Morgunblaðið - 17.06.1983, Síða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1983
Árnaðaróskir
Yuri Andropov, nýkjörinn forseti Sovétríkjanna, tekur við heillaóskum frá félögum sínum
Kunayev og Shcherbitsky.
Símamynd AP.
Æðsta ráðinu,
Kann því vel að vera
sögð kynþokkafull
Ævisaga Margaret Thatcher væntanleg:
i/ondon, 16. júní. AP.
ÞAÐ LÆTUR vel í eyrum Margaret Thatcher, forsætisrádherra Breta, að
heyra, aó karlmönnum finnst hún kynþokkafull, en hins vegar er hún „alltof
viktoríönsk í háttum til að játa það“, segir í ævisögu Járnfrúarinnar, sem
væntanleg er á markað innan skamms.
„Karlmennirnir, sem hún metur
mest, eru sterkir, ákveðnir og góð-
um gáfum gæddir, og það eru ein-
mitt þessir menn, sem daðra við
hana og slá henni gullhamra,"
segir ævisöguhöfundurinn, Penny
Junor, í bókinni „Margaret
Thatcher - móðir, kona og stjórn-
málamaður". „Hun bregst vel við
léttu daðri svo framarlega sem að-
stæður leyfa og hún hefur ekki
öðrum mikilvægari hnöppum að
hneppa," segir í útdrætti úr bók-
inni, sem birtist í dag í blaðinu
Daily Express.
I bókinni kemur fram, að þing-
maðurinn Airey Neave, sem lést í
sprengjutilræði írskra hryðju-
verkamanna skömmu fyrir kosn-
ingarnar 1979, hafi verið ómetan-
legur fyrir Thatcher og að það
hafi fyrst og fremst verið honum
aðþakka, að hún bar hærri hlut en
Heath í formannskjörinu innan
íhaldsflokksins árið 1975. Penny
Junor segir, að samband Thatcher
við Heath hafi hins vegar verið
svo slæmt, að hún hafi beinlínis
„sprungið" þegar lagt var til, að
þau kæmu saman fram á blaða-
mannafundi til að sýna eininguna
innan flokksins í kosningunum
1979.
„Hún náfölnaði af bræði, stóð
upp og stormaði út úr herberg-
inu,“ segir Junor.
Margaret Thatcher átti alltaf í
vandræðum með Jim Callaghan,
leiðtoga Verkamannaflokksins,
sem sat sig ekki úr færi með að
sýna henni lítilsvirðingu meðan
hann og Verkamannaflokkurinn
fóru með völdin í Bretlandi. Einu
sinni mælti Thatcher fyrir van-
trauststillögu á stjórnina í Neðri
deildinni og þá sagði Callaghan
við Thatcher: „Svona, svona, litla
frú. Þú ætlar þó ekki að segja mér,
að þú trúir öllu þessu kreppuhjali
í blöðunum?"
Skyndimarkaðurinn í Rotterdam:
Hækkar olíuverðið
um 25% í haust?
Astæðan vaxandi eftirspurn og hátt gengi dollarans
SÉRFRÆÐINGAR í olíuvlðskiptum eru nú farnir að spá því, að verðið a
skyndimarkaðnum í Rotterdam muni hækka um 20—25% í sumar eða
haust vegna aukinnar eftirspurnar. Danska blaðið Börsen hefur þessar
fréttir eftir Jan Oskam, aðalforstjóra Evrópsku upplýsingamiðstöðvarinn-
ar fyrir olíuviðskipti í Rotterdam.
Eins og flestum er kunnugt, eru olíukaup okkar fslendinga miðuð við
verðið á skyndimarkaðnum í Rotterdam hverju sinni.
Jan Oskam segir, að núverandi
olíuverð, 29 dollarar á tunnuna
að meðaltali, sé fyrst og fremst
verk Yamanis, olíuráðherra
Saudi-Arabíu, og einnig því að
þakka, að olíuframleiðslan og
framboðið sé nú 17,5 millj. tunna
á dag, þótt markaðurinn taki að-
eins við 14 millj. tunna. Nú bendi
hins vegar ýmislegt til, að í
sumar eða haust muni eftir-
spurnin aukast allt upp í 19
milljónir tunna og þurfti þá ekki
að koma á óvart þótt verðið
hækki í kjölfarið um 20—25%.
