Morgunblaðið - 15.06.1983, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
Classix Nouveaux eins og hljómsveitin lítur út I dag.
Ein af vinsælustu poppsveitum Breta í Höllinni annað kvöld:
CLASSIX NOUVEAUX
— íslensku hljómsveitirnar Q4U og Iss! „hita upp“
Þótt skammarlega lítið hafi til
þessa verið fjallað í íslenskum fjöl-
miðlum um væntanlega tónleika
Classix Nouveaux í Höllinni annað
kvöld, 16. júní (Járnsíðan er þar
ekki undanskilin) er engin ástæða
til annars en að reyna að uppfræða
poppþyrsta örlítið um þessa sveit.
Rúmt ár er nú liðið frá því
plata hljómsveitarinnar, La Ver-
ité, kom út og hún hlaut feiki-
lega góðar viðtökur hér á landi
sem annars staðar í heiminum.
Líklegast verið ein af 10 sölu-
hæstu erlendu hljómplötunum á
síðasta ári. Annars er það dálítið
kyndugt með Sal Solo og félaga,
að þeir virðast vera miklir smá-
atriðamenn og leggja ekki síður
áherslu á að ná vinsældum á litl-
um mörkuðum en stórum. Sem
dæmi um slíkt nægir að nefna
Júgóslavíu, Portúgal og ísland.
Á öllum þessum stöðum er
Classix Nouveaux mjög virt
hljómsveit.
Classix Nouveaux er ekki göm-
ul hljómsveit, a.m.k. ekki í aug-
um þeirra, sem fylgjast grannt
með gangi mála í popppressunni.
Það var fyrst snemma árs 1981,
að hljómsveitin vakti einhverja
eftirtekt að heitið geti. Fyrsta
smáskífan, sem innihélt lögin
The Robots Dance og 623, kom út
í ágústlok það sama ár og áður
en því ári lauk formlega á daga-
talinu hafði sveitin sent frá sér
aðra smáskífu með laginu Nasty
Little Green Men og Test Tube
Babies.
Þriðja smáskífan kom svo út í
byrjun febrúar árið 1981 og inni-
hélt lögin Guilty og Night
People. Tíu vikum síðar kom
fjórða smáskífan með lögunum
Tokyo og Old World For Sale. Þá
voru aðeins tvær vikur i útgáfu
fyrstu breiðskífunnar, Night
People.
Upphaflega voru það þeir Sal
Solo, söngvari, gítar- og hljóm-
borðsleikari, Mik Sweeney,
bassaleikari, og B.P. Hurding,
trommari, sem stofnuðu Classix
Nouveaux á miðju ári 1979. Solo
og Sweeney semja bróðurpart
laganna. Gary Steadman, gítar-
og hljóðgervlaleikari, bættist
síðan í hópinn og lék með á
fyrstu plötununm tveimur. Eftir
útkomu La Verité í fyrra bættist
Jimi Sumen gítarleikari í hóp-
inn. Steadman hætti síðan og
Paul Wilson tók sæti hans. Hann
lék áður í hljómsveitinni Cuddly
Toys. Þannig er sveitin því skip-
uð i dag; Solo, Sweeney, Hurd-
ing, Sumen og Wilson.
Strax þegar Classix Nouveaux
kom til kasta popppressunnar
var sveitin sett í flokk með hin-
um nýrómantísku sveitum, sem
þá höfðu nýverið tekið að ryðja
sér til rúms í Bretlandi og áttu
umtalsverðum vinsældum að
fagna. Þótt blöðin tækju ekki
eftir sveitinni fyrr en í ársbyrj-
un 1981 hafði Classix Nouveaux
þegar náð upp stórum hópi að-
dáenda og litla platan með lag-
inu Robots Dance þvældist víða
um hina óháðu lista, sem til eru
á Bretlandseyjum.
