fram. Fjölskylda mín vottar eiginkonu hans og börnum þeirra, foreldrum hans og vinum öllum einlæga samúð. Víst gera orð mín enga stoð í hinum mikla harmi þeirra, en hljóðar bænir mínar um styrk og handleiðslu Drottins allsherj- ar, verða máske heyrðar. Megi minningin um hinn látna vin ætíð minna á heiðríkju him- insins. Gunnar Sigurðsson, Seljatungu. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, VALTÝS SIGURDSSONAR frá Geirmundarstööum. Anna Hjartardóttir, Gunnlaugur Valtýsson, Jóhanna Haraldsdóttir, Geirmundur Valtýsson, Mínerva Björnsdóttir, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.