Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 36

Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 36
84 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 Ewing-fjölskyldan glaölag á svip. Það eru fleiri. framhaldsþættir á ferðinni Ef marka má öll þau Jesendabréf, sem birtust í dagblöðunum á meðan sjón- varpsáhorfendur voru Dall- as-lausir, hljóta margir að hafa mjög mikla ánægju af að fylgjast með Ewing- fjölskyldunni. Þessir þættir eru svo sem ekki verri en aðrir, efnið jafnast á við reyfara í bókum og vikuritum, slík lesning hefur glatt marga lesendur um ótal- in ár. í þáttum sem Dallas, þar sem söguþráður er heldur rýr og lop- inn teygður til hins ýtrasta, er það án efa umhverfið og fram- andi mannlífið á búgarði í Texas, sem hefur aðdráttarafl fyrir margan manninn. Ekki skemmir það heldur að leikendur eru hið glæsilegasta fólk, vel klætt og vel tilhaft enda þótt persónurnar, sem þeir eiga að túlka, séu ekki allar geðfelldar. Einstaka maður hefur ef til vill gaman af að heyra nefndar stórar peningaupphæðir í viðskiptum, þó það fari án efa fram hjá flest- um sem ekki eru vel heima í stór- viðskiptum umheimsins. En hvað um það, þrátt fyrir góðan ásetning um að nota mið- vikudagskvöld til einhvers gagn- legs, kemur það fyrir undirritaða, eins og reyndar er vitað um fleiri, að ef sest er við tækið, svona rétt til að sjá hvað er að ske hjá Ew- ing-unum, vill setan stundum verða lengri en rétt augnablik. „Falcon Crest“- þættirnir I Bandaríkjunum hafa ver- ið gerðir fleiri þættir með líku sniði og Dallas, þar má nefna „Falcon Crest". Það er fjölskyldusaga með allskyns flækjum eins og vera ber. Höfuð ættarinnar í þeirri sögu er kona að nafni Angela Channing og ættarauðurinn liggur í vínekrum í Kali- forníu. Konan Angela Chann- ing er hörð og vill allt leggja í sölurnar til að geta haldið ættaróðalinu eftir því sem manni skilst. Aðalhlutverkið, Angelu Channing, leikur Jane Wyman, fyrri kona Ronald Reagans forseta. Eini þátturinn, sem undir- rituð hefur séð af „Falcon Crest“, minnti um margt á Dallas. Þar var um að ræða nýfætt barn, sem tveir menn vildu vera feður að, menn voru í tygjum við fleiri en eina konu og svo mætti lengi telja. Þættir þessir njóta mikilla vinsælda í Bandaríkjunum og víða í Evrópu líka, þar sem þeir hafa verið teknir til sýn- inga. Þættirnir hafa verið sýndir á einhverju Norður- landanna, svo ekki er úr vegi að álíta, að við eigum eftir að fá þá heim í stofu til okkar einhver næstu árin. „Dynasty“- þættirnir Önnur þáttaröð bandarísk er „Dynasty". Þar kemur við sögu enn einn auðkýfingur- inn, sem býr í gríðarmiklu Aöalsögupersónan í „Dyn- asty“-þáttunum heitir Blake Carrington og er leikinn af John Forsythe. Á myndinni er hann umkringdur konunum, sem koma viö sögu í þáttunum. Leikkonurnar eru taliö frá vinstri: Linda Evans, Pamela Bellwood, Heather Locklear, Pamela Sue Martin og Joan Collins (hún mun leika fyrri konu auökýfingsins). húsi eða höll. Að sjálfsögðu eru þar einnig margvísleg og flókin fjölskylduvandamál, eins og við er að búast, enda afskaplega vinsælt sjónvarps- efni. I þætti, sem sýndur var seint á síðasta ári í Banda- ríkjunum, var búið að ræna barni í fjölskyldunni, ekki var vitað hvort höfuð ættarinnar, auðkýfingurinn Blake Carr- ington, var lífs eða liðinn þar sem ekki náðist fjarskipta- samband við hann, þar sem hann var á hættulegu ferða- lagi. Spurningin sem upp var borin var: er Blake lífs eða liðinn? Áhorfendur urðu að bíða í óvissu fram að næsta þætti og ekkert látið uppskátt um söguþráðinn. Spennandi, ekki satt? B.I. tók saman Blake og Krystle (Linda Evans) gefin saman í hjónaband.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.