Morgunblaðið - 18.01.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
45
AKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
•\y t/jjgrnivK'' aa'i
Þessir hringdu . . .
Hvad dvelur
sameininguna?
Jón Júlíusson hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Hvað ætli
það sé helst sem dvelur samein-
ingu Þýskalands, tæpum 40 árum
eftir lok heimsstyrjaldarinnar? Er
einhver sem getur svarað því?
Af hverju er
sjónvarpsklukk-
an ekki í lit?
Siggi hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég hef verið að
velta því fyrir mér, hvers vegna
klukkan í sjónvarpinu hefur orðið
út undan í litvæðingunni. Af
hverju er hún ekki í lit, heldur í
svart-hvítu (líka nýja klukkan
sem birtist fyrst á jólunum)?
Fá ekkert betra
A.K. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég er mjög
mikill áhugamaður um fugla og
las það hér í dálkunum, að ekk-
ert fuglakorn fengist í Grinda-
vík. Svo sá ég það einnig, að
fyrirspyrjandanum var bent á að
gefa fuglunum hrísgrjón, hafra-
grjón, brauðmola og niðurbrytj-
aða kjötfitu. Brauðmoiar eru
ágæt fæða handa öndum, en ekki
handa snjótittlingum, og þeir
líta ekki við kjötfitu. Én í hverri
einustu gæludýrabúð fást marg-.
ar tegundir fuglakorns, t.d.
handa páfagaukum og kanarí-
fuglum, svo og finkukorn, og
þetta má allt saman nota handa
þeim litlu á hjarninu, þeir fá
ekkert betra og borða það upp til
agna.
*
Omenning-
arlegt
S.E. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég sé ástæðu til
þess að vekja athygli á sérkenni-
legu fréttamati sjónvarpsmanna
í ársyfirliti þeirra um innlendar
fréttir um áramótin, í svokölluð-
um fréttaannál ársins 1982. Þar
þótti það meiri frétt, að köttur
hefði tekið andarunga í fóstur en
að Ásmundur Sveinsson og Sig-
urjón Ólafsson myndhöggvarar
létust með hálfsmánaðar milli-
bili síðla ársins. Þess var í engu
getið í annálnum, það þótti víst
ekki nógu fréttnæmt til þess að
hafa það þar með, enda þótt
Ásmundur væri jarðaður á
kostnað ríkisins og þetta séu
menn, sem hafa skilað miklu
dagsverki og öll þjóðin þekkir.
Mér fannst það ómenningar-
legt og óviðeigandi að geta þess
ekki einu sinni.
Enn fremur sakna ég þess
ævinlega þegar þjóðsöngurinn er
leikinn á sunnudagskvöldum í
dagskrárlok, að þá skuli íslenski
fáninn ekki sjást í upphafi
myndasyrpunnar. Sjónvarpið
ætti að taka það til athugunar að
hafa hann með.
Hafa í engu
gefið eftir
Austurbæingur hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Ég sá
það í dálkunum hjá þér, að verið
var að þakka snjómoksturs-
mönnum vel unnin störf og
fannst mér það maklegt hrós. En
ég vildi gjarna bæta sorphreins-
unarmönnum borgarinnar við.
Þeir hafa í engu gefið eftir við að
þjóna okkur borgarbúum, enda
þótt starfsaðstæður þeirra hafi
nú verið hinar erfiðustu vikum
saman, og sums staðar að óþörfu
vegna slóðaskapar okkar borgar-
anna.
Óheyrilegt verð
Guðbjörg Indriðadóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Svoleiðis var að sonur minn, 14
ára gamall, keypti buxur á út-
sölu hjá Adam á Skúlagötunni
og kostuðu þær 390 krónur, þrátt
fyrir að á þeim væri mikill og
áberandi galli. Þetta fannst mér
óheyrilegt verð fyrir vöru sem
ekki er hægt að nota, nema
leggja í það fé og fyrirhöfn að
gera við hana. Þetta á ungling-
urinn auðvitað erfitt með að
meta, einfaldlega vegna þess að
hann hefur ekki vit á því. En
mér finnst það ekki rétt að nota
sér á þennan hátt óvitaskap
unglinga.
Hljóta að eiga að borga
sem fóru fram á matið
Gunnar Kristjánsson, Keflavík,
skrifar:
„Velvakandi.
Ég vil nota þetta tækifærit il að
þakka Jóhanni Guðmundssyni kær-
lega fyrir að vekja máls á því, sem ég
leyfi mér að kalla skattpíningu. Mér
er ekki kunnugt um, hvernig málum
sumarbústaðaeigenda er almennt
háttað í hinum ýmsu sveitarfélögum
landsins, en meðferðin á okkur
sumarbústaðaeigendum í Gríms-
neshreppi og Árnessýslu verður að
teljast til skattpíningar, eins og áður
segir, að ekki sé dýpra tekið í árinni.
