Morgunblaðið - 17.04.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.04.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983 71 Skagafjörður: Síðasta íþróttamót skólanna Mælifelii, 5. aprfl. NÝLEGA var fjórða og síðasta skólamót Ungmennasambands Skagafjaröar í vetur haldið á Hofs- ósi. Er það með lokið stigakeppni skólanna og urðu Sauðkrækingar stigahæstir. Var þeim afhentur far- andbikar sambandsins á ársþingi UMSS, sem haldið var á Sauðár- króki 20. marz sl. Næstir að stiga- tölu urðu skólarnir í Varmahlíð og á Hofsósi, en alls kepptu 7 skólar. Úrslit í fjórða mótinu voru þessi: I flokki 10 ára og yngri: Hástökk: Pétur Sigurðsson, Skr. og Auður Eiðsdóttir, Skr. Langstökk: Atli Guðmundsson, Vhl. og Sigurlaug Gunnarsd., Skr. 11-12 ára: Hástökk: Atli Sveinsson, Skr. og Berglind Bjarnadóttir, Skr. Langstökk: Gunnar Gestsson, Skr. og Berglind Bjarnadóttir, Skr. 13—14 ára: Hástökk: Karl Jónsson, Skr. og Hafdís Ingimarsdóttir, Skr. Langstökk: Hákon Hallgrímsson, Skr. og Hafdís Ingimarsd., Skr. Þrístökk: Helgi Sigurðsson, Vhl. 15—16 ára: Hástökk: Trausti Traustason, Hofs. og Þórunn Snorradóttir, Hofs. Langstökk: Ásgeir Yngvason, Skr. og Monika Jónasd., Vhl. Þrístökk: Ásgeir Yngvason, Skr. G.L Ásg. Kennarar og foreldrar barna í Seljaskóla: Ríkiö leggi fram sinn skerf eins og Reykjavíkurborg Morgunblaðinu hefur borizt eftir- farandi samþykkt: „Ályktun samþykkt á kennara- fundi í Seljaskóla og af stjórn For- eldrafélags Seljaskóla. Fyrirsjáanlegt er að Seljaskóli verður einn fjölmennasti grunn- skóli landsins næsta vetur, og að nemendum mun fjölga um 150—200 frá því sem er á þessu skólaári. Vegna húsnæðisskorts í vetur hafa margar bekkjardeildir verið allt of fjölmennar og er því ljóst að verði hætt við byggingu húss nr. 7 verður einungis um neyðar- úrræði að ræða til að mæta vænt- anlegri nemendafjölgun. Mikil óánægja ríkir meðal foreldra, kennara og annarra starfsmanna skólans með þau úrræði sem blasa við en þau eru: 1. Þrísetning, sem þýðir skólahald til kl. 18.00 og að kennsla verð- ur í hádeginu. 2. Að kennt verði á göngum. 3. Að börnum úr hverfinu verði vísað í aðra skóla. Við viljum því skora á mennta- málaráðuneytið að leggja fram sinn skerf, þar sem ljóst er að Reykjavíkurborg mun standa við sínar skuldbindingar, svo hús nr. 7 verði tilbúið til notkunar 1. sept- ember í haust.“ Skemmtidagskrá í Félagsgaröi Leikklúbbur Kjósarhrepps stend- ur fyrir fjölskylduskemmtun í Fé- lagsgarði í Kjós miðvikudaginn 20. apríl, síðasta vetrardag. Þar verður fluttur þáttur úr Gullna hliðinu eftir Davíð Stef- ánsson, rússneskur gamanþáttur, upplestur, ýmis önnur létt skemmtiatriði, tískusýning og að lokum verður diskótek. - Hjalti. 3. maí- 3 vikur Beint dagflug heiman og heim Voriö er komið Gisting í glæsilegum íbúðum á bestu ströndunum! Video-myndir á skrifstofunni Tryggðu þér gististað sem þér hentar með því að panta far strax! Helmingsafsláttur fyrir börn að 17 ára aldri URVAL við Austurvöll @26900 Umboðsmenn um allt land Gengistryggöar innborganir • 5% staðgreiösluafsláttur eöa greiöslukjör 4 Stórkostleg bylting í gólfefnum! Ferstorp, 7mm þy kk gólf boró, semhægteraó leggja beint á gamla gólf ió! Nýju Perstorp gólfborðin eru satt að segja ótrúleg. Þau eru aðeins 7 mm á þykkt og þau má leggja ofan á gamla gólfið - dúk, teppi, parket eða steinsteypu. Það er mjög einfalt að leggja Perstorp gólfborðin og 7 mm þykktin gerir vandamál þröskulda og hurða að engu. Perstorp gólfborðin eru líka vel varin gegn smáslysum heimilis- lífsins eins og skóáburði, naglalakki, kaffi, te, kóki og logandi vindlingum. Þú færð Perstorp aðeins hjá okkur. Kalmar SKEIFUNNI 8.SIMI 82011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.