Morgunblaðið - 17.06.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.06.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚNl 1983 27 Þorlákur Sveinsson Sandhól — Minning Fæddur 2. október 1899 Dáinn 13. júní 1983 Þá er enn einn hinna mestu manna aldamótakynslóðarinnar fallinn í valinn. Þorlákur Sveins- son bóndi, Sandhól, er ekki lengur meðal okkar. Þeim fækkar nú óðum þessum ósérhlífnu körlum og konum, sem börðust áfram í kyrrþey af ótrúlegri þrautseigju við frumstæð skilyrði á fyrri helmingi þessarar aldar, þeir sem lögðu grundvöllinn að þeirri vel- megun og sjálfstæði, sem við búum við í dag, kynslóðin sem hafði það kjörorð að leiðarljósi að gefast aldrei upp, vera sér og sín- um nóg og vera ekki upp á aðra komin. Þorlákur Sveinsson bóndi á Sandhól var einn þessara manna. Hann var af traustum skaftfellsk- um ættum kominn, eins og eftir- lifandi kona hans, Ragnheiður Runólfsdóttir, oft kennd við Hólm í Landbroti. Þorlákur var einn bræðra í stórum systkinahópi. Ég sem þetta skrifa er ekki ættfróður maður og mun því ekki reyna að fara nánar út í þá hluti. Og reynd- ar er mér hans lífssaga ekki það vel kunn, að ég vilji þar um fjalla. Heldur er það maðurinn sjálfur, sem mér er svo ljúft að minnast. En oft hefi ég þó til þess hugsað, að það hljóti að hafa verið glæsi- legt brúðarpar sem gekk uppað altari 17. júlí 1927 til að vera gefin saman: Hann hár og spengilegt glæsimenni, bjartur yfirlitum og sviphreinn, hún öll fíngerðari, dökkhærð og lagleg, og úr augum hennar og svip hefur þá áreiðan- lega geislað sú ástúð og hlýja sem ávallt hefur einkennt svip hennar, einnig nú í ellinni. Þegar ég kynntist þeim hjónum voru þau enn á besta aldri, sem kallað er, en þó búin að ganga í gegn um ýmsa reynslu lífsins, sjálfsagt margt ánægjulegt en einnig þungbært. Þá voru börnin fjögur, það elsta á áttunda ári, það yngsta á fyrsta ári, en á eftir tveim börnum höfðu þau orðið að sjá. Það mun hafa verið þeim mik- il raun. Ég er í litlum vafa um, að bæði hafa þau sótt styrk í trú á forsjón Guðs. Þau flíkuðu ekki trú sinni en lifðu með henni, sem svo sjálfsögðum hlut, að þar þurfti ekki orðum um fara, en verk og athafnir töluðu sínu máli. En allt var svo eðlilegt og óþvingað í þess- um efnum og átti áreiðanlega sinn þátt í að skapa fagurt mannlíf á Sandhól þrátt fyrir harða lífsbar- áttu. Þorlákur var góður húsbóndi og er mér kunnugt um, að kaupafólk það, sem var þar þau sumar sem ég var á Sandhól, þótti mjög gott að vinna með honum. Það var oft unnið mikið og iengi, t.d. þegar verið var að bjarga heyjum. En á hinn bóginn fékk fólk að hvílast vel þegar illa viðraði. Það vann því fúst og óbeðið lengi þegar á þurfti að halda. Já, það var oft unnið mikið og ósérhlífni húsbændanna með eindæmum að ég hygg. En þrátt fyrir harða lífsbaráttu leyfi ég mér að álykta að þau hjón hafi verið hamingjusöm, m.a. vegna þeirrar lífsfyllingar sem það veitir að sjá árangur erfiðisins og börnin vaxa og verða að nýtum og góðum mönnum. Þau hjón voru með af- brigðum samhent, svo samhent að mér er ógerningur að skrifa um annað þeirra án þess að hins sé getið. Það fór jafnvel ekki framhjá barnsauganu sú eðlislæga virðing og tillitssemi, sem þau auðsýndu hvort öðru. Að loknum löngum vinnudegi, þegar börnin voru sofn- uð og ró komin í bæinn, tylltu þau sér stundum á eldhúsbekkinn áður en gengið var til náða og ræddu hljóðlátlega um verk dagsins eða þess næsta eða eitthvað