Morgunblaðið - 17.04.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.04.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983 65 Pollack hefur sérstakt lag á leikurum. Jane Fonda var álitin ein af glamúrgellunum í Holly- wood áður en Pollack fékk hana til að leika í myndinni „They Shoot Horses Don’t They, og var hún álitin eftir það heilsteyptur lista- maður á sviði kvikmyndanna. Fyrir þá mynd hlaut hún eina af fimm útnefningum til Óskarsverð- launa, sem hún hefur fengið. Barbara Streisand þótti ekki burðug leikkona fyrr en eftir að hún lék í mynd Pollacks The Way We Were. En hann hefur ekki að- eins lag á leikkonum. Gig heitinn Young fékk óskarinn 1969 fyrir leik sinn í aukahlutverki í They Shoot Horses Don’t They. Þá hef- ur hann leikstýrt með góðum árangri stórstjörnum eins og Burt Lancaster í Castle Keep, Robert Mitchum í The Yakuza, Paul Newman í Absence of Malice og Robert Redford í Jeremiah John- son, The Way We Were og The Electric Horseman. Tootsie er 13. mynd Pollacks og fyrsta gamanmynd frá því hann gerði The Scalphunters, 1968. Listi yfir afrek hans á kvikmyndasvið- inu gerir setningu, sem hann segir við Hoffman í myndinni, heldur kaldhæðna. Umboðsmaðurinn seg- ir nefnilega við hugsjónamanninn, Hoffman. „Ég veit að þetta mun koma illa við þig, en flestir eru í þessum bisness til að græða pen- inga.“ — Lange — Þegar framleiðandinn Dino de Laurentiis vann að endurgerð sinni á myndinni King Kong frá Erfitt að halda gervi sínu leyndu. 1933, leitaði hann eftir nýju and- liti í hlutverkið sem gerði Fay Wray fræga, stúlkuna sem apinn stóri verður svo ástfanginn af. Laurentiis hafði samband við módelfyrirtæki Wilhelmíu í New York, sem þegar sendi honum stúlku eina í upptökupróf. Stúlkan hét Jessica Lange og Laurentiis ákvað að nota hana í mynd sinni. Þar með var framabraut hennar gulltryggð. Næst var það leik- stjórinn Bob Fosse, sem fékk hana til að leika Angelíu, engil dauðans, í mynd sinni, All That Jazz. Þá lék hún í How To Beat the High Cost of Living, sem var gamanmynd, en snéri aftur yfir í dramað í mynd- inni The Postman Always Ring’s Twice. Það var vendipunktur á leikferli hennar. Gagnrýnendur féllu í stafi yfir leik hennar í myndinni og keppt- ust um að hrósa henni. Það varð til þess að henni var boðið aðal- hlutverkið í myndini Frances og að leika á móti Hoffman í Tootsie. Hún þekktist þessi góðu boð og er nú orðin einhver eftirsóttasta leikkona Bandaríkjanna. Lange leikur Julie nokkra Nich- ols í Tootsie, sem fer með aðal- hlutverkið í sápuóperunni „Sout- west General". Hún drekkur of mikið, er of mikið ein og á í vafa- sömu sambandi við leikstjóra þáttanna, sem leikinn er af Dabn- ey Coleman (9 to 5 og On Golden Pond). Julie eignast nýjan vin í Dorothy Michaels þegar hún fer að leika í þáttunum. Hún veit ekki að leikkonan er karlkyns. Því meira sem Michael eða Dorothy umgengst Julie, því ástfangnari verður hann af henni og halda sumir að hann sé lesbía fyrir bragðið. Ónefndur er leikari, sem ekki hefur borið mikið á í Bandaríkjun- um, Charles Durning. Hann fékk Óskarinn nú síðast fyrir leik í aukahlutverki í myndinni The Best Little Whorehouse in Texas. í Tootsie leikur hann föður Julie Nichols, ekkjumann og bónda, sem gerir hosur sínar grænar fyrir Dorothy Michaels og vill helst giftast henni. Er þá söguþráður- inn orðinn heldur snúinn en ef- laust greiðist úr honum á farsæl- an hátt. Og þó. Dorothy Michaels er orðin svo vinsæl sjónvarps- stjarna að Michael Dorsey kvíðir því að verða að leika konu það sem eftir er ævinnar. (Samantekid og þýtt — ai) Takið þátt í landssöfii uninni Ágæti sjálfstæðismaður Akveöiö hefur veriö aö gera sérstakt átak til þess aö styrkja stööu Sjálfstæöisflokksins fjárhagslega í þeim mikilvægu þjóö- félagsátökum, sem framundan eru. Sveitarstjórnarkosningar eru nýafstaönar og þar færöi samtakamátturinn okkur víöa sigur. Nú blasa viö alþingiskosningar í apríl og líklega aörar alþingiskosningar siöar á árinu. Þú ert einn af fjölmörgum velunnurum Sjálfstæöisflokksins sem nú er leitaö til um stuöning viö flokkinn. Vel kann aö henda aö fleiri en einn á þínu heimili fái sams konar bón og biöjum viö velviröingar á því. Vonum viö aö viöbrögðin viö því ónæöi veröi ekki önnur en þau aö heimilismenn sameinist um t.d. eina sendingu til baka. Viö leitum til fólks um landiö allt og vonum aö undirtektir muni endurspegla þann samtakamátt sem býr meö því fólki á íslandi, sem vill setja frelsiö í öndvegi, jafnt hjá atvinnulífi sem einstakl- ingum. Ef viö sameinumst ekki veröa skoöanir okkar undir meö ófyrirsjáanlegum afleiöingum fyrir land og þjóö. Stjórn Landssöfnunar Sjálfstæðisflokksins 1983. MITSUBISHI FJOLSKYLDUBILL MORGUNDAGSINS til sölu á íslandi í dag Sýningarbíll á stadnum. Komið, skodid og reynsluakiö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.