Gengi dollarans og vaxtamál í
Bandaríkjunum hafa mikil áhrif
á það verð, sem Evrópumenn
þurfa að greiða fyrir olíuna og
raunar margt annað. Olíuvið-
skiptin miðast öll við dollar og
þess vegna gerist það hvað eftir
annað, að olíureikningur Evr-
ópuþjóðanna hækkar eingöngu
vegna aðgerða bandaríska seðla-
bankans í peningamálum vestra.
Þegar Evrópumenn stynja und-
an háu olíuverði ættu þeir ekki
hvað síst að beina umkvörtunum
sínum til Bandaríkjastjórnar, að
því er Jan Oskam segir.
Þegar viðskiptin á skyndi-
markaðnum eru skoðuð, t.d. síð-
asta áratug, kemur í ljós, að
verðið hækkar næstum alltaf í
apríl og október. Aprílhækkunin
stafar af miklum kaupum
bandarísku olíufélaganna, en
það tekur olíuhreinsunarstöðvar
þeirra nokkurn tíma að brúa það
bil, sem er milli eftirspurnarinn-
ar á veturna og sumrin. í októ-
ber eru olíufélögin hins vegar að
birgja sig upp fyrir veturinn.
Þegar þróunin í olíumálunum
er skoðuð og ástandið almennt
haft í huga bendir margt til, að
ný olíukreppa muni ríða yfir á
árinu 1985 eða 1986, segir Jan
Oskam. Allt virðist stefna í þá
átt og uppgangur efnahagslífs-
ins og aukinn hagvöxtur mun
beinlínis stuðla að því.
Frakkland:
Neysla léttra
vína minnkar
Nice, Frakklandi, 16. júní. AP.‘
NEYSLA á léttum vínum í Frakk-
landi hefur minnkað um 33 af
hundraði á síðastliðnum tveimur
áratugum og hefur orðið sú breyting
á, að ölkelduvatn hefur komið í stað
borðvíns, að því er segir í nýútkom-
inni skýrslu.
I skýrslunni segir að ástæðan
fyrir þessari breytingu sé sú, að
síðasta kynslóð neytti léttra vína
reglulega og leit á þau sem sjálf-
sagðan hlut með máltíðum. Ný
kynslóð lítur öðrum augum á þessi
mál og notar léttvín við sérstök
tækifæri.
Veður
viða um heim
Akureyri 13 akýjaó
Amsterdam 15 akýjað
Barcelona 23 lóttakýjað
Berlín 16 skýjað
Brllssel 18 skýjaö
Chicago 27 heiörikt
Dyflinni 16 tkýjaö
Feneyjar 24 skýjaö
Frankfurt 18 rigning
Genf 20 heiöskirt
Helsinki 21 heiðrfkt
Jerusalem 29 heiöekirt
Jóhannesarborg 17 heiöskirt
Kaíró 40 heióskirt
Kaupmannahötn 17 skýjaö
Las Palmas 28 heióskirt
Lissabon 38 heióekfrt
London 18 skýjaó
Loa Angeles 29 heióríkt
Madrid 34 heióakírt
Malaga 28 heióskirt
Mallorca 25 lóttskýjaó
Mexíkóborg 27 heióskirt
Miami 30 tkýjaó
Moskva 22 heiðskirt
New York 34 heióskirt
Nýja Delhí 41 skýjaó
Osló 15 haióríkt
Psrie 19 haiöskirt
Perth 22 rigníng
Reykjavik 10 rigning
Rio do Janairo 25 skýjaó
Róm 29 haiórfkt
San Francisco 25 heiöakfrt
Stokkbóimur 20 haförfkt
Tókýó 24 skýjaó
Vín 17 skýjað
Þórahöfn 10 akýjaó
Tónleikar á
Holmenkollen
Osló, 16. júní. AP.
