Morgunblaðið - 17.04.1983, Side 14

Morgunblaðið - 17.04.1983, Side 14
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983 75 ára: Indriði Indriða- son ættfræðingur í dag verður sjötíu og fimm ára Indriði Indriðason, Stórholti 17 í Reykjavik. Hann er fæddur á Ytra-Fjalli 17. apríl 1908. Foreldr- ar hans voru Indriði Þórkelsson, bóndi og skáld þar og kona hans, Kristín Sigurlaug Friðlaugsdóttir. Indriði hleypti ungur heimdrag- anum, eftir að hafa notið hald- góðrar undirstöðu á góðu menn- ingarheimili foreldra sinna og lært vinnu við venjuleg bústörf í íslenzkri sveit. Hann stundaði nám í Ameríku (San Francisco) í ensku og enskum bókmenntum og vann síðar ýmis störf þar í borg. Heim til íslands kom Indriði aftur árið 1930 og hefur síðan unnið við fjölþætt störf í þjóðfélaginu, en lengst eða frá árinu 1944 vann hann á Skattstofu Reykjavíkur og var þar fulltrúi frá 1955 unz hann lét af störfum fyrir aldurssakir. Þetta er í stórum dráttum starfs- ferill úti í atvinnulífinu, en utan við þau störf sem allir þurfa að hafa til að framfleyta sér og sinni fjölskyldu hefur Indriði haft víðan vettvang á félagsmálasviðinu enda er hann maður vel menntaður og áhugamál hans eru margvísleg. Hann er mjög snjall ræðumaður og flytur jafnan mál sitt stutt sterkum rökum og á gott með að ná eyrum áheyrenda sinna. Á fé- lagsmálasviðinu hafa leiðir okkar legið saman og þar þekki ég bezt manninn Indriða Indriðason. í Góðtemplarareglunni höfum við starfað saman um áratuga skeið, en þar hefur hann verið einn af aðalbaráttumönnum Reglunnar og þar hefur hann lagt fram af mikilli fórnfýsi krafta sína og bar- áttueldmóð til stuðnings hugsjón- um Góðtemplarareglunnar fyrir betra mannlífi og auknu bindind- isstarfi. Indriði hefur verið stjórn- armaður í mörgum menningarfé- lögum og formaður í sumum. Hann hefur verið í stjórn Reglu musterisriddara um áratuga skeið, einnig f framkvæmdanefnd Stórstúku íslands um áratugi. Hann var stórtemplar 1976 og 1978. Hann var einn af stofnend- um stúkunnar Andvari 1948 og oft verið æðstiemplar. Indriði hefur fengist allmikið við ritstörf, er þar um að ræða bæði frumsamdar og þýddar bæk- ur, auk fjölda blaða og tímarits- greina, en umfangsmest mun þó vera verk hans Ættir Þingeyinga, og eru nú þegar útkomin fjögur bindi. Indriði kvæntist 17. júlí 1931, kona hans er Sólveig Jónsdóttir Jónatanssonar alþm., Árnesinga frá Ásgautsstöðum. Þau hjón eiga þrjú mannvænleg börn, sem öll hafa stofnað sitt heimili og eiga öll afkomendur. Við þessi tímamót í lífi þínu Indriði, sendum við hjónin þér og konu þinni beztu árnaðaróskir í tilefni af afmælinu og þökkum ykkur fyrir tryggð og vináttu í samstarfi liðinna ára. Kjartan Olafsson frá Strandaseli Fæddur 17. aprfl 1908 Hann er því sjötíu og fimm ára í dag. Ekki sér það á manninum, ef hann er á gangi. Ekki heyrist það á honum, enn er hann ekki farinn að tapa sér. Nei, þetta er samt staðreynd. Hann er fæddur á Ytra-Fjalli í Aðaldal, sonur Indriða Þorkels- sonar bónda og fræðimanns og konu hans, Kristínar Friðlaugs- dóttur. Hann hefur brugðið mörgu fyrir sig, verið trésmiður í Amer- fku, bóndi I Aðaldal, blaðamaður, bókhaldari, fulltrúi á Skattstof- unni og alls staðar staðið sig vel. Starfað i góðtemplarareglunni I áratugi. Vitandi að eina bindind- isstarfið sem hefur gildi er það sem miðar að algjöru bindindi, hitt er kák. Hann hefur starfað sem rithöfundur og að lokum það sem hæst ber, hann er ættfræð- ingur og hefur þegar unnið mikið starf við þingeyskar ættir, byggt ofaná og aukið við þann grunn sem faðir hans lagði. Hvernig maður er svo Indriði, virðist ef til vill vera þurr á mann- inn við fyrstu sýn, en það er aðeins skel. Aratuga kynni mín af honum segja mér að hlýja hjartans og hugsjónaeldur æskunnar sé enn til, að betri mann til að vinna með geti ekki. Hvort sem um er að ræða leit að einhverjum Jóni Jónssyni, en eins