Morgunblaðið - 27.02.1983, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.02.1983, Blaðsíða 10
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 Hádegisjazz íBlómasalnum Hótel Loftleiöir fara nú af staö með skemmtilega skammdegis skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Sambland af morgun- og hádegisverði með léttri og lifandi tónlist. „JA2Z FYRIR ÞÁ SEM EKKERT GAMAN HAFA AF JAZZ!“ Þeir sem koma og leika í sunnudagshádeginu að þessu sinni: TRÍÓ - Friðriks Theódórssonar Hressið upp á sunnudagstilveruna með léttum jazz og Ijúffengum réttum í Blómasalnum. Við byrjum kl. 12 á hádegi. Verð kr. 220.- Borðapantanir í símum 22321 og 22322. Verið velkomin HÚTEL LOFTLEIÐIR í Kaupmannahöfn FÆST HBLADASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI OG Á KASTRUP- FLUGVELLI NY FULLKOMIN TÖLVU-BÚÐARVOG FRÁ Auóveldar afgreiósluna með Commander Vigtar 15 kvæmni. Sýnir kr. 0-999,90 pr/kg. Heldur síöasta veröi inni (verð- merking) Snertitakkar auövelda þrif. Innbyggöur prentari (tölvuprent- un). 34 föst einingarverð (má auka í 64). Allt letur á íslensku. & y:c> - AVfRV f^ ■ V ÓIAÍUR eíSlASOM & CO. HF. SUNDABORG 22 - SlMI 84800 - 104 REYKJAVÍK A4 7 Cý^ lt-0 AVIRV ( <j' SAMKEPPNtUMVEftKFRÆDw^s Morgunblaðið/ Emilia Þeir sem hlutu 1. verðlaun við verðlaunatillöguna. Taldir frá vinstri: Egill Guðmundsson, arkitekt, Þórarinn Þórarinsson, arkitekt, og Björn Gústafs- son, verkfræðingur. Úrslit í samkeppni um nýtt verkfræðihús ÚRSLIT liggja nú fyrir í samkeppni sem Verkfræðingafélag íslands efndi til vegna byggingar verkfræð- ingahúss og skipulags á lóð þess í Kringlumýri, en skilafrestur í sam- keppninni rann út 15. nóvember 1982. Voru verðlaun afhent og jafn- framt opnuð sýning á verðlaunatil- lögunum að Kjarvalsstöðum, mið- vikudaginn 23. febrúar. Alls bárust 18 tillögur. 1. verðlaun hlaut tillaga nr. 2, en að henni stóðu arkitektarnir Egill Guðmundsson og Þórarinn Þórarinsson. Um verkfræðilega ráðgjöf sá Björn Gústafsson og Guðmundur Jörundsson, model- smiður, og Guðmundur Örn Ing- ólfsson, ljósmyndari, aðstoðuðu. í umsögn dómnefndar segir að höf- undur fái 1. verðlaun vegna mjög góðrar og starfrænnar plan- lausnar og útlits, sem leyst er af smekkvísi og öryggi. Einnig hefur þeim tekist mæta vel að gera um- hverfinu og skipulagi þess grein- argóð skil. Var dómnefnd sam- mála um að mæla með þessari til- lögu sem grundvelli að byggingu verkfræðingahúss. 2. verðlaun hlaut tillaga nr. 18. Höfundar hennar eru arkitektarn- ir Dagný Helgadóttir og Guðni Pálsson. 3. verðlaun hlutu tvær tillögur, tillaga nr. 7 og tillaga nr. 16. Höfundar tillögu nr. 7 eru arkitektarnir Sigrún Sigurðar- dóttir, Guðmundur Jónsson, Terje Sörlie og Tom Wike. Samstarfs- menn voru arkitektarnir Atle Rör- vik, Baldur Svavarsson, Erik Östrádal, Finn Are Söberg, Hal- geir Kárstein, Jon Meland Asmund Holt og verkfræðingur- inn Oddvar Hegge. Höfundar til- lögu nr. 16 eru arkitektarnir Hróbjartur Hróbjartsson og Sig- urður Björgúlfsson. Samstarfs- menn þeirra voru: Geirharður Þorsteinsson, arkitekt, Richard 0. Briem, arkitekt, Sigríður Sig- þórsdóttir, arkitekt, og Gréta Pape, teiknari. Þá ákvað dómnefnd að kaupa tillögu nr. 12 og veita tillögum nr. 15 og nr. 3 viðurkenninguna at- hyglisverð tillaga. Höfundar til- lögu nr. 12 eru arkitektarnir Finn- ur Björgvinsson, Hilmar Þór Björnsson og Reynir Adamsson. Höfundar tillögu nr. 15 voru arki- tektarnir Árni Kjartansson, Björn Marteinsson og Valdimar Harð- arson. Aðstoðarmaður var Júlía Andersen, innanhússarkitekt. Höfundur tillögu nr. 3 var Albina Thordarson, arkitekt. Aðstoðar- maður Magnús Bjarnason verk- fræðingur. Sex meginatriði lagði dómnenfd til grundvallar starfi sínu. Þau voru: formun húss frá sjónarmiði byggingarlistar, hvernig húsið fellur að næsta nágrenni og um- hverfinu í heild, aðkoma og teng- ing við umferðarkerfi, hvernig hinar ýmsu vistarverur gegna hlutverki sínu, bæði einar sér og sem þættir í notagildi hússins sem heildar, kostnaðarsjónarmið og áfangaskipti. í dómnefnd áttu sæti: Bárður Daníelsson, arkitekt og verkfræð- ingur, formaður, Loftur Al. Þor- steinsson, verkfræðingur, Þórður Þ. Þorbjarnarson, verkfræðingur, Ingimundur Sveinsson, arkitekt, og Knútur Jeppesen, arkitekt. Sýning á verðlaunatillögunum stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum og verður opin næstu daga. NÝ danshljómsveit, Þrek, hefur tekið til starfa í Reykjavík. Hljómsveitina skipa: (frá vinstri) Halldór Erlendsson, gítar- leikari, Kristján Oskarsson, hljómborðsleikari, Þórður Boga- son, söngvari, Gústaf Guðmundsson, ásláttarleikari og Þórður Guðmundsson bassaleikari. Hljómsveitin Þrek sérhæfir sig í fjörugri dansmúsík, lagavalið samanstendur af vinsælum danslögum og frumsömdum stuðlögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.