Morgunblaðið - 15.06.1983, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
Björn J. Andrésson
Leynimýri — Minning
Aldamótakynslóðin er að smá-
kveðja, sú kynslóð sem vaxandi
þjóðerniskennd samfara trú á
landið og framtíðina gerði mögu-
legt að skapa þann grundvöll sem
þjóðfélag okkar byggist nú á. Með
þessari kynslóð ríkti víðsýni meiri
en áður, bjartsýni um betra
mannlíf en það sem varð til að
hrekja menn til Vesturheims úr
örbirgðinni á harðindaárunum
upp úr 1880, og skilningur á því að
menn þyrftu að vinna saman til að
búa í haginn fyrir framtíðina.
Þetta var gæfusöm kynslóð sem
horfði á marga drauma sína ræt-
ast — og miklu meira en það,
horfði á þær breytingar sem eng-
an gat órað fyrir, sumar ef til vill
til ills, en þó miklu fleiri til góðs.
Og meðal þeirra, sem þrátt fyrir
alla augljósa agnúa þótti breyt-
ingin til mikilla bóta, var Björn J.
Andrésson, sem andaðist eftir
nokkurra mánaða sjúkrahúsvist 5.
júní sl., 87 ára að aldri.
Hann var fæddur á Ystaskála
undir Eyjafjöllum 25. apríl 1896,
sonur hjónanna Andrésar Páls-
sonar og Katrínar Magnúsdóttur.
Um Katrínú birtist grein í fslend-
ingaþáttum Tímans vegna níræð-
isafmælis hennar 25. ágúst 1952,
og um Andrés mun einnig hafa
verið skrifuð fróðleg grein, þótt
mér hafi ekki tekist að hafa upp á
henni nú. Þau hjón eignuðust sjö
börn, eitt dó í frumbernsku, en hin
voru:
Björn Jóhann mun hafa verið
þeirra elstur, en bræður hans voru
Páll, sem dó ekki gamall, Magnús,
bóndi í Króktúni á Landi, dáinn
fyrir skömmu, og Andrés, bóndi í
Berjanesi, sem nú er einn á lífi
þeirra systkina og hefur verið
sjúklingur á sjúkrahúsi í mörg ár.
Systur þeirra voru tvær, Marta,
saumakona í Reykjavík, og Mar-
LÚXUSFERÐ
tíl Edinborgar
í fylgd Bryndísar Schram
Eínvíka - 22. júní.
kr. 8.780
Farið með ms. Eddu frd Reykjavík
d miðvikudagskvöldi. Lífsins notið um borð.
Komið til Newcastle d laugardagsmorgni kl. 10. —
Þar íœr hópurinn rútur til umráða.
Ekið til Eldon Square Center, einhverrar stœrstu
verslanamiðstöðvar Evrópu. 300 verslanir undir
sama þaki, þ.á.m. allar stóru verslanakeðjumar.
Komió til Royal Scot Hotel í Edinborg
kl. 18.30. Hótelið er í lúxusílokki. Öll herbergi með
baði, litsjónvarpi og minibar. Þess utan em sundlaug
og sauna í hótelinu auk íjölda bara og veitingasala.
Kvöldverður á Royal Scot er inniíalinn,
síðan er kvöldið frítt til eigin ráóstöíunar.
Morgunverður inniíalinn á Royal Scot, sömu
leiðis ferð til Edinborgarkastala. Annars er
morguninn írjáls til skoðunaríerða um þessa
frœgu og fögm borg. a
Brottíör frá Edinborg kl. 14.30. Ekið um þjóðgarðinn
í Northumberland og Cheviot hœðir, rómað
landsvœði fyrir náttúmíegurð og komió tilNewcastle kl. 18.30.
Dvalið á Holliday Inn Hotel Kvöldverður
inniíalinn, sem og morgunveróur á mánudagsmorgni.
Kvöldið frítt til eigin ráðstöíunar.
Holliday inn Hotel í Newcastle er hreinrœktað
lúxushótel. Öll herbergi em með baði, litsjónvarpi,
minibar og úrvali kvikmynda á lokuðu sjónvarpskeríi.
Á mánudagsmorgni em rútumar aó nýju vió hóteldyrnar
kl. 10 og ílytja þátttakendur um borð 1 ms Eddu
þar sem þeir hreiðra um sig aftur í notalegum káetum skipsins.
FARARSTJÓRI: BRYNDÍS SCHRAM |
3J
Er þetta ekki óskaferðin þín?
Oencl Io/6 1935
FARSKIP
AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166
grét, sem mun hafa verið blind eða
nær blind frá bernsku. Milli
Björns og Andrésar, yngsta bróð-
urins, var mjög kært, og síðustu
fótavist sína notaði Björn til að
heimsækja þá bræður sína, Magn-
ús og Andrés, sem báðir lágu á
sjúkrahúsi. Þeir áttu hug Björns
sem einhverra hluta vegna áttu í
erfiðleikum.
Þau Andrés og Katrín höfðu
ekki fast jarðnæði, en baðstofuna
sem þau bjuggu í áttu þau og
fluttu með sér þegar þau höfðu
jarðaskipti. Frá Ystaskála fluttust
þau að Búðarhóli í Landeyjum,
síðan að Fitjarmýri undir Vest-
ur-Eyjafjöllum og svo loks 1902 að
Steinum undir Austur-Eyjafjöll-
um (þar sem kallast Gata). En á
þessum árum fóru íbúðarréttindi
leiguliða mjög að vilja jarðeig-
enda. f Steinum bjuggu þau í 18 ár
og fluttust svo að Berjaneskoti.
