Morgunblaðið - 15.06.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.06.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983 -g"; ..... Ljósm.: Bffring ('ecilsson. Búrhvalur „í strandi“ BÚRHVALUR kom á land skammt frá Stapa á Snæfellsnosi í gærmorgun. Hvalurinn kom inn á flóði en síðan fjaraði undan honum og hann var fastur í fjöru- borðinu næstu 12 tímana. Klukk- an mun hafa verið að verða tíu þegar hvalurinn kom á land og það var ekki fyrr en um klukkan hálf ellefu um kvöldið að hann komst út aftur. Bæring Cecilsson í Grundar- firði kom að hvalnum um klukkan hálftíu í gærkvöldi og var hann þá aftur kominn á flot en eiginlega hreyfingar- laus. Þó mjakaði hann sér í heilhring og sneri hausnum upp í fjöruna. Bæring hvarf frá í klukkutíma og þegar hann kom aftur á staðinn hafði hval- urinn mjakað sér frá. Hann var mjög rólegur og var nú bú- inn að breyta stefnu þannig að hausinn sneri á haf út. Síðan mjakaði hann sér frá og eftir því sem lengra dró frá landi jók hann hraðann. Loks stakk hann sér er hann var kominn 400 metra frá landi. Hvalurinn var nokkuð skrámaður að sögn þeirra sem komust næst honum þar sem hann lá í fjörunni. Hann var á að giska 12—15 metrar að lengd. Iðnaðarráðherra skipar orku- og stóriðjunefndir SVERRIR Hermannsson iðnaðar- fræðingur og Gunnar G. Schram al- ráðherra skipaði í gær þrjár nefndir í orku- og stóriðjumálum. Birgir ísleifur Gunnarsson al- þingismaður er formaður stóriðju- nefndar og aðrir í nefndinni eru: Guðmundur G. Þórarinsson verk- fræðingur, Helgi G. Þórðarson verkfræðingur, Lárus Jónsson al- þingismaður, Sigurgeir Jónsson að- stoðarbankastjóri og Valur Arn- þórsson forstjóri. Iðnaðarráðherra skipaði einnig í gær samninganefnd um stóriðju. Formaður er Jóhannes Nordal seðlabankastjóri. Að sögn iðnaðar- ráðherra verður fyrsta verkefni nefndarinnar að annast samninga- viðræður við Alusuisse. Með Jóhannesi í nefndinni eru Guðmundur G. Þórarinsson verk- þingismaður og prófessor. Sverrir sagði að fyrsti fundur nefndarinnar með fulltrúum Alusuisse yrði 24. júní nk. Orkuverðsnefnd var einnig skip- uð í gær af iðnaðarráðherra. For- maður er Þorvaldur Garðar Krist- jánsson alþingismaður. Að sögn Sverris Hermannssonar iðnaðar- ráðherra á hlutverk nefndarinnar að vera að ráðstafa fjármunum þeim upp á 150 milljónir króna sem samkvæmt stefnuyfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar voru teknar til hliðar til að jafna húshitunarkostnað. Auk Þorvalds eru í nefndinni: Eg- ill Jónsson alþingismaður, Guð- mundur Bjarnason alþingismaður og Sigurjón Fjeldsted skólastjóri tilnefndur af fjármálaráðherra. Besta útkoman fyrir Flugleiðir — segir Sigurður Helgason um lögbannið á hávaðatakmarkanir flugvéla í New York NÍTJÁN bandarísk flugfélög hafa fengiö lagt lögbann á þá ákvöröun Sumartívolí í Reykjavík Á MIKLATÚNI er nú unniö viö aö fímmtudag. Tívolíið er leigt frá Danmörku og eru tækin frá ýmsum sumar- tívolíum þar en flest frá „Ron- alds-ferðatívolíi“ en frá því fyrirtæki eru staddir menn hér á landi sem sjá um uppsetningu og stjórnun. Einn aðstandenda tívolísins er Pétur Sveinbjarnarson og sagði hann að með þessu tívolí, sem er fyrsta sjálfstæða tivolíið síðan reisa tívolí og veröur þaö opnaö nk. Vatnsmýrartívolíið var, væri verið að athuga hvort grundvöll- ur væri fyrir rekstur slíks skemmtigarðs í Reykjavík. Öll tækin eru eins og áður segir frá Danmörku og vega um 130 tonn og sagði Pétur að erlendur kostnaður við uppsetninguna væri um 5 milljónir ísl. kr., þá ekki meðtalinn kostnaður við rekstur. flugvallaryfírvala í New York, aö takmarka lendingar tiltekinna flug- vélategunda í borginni