Morgunblaðið - 17.04.1983, Side 15

Morgunblaðið - 17.04.1983, Side 15
63 ur mikil bindi, en Indriði vinnur nú að því að búa önnur handrit sín undir útgáfu. Sérþekking hans á þingeyskum ættum er einstök, en þekking hans nær langt út fyrir sveitir Þingeyjarsýslu, það þekkja samverkamenn hans, sem notið hafa haldgóðrar aðstoðar hans, enda hefur Indriði unnið sér sess sem einn af traustutu og færustu ættfræðingum sem ísland hefur alið. í ljósi þess, að ættfræðin var um áratuga skeið aðeins aukageta Indriða má furðu sæta hver árangur hans er í greininni, en ljóst er að vinnudagurinn hefur löngum verið langur. Síðustu árin hefur Indriði þó alfarið getað helgað sig greininni og unnið öt- ullega við frágang á sínu mikla heimildasafni til útgáfu. Mér hef- ur verið það einstakt ánægjuefni að kynnast og vinna með fræði- manninum frá Fjalli, og það er von mín að geta sem lengst fylgst með störfum þessa vandaða og öt- ula fræðimanns. Hin síðari ár hefur Indriði notið góðrar aðstoðar Sólveigar konu sinnar, enda fara þar saman sér- staklega samheldin hjón. Þau eiga þrjú uppkomin börn, Indriða, Ljótunni og Sólveigu. Ég óska Indriða allra heilla í framtíðinni og þakka gott sam- starf og ánægjuleg kynni. Þorsteinn Jónsson Danuta Walesa yfirheyrð (idan.sk, 14. apríl. AP. DANUTA Walesa, eiginkona Lech Walesa, leiðtoga pólsku verkalýðs- samtakanna Samstöðu, fór til aðal- stöðva lögreglunnar í Gdansk í dag í fylgd með manni sínum, sem var yf- irheyrður í gær um fundi, er hann var sagður hafa átt um síðustu helgi með verkalýðsforingjum, sem farið hafa huldu höfði vegna ofsókna yfír- valda. „Ég sagði Danutu að neita að svara nokkrum spurningum," sagði Walesa við vestræna fréttamenn, rétt áður en hann og kona hans héldu á lögreglustöðina. „Ég neitaði að svara þeim sjálf- ur um það, hvar ég hefði verið og hvað ég hefði verið að gera,„ sagði Walesa, sem sýnilega hafði tekið nærri sér þá ákvörðun lögreglunn- ar að yfirheyra konu hans. í kvaðningunni til Danutu Walesa um að mæta á lögreglustöðina var sagt, að hún skyldi yfirheyrð sem „vitni", en að öðru leyti var ekkert sagt, um hvað hún yrði spurð. Walesa sagði ennfremur, að þegar lögreglan „tjáði mér, að ég hefði tengsl við glæpsamlega aðila (neðanjarðarhreyfingu Sam- stöðu), þá var svar mitt það, að ég væri frjáls maður og það þýddi, að mér væri frjálst að hitta hverja þá, sem mér sýndist". Yfirheyrslurnar yfir Danutu í dag stóðu yfir í 2 og Vi klukku- stund, en að þeim loknum kvaðst hún hafa neitað að svara spurn- ingum lögreglunnar. Ný stjórn kosin í Félagi gullsmiða LAUGARDAGINN 19. mars síðast- liðinn var haldinn aðalfundur í Fé- lagi íslenskra gullsmiða í Þingholti, Hótel Holti. Á fundinum var kosin ný stjórn þar sem gamla stjórnin gaf ekki kost á sér til endurkjörs. í stjórn voru kosnir: Leifur Jónsson, formaður, Jón Snorri Sigurðsson, ritari, Hilmar Ein- arsson, gjaldkeri, Ásdis Thor- oddsen og Ólafur G. Jósepsson meðstjórnendur. Á fundinum voru einnig samþykkt ný lög fyrir fé- lagið, og þau færð meira til nú- tímalegra horfs. _____ (R) CfflJ PDN3) TYPAR nýlousnógömlumvanda TYPAR sfudúkur frá Du Pont er níðsterkur jarðvegsdúkur ofinn úr polypropylene. _ Hann er létturog mjög meðfærilegur. (5) # TYPAR síudukur leysir alls konar jarðvatns- vandamál. ® TYPAR er notaður í ríkum mæli í stærri verk- um svo sem í vegagerð, hafnargerð og @stíflugerð. TYPAR síudúkur er ódýr lausn á jarðvatns- vandamálum við ræsalagnir við hús- byggingar, lóðaframkvæmdir, íþrótta- ^svæði o.s.t'rv. TYPAR síudúkur dregur úr kos.tnaði við jarð- vegsskipti og gerir þau jafnvel óþörf og stuðlar aó því, að annars ónýtan- legan jarðveg megi nota. Dúkurinn kemur sérstaklega vel að notum í ódýrri vegagerð, hann dregur úr aur- bleytu I vegum þar sem dúkurinn að- skilur malarbúrðarlagið og vatnsmett- að moldar- eða leirblandaðan jarðveg. Notkun dúksins dregur úr kostnaöi við vegi, ,,sem ekkert mega kosta”, en leggja verður, svo sem að sveitabýl- @um, sumarbústöðum o.s.frv. TYPAR er fáanlegur í mörgum geróum, sem hver hentar til sinna ákveðnu nota. TYPAR® skrásett vörumerki Du Pont Síðumúla32 Sími 38000 VIDEO VHS Aðeins 5000,- út! og eftirstöðvar á 9 —12 mán. VC-8300 Kr. 1 I2.90C ».- VC-7700 Kr. i I3.90C VC-2300 VC ,P10 Kr. 37.800.- Upptökuvél kr 21.560 HLJOM6ÆR - HLJOM'HEIMIUS'SKRIFSTOFUTÆKl sJjJ^fgg0"1"0 103 ÚTSÖLUSTAÐIR: Portiö. Akranesi — KF Borgf Borgarnesi — Verls Inga. Hellissandi — Patróna. Patreksfirði — Sería, Isafirði — Sig Pálmason, Hvammstanga — Alfhóll. Siglufiröi — Cesar. Akureyri - Radióver. Húsavík — Paloma. Vopnafirði — Ennco. Neskaupsstað — Stálbuöin. Seyöisfirði — Skógar. Egilsstööum — Djúpið. Djúpavogi — Hornbær. Hornafiröi — KF Rang Hvolsvelli — MM. Selfossi — Eyjabær. Vestmannaeyjum — Rafeindavirkinn, Grindavík — Fataval. Keflavik

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.