Morgunblaðið - 18.01.1983, Síða 37

Morgunblaðið - 18.01.1983, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 37 Susanne Guðmunds- son — Kveðjuorð Fædd 7. apríl 1930 Dáin 24. desember 1982 Þegar skammdegismyrkrið er lýst upp með jólaljósum og allar fjölskyldur eru að sameinast til að halda jólahátíð, þá ber skugga á er okkur berast þau hörmulegu tíð- indi að góð vinkona og mágkona, Susanne Guðmundsson hafi látist á hinu heilaga kvöldi þann 24. des- ember í Kiel í Þýskalandi, en þar var hún stödd til að hjúkra fóst- urmóður sinni í hennar veikind- um. Susanne Christa Marianne Jungjohanm var fædd í Kiel í Þýskalandi þann 7. apríl 1930. Foreldrar hennar voru Sopie Prigge og Emil. Föður sinn missti hún ung og ólst þá upp hjá móð- ursystur sinni Paulu og manni hennar Gústaf og dvaldist hún hjá þeim þar til hún tók þá stóru ákvörðun 1948 að fara til íslands í atvinnuleit, eftir að hafa alist upp við hörmungar stríðsins. Kom hún hingað ein, mállaus á íslenska tungu. Raunir hennar byrjuðu snemma. Stríðið skall á er hún var barn að aldri, og aðfangadags- kvöld eitt var gerð loftárás á borg- ina hennar, allir forðuðu sér í loft- varnarbyrgi. Gústaf fósturfaðir hennar var heima í fríi eftir meiðsli á fæti, og hvatti alla að flýta sér, en var sjálfur síðastur, en hann kom aldrei, því hann fórst í þessari loftárás. Eftir að Sanny eins og við öll kölluðum hana, kom til íslands, gerðist hún ráðskona á Hellnum á Snæfellsnesi, þar dvaldist hún þar til hún fluttist í Voga á Vatns- leysuströnd til Guðríðar Ás- grímsdóttur og Guðmundar Jóns- sonar er þar bjuggu. Þar kynntist hún sínum manni er hét Kristján Rósberg Guðmundsson en þar með voru hennar örlög ráðin, því upp frá því var hún sannur íslending- ur. Saga hennar hér er gleði- og sorgarsaga eins og hjá mörgum en þó kannski mun meiri. Sanny var mjög vel gerð kona, hún var vel ritfær enda skrifaði hún mikið um ísiand í þýsk blöð og voru sögur hennar til fyrirmyndar um land- kynningu og fólk. Hún sótti hér námskeið um ferðamál og var far- arstjóri með þýskt fólk, þá er það heimsótti ísland. Sanny var í kirkjukór í Háteigskirkju og hafði mikið yndi af söng. Nú síðari ár fór hún með hópa fólks til Þýska- lands til lækninga og er það víst að það eru margir sem hugsa hlýtt til hennar nú á þessari sorgar- stund. Eins og fyrr segir var hún í Kiel en þaðan ætlaði hún að koma eftir jól, þar sem fósturmóðir hennar var komin á gott vistheim- ili. Enginn gat látið sér til hugar koma að hún kæmi liðin. Lífið er oft flókið umhugsunarefni. Eins og fyrr segir gekk hún að eiga Kristján, sómamann í hví- vetna, reglumaður algjör. Hann var meistari í pípulögnum og vél- virkjun. Hann var mjög góður í teiknun og lauk prófi í arkitektúr með góðum árangri, enda starfaði hann yfir 20 ár við verkfræði- skrifstofu Varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli. Þau hófu búskap í Vogum á Vatnsleysuströnd. Þau voru ávallt samhent. Þar áttu þau sína gleði- og sorgarstundir, þar eignuðust þau sína 3 syni. Elstur var Björgvin Wilhelm, fæddur 23. september 1950, hann misstu þau er hann fórst af slys- förum 13 ára gamall, þann 12. ág- úst 1963. Annar sonur fæddist þeim þann 7. júlí 1952. Hann hét Kristján Gústaf, efnispiltur. Hann hóf flugnám og tók próf sem einka- flugmaður. Hann fórst af slysför- um aðeins nokkra metra frá heim- ili sínu í Vogum þegar flugvélin hrapaði og dó hann 30. júlí árið 1971, aðeins 19 ára gamall. Þriðji sonurinn sem þau eignuð- ust er Guðmundur, fæddur þann 5. febrúar 1957. Hann býr nú í Reykjavík með unnustu sinni og dóttur sem var skírð í höfuðið á ömmu sinni. En sorgin hélt áfram að sækja þau heim. Þau voru nú flutt úr Vogunum og að Bólstað- arhlíð 66 í Reykjavík. Þá veiktist Kristján og var það erfitt ofan á allt annað, þá