Morgunblaðið - 20.02.1983, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
Tvær franskar þyrlur lánað-
ar til íslands í einn mánuð
UM MIÐJAN þennan mánuö barst íslenskum stjórnvöldum boö frá frönsk-
um yfírvöldum um aö sendar yröu tvær þyrlur af gerðinni Puma 330 ásamt
II manna áhöfn til allt aö mánaöardvalar á íslandi.
Boöi franskra yfirvalda var tekiö af samgönguráðherra og fól hann flug-
málastjórn aó annast móttöku þyrlanna og skipulagningu dvalar þeirra á
íslandi, og skyldi þaö gert í samráói og samvinnu við Landhelgisgæslu
rfkisins, landlæknisembættið, Slysavarnafólag íslands, Rauöa kross íslands
og Álmannavarnir ríkisins.
Á blaðamannafundi á fimmtu-
daginn sagði Pétur Einarsson hjá
flugmálastjórn að boði Frakkanna
fylgdu engin skilyrði um kaup á
þyrlunum. Þá sagði Pétur að ís-
lenska ríkið borgaði uppihald
frönsku áhafnarinnar hérlendis og
eldsneyti þyrlanna, en þó ekki
hærri upphæð en 300.000 kr.
Ákveðið hefur verið í samráði
við frönsku aðilana að þyrlurnar
verði hluti af flugkosti þeim sem
Landhelgisgæslan stjórnar frá
degi til dags og verði þannig til
reiðu ásamt þyrlukosti Landhelg-
isgæslunnar vegna sjúkra- eða
neyðarflugs. Vegna þess hefur
verið ákveðið að varðstjórar í
flugumferðarþjónustu flugmála-
stjórnar taki á móti beiðnum um
sjúkra- eða björgunarflug með
þyrlum allan sólarhringinn í síma
91-17438 á meðan frönsku þyrl-
urnar verða hér. Slysavarnafélag
íslands mun samt sem áður starf-
rækja neyðarsíma sinn, 91-27111,
eins og verið hefur.
Ennfremur hefur verið ákveðið
að farið verði kynningar- og þjálf-
unarflug um landið, þyrluflug
sýnt á ýmsum stöðum og björgun-
aræfingar haldnar á öðrum. Fyrir
liggur áætlun um þannig flug til
allra landshluta á næstu vikum.
Æfingar þessar hafa verið skipu-
lagðar af Slysavarnafélagi ís-
lands, Rauða krossi íslands og Al-
mannavörnum ríkisins. Vegna
þessara æfinga og kynningarflugs
verður haft samband við alla aðila
á viðkomandi stöðum sem björg-
unarmál annast.
Um borð í frönsku þyrlunum
verður alltaf að minnsta kosti
einn þyrluflugmaður Landhelgis-
gæslunnar á hverjum tíma.
Pétur Einarsson sagði að til-
gangurinn með að fá frönsku þyrl-
urnar hingað til lands væri sá að
kanna og jafnframt sýna hvers
megnugur fullkominn þyrlufloti sé
í höndum íslendinga. Hingað til
hefði skort fjármagn til að gera
slíka tilraun, en vegna þessa
rausnarlega boðs franskra yfir-
valda sé nú hægt að skipuleggja
þyrluþjónustu hér á landi í einn
mánuð sem jafnast á við það
áreiðanlegasta sem þekkist.
Frönsku þyrlurnar
Þórhallur Karlsson flugstjóri
hjá Landhelgisgæslunni lýsti
frönsku þyrlunum svo:
„Þetta eru að ýmsu leyti viða-
meiri þyrlur en TF-RÁN. Þær
hafa ekki sömu drægni og Sik-
orsky-þyrla Landhelgisgæslunnar
og eru hægfleygari. Puma-þyrl-
urnar eru fyrstu þyrlurnar sem
búnar eru afísingarbúnaði í þyrl-
uspöðum, og í loftinntaki hreyfl-
anna, og er önnur þeirra sem
hingað er komin með upphitaða
spaða. Hún er jafnframt með mik-
inn radar í trjónunni. Puma er
fyrsta þyrlan utan Sovétríkjanna
sem er gerð fyrir flug við ísing-
arskilyrði. Þyrlurnar eru knúnar
tveimur 1575 hestafla hreyflum.
Þyrlurnar eyða 600—700 lítrum af
eldsneyti á klukkustund.
Framleiðsla Puma-þyrlanna
hófst árið 1968, en frumeintakið
flaug í apríl 1965. Hámarksfar-
flughraði þeirra er 146 hnútar og
hámarkshraði 158 hnútar. Miðað
við venjulegt farflug draga þær
309 sjómílur.
Flugstjóri annarrar þyrlunnar
tjáði Mbl. að hingað hefðu þyrl-
urnar komið í fyrradag frá flug-
stöð breska flughersins í Kinloss í
Skotlandi, en þar var gist eftir
beint flug frá Frakklandi. Flugið
til íslands tók 6 klukkustundir og
var flogið í 5000 feta hæð í kröft-
ugum hliðarvindi en millilent í
Færeyjum til eldsneytistöku.
Frönsku herþyrlurnar tvær á leið inn í skýli Landhelgisgæslunnar.
MorpiBblaAié/ RAX.
Fylgdarflugvél frönsku þyrlanna er af geröinni Dassault-Breguet Atlantic
NG. Framleiösla þessarar flugvélategundar er nýhafin, en þær eru einkum
notaöar til strandgæzhi og annars eftirlitsfhigs. Morp»t>ia»i4/ RAX.
LOMDON, vikuferðir.
KANARIEYJAR, sólarferðir.
GYLMIR
Verð frá kr. 6.040,- fyrir flug og gistingu á
hótel Aerogolf. Þessar ferðir bjóðast fram til
1. apríl n.k.
I 1 VIKG?
Verð frá kr. 17.022,- fyrir flug og gistingu.
Síðasta brottför 20. apríl n.k.
Verð frá kr. 10.625.- fyrir flug og gistingu.
Síðasta brottför 27. mars n.k.
I 3 VIKGR?
Verð frá kr. 8.308.- fyrir flug, gistingu og
morgunverð. Þessar ferðir bjóðast fram til
30. apríl n.k.
Ath. Nú er útsölutíminn framundan.
KAUPMANNAHÖFN, vikuferðir.
Verð frá kr. 8.877,- fyrir flug, gistingu og
morgunverð. Þessar ferðir bjóðast fram til
30. apríl n.k.
Þú ræður
ferðinni
FERÐASKRIFSTOFA
FIB
A nýjum stað:
Borgartúni 33
Sími 29999
- við aðstoðum.
í. STGÐI TIL.AÐ SKREPPA
(IR LANDIA NÆSTGNNI
I 1/2 viKa?
LGXEMBORG, helgarferðir.
I 2 VIKCIR?
AUSTGRRIKl, skíðaferðir.
FIBFIB