eftir 20. júlí næstkomandi. Þrjú þessara flugfé- laga stunda reglubundiö flug til New York. Hér er bæði um farþega- og vöruflutningaflugfélög að ræöa. Bú- ist er viö að lögbanniö verði staðfest af dómstól síðar í vikunni. Aö sögn Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flug- leiöa, hefur þetta þær afleiöingar í (or meö sér að hávaðabann á DC-8-þotur félagsins tekur ekki gildi í New York fyrr en 1. janúar 1985, á sama tíma og slíkar reglur ganga aimennt í gildi í Bandaríkjunum. Sigurður Helgason sagði að stjórnvöld á íslandi og í Luxem- borg hefðu beitt sér mjög í þessu máli og að flestra áliti hefði mátt búast við undanþágum handa Flugleiðum ef takmarkanirnar hefðu öðlast gildi. Hann taldi að það sem úrslitum hefði ráðið um að lögbannið náði fram að ganga hefði líklega verið sú ákvörðun dómsmálaráðuneytis Bandaríkj- anna að styðja lögbannskröfuna. Sigurður sagði að þetta hefði verið ákjósanlegasta niðurstaðan fyrir Flugleiðir. Félagið hefði að vísu verið tilbúið með varaáætlanir ef til bannsins á DC-8-þoturnar hefði komið. Nú þyrfti engar sérstakar ráðstafanir að öðru leyti en því að Flugleiðir yrðu að búa sig undir þær hávaðatakmarkanir sem al- mennt taka gildi í Bandaríkjunum 1985. Reynum að fá Húsa- víkurjógúrt aftur — segir Gísli Blöndal í Hagkaupum „VIÐ FÖGNUM þessari ákvöröun landbúnaöarráöherra, bæöi fyrir okkar hönd og neytendanna," sagöi Gísli Blöndal hjá Hagkaupum, en í frétt frá landbúnaöarráðuneytinu segir aö ekki verði hindruö sala á jógúrti milli mjólkursvæða. „í framhaldi af þessari ákvörð- un ráðherra höfum við leitað til Mjólkursamlagsins á Húsavík um að þeir hefji afgreiðslu til okkar að nýju, en á þessu stigi er óljóst hvenær af því getur orðið," sagði Gísli. Úttekt ríkisstjórnar á stöðu ríkissjóðs: Stefnir í 860 milljóna króna greiðsluhalla — Skuldin við Seðlabanka nær þrefölduð frá því á síðasta ári „STAÐA ríkissjóös olli mér aö sjálfsögöu vonbrigðum, þegar ég nú sé hana í uppgjöri. Ég bjóst við aö hún væri raunverulega miklu betri en hún er,“ sagöi Albert Guðmundsson fjármálaráðherra er Mbl. spuröi hann álits á niðurstööu samantektar á afkomu ríkissjóðs, sem kynnt var á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun og send fjölmiölum í gær, en þar kemur m.a. fram aö þrátt fyrir efnahagsaögerðir ríkisstjórnarinnar nýverið stefnir í greiösluhalla á þessu ári sem gæti numið allt að 860 milljónum króna ef ekki koma til frekari aögerðir. í fjárlögum ársins 1983 var aftur á móti gert ráö fyrir greiösluafgangi upp á um 17 milljónir króna. í yfirlitinu kemur fram, að voru þær, að verðlag milli ár- miðað við ríkjandi aðstæður við stjórnarskiptin hafi stefnt í greiðsluhalla á árinu sem næmi 1.100 milljónum króna. Áhrif efnahagsaðgerðanna frá 27. maí hafi minnkað þennan halla um 240 milljónir, þrátt fyrir að 405 milljónum króna hafi verið varið til mildandi aðgerða. Þrátt fyrir aðgerðirnar er þó enn „gat“ í rík- issjóði upp á 860 milljónir króna. Segir m.a. í yfirlitinu að þau miklu umskipti sem áætlanir gera nú ráð fyrir um afkomu rík- issjóðs á árinu frá áætlun fjár- laga megi rekja m.a. til mun meiri verðbólgu en ráð hafi verið fyrir gert við gerð fjárlaga og almenns samdráttar í efnahags- lífinu. Reikniforsendur fjárlaga anna 1982 og 1983 myndi hækka um 42%, en samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar er nú reiknað með að verðlagsbreytingar milli áranna verði um 87% og er þá tekið mið af efnahagsaðgerðum núverandi ríkisstjórnar. Án þeirra hefðu verðlagsbreytingar á milli áranna 1982 og 1983 orðið 104%. Á tímabilinu janúar-maí 1983 hafa skuldir ríkissjóðs við Seðla- bankann aukist verulega og voru í maílok 1.121 millj. kr. Skuld þessi var í lok sama mánaðar 1982 368 millj. kr, þannig að hún hefur nær þrefaldast. Þá kemur og fram að skuldir ríkissjóðs við Seðlabankann komust hæst þann 13. maí sl. eða í 1.582 millj- ónir króna. Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 5,1 milljarði kr. á fyrstu 5 mánuðum ársins. Gjöld urðu 5,8 milljarðar. Útstreymi af lána- reikningum nam 400 milljónum og er greiðsluhallinn því 1,1 milljarður, eins og fyrr segir. Samkvæmt innheimtutölum fyrstu fimm mánaða þessa árs hækkuðu heildartekjur ríkis- sjóðs um 55% frá sama tímabili í fyrra, en hækkun framfærslu- vísitölu á sama tímabili er talin vera á bilinu 68—70%. Sam- kvæmt því hafa tekjur ríkissjóðs dregist verulega saman að raun- gildi, eða nær 10%. Kemur fram í þeim tölum að ráðstöfunartekj- ur heimilanna hafa minnkað til muna frá fyrra ári, því af ein- stökum liðum má nefna að tekj- ur af aðflutningsgjöldum hækka aðeins um 33% frá sama tíma í fyrra, einnig hafa tekjur af bif- reiðainnflutningi skroppið sam- an um nær helming. Hins vegar hafa tekjur af söluskatti hækkað um tæp 60%, og svarar það til um 6% veltusamdráttar milli ára. Samkvæmt fjárlögum voru lán ríkissjóðs á árinu 1983 áætl- uð 525 milljónir kr. og eingöngu innlent fé. Horfur eru nú á að aðeins verði hægt að afla 390 milljóna króna af innlendu fé. Eykur þetta fjárhagsvanda rík- issjóðs um 135 milljónir króna á árinu. í niðurlagi yfirlits fjár- málaráðuneytisins um stöðu rík- issjóðs segir m.a.: „Bráðabirgða- lög um fjármálaráðstafanir til verndar lífskjörum frá 27. maí sl. kveða á um heimild til handa fjármálaráðherra að lækka ríkisútgjöld frá því sem ákveðið er í fjárlögum fyrir árið 1983 um 300 milljónir króna. Þar sem reikniforsendur fjárlaga eru langt undir þeirri verðlagsþróun sem verið hefur, er ljóst að tor- sótt mun vera að gera raunhæf- ar aðgerðir til lækkunar ríkis- útgjalda það sem eftir er ársins. Unnið er nú í fjármálaráðuneyt- inu að gerð tillagna um aðgerðir til að draga úr þeim mikla greiðsluhalla sem fyrirséð er að verði hjá A-hluta ríkissjóðs að óbreyttu á þessu ári.“ „Þetta er talsverð rýmkun frá því sem verið hefur, og ég get að einhverju leyti framleitt fyrir þá, en ég teldi ekki óeðlilegt að Sunn- lendingarnir komi eitthvað inn í þetta. Það er bara eðlilegt, en þá verða þeir að koma með ódýrari umbúðir, það á ekki að þurfa að ræða það,“ sagði Haraldur Gísla- son, mjólkursamlagsstjóri á Húsavík. f frétt landbúnaðarráðuneytis- ins segir, að sala á jógúrti milli svæða verði ekki hindruð, enda verði tryggt að óþarfur flutn- ingskostnaður verði ekki greiddur úr verðmiðlunarsjóði mjólkur, þar sem slíkar greiðslur myndu leiða til hækkunar á mjólkurvörum. Aðspurður sagði Haraldur að Mjólkursamlagið á Húsavík hefði engar greiðslur fengið úr verð- miðlunarsjóði vegna jógúrtarinn- ar, sem framleidd var fyrir Hag- kaup. „Eg held þetta sé einhver upp- sláttur í þeim, sem ekki byggist á neinum staðreyndum. Það hefur aldrei verið á dagskrá hjá mér að óska eftir greiðslum úr verðmiðl- unarsjóði vegna jógúrtinnar," sagði Haraldur. Kópavogur: Banaslys BANASLYS varð í Byggingavöru- verslun Kópavogs um þrjúleytið í gær. Slysið átti sér stað á vinnu- svæði timburverslunar fyrirtækis- ins og bar til með þeim hætti að timburstafli á lyftara hrundi ofan á mann sem þar var við störf. Maðurinn slasaðist mjög mikið og var látinn þegar komið var með hann á Slysavarðstofuna. Maður- inn var um sextugt og hann lætur eftir sig konu og uppkomna dótt- ur. Að ósk Rannsóknarlögreglu ríkisins er ekki unnt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.