annað. En það er ekki það sem rætt var um, sem ég minnist, heldur þeirrar til- finningar friðsemdar og öryggis sem streymdu til mín á þessum stuttu kvöld „fundum". Það er hægt að sýna umhyggju á ýmsan hátt í amstri dagisns. Ég minnist þess t.d. að það kom ósjaldan fyrir, þegar Þorlákur var að bar- dúsa eitthvað útivið og ég að að- stoða hann, að skyndilega biður hann mig að skreppa heim í bæ og vita hvort ég geti ekki létt eitt- hvað undir með henni Heiðu. Um- hyggja hans fyrir henni mun ávalt hafa verið ofarlega í huga hans og ef mér skjátlast ekki, allt til hins síðasta. Sumrin mín urðu fjögur á Sandhól. Þetta var mitt heimili í þess orðs bestu merkingu, á með- an ég dvaldi þar. Ég var einn af þeim og meðhöndlaður sem slíkur, en ekki sem einhver utanaðkom- andi. Það stafaði hlýhug og góð- vilja frá þeim hjónum, sem barnssálin hefur meðtekið og ég met mikils nú, þótt ég hafi ekki gert mér ljósa grein fyrir því þar og þá. Og einhvernveginn var það svo, að ég lagði mig fram við að gera mitt besta, þótt ekki væri verið að reka á eftir manni. Sjálf- sagt hefi ég oft á þessum árum gert ýmislegt, svo sem strákum er lagið, sem húsbændum var ekki að skapi, en snuprum var lítið beitt, a.m.k. minnist ég þess ekki. Þó er mér ofarlega í huga eitt atvik. Gestir sátu í eldhúsinu yfir kaffi- bollum og ræddu við húsbændur. Við krakkarnir vorum eitthvað að ærslast og hlupum út og inn, án þess að loka bæjardyrum. Skyndi- lega segir Þorlákur allsnöggt: „Væni minn, viltu ekki taka hurð- ina af hjörðum?" Mig rak í roga- stans því aldrei hafði húsbóndinn beðið mig að gera verk, sem ég ekki réð við. En þetta treysti ég mér ekki til að gera og stundi því upp. Þá heyrðist innan frá eldavél eitt orð frá Heiðu með undrun og ávítu í áherslu: „Þorlákur". Og meira þurfti ekki til. Þá skildi ég hvað við var átt og skammaðist mín niður í tær, og Þorlákur varð miður sín og gerði grín og gott úr öllu saman. Þegar ég hugsa um þetta litla atvik seinna, þá er það einkum tvennt, sem mér finnst lýsa þeim hjónum betur en mörg orð. í fyrsta lagi var ég svo óviðbúinn snupru úr þeirri átt, að ég skildi hana ekki, þegar hún var sögð, og svo hitt, hvað þeim þótti leitt að hafa sært mig, þótt svo + Alúöarþakkír fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför ÁSGEIRS GfSLASONAR •klpstjóra, Þingholtsbraut 50, Kópavogi. Hildur Frlmann, börn, tangdabörn, barnabörn og systkini. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 81960 sannanlega hafi ég til þess unnið. Já, það er margs að minnast frá þessum sumrum mínum á Sand- hól, ánægjulegar minningar eink- um í starfi með þessu góða og hjartahlýja fólki. Það var ekki bara þreyta, heldur sælutilfinning sem gagntók mann að kvöldi, eftir að hafa komið góðum heyfeng í hlöðu eftir langan og strangan vinnudag. Þannig fann ég til og ætli tilfinning bóndans hafi ekki verið svipuð? Þótt bóndinn ætti að vísu allt sitt undir því, hvernig til- tókst með heyskapinn, þá er ég sannfærður um, að afkoman var ekki það eina sem var í huga Þor- láks, heldur einnig umhyggjan fyrir skepnunum, því honum þótti greinilega vænt um dýrin, sem slík og sem bónda, kannske of vænt um þau. Ég gæti nefnt þessu mörg dæmi, en það verður ekki gert hér og nú. En það fór ekki fram hjá mér, að í þau fáu skipti, sem ég var vitni að því, að lóga þurfti dýri heima við, að það var honum óljúft verk að vinna. Þegar ég kom fyrst að Sandhól, var þar ekki annað