sást best hvað Sus- anne var dugleg þegar hún horfði á sinn yndislega mann fara frá sér, en hann dó 24. júlí 1975, þá aðeins 56 ára. Hér er stiklað á stóru. Hún bar ekki tilfinningar sínar á torg, en hún hlakkaði til að koma heim á nýju ári og sjá börnin sín, litlu nöfnu sína, og alla vini, því hér átti hún vini, en enginn má sköp- um renna. Við trúum því að hún uni glöð við góða heimkomu til ástvina sinna. Það er það eina sem við getum reynt að hugga okkur við. Við biðjum góðan guð að styðja soninn hennar eina, unnustu og litlu dóttur, sem eftir eru í þeirra mikla missi. Fari góð vinkona í friði, friður guðs hana blessi. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Lína og Matti Keflavlk. Hún Sanný er dáin. Hvílík sorg- arfregn. Hún sem rétt var ókomin heim til Islands aftur, þar sem hlutverki hennar í föðurlandinu var nú að ljúka. Glöð og full til- hlökkunar vegna heimkomunnar talaði hún við son sinn frá Kiel í Þýskalandi á aðfangadag. Stuttu síðar kvaddi hún þennan heim. Christa Marianne Susanne hét hún fullu nafni og fæddist í Kiel í Þýzkalandi. Hún kom til Islands í atvinnuleit í apríl 1949 og eftir það var hún íslendingur. íslenzk- una talaði hún svo til lýtalaust og allt íslenskt var henni kært. En engu að síður var hún bundin skyldmennum sínum í Þýzkalandi órofaböndum. Hjá þeim lauk hún lífsstarfi sínu. Á aðfangadagskvöld lásum við hjónin ásamt börnum okkar hlý- legu jólakveðjuna hennar. Þar sagði hún frá því, hvað hún hlakk- aði til að koma heim í byrjun nýja ársins. Enda hér heima sonur hennar og tengdadóttir ásamt litlu sonardótturinni. Samvistum við þau hafði hún fórnað um sinn vegna fráfalls bróður síns og móð- ur, sem bæði létust fyrir um það bil ári og síðan vegna veikinda uppeldismóður sinnar, er nú í des- ember fékk rúm á hjúkrunarheim- ili. I jólakortinu segir Sanný frá því, hve fegin hún sé því að hafa annast gömlu konuna þennan tíma. Og sú umönnun varð hennar aðfangadagskvöld. Sanný var kona, sem ekki er unnt að gleyma. Og saga hennar er engu lík. Hún er ekki eins og hver önnur ævisaga — líklega mundu flestir telja hana sorgar- sögu öðru fremur. En ekki má nefna hana eingöngu því nafni, því að í henni eru líka margir sól- skinsblettir. Konan, sem á þessa sögu að baki var einstök persóna. Og hana ber hátt. Þegar rifjaðar eru upp myndir úr ævi hennar er það hin sterka, einbeitta, glaðlega, ósér- hlífna Sanný, sem er svo fyrirferð- armikil í mynd minninganna, að allir skuggafletir dofna. Margar myndir koma upp í hugann. Þegar við hjónin kynntumst Sanný og fjölskyldu hennar fyrir 15 árum vantaði elsta soninn Björgvin Wilhelm í fjölskyldurammann. Hann hafði hrapað til bana aðeins 13 ára gamall er hann var í fjall- göngu ásamt vini sínum skammt frá heimili þeirra í Vogum á Vatnsleysuströnd. Athygli okkar vakti þegar hin einarða þýzka kona, sem tók þátt í ýmsum störf- um kvenfélagsins af eldmóði ásamt því að fylgja vel eftir tveimur sonum sínum, þá 10 og 17 ára gömlum. Og engum gat dulizt að þau hjónin, Kristján Rósberg Guðmundsson og Susanne elskuðu og virtu hvort annað, enda bæði sérlega einlægar og hreinlyndar manneskjur. Sjálf sögðu þau okkur að þau hefðu kynnzt á Snæfellsnesi er þau voru þar í kaupavinnu sitt á hvorum bænum á sínum tíma. Þýzkur prestur gaf þau síðan saman í hjónaband í Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysu- strönd í júlí 1951. Ekki höfðu kynni okkar af fjöl- skyldunni staðið nema í tvö ár, þegar myndin af henni breyttist aftur. Kristján Gústav, sem nú var eldri sonurinn, hrapaði til bana í lítilli flugvél sem hann flaug sjálfur. Hún féll til jarðar aðeins örfáum metrum frá heimili fjölskyldunnar að Sólbergi í Vog- um. Rúmu ári síðar flutti fjöl- skyldan til Reykjavíkur og bjó um sig í notalegri íbúð. Yngsti