Morgunblaðið - 17.06.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.06.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1983 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakið. Þjóðarfjölskyldan Svo margt er sinnið sem skinnið segir gamall ís- lenzkur orðskviður. Hann hitt- ir vel í mark þegar við íslend- ingar eigum í hlut. Okkur er ýmislegt betur gefið en þreyja þorrann og góuna í sáttfýsi og samlyndi. Hver og einn kýs að ganga eigin götu, sem er af hinu góða, svo lengi sem við þekkjum okkar vitjunartíma þegar þjóðarnauðsyn krefur. Þau dæmi finnast þó í þjóð- arsögunni þegar íslendingar stóðu saman sem órofa heild. Þar ber hæst er þjóðin gekk að kjörborði 20.—23. maí 1944. Kjósendur vóru að vísu helm- ingi færri þá en nú, 74.000 í stað 150.000. En þeir staðfestu sambandsslit og lýðveldis- stofnun með 97.35% greiddra atkvæða. Það Grettistak sam- heldninnar mun lengi lifa í sögu okkar. Önnur dæmi um viðlíka einhug þjóðarinnar tengjast einkum áföllum af völdum náttúruhamfara, en á slíkum stundum koma íslend- ingar fram sem samhent þjóð- arfjölskylda. Þrátt fyrir sundurlyndi, sem segir of oft til sín, hefur mikill meirihluti þjóðarinnar lik viðhorf til kjarnaatriða, er varða pólitískt og efnahags- legt sjálfstæði okkar sem þjóð og einstaklingar. Við viljum velflest, standa vörð um: • íslenzka tungu og menning- ararfleifð, sem knýta okkur saman sem þjóð, fremur en allt annað. • Þá frumskyldu okkar sem sjálfstæð þjóð, að tryggja full- veldi sitt og öryggi í viðsjálum heimi. Það höfum við m.a. gert með aðild að varnarsamstarfi vestrænna ríkja. • Þá þjóðfélagsgerð borgara- legs lýðræðis og þingræðis, sem í senn tryggir verulega rýmri einstaklingsbundin þegnréttindi, hverjum og ein- um til handa, og betri almenn lífskjör en nokkurt annað þjóðfélagsform. • Þá viðleitni að lifa í sátt við land okkar og umhverfi, sem m.a. felst í því, að sporna gegn frekari gróðureyðingu með öll- um tiltækum ráðum; umgang- ast viðkvæma náttúru lands- ins af umhyggju; og vinna að uppgræðslu. • Auðlindir lands og lagar, gróðurmold, fiskistofna og orku fallvatna og jarðvarma. Af þessum þremur megin auð- lindum er aðeins ein vannýtt: möguleikar okkar á sviði inn- lendrar orkunýtingar. • Frumkvæði og framtak ein- staklinga í þjóðarbúskapnum, fullvissir þess, að verðmæta- sköpun og þjóðartekjur ráða í raun lífskjörum í landinu, hvort heldur sem litið er til einkaneyzlu, samneyzlu eða félagslegrar þjónustu á sviði almannatrygginga, heilbrigð- ismála, fræðslumála o.sv.fv. Eina raunhæfa leiðin til fram- tíðaratvinnuöryggis og bættra lífskjara er að efla atvinnu- starfsemi í landinu, auka þær þjóðartekjur, er til skiptanna koma. Það er mun fleira sem sam- einar okkur íslendinga en skil- ur sundur. Við erum í raun þjóðarfjölskylda, sem verður að standa saman um sjálf- stæði sitt, bæði pólitískt og efnalegt. Oft var þörf en nú er nauðsyn þjóðarsamstöðu til að vinna okkur út úr aðsteðjandi vanda, sem ógnar velferð okkar í bráð og lengd. Það er skylda okkar við samtíð og framtíð þjóðarinnar. Morgunblaðið óskar lesend- um sínum og landsmönnum öllum gleðilegrar þjóðhátíðar. Austur- Berlín 1953 Sautjánda júní 1953 gerðu 300 þúsund verkamenn á 272 stöðum í A-Þýzkalandi verkfall til að mótmæla bæði mannréttinda- og kjaraskerð- ingum. Þetta var fyrsta meiri- háttar andóf alþýðu í leppríkj- um A-Evrópu gegn þjóðfélagi sósíalisma og hagkerfi marx- isma. Sovézkum skriðdrekum var beitt gegn a-þýzku verka- fólki að kvöldi 17.júní 1953. 1 Rúmlega tuttugu einstakl- ingar lágu í valnum, er átök- um lauk. Morgunblaðið rifjar upp þessa atburði í dag, 30 ár- um síðar, þar eð þeir fela í sér lærdóm sem ekki má gleyma. Viðlíka atburðir fylgdu í kjölfar uppreisnarinnar í A-Berlín. Minna má á upp- reisnina í Ungverjalandi 1956, innrás Sovétríkjanna í Tékkó- slóvakíu 1968 og loks umrótið í Póllandi, sem verið hefur í fréttum síðan 1980. Barátta þessara undirokuðu þjóða fyrir fullveldi og þegnréttind- um hefur verið löng, sársauka- full og án mikils árangurs, því miður. Við íslendingar, sem og aðr- ar vestrænar þjóðir, veitum undirokuðum þjóðum A-Evr- ópu mestan stuðning með því að standa trúan vörð um þjóð- félagsgerð lýðræðis, þingræðis og þegnréttinda, sem þrátt fyrir ýmsa annmarka tryggir okkur afgerandi meiri ein- staklingsbundin mannréttindi og betri almenn lífskjör en nokkurt annað þjóðfélags- form. * Morgunbladið/Emilía. Ráðherrar og forsætisnefndarmenn Norðurlandaráds á