Við hjónin eigum 26 fermetra
bústað, sem við vorum nokkur ár að
koma í það ástand, að hann teldist
íbúðarhæfur. Einnig höfum við gróð-
ursett nokkur tré ásamt fjölærum
plöntum til augnayndis fyrir okkur.
I fyrstu vorum við með smíðatrygg-
ingu, meðan við vorum að vinna við
bústaðinn. Þegar hann var orðinn
íbúðarhæfur, kom fljótlega maður,
sendur frá Samvinnutryggingum.
Hann skyldi mæla og skoða eignina,
sem eftir hans umsögn var síðan
metin. Smíðatryggingunni var sagt
upp og okkur send tilkynning um að
brunabótamat hefði farið fram á
umræddri eign.
Þetta mat hefur síðan verið á
bústaðnum og hefur fylgt bygg-
ingarvísitölu og þar af leiðandi
hækkað á hverju ári samkvæmt
henni. ’
Snemma árs ’82 fengum við rukk-
un um iðgjald af umræddri trygg-
ingu, sem við greiddum 1. mars sama
ár. En hvað gerðist svo? Seinni part
ársins fáum við viðbótarrukkun,
ekki vegna byggingarvísitölu; hún
hafði þegar verið greidd í fyrsta
skiptið; nei, það hafði verið hækkað
á bústaðnum brunabótamatið. En
hver hafði farið fram á það? Ekki
við sem vorum tryggingartakinn.
Samkvæmt upplýsingum hjá Sam-
vinnutryggingum ekki tryggingafé-
lagið. Hver þá? Hver átti hagsmuna
að gæta að okkar eign yrði endur-
metin og jafnvel hærra en nýr bú-
staður kominn á sökkul, 36 fermetr-
ar með tvöföldu gleri og skilrúmum
ásamt hurðum átti að kosta. Takið
eftir: 10 fermetrum stærri.
Eftir margra vikna stapp og pex
til að fá það upplýst, hver það hefði
verið, sem fór fram á endurmat,
greindu Samvinnutryggingar frá
því, að hér hefði verið að verki
Grímsneshreppur, eða hans full-
trúar. En í hvaða tilgangi og með
hvaða rétti fór hann fram á endur-
mat, ekki bara á okkar bústað, held-
ur að líkindum öllum bústöðum í
hreppnum?
Hér verður að staldra við og
spyrja: Getur verið að þetta sé gert í
þeim tilgangi að ná fram hækkunum
á þeim gjöldum til hreppsins og
sýslunnar, sem reiknuð eru út eftir
lögboðinni húsatryggingu, bruna-
bótamati? Og nefni ég í því sam-
bandi sýsluvegasjóðsgjald og
fasteignaskatt. Lái mér hver sem
vill, að ég spyrji.
Rétt fyrir síðastliðin áramót fór
ég og greiddi hjá Samvinnutrygging-
um viðbótargjaldið. En viti menn.
Hvað sé ég? Á skírteininu stendur
orðrétt: „Samþykkur ofanskráðri af-
greiðslu sem vátryggingartaki." Ég
mótmælti orðalagi þessu, en greiddi
gjaldið, svo að tryggingin væri ekki í
vanskilum og eignin jafnvel ótryggð.
Annar reikningur var fram lagð-
ur. Það var rukkun um virðingar-
gjald, að upphæð kr. 150 + akstur kr.
10. Þessum reikningi skilaði ég aftur
án þess að borga hann, þar sem ég
sem eigandi eignarinnar hafði ekki
farið fram á endurmat. Þeir hljóta
að eiga að borga, sem fóru fram á
matið.
Og þá vaknar enn ein spurning.
Hverjir eru þessir virðingarmenn,
sem verið er að rukka laun fyrir? Þá
lá næst fyrir að fletta upp í síma-
skránni. Og hvað kemur í ljós? Ann-
ar þeirra er oddviti Grímsneshrepps.
Senda Samvinnutryggingar launa-
miða fyrir virðingargjörðir þessara
manna, sem eru jú laun? Ég vona að
svo sé, því að örugglega veitir
hreppnum ekki af samkvæmt minni
reynslu, frekar en öðrum hreppum
þessa lands, að fá sín gjöld."
GÆTUM TUNGUNNAR
Að dingla merki að svciflast eða vingsa en EKKI að hringja.
Leiðréttum börn sem flaska á þessu!
BÓKHALD
REKSTRARUPPGJÖR
SKATTAFRAMTÖL
Nýstofnað fyrirtæki sem annast bókhald,
rekstraruppgjör og gerð skattframtala fyrir
fyrirtæki og einstaklinga, getur bætt við sig
verkefnum.
REIKNINGSSKIL SF.
fíORdARTÚNI2V 11)5 RI YKJA VtK SÍUI117-W NAINNR. 7MI7-14III
Sverrir Örn Sigurjónsson,
víðskiptafræóingur.
VALLEY N
F0RGEPLANK
Amerísk Tennessee eik
góifborð
RiBack hönnun hindrar
verpingu í erfiöu loftslagi.
Hafið samband og látiö
panta. 2—3 mán. af-
greiöslufrestur.