sonur- inn, Guðmundur Þór, átti nú einn umhyggju foreldranna og fór ekki varhluta af henni. En myndin fékk ekki lengi að vera þessi innan rammans. Nú var tími eiginmannsins kominn. Hann kvaddi þo ekki jafn snöggt og syn- irnir. Og hin einarða, trygga kona sinnti því hlutverki að hjúkra honum helsjúkum mánuðum sam- an. Sanný sagði okkur hjónum í bréfi — þar sem við vorum búsett erlendis er hún missti mann sinn í júlí 1975: „Við fáum engu að ráða, Guð ræður". Og hún laut þeirri staðreynd. Hún treysti því að Guð sæi tilgang með þessu öllu, og það var ekki hennar að fetta fingur út í stjórn hans. Með þessa fullvissu og reynslu að baki héldu þáu áfram lífsbrautina sonurinn ungi og móðirin og létu engan bilbug á sér finna. Síðustu árin, eða þar til hún fór til Þýzkalands, vann Sanný hjá Álafossi. Þar sinnti hún af- greiðslustörfum fyrst í stað en síð- an skrifstofustörfum hjá fyrir- Fæddur 25. október 1951 Dáinn 9. janúar 1983 Kallið er komið, komin er nú stundin. Þessi orð sálmaskáldsins var eina svarið er í hug okkar kom, þegar okkur bárust þau hörmu- legu tíðindi, að Valur hefði hnigið niður látinn í hópi félaga sinna, þar sem þeir voru á íþróttaæfingu. Við mennirnir sjáum svo skammt fram á veginn og skiljum því ekki tilgang skaparans, og eig- um þar af leiðandi erfitt með að sætta okkur við missi ástvina okkar og ekki síst þegar kallið kemur svo óvænt og í hlut á svo ungur maður sem Valur var. Hann var fæddur á Flateyri við Önundarfjörð 25. október 1951, sonur hjónanna Ástu Jónsdóttur og Sigurmunds Þóroddssonar, en þau hjónin eignuðust fjögur börn, tvær dætur þeirra eru búsettar í Svíþjóð, en sonur þeirra, Jón, býr í um systkinahópi hjá ástríkum for- eldrum enda þessi fjölskylda ein- staklega samhent. Árið 1971 flutt- ust þau til Reykjavíkur, en fjórum árum siðar lést faðir hans, aðeins 46 ára gamall. Það var ekki ætlun okkar að fara að rekja hér ættir né æviferil Vals. Við viljum heldur þakka Guði fyrir að hafa fengið að kynn- ast þessum góða dreng, sem kom eins og sólargeisli inn í líf dóttur tækinu. En jafnhliða þessu lét hún sig skipta 'erfiðleika og sjúkdóma annarra. Hún fór nokkrar ferðir héðan að heiman með sjúklinga til lækninga í Þýzkalandi. Ekkert taldi hún eftir sér í því sambandi, undirbjó allt sjálf með bréfa- skriftum og öðru nauðsynlegu. Fjölskyldu sína í Þýzkalandi heimsótti hún með jöfnu millibili. Einnig var gott samband milli hennar og yngri systur hennar, Ritu, sem giftist hingað líka og er búsett í Keflavík ásamt fjölskyldu sinni. Enn er myndin innan rammans breytt. Eftir stendur sonurinn Guðmundur Þór, sem ungur að ár- um hefur þurft að lifa margar sársaukastundir. Hann er sterkur og einbeittur með góða eiginkonu, Hörpu Hauksdóttur, sér við hlið. Þau munu nú ásamt litlu dóttur- inni Ingibjörgu Christu, halda áfram lífsgöngunni. Og þeim er ekkert að vanbúnaði. Mörg og þung högg mega ekki veikja um of. Og Guð, sem öllu ræður, gefur líka styrk og von, þegar allt er myrkt og erfitt. Það er huggun í harmi að Sanný skyldi geta haft tengdadótturina og litlu sonardótturina hjá sér í allt sumar, og að Guðmundur var hjá henni líka í sumarleyfi sínu. Án efa hefur það stytt henni stundir og veitt birtu inn í annir hversdagsins. Guðmundur og Harpa. Við hjón- in samhryggjumst ykkur. Þið haf- ið misst mikið, en þið eigið líka dýrmætar minningar, sem þurfa að fá að rísa hæst í hugum ykkar. Megi þær minningar mýkja sárs- aukann og hreiða yfir sáran sökn- uö. Rúna Gisladóttir og fjölskylda. Það var árið 1949 að ég var að leita mér að atvinnu. Á hóteli einu í Timmendorf rakst ég á bréfmiða þar sem auglýst var eftir landbún- aðarfólki til starfa á íslandi. Ég hafði farið til Timmendorf vegna þess að ég þekkti konu, sem rak hótel þar. Hún tók mér mjög vel og vildi taka