blaðamannafundi í Norræna húsinu. Við borðið frá vinstri: íslenzku fulltrúarnir Friðjón Sigurðsson, Pétur Sigurðsson og Matthías Á. Mathiesen, ráðherra, þá finnski ráðherr- ann Gustav Björkstrand, Anker Jörgensen frá Danmörku og sænski ráðherrann Svante Lundkvist. Fundum ráðherra Norðurlanda og forsætisnefndar lokið FUNDI ráðherranefndar og forsætisnefndar Norðurlandaráðs lauk um há- degi í gær. Á blaðamannafundi að honum loknum kom fram að það hafði aðallega verið farið yfir þau mál, sem eru í gangi hjá ráðinu og niðurstöður frá síðasta Norðurlandaráðsþingi í febrúar metnar. Auk þeirra mála, sem sagt hef- ur verið frá í sérstökum fréttum, svo sem rýmkun þátttöku Græn- lendinga, Færeyinga og Álandsey- inga í Norðurlandaráði, og sam- eiginlegri gervihnattaþjónustu, ræddu fundarmenn þróun efna- hagsmála, samvinnu í baráttunni við fíkniefni og framkvæmd sam- komulags um sömu réttindi Norð- urlandabúa í öllum löndum. En inn í þær umræður kom hugmynd- in um nokkurs konar Codex Nord- ica. Þá var rætt um þróunarhjálp Norðurlandanna og fyrirkomulag hennar. Þar eru til umræðu nýjar og breyttar leiðir til að verða að liði og samstarf um þær. Er það m.a. fólgið í að veita þjóðunum möguleika fremur en beina hjálp með því að gera þeim fært að selja sínar afurðir og aðstoða þær við það. Hugsanlega með niðurfelling- um einhverra tolla. Finnar með Svíum og Norðmönnum um gervihnöttinn Tele-x FINNAR munu verða þátttakendur í notkun á norræna gervihnettinum Tele-x, sem ákveðið var að Norðmenn og Svíar sendu á loft í samvinnu á árinu 1986. Finnski menntamáiaráðherrann Gustav Björkstrand skýrði frá því á blaðamannafundi í Norræna húsinu vegna funda ráðherranefndarinnar og forsætisnefndarinnar að finnska ríkisstjórnin hefði verið að taka þessa ákvörðun. Þessi gervihnöttur á m.a. að hafa tvær sjónvarpsrásir og hægt að móttaka efnið beint til viðkomandi lands. Ennþá er ekki Ijóst hvort Tele-x gæti frá upphafi komið að notum fyrir sendingar til íslands, en farið verður í að meta það í haust, að því er Halvdan Skard upplýsti. Á blaðamannafundinum var spurt hvort samvinna þessara þriggja Norðurlandaþjóða um Tele-x væri endanlegur dauða- dómur yfir Nordsat-gervihnettin- um. En því var svarað á þann veg að þetta gæti allt eins verið fyrsta skefið. Norrænn gervihnöttur 1984? Norræn samvinna um sjón- í TILEFNI þess að Grænlendingar eru nú í fyrsta sinn að koma inn í norrænt samstarf í Norðurlandaráði, hefur verið ákveðið að veita 180.000 dönskum krónum í sérstakt átak til að auka samskipti Norðurlandaþjóð- anna við Grænland á menningar- sviðinu. varpssendingar um gervihnetti hefur mjög verið til umræðu að undanförnu á fundum Norður- landaráðs og var á dagskrá nú á sameiginlegum fundi ráðherranna og forsætisnefndarinnar i gær- morgun. En sem kunnugt er munu norrænir sjónvarpsáhorfendur innan skamms geta fengið mögu- leika á að velja milli ófárra dagskráa. Samkvæmt upplýsing- Þetta kom m.a. fram í máli Gustav Björkstrands, mennta- málaráðherra Finna, á blaða- mannafundi í Norræna húsinu i gær. En það hafði verið ákveðið á fundi menntamálaráðherranna í Gautaborg í vikunni. um Halvan Skards eru nú ræddir þrír kostir í norrænni samvinnu: Innan árs verða hafnar send- ingar um evrópska gervihnatta- kerfið ECS, sem hefur 5—15 mis- munandi rásir, og hægt að taka það inní kapalkerfi líka. Ein af þessum rásum er til boða í leigu fyrir Norðurlönd. Hefur menning- armálanefndin gert úttekt á möguleikunum fyrir norræna dag- skrá í því skyni og verður málið rætt aftur í ráðherranefndinni 21. júní næstkomandi. Þá er verið að ræða fyrrnefndan gervihnött, Tele-x, sem á að fara upp 1986, og Norðmenn, Svíar og nú Finnar munu sameinast um. Endanleg ákvörðun eftir ár f þriðja lagi er svo um að ræða könnun á því hvort og hvernig Tele-x gæti eða ætti að verða liður í varanlegu norrænu samstarfi um gervihnetti. Samtímis því fara fram athuganir í því skyni að búa í haginn fyrir endanlega ákvarð- anatöku um það hvort yfirleitt eigi að hafa um þetta norræna samvinnu. En ætlunin er að end- anleg ákvörðun verði tekin vorið eða sumarið 1984, svo að hugsan- legar gervihnattasendingar gætu þá hafist 1989. Þá er hugmyndin að senda um þrjár rásir til Aust- ur-Noregs og eina til íslands og Færeyja. Og það er þetta sem á að ræða á ráðherranefndarfundinum 21. júní. Seinna yrði svo ákveðið hvernig rásirnar yrðu notaðar. Fjárveiting til menningartengsla við Grænland

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.