HOLMENKOLLEN, hinn frsgi
skíðastaður Norðmanna í Osló, verð-
ur nk. sunnudag vettvangur sinfón-
íutónleika sem 30 milljónir manna
munu fylgjast með í sjónvarpi.
„Við köllum þetta sumartón-
leika fyrir sjónvarp á Holmenkoll-
en og vonust til að þeir eigi eftir
að ná jafn miklum vinsældum og
nýárstónleikarnir í Vín,“ sagði
talsmaður þeirra sem skipuleggja
tónleikana.
Þess er vænst að fjöldi manna
komi saman til að fylgjast með
tónleikunum á Holmenkollen þar
sem verður fyrst í stað boðið upp á
tveggja tíma fjölskylduskemmtun
og síðan hefjast áðurnefndir tón-
leikar, sem standa í klukkutíma.
Fílharmoníuhljómsveitin í Osló
mun leika undir stjórn Mariss
Jansson og leikin verður norsk
tónlist frá ýmsum tímum.
AMERÍKA PORTSMOUTH/ NORFOLK
Clty of Hartlepool 21. júni
Bakkafoss 1. júli
City of Hartlepool 12. júli
Bakkafoss 22. ‘úli
NEW YORK
Clty of Hartlepool 20. júni
Bakkafoss 30. júni
Clty of Hartlepool 11. júli
Bakkafoss 21. júli
HALIFAX
City of Hartlepool 23. júní
Clty of Hartlepool 14. júli
BRETLAND/MEGINLAND
PORTÚGAL/SPÁNN
IMMINGHAM
Eyrarfoss 19. júni
Alafoss 26. júni
Vessel 3. júli
Alafoss 10. júli
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 20. júní
Álafoss 27. júni
Vessel 4. júli
Alafoss 11. júlí
ANTWERPEN
Eyrarfoss 21. júni
Alafoss 28. júni
Vessel 5. júli
Alafoss 12. júli
ROTTERDAM
Eyrarfoss 22. júni
Álafoss 29. júní
Vessel 6. júli
Álafoss 13. júli
HAMBORG
Eyrarfoss 23. júní
Álafoss 30. júni
Vessel 7. júli
Álafoss 14. júli
WESTON POINT
Helgey 22. júni
Helgey 5. júlí
Helgey 19. júli
LISSABON
Skeiösfoss 5. júli
Skeiösfoss 18. ágúst
LEIXOES
Skeiösfoss 6. júli
Skeiösfoss 19. ágúst
BILBAO
Skeiösfoss 8. júli
Skeiösfoss 22. ágúst
NORDURLÖND/EYSTRASALT
BERGEN
Manafoss 17. júní
Dettifoss 24. júni
Mánafoss 1. júli
Dettifoss 8. júli
KRISTIANSAND
Mánafoss 20. júni
Dettifoss 27. júní
Mánafoss 4. júli
Dettifoss 11. júli
MOSS
Mánafoss 21. júni
Dettifoss 24. júni
Mánafoss 5. júli
Dettifoss 8. júli
TRONDHEIM
Goöafoss 28. júni
HORSENS
Dettifoss 29. júni
Dettifoss 13. júli
GAUTABORG
Mánafoss 22. júni
Dettifoss 29. júni
Mánafoss 6. júli
Dettifoss 13. júli
KAUPMANNAHÖFN
Mánafoss 23. júní
Dettifoss 30. júni
Manafoss 7. júli
Dettifoss 14. júlí
HELSINGBORG
Manafoss 24. júni
Dettifoss 1. júli
Manafoss 8. júli
Dettifoss 15. júli
HELSINKI
írafoss 11. júli
GDYNIA
írafoss 13. júli
TORSHAVN
Dettifoss 25. júni
vikulegar
STRANDSIGLINGAR
-fram ogtil baka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
fra ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla-fimmtudaga
EIMSKIP
f.