mig til sín í vinnu, en litli bréfmiðinn, sem ég hafði fundið breytti öllum mínum áformum. Þannig hófst sagan, sem Susanne sagði, sagan sem lauk á aðfangadag jóla. Það var saga mikilla sviftinga, mikilla harma en jafnframt mikils þreks og hugrekkis. Hún kom til íslands og vistaðist að Hellnum á Snæfellsnesi. Hún okkar, Sigurbjargar, og reyndar okkar allra. Þau kynntust fyrir fjórum árum og bjuggu síðastliðin tvö ár hjá móður hans, enda var Valur hennar stoð og stytta eftir missi föður síns. Valur var búinn að ákveða sitt starfssvið vel. Hann var útvarps- og sjónvarpsvirki að mennt, og lék allt í höndum hans. Hann hafði sett á stofn fyrirtækið „Sónn“, sem hann rak með öðrum og gekk það allt að óskum, því Valur hafði yfir frábærum stjórn- unar- og skipulagshæfileikum að ráða. Hjálpsemi og góðvild hans voru einstök og naut Sigurbjörg þess sérstaklega, enda voru þau ákaf- lega hamingjusöm. Gifting var fyrirhuguð í vor og framtíðin blasti við, mennirnir ákvarða en Guð ræður. En minning hans lifir og hana fær enginn frá okkur tekið, megi hún verða leiðarljós í hinni miklu sagði að oft hefði hún gengið úti og notið birtunnar og víðsýnisins, þó landið virtist nakið og bert við fyrstu sýn. Þar var þó ýmislegt að sjá, sem undrun vakti. Nokkru seinna flutti hún að Vogum á Vatnsleysuströnd. Þar beið gæfan hennar, því þar kynnt- ist hún mannsefninu sínu, Krist- jáni R. Guðmundssyni, tækni- fræðingi. Þau reistu þar heimili sitt og bjuggu þar í tuttugu ár, en fluttu þá til Reykjavíkur. Þau eignuðust þrjá drengi, Björgvin Vilhelm, sem fæddist 23. septem- ber 1950, en lést af slysförum hinn 12. ágúst 1963, Kristján Gustaf, fæddist 17. júlí 1952, hann lést einnig af slysförum, 30. júlí 1971. Bikarinn, sem hún Susanne varð að bergja á, var þó ekki tæmdur. Kristján Guðmundsson, maður hennar, lést 24. júlí 1975, eftir löng veikindi. Síðasta árið sem hann lifði annaðist Susanne hann sjálf, með nærfærni og einstakri elju. Þriðji sonurinn, Guðmundur, er kvæntur Hörpu Hauksdóttur og eiga þau eitt barn, sem var sólar- geisli Susanne. Það hefur orðið þung byrði fyrir ungu hjónin, þeg- ar harmafréttin barst frá Þýska- landi á aðfangadag, að Susanne væri látin. Susanne hóf störf í Álafossbúð- inni í Reykjavík, 3. maí 1976. 1. október árið eftir varð hún aðstoð- arverslunarstjóri, en síðustu árin vann hún í söludeild á aðalstöðv- unum í Mosfellssveit. Susanne átti sér áhugamál og eflaust góðar stundir. Hún söng í kirkjukór Háteigskirkju og naut góðrar tónlistar. Þó er ótalið það sem hún lagði mesta alúð við. í æsku hafði hana dreymt um að verða læknir. Aðstæður hennar komu í veg fyrir það. Hún reyndi að bæta sér það upp með því að læra í bréfaskólum bæði tungumál og sálfræði. í Bremen í Þýskalandi er kona, sem hefur tileinkað sér ævaforna kínverska læknisfræði, sem m.a. felst í svæða- og nálar- stunguaðferð. Talið er að henni hafi tekist að lækna mörg manna mein. Susanne hafði milligöngu fyrir þýska lækninn og fór margar ferðir með íslenska sjúklinga þangað. Það er talið að þeir hafi verið fimmtíu til sextíu og margir fengið bata. Susanne var síhjálp- andi og síðasta verk hennar var að hlúa að gamalli móður sinni í Þýskalandi, sem var orðin ein- stæðingur. Hvíli hún nú í friði. Starfsfólk Álafoss hf. sorg Sigurbjargar, móður hans, systkina og okkar allra. „Yfir haf sem heima skilur hédan leitar sálin þín. Alvaldshöndin upp þig leidir inn í dýröarríki sín. Yertu sæll! ViA sjáumst aftur saman öll, er lífid þver. Far vel vinur! Frjáls úr heimi. FriAur Drottins sé meö þér.** — (Sálmur) Fjölskyldan, Stóragerði 19. Lokað í dag, þriöjudag, vegna jaröarfarar VALS SIGURMUNDSSONAR. Radíóverkstæöiö Sónn sf., Einholti 2. Valur Sigurmunds- son — Minningarorð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.