húsa, en gamla þinghúsið sem inpréttað hafði ver- ið til íbúðar og skúrbygging aust- an við það, sem var þá fjósið. Hóll- inn sjálfur var svo til einn melur, nema smá flöt, sem ræktuð hafði verið í hallanum framan við bæj- ardyrnar. En túnin í Bakka- holtsparti sem nú tilheyrðu Sandhól, voru ekki stór. Það þurfti að hafa fleiri spjót úti til að fram- fleyta fjölskyldunni. Þannig var Þorlákur símstöðvarstjóri um langt árabil. Það starf var rækt af hendi af mikilli samviskusemi. Það brást aldrei, hvernig sem á stóð, að ekki væri verið við simann á símatíma. Þá fékkst hann einnig við refarækt, en hún lagðist af hjá honum sem fleirum á stríðsárun- um. Það var einnig í mörg horn að líta, þótt maður skyldi halda, að starf bóndans hafi verið ærið á meðan allt var slegið með orfi og ljá. Á ótrúlega skömmum tíma var búið að gera allan hólinn að frjó- sömu túni og byggja myndarlega hlöðu og gripahús austan við bæ- inn. Sandhóll var orðinn að hinu reisulegasta býli. En mörg hafa verið handtökin og ótaidar vinnu- stundirnar þangað til að þessum áfanga var náð. Þrældómurinn og ósérhlífnin var mikil, enda margir af þessari kynslóð útslitnir menn um aldur fram, og fór Þorlákur ekki varhluta af því, þótt vinnu við búið sinnti hann svo til svo lengi sem stætt var. En andleg heilsa var óskert til hins sfðasta. Mig furðaði á hve vel hann fylgd- ist með og tók lifandi þátt í um- ræðum um það, sem var að gerast í þjóðlífinu. Sagt er að eplið falli ekki langt frá eikinni. Sú hefur og raunin orðið með börn þeirra Þorláks og Ragnheiðar. Það hafa m.a. ég og mínir fengið að sannreyna. Er mér kunnugt um að þau og þeirra börn hafa auðsýnt gömlu hjónunum sérstaka umhyggju, en börn þeirra eru Rósa, húsfrú og símamær í Reykjavík. Hennar maður er Þorsteinn Kolbeins bifreiðastjóri. Sveinn, framkvæmdastjóri á Hvolsvelli. Hans kona er Gyða Þorsteinsson. Eyrún Rannveig, húsfreyja, Krossi. Her.nar maður er Lúðvík Haraldsson, bóndi. Páll, einhleypur, em búið hefur alla tíð með foreldrum sínum og staðið fyrir búrekstrinum um árabil. Nú er harmur í huga er mikill öðl- ingsmaður er brott kvaddur. Megi það vera þeim sem syrgja nokkur huggun gegn harmi að sá sem syrgður er var vammlaus og góður maður, sem öllum sem til þekkja hlýtur að vera ljúft að eiga minn- ingar um. En sárast hlýtur fráfall Þorláks að vera fyrir eftirlifandi konu hans Ragnheiði, svo samhent sem þau hjón voru, því þar fór einn hugur og ein hönd þar sem þau voru. Ég get aðeins beðið Guð að gefa henni styrk og huggun í minningunni um einstætt val- menni og kærleiksríkan lífsföru- naut. Jakob Magnússon Útför hans fer fram frá Kot- strandarkirkju á morgun, laug- ardag. I Minning: Bjarndís Jóhanna Nikulásdóttir Fædd 14. mars 1921 Dáin 9. júní 1983 í dag fer fram útför frænku minnar, Jóhönnu Nikulásdóttur, eða Hönnu í Árgerði, eins og við kölluðum hana oftar. Mig langar til að minnast hennar með nokkr- um orðum. Jóhanna var fædd að Hemlu í Landeyjum 14. mars 1921. For- eldrar hennar voru hjónin ólöf Bjarnadóttir og Nikulás Ivarsson. Þau bjuggu um skeið á Eyrar- bakka og fluttu síðan til Vest- mannaeyja. Þaðan flytjast þau upp á fastalandið, eftir að bömin eru orðin fullorðin. Jóhanna var næstelst fjögurra systkina. Hún kvæntist Elíasi Kristins- syni 18. september 1943. