Morgunblaðið - 27.02.1983, Blaðsíða 17
— . ■ ' ■ ------ ■
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983
65
Loðvík XVI tekinn af lífi, 21. janúar 1793.
lega fé í ríkissjóð til þess að
standa straum af kostnaði við
stríð það sem Frakkar háðu gegn
Bretum til stuðnings byltingunni í
Norður-Ameríku.
Yfirmaður Neckers, fjármála-
ráðherrann, virðist hafa skilið eft-
ir sig sökkvandi skip þegar hann
fór frá, en Necker var ekki skipað-
ur í hans stað. Hann var skipaður
fjármálastjóri, ekki fjármálaráð-
herra, og fékk ekki sæti í ríkis-
stjórninni.
Stríðið dróst á langinn og Neck-
er reyndist nauðsynlegt að taka
nokkur lán og þau fengust aðeins
vegna þess að Necker bað um þau.
Jafnframt reyndi hann að koma
sér vel við alþýðuna. Hann neitaði
að þiggja laun og hlaut almennt
lof fyrir. Hann kom á fót fylkis-
þingum, sem höfðu völd til að
leggja á skatta. Hann sýndi al-
menningi trúnað 1780, þegar hann
birti hina frægu fjármálaskýrslu
sína, sem sýndi tekjuafgang.
Að lokum tokst Necker ekki
lengur að afla lána út á vinsældir
sínar og hann varð að taka upp
sömu, gömlu sparnaðarstefnuna
og Turgot beitti sér fyrir. Um leið
féll Necker í ónáð hjá konunginum
og hirðinni og til þess að reyna að
leika á ótal óvini sína krafðist
hann sætis í ríkisstjórninni.
Beiðni hans var hins vegar
hafnað, þar sem hann var mót-
mælendatrúar, og hann sagði af
sér í maí 1781. Fátæku stéttirnar
höfðu tröllatrú á honum og afsögn
hans fylgdu yfirlýsingar um
stuðning við hann.
Hann settist í helgan stein á
bökkum Leman-vatns, þar sem
hann keypti landareignina Coppet,
sem síðar varð fræg fyrir að vera
bústaður dóttur hans, Mademois-
elle de Stáel. Þremur árum síðar
birti hann rit sitt, „Stjórn fjár-
málanna". Sagt er að 80.000 eintök
hafi selzt á nokkrum dögum.
A næstu árum lækkaði Loðvík
XVI smátt og smátt í áliti. Lagt
var fast að honum að koma um-
bótum til leiðar og að lokum sam-
þykkti hann að kalla Stéttaþingið
saman. Þegar hér var komið var
fjármálastaðan orðin ískyggileg.
Calonne og de Brienne höfðu að
lokum fært Frakkland fram á
barm gjaldþrots.
Eina úrræðið var að kalla Neck-
er aftur til starfa og hann var
sóttur i ágúst 1788. Hann var
skipaður yfirmaður fjármálanna á
nýjan leik, en völd hans voru auk-
in og hann var jafnframt skipaður
forsætisráðherra.
Hann gat séð fyrir að bylting
væri í aðsigi, en gerði engar ráð-
stafanir til að stemma stigu við
henni. Hann kom á almennum
kosningarétti, en engin skilyrði
voru sett fyrir hæfni kjörinna
fulltrúa. Engin lausn fannst á
heitum deilum um hvort Stétta-
þingið ætti að sitja í einni mál-
stofu, eða þremur, og hvernig at-
kvæðagreiðslur skyldu fara fram.
Vinsældir Neckers jukust. En
þegar Stéttaþingið þróaðist í Þjóð-
þingið og Loðvík XVI ákvað að
beita valdi til að leysa það upp var
Necker vikið frá völdum og árásin
á Bastilluna gerð.
Þetta voru endalok embætt-
ismannsins Neckers, því að þótt
hann væri kallaður aftur varð
hann fijótlega að flýja, öryggis
síns vegna. Hann var að lokum
lýstur útlagi og eignir hans í
Frakklandi voru gerðar upptækar.
Hann sendi frá sér nokkur rit og
bjó óáreittur til dauðadags í Genf.
Hann lézt 9. apríl 1804.
Hin gáfaða dóttir hans, Made-
moiselle de Stáel, gaf út nokkur
verka hans og 1820 gaf dótturson-
ur hans, M. de Stáel, út ritsafn
hans í Frakklandi.
Susanne kona hans andaðist
1794. Þegar hún bjó í Frakklandi
með manni sínum hafði hún alltaf
starfað mikið í þágu sjúkrahúsa
og hún stofnaði eitt slíkt í París,
sem var skírt í höfuðið á henni.
Uppsetningarbúóin
Musselmalet munstriö
Straufríir dúkar og
serviettur. Bláa danska
postulínsmunstriö sem
er á ööru hverju heimili
loksins komiö. Diska-
þurrkur og grillhanskar
samstætt.
130/190 130/170 110/170 110/150«
160/245 i-'G (,) í30/265 130/220
Póstsendum, Uppsetningarbúðin Hverfisgötu 74, sími 25270.
Og alltaf endurtekur sama sagan sig
í HVERJU
Á ÉG AÐ VERA
Á ÁRSHÁTÍÐINNI?
Hér kemur tillaga
Því ekki aö sauma sér kjól, eins og t.d. þennan. Hann
er úr svörtu taftefni og er mjög kvenlegur og róman-
tískur.
Yfir 100 geröir af sam-
kvæmisefnum frá hin-
um heimsþekktu vest-
ur-þýzku verksmiöjum
Colsmann og sviss-
nesku verksmiöjunum
Ziirrer.
Sendum í póstkröfu um land allt.
Dömu- og herra-
búðin,
Laugavegi 55, sími 18890.
cdsman
creati«n