Snemma árs 1981 hóf Classix
mikla tónleikaferð um Bretland
og lét sér það ekki nægja, því
áður en árið var á enda höfðu
þeir lokið við aðra yfirreið inn-
anlands. Fyrri ferðin var farin
undir yfirskriftinni „2002 Re-
view“ og var það hugmynd Solo.
Voru þá í för með Classix
hljómsveitir á borð við Theatre
Of Hate og Shock ásamt fleirum,
sem þóttu á þeim tíma efnilegar
mjög. Síðari tónleikaferðin var
mun yfirgripsmeiri og henni
lauk með pomp og pragt í
Hammersmith Palais.
Þegar hér var komið sögu
hafði áhugi fyrir Classix vaknað
í öðrum löndum. Afleiðingin var
sú, að hljómsveitin fór í tón-
leikaferðalag og heimsótti 11
þjóðlönd það sem eftir lifði árs-
ins 1981. Þar á meðal voru t.d.
bæði Portúgal og Júgóslavía, auk
Svíþjóðar og annarra ianda. Það
hefur vakið umtalsverða athygli,
að plötur Classix hafa selst vel í
löndum, þar sem áhugi á vest-
rænni popptónlist er ekki al-
mennur. Má þar t.d. nefna Bóli-
víu, Indland og Filippseyjar.
Ný plata er væntanleg frá
Classix Nouveaux á markað í
Bretlandi þann 4. júlí næstkom-
andi. Þar eiga þeir Solo og
Sweeney öll lögin sem fyrr.
Vinnsla á þeirri plötu hófst
strax í byrjun árs eftir stutta en
velþegna hvíld í kjölfar hressi-
legrar tónleikaferðar.
Að sögn Solo settu hann og
Sweeney sér það takmark að
semja a.m.k. 20 lög fyrir nýju
plötuna, sem þeir myndu síðan
velja úr. Meira en helmingur
þeirra hafnaði í glatkistunni, en
hin fá menn að heyra á nýju
plötunni. Þessi þriðja plata
sveitarinnar var að sögn Solo
tvöfalt dýrari en La Verité í
vinnslu og var þó ekki beinlínis
kastað til höndunum við gerð
þeirrar plötu.
Það er enginn aukvisi, sem
„pródúserar" þessa nýju plötu
Classix Nouveaux. Hann heitir
Alex Sadkin og er m.a. ábyrgur
fyrir útkomu „sánds“ á plötum
Grace Jones og Thompson
Twins, auk margra annarra, m.a.
Robert Palmer og Joe Cocker.
Hann hefur einnig unnið með
Bob heitnum Marley.
Menn verða því bara að bíða
spenntir eftir nýju plötunni, en
þangað til geta þeir notið þess að
hlusta á Classix Nouveaux á tón-
leikum í Laugardalshöllinni
annað kvöld. Þar verða væntan-
lega leikin öll bestu lög sveitar-
innar og lög af nýju plötunni
kynnt.
Sterkir—léttir
þægilegir
Ný gerö af
I gönguskóm á alla
fjölskylduna
Tískulitir.
Stæröir: nr. 28—46. Æ
É
TKERS TRUMF
GEísiP
Fura er
alltaf falleg
og í furu erum við fremstir
Greiðslukjör í 6 tíl 8 mánudi
HDS6A6NABÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK » 91-81199 og 81410
Gengi 10/6 '83
Wallas 1200
Eldavél m/miöstöö. Verö
til báta kr. 12.250.. Eyösla
aöeins 0.15 I per'klst.
CTX1200
VHF bátastöö. Verö til
báta kr. 6.867.- 25 wött,
12 rásir.
Áttavitar í úrvali fyrir
báta og til fjallgöngu.
Verö frá kr. 1.061,-
Polaris 7100
Tölvuleitarinn meö
stefnuvitanum. Verð til
skipa kr. 21.600,-
BENCO
Bolholti 4.
S. 91-21945 og 84077.
S Meirn en þú getur ímyndad þér! CD