Morgunblaðið - 18.01.1983, Page 44

Morgunblaðið - 18.01.1983, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 \ ást er ... ... að roðna þegar hann hælir þér. TM Rea U.S. Pat Off.—all rights rcserved • 1982 Los Angdes Times Syndicate Það er ánægjulegt að sjá þig, en ég get ekki staðið nema stutt við, því ég verð að vitja annarra sem eru líka hér á spítalanum. Vill enginn bjóða í framlengingar- handlegginn? HÖGNI HREKKVÍSI „þVÍ /M\ÐUfí.,HEKtZA AUMM/ EW t(á 'A EKKl ZLÓ." Einhvern veginn smásí- aðist þetta inn í mig „Aldrei hefir það orðið mér til vanuræva au iara mvw uurn í kirkju. Eg sé heldur ekki annað en börn sitji þar yfirleitt hljóð og prúð, án þess að þar sé talað eitthvert barnamál.** Björg skrifar: „Velvakandi. I dálkum þínum 29. des. sl. birt- ist fyrirspurn frá 7030—2306 um það, hvort ekki væri hægt að hafa aðra hverja helgistund í Sjónvarp- inu fyrir börn. Orðalag presta væri oft þannig, að börn skildu þá ekki og hefðu þar af leiðandi ekki áhuga á að hlusta. Spurt var, hvort ekki væri mögulegt að beina þessu í heppilegri farveg. Á fyrstu árum Útvarpsins var tekinn upp sá háttur að útvarpa messum kl. 14 á sunnudögum. Það þótti alveg sjálfsagt að allir sett- ust niður og hlustuðu, ef kostur var á. Ég var þá barn að aldri í uppeldi hjá afa mínum og ömmu. Mér eru minnisstæðir sunnu- dagar að sumarlagi, þegar ekki var sinnt um heyskap. Þá áttum við börnin frí frá skyldustörfum og máttum leika okkur að vild. En samt máttum við aldrei fara langt frá bænum, í berjamó eða þ.u.l., fyrr en eftir messutíma. Rétt fyrir kl. 14 kallaði amma á okkur. Mess- an var að byrja. Urðum við að sitja grafkyrr og þegjandi í klukkutíma og hlusta á Guðsorðið. Ég man að mér þótti þetta oft afar harður kostur, sérstaklega þegar sólin skein úti. Ekki dettur mér í hug að halda því fram, að ég hafi skilið allt sem presturinn sagði eða að athyglin hafi ekki stundum beinst fullt eins mikið að góða veðrinu fyrir utan. En ein- ■ hvern veginn smásíaðist þetta inn í mig. Þegar lengra leið á ævina átti ég oft eftir að blessa hana ömmu mína í huganum fyrir messuset- urnar. Þegar ég fór sjálf að búa opnaði ég útvarpið og hlutaði á guðsþjónustu, meðan ég var að út- búa sunnudagsmatinn. Annað, sem mér skildist þá, var hvað þessi agi hafði gjört mér gott, að þurfa að hætta leik þá hæst fram fór, setjast inn í bæ og hlusta í heilan klukkutíma. Einmitt sá agi, sem mér lærðist þarna, hefir hjálpað mér mikið, þegar reglu- lega hefir þurft á að halda þolin- mæði í lífinu. Aldrei hefir það orðið mér til vandræða að fara með börn í kirkju. Ég sé heldur ekki annað en börn sitji þar yfirleitt hljóð og prúð, án þess að þar sé talað eitthvert barnamál. Ég get ómögulega haft samúð með fólki, ef það á annað borð hlustar á helgistund í sjónvarpi, að það reyni að fá börn sín til að sitja með sér í kyrrð og fylgjast með þessar fáu mínútur, sem helgi- stundin stendur yfir. Þeir eru svo ótalmargir, bæði aldnir og sjúkir, um allt land, sem eiga þess ekki kost að sækja kirkju. Útvarps- messurnar eru alveg ágætar, en þá sjá þeir sömu aldrei prestinn sem predikar. í sunnudagshugvekjunni birtist hann á skjánum, auk þess sem allt form er þar mjög ánægju- legt að öðru leyti. óskandi er að það haldist, öllum til ánægju sem með fylgjast. Gleðilegt nýár.“ Skrýtið að matsmenn fari að læstum sumarbústöðum Kristín Bjarnadóttir skrifar: „Ég þakka Héðni Emilssyni deildarstjóra brunadeildar Sam- vinnutrygginga fyrir svar til mín þ. 13/1 ’83 í Velvaknada. Héðinn talar um misskilning hjá mér varðandi brunabótamat á eignum. Því langar mig að fá svar frá Héðni varðandi eftirfarandi: Hinn 26. júní 1962 flutti ég 12 fermetra sumarkofa í Vaðnesland í Grímsnesi. Bað ég Samvinnu- tryggingar um brunabótamat á kofann, þar sem það tilheyrði þeim að annast brunabótatrygg- ingar í Grímsnesi. Tiltekinn dag komu tveir ágæt- ismenn til mín í kofann. Annar var Ingileifur bóndi á Svínavatni hinn var Magnús, faðir Ásgeirs Magnússonar þáverandi forstjóra Samvinnutrygginga, og kom hann sem matsmaður frá þeim. Því spyr ég? Hvers vegna var hann sendur til mín ef tryggingar- félaginu kemur ekki matið við? Ég hef alltaf treyst Samvinnu- tryggingum í því að hækka bruna- tryggingu eftir vísitölu ár hvert. Því varð ég undrandi yfir bréfi frá þeim síðastliðið sumar, þar sem mér var tilkynnt endurmat + matskostnað. Væri það ekki almenn kurteisi að skrifa eigendum fasteigna bréf og tilkynna að óskað væri eftir endurmati fasteigna og eigendur væru viðstaddir? Heldur finnst mér það skrítið, að matsmenn fari að læstum sumarbústöðum, líti inn um glugga og endurmeti á þann hátt; komi eins og þjófar að nóttu. Það má sjálfsagt deila um brunabótamat og aðferðir við það, en illa trúi ég því að hver hreppur framkvæmi matið án samvinnu við sitt tryggingarfélag. Um vegaskattinn vil ég segja þetta: Mér finnst sjálfsagt að við sumarbústaðaeigendur greiðum einhvern hluta í hreppsveginn en mér finnst gjaldið alltof hátt. Gjarnan mætti hreppstjóri Grímsneshrepps sýna okkur í blöðum hve há gjöld okkar eru til samans og hvernig þeim er varið. Vona ég að hreppstjórinn í Grímsneshreppi líti stundum í Morgunblaðið en lesi ekki bara Tímann, svo við sumarbústaðaeig- endur í Grímsnesi fáum svör við þessum spurningum. Virðingarfyllst."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.