og kunnugt er hefur verið nóg af þeim til skamms tíma, eða vinna í sam- bandi við bindindismál, þá er hann í essinu sínu, þá er ekki að sjá neinn þyrrking, þá er málefnið sem vinna skal að allt. Þetta á ekki að vera langt mál. Það er óralangt í að farið sé að skrifa eftirmæli eftir manninn, hann sem er rúmlega hálfnaður með ævina og langt frá því að vera hálfnaður með ævistarfið. Þetta er kveðja með þökk fyrir órofa tryggð og vináttu, og um leið ósk um velgengni í starfi og að fá að sjá hugsjónir sínar rætast. Ari Gíslason Á merkum tímamótum er hollt að staldra við, líta yfir farinn veg og minnast þess sem liðið er, og byggja sig upp til meiri og stærri átaka. Þegar lundin er létt og heilsan góð, eru mönnum allir vegir færir. Vinur minn, Indriði Indriðason rithöfundur, er sjötíu og fimm ára í dag. Indriði Indriðason er fæddur á Ytra-Fjalli í Aðaldal 17. apríl 1908, sonur hjónanna Indriða Þórkelssonar, bónda, fræðimanns og skálds að Ytra-Fjalli og Krist- ínar S. Friðlaugsdóttur. Indriði ólst upp á hinu mikla menning- arheimili foreldra sinna að Ytra- Fjalli, og stundaði nám við ungl- ingaskólann á Breiðumýri. Á ár- inu 1926 fór hann utan til Banda- ríkjanna, vann þar ýmis störf og stundaði um skeið nám í ensku og enskum bókmenntum við Mark Hopkins Polytechnic Highschool í San Francisco. Árið 1930 kom hann heim og gerðist bóndi á Grenjaðarstað í heimabyggð sinni, Aðaldal. Hinn 17. júlí 1931 kvænt- ist Indriði hinni ástkæru konu, Sólveigu Jónsdóttur, Jónatansson- ar, ritstjóra og alþingismanns á Ásgautsstöðum. Þau settu upp bú á Aðalbóli, nýbýli úr landi Grenj- aðarstaðar og bjuggu þar til árs- ins 1935, er þau fluttust til Reykjavíkur og hafa búið þar síð- an. Indriði gerðist blaðamaður við Nýja dagblaðið sumarið 1934 og gegndi upp frá því ýmsum störf- um, en hans aðalstarf var á Skattstofu Reykjavíkur, þar sem hann vann frá árinu 1944 og var þar fulltrúi frá 1955 þar til hann lét af þeim störfum til að sinna ritstörfum. Alla tíð hefur Indriði verið eld- heitur félagsmálamaður. Hann hefur starfað mikið að bindind- ismálum, var einn af stofnendum stúkunnar Andvara og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum I stúku sinni, svo og í heildarsam- tökum templara. Hann var kansl- ari í Stórstúku íslands 1964—74 og stórtemplar frá 1976. Indriði hefur setið í stjórnum og nefndum ýmissa félaga, í stjórn Félags ungra framsóknarmanna, í stjórn Félags Þingeyinga í Reykjavík, í stjórn Félags Vest- ur-íslendinga, í stjórn Félags ís- lenskra rithöfunda, í stjórn Rit- höfundasambands íslands, í stjórn Þjóðræknisfélags Islendinga, og í fyrstu stjórn Ættfræðifélagsins eftir að það var endurvakið. Rithöfundarferill Indriða Indr- iðasonar byrjaði snemma, aðeins tuttugu og tveggja ára sendi hann frá sér sína fyrstu bók, smásagna- bókina Örlög. Mikið liggur eftir hann í rituðu máli, frumsamið og þýtt, smátt og stórt, en ekki er rými hér til að gera þeirri miklu ritaskrá frekari skil. Frá skáldsagnaritun beindist áhugi Indriða snemma fremur að fræðistörfum í þjóðfræði og ætt- fræði. I ættfræði liggja stórvirki eftir Indriða, prentuð og óprentuð. Þar birtast best kostir hins vand- aða fræðimanns, heiðarleiki, nákvæmni, elja og bjartsýni. Rit- safn hans, Ættir Þingeyinga, er meðal stærstu verka I ættfræði og persónufræðum sem ráðist hefur verið í. Hafa þegar komið út fjög- KOSNINGA FUNDUR »i mánudaginn 18. apríl kl. LÚÐRASVEIT REYKJAVlKUR LEIKUR FRÁ KL. 20 TALSMENN FRAMBOÐSLISTANNA ERU A B C D G V Dagskrá: FUNDARSTJORI Magnús Bjarnfreðsson 1. Talsmenn framboðslistanna halda 10 mínútna framsöguræður. 2. Fundarstjóri ber upp skriflegar fyrir- spurnir frá fundarmönnum. 3. Stutt ávarp hvers framsögumanns í fundarlok. Á FUNDINUM VERÐUR TEKIÐ VIÐ SKRIFLEGUM SPURNINGUM TIL RÆÐUMANNA. Eini sameiginlegi framboðsfundurinn á höfuðborgarsvæðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.