Lífskjör hérlendis hafa batnað
þann veg að nú flytja frumbýl-
ingar ekki lengur hús sín með sér,
enda mún það hafa verið eins-
dæmi. En við þessar aðstæður og
þessa sjálfsbjargarviðleitni ólst
Björn upp. Að vísu voru menn ekki
einir í veröldinni þá fremur en nú,
menn léðu hver öðrum hesta og
handarvik þegar þurfti. Og skiln-
ing á gildi samvinnu og samhjálp-
ar mun Björn hafa öðlast
snemma.
Hann lærði sund hjá Páli Erl-
ingssyni 1921, var svo á íþrótta-
námskeiði í Reykjavík næsta
sumar, að hvötum oddvitans í
sveitinni. Þá var áhuginn vaknað-
ur fyrir alvöru, og með stuðningi
góðra manna hófust ungir menn í
hreppnum handa þá um haustið
að hlaða upp sundlaug við heitar
uppsprettur fyrir innan Seljavelli
og steypa hana upp næsta vor.
Þarna var Björn I fararbroddi og
kenndi svo sund í lauginni. Um
tíma kenndi hann einnig sund í
Reykjavík fyrir Ólaf Pálsson. Hér
skal þetta ekki rakið frekar, en frá
þessu og fleiru fróðlegu segir
Björn í skemmtilegu viðtali sem
Ólafur Jónsson frá Skála birti við
hann í Morgunblaðinu 10. des.
1976.
Alþingishátíðarárið 1930 festi
Björn ráð sitt og kvæntist heit-
konu sinni húnvetnskri, Jósefínu
Rósants. Þau festu þá kaup á
tveim þriðju hlutum grasbýlisins
Leynimýri við Reykjanesbraut,
sem nú heitir svo, fyrir ofan þar
sem nú er kirkjugarðurinn í
Fossvogi. Þá sá þaðan ekki til
neinnar byggðar í Reykjavík né
Kópavogi. Þriðjung jarðarinnar
keyptu þau svo 1936 og bjuggu
þarna meðan heilsa og aðrar að-
stæður leyfðu. Börn þeirra urðu
þrjú: Edda, gift Stefáni Hall-
grímssyni málara, þau eiga átta
börn og sjö barnabörn, Bragi,
kvæntur Soffíu Jónsdóttur, þau
eiga fjögur börn og eitt barna-
barn. Baldur var yngstur, kvænt-
ist ekki, en synir hans tveir eru á
lífi og eitt barnabarn. Hann and-
aðist snögglega 1980. Það varð
gamla manninum þung raun.
Annars var Björn lengst einn í
íbúð sinni í Leynimýri, eftir að
kona hans dó, en í hinum enda
hússins býr Bragi með fjölskyldu
sinni, og þar átti hann athvarf.
í áðurnefndu viðtali getur Björn
þess að hann hafi stundað sjó-
mennsku í 17 ár, sveitabúskap í 17
ár, iðnaðarstörf og skylda þjón-
ustu hjá Blindrafélaginu í Reykja-
vík í 17 ár og ætli að stunda inn-
heimtustörf í 17 ár. En að heiman
fór hann fyrst 17 ára gamall, og
hann náði því marki sínu að sinna
störfum til 85 ára aldurs.
Samhliða þessu vann Björn
mikið að félagsmálum, svo sem
fram kom í sambandi við sund-
laugarbygginguna, enda hefur
mér verið sagt að alls staðar þar
sem félagsstarf stóð með blóma
undir Austur-Eyjafjöllum meðan
hann átti þar heima hafi mátt bú-
MFA
Leikþáttasamkeppni
Menningar- og fræöslusamband alþýöu hefur
ákveöið aö efna til samkeppni um gerö leikþátta.
Leikþættirnir eiga aö henta til sýninga á vinnustöö-
um, fundum og öörum samkomum stéttarfélaganna.
Efni þeirra þarf aö skírskota til málefna verkalýös-
hreyfingarinnar.
Miöaö er viö einfaldan sviösbúnaö og fáa leikara
(2—5). Sýningartími 20—30 mínútur.
Veitt verða ein verölaun, 35.000 krónur fyrir þann
þátt sem dómnefnd velur.
Um flutning þess þáttar, er verölaun hlýtur og ann-
ara, sem valdir yröu til sýninga veröur samiö sér-
staklega við höfunda.
Leikþættirnir sendist til skrifstofu MFA, Grensás-
vegi 16, Pósthólf 5281, 125 Reykjavík fyrir 15. októ-
ber nk.
Höfundar gangi frá samkeppnisgögnum í tveim um-
slögum, sendi leikþáttinn meö dulnefni í ööru, en
höfundarnafn, sem til þess vísar í hinu.
Dómnefndina skipa: Stefán Ögmundsson, prentari,
Brynja Benediktsdóttir, leikari, og Höröur Zophanías-
son, skólastjóri.
Nánari upplýsingar varöandi leikþáttasamkeppnina
og fyrirkomulag hennar veitir Tryggvi Þór Aðal-
steinsson á skrifstofu MFA, Grensásvegi 16, sími
84233.
Menningar- og fræðslusamband alþýðu.
|MbFf9tlttUllklb'
Gódan daginn!