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau á Stokkseyri, en fluttust 1945 til Selfoss í Árgerði (Árveg 4), og bjuggu þar þangað til Elías lést, langt um aldur fram, þann 16. ág- úst 1970. Einn son eignuðust þau Jóhanna og Elías, ólaf Nikulás, verkfræðing, giftan Jóhönnu Ey- þórsdóttur, og búa þau ásamt þremur börnum sínum í Reykja- vík. Þegar Ólafur var um fermingu (1955) tóku Hanna og Elli að sér tvær fósturdætur. Það eru tví- burasysturnar Jóhanna Elín og Þórdís Ingibjörg. Þær búa á Eyrarbakka. Jóhanna er gift Bjarnfinni Sverrissyni og eiga þau tvö börn. Þórdís er gift Jóni Ei- ríkssyni og eiga þau tvö börn. Þór- dís og Jóhanna reyndust Hönnu frænku ætíð sem bestu dætur, m.a. þegar hún varð ekkja og ekki síst í hennar erfiðu veikindum. Jóhanna Nikulásdóttir vann um langt árabil hjá Kaupfélagi Ár- nesinga. Fyrst við sauma á saumastofu sem Kaupfélagið rak. Síðar við verslunarstörf eða allt til hún neyddist til að láta undan þeim sjúkdómi sem varð henni að aldurtila. Hún var alla tíð virkur félagi í Verslunarmannafélagi Árnessýslu og gegndi trúnaðar- störfum fyrir félag sitt. Þótt veikindin væru erfið og langvinn kom þó svo að hún fékk að komast út af sjúkrahúsinu um tveggja mánaða skeið. En jafnvel þegar við vorum sem bjartsýnast- ar, áttum við ekki von á að það gæti reynst til frambúðar. Sú varð líka raunin á og að kveldi fimmtu- dagsins 9. júní var hún öll. Við hjónin áttum þess kost að fara í ferðalag til Júgóslavíu haustið 1978, samferða Hönnu frænku. Þá má segja að við frænk- urnar kynntumst fyrst vel. Þá sá maður að undir svolítið hrjúfu yf- irborðinu sló hjarta úr gulli. Hún var líka glöð í góðra vina hópi. Og alltaf velkomin þegar afmæli, skírn eða ferming áttu sér stað í fjölskyldunni. Ég sendi Ólafi, Þórdísi og Jó- hönnu, svo og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Bið al- góðan guð að blessa minningu Bjarndísar Jóhönnu og veita henni góða heimkomu handan við móð- una miklu. Sirrý Marie de Belder Minningarorö Systir Marie de Belder, kölluð systir Ernelia, lést í Belgíu 13. júní sl., 81 árs að aldri. Hún var fædd í Belgíu 1. febrúar 1902. Kom til íslands 27. júní 1935 og starfaði hér í Stykkishólmi við sjúkrahúsið og sleitulaust til ársins 1952, en þá fór hún til Zaire. Ekki dvaldi hún þar nema í tæp 3 ár, en þá lá leiðin aftur til Stykkishólms, þar hafði hún eignast góða vini og þann starfsgrundvöll sem gaf lífi henn- ar mikla birtu. Hún starfaði þá frá 1955 til 1975 sem hjúkrunar- kona á sjúkrahúsinu, en vegna veikinda systur sinnar sneri hún aftur til Belgíu árið 1975 og sfðan átti hún heima þar til æviloka. Þeir sem kynntust systur Ern- elíu munu ekki gleyma henni. Frá- bæra þjónustu, alúðlegheit og allt hið góða sem eina konu getur prýtt, hafði hún til að bera. Þeir voru orðnir margir sjúklingarnir um dagana sem hún hafði styrkt og hjálpað, brosað til og veitt þeim sólskin á erfiðum tímum. Þá skal því ekki gleymt hversu góður borgari hún var hér í Hólminum, eins og þær Fransiskussystur all- ar. Það var mikil guðs gjöf Hólm- inum að eignast slíkar fórnfúsar systur og borgara. Því minnast nú Hólmarar hinnar látnu systur með virðingu og sérstakri þökk. Ég og mitt heimili fengum að kynnast mannkostum hennar og fyrir það er þakkað í dag. Við ræddum margt saman og oft sótti ég til hennar traust. Hennar verður minnst með því að minningarguðsþjónusta verður í kapellu St. Fransiskussystra, laugardaginn 18. þessa mánaðar. Þökk fyrir góð kynni og gleði- stundir á góðum dögum. Arni Helgason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.