Morgunblaðið - 17.06.1983, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1983
Atvinnumennska í tennis gefur vel af sér:
John McEnroe bénar
120 milljónir á ári
• ENSKI kylfingurinn Tony
Jacklin hefur oft verið kallaður
formaður „holu í höggi“ klúbbe-
ins, og ekki að ástæöulausu. Á
opnu móti í Kenya ekki alls fyrir
löngu fór hann holu í höggi i ní-
unda skiptiö á sínum golfferli. Bill
McColl lék það eftir honum
seinna um daginn, og var það á
11. braut sem kapparnir náöu
þessum árangri. Glæsileg verö-
laun voru í boði fyrir þann sem
færi holu í höggi í þessu móti, —
en til aö fá þau urðu keppendur
að gera það á 13. braut, þannig aö
þeir voru tveimur holum á undan
áætlun að þessu sinni.
ÞAÐ FANNST víst mörgum
nóg um þær tekjur sem Björn
Borg hafði áriö 1981, en þá
fékk hann tæpiega níu og
hálfa milljón þýskra marka í
laun og auglýsingatekjur, en
þaö eru 94,8 milljónir íslensk-
ar. Á síðasta ári var þetta met
slegiö og sá sem geröi þaö er
enginn annar en John McEn-
roe, tennisleikarinn skapstóri
frá Bandaríkjunum. Hann
fékk rúmar 12 milljónir, en
það samsvarar rúmum 120
milljónum íslenskra króna.
Þessar tekjur eru fyrir aö sigra í
opinberum mótum, leika sýninga-
leiki og auglýsingar ýmiss konar,
en Steven Corey, fjármálastjóri
McEnroe, hefur veriö duglegur viö
aö láta drenginn auglýsa hinn
margvíslegasta varning, og skiptir
þá ekki máli hvort þaö er eitthvaö
viökomandi íþróttinni eöa ekki.
„Þaö er engin smá auglýsing aö
leika fyrir þúsundir manna, og ég
tala ekki um þegar vel gengur. Þá
er þaö mjög sterk auglýsing fyrir
vöruna sem viö auglýsum. Þaö
hefur gengiö vel hjá okkur aö und-
anförnu og þá rýkur verðiö uþþ,"
sagöi Corey eitt sinn þegar hann
var spuröur um ástæöuna fyrir því
aö McEnroe heföi svona miklar
auglýsingatekjur. McEnroe gefur
árlega rúmlega fimm þúsund eigin-
handaráritanir og fær vænar fúlgur
fyrir. Fjármálastjórinn hans sagöi
aö eftir fimm ár yröi McEnroe orð-
inn jafn vinsæil og Elvls Presley
var þegar hann var upp á sitt
besta.
Hér á eftir er sundurliöun á tekjum John
McEnroe fyrir árið 1982.
20 milljónir fyrir sigra
í tólf opinberum mótum.
25 milljónir fyrir
aö leika sýningarleiki
10 milljónir fyrir
þátttöku í sýningarmótum.
10 milljónir fyrir
eiginhandaráritanir.
3.4 milljónir fyrir
sigur í „Daviscup“
15 milljónir fyrir
að leika með Dunlop-spaða.
3,8 milljónir fyrir hagnaö
af sölu á McEnroe bolum
10 milljónir fyrir að auglýsa
fatnað frá Sergio Tacchini á Ítalíu.
7.5 milljónir fyrir aö
leika í Nike-skóm
3,7 milljónir fyrir aö
auglýsa Bic-rakvélar.
2,0 milljónir fyrir
að nota Omega-úr
3,7 milljónir fyrir aö
auglýsa ástralska mjólk.
2.5 milljónir fyrir að
auglýsa drykk sem nefnist „Top spin“.
3,2 milljónir fyrir að
auglýsa „Salad-Dressing“
1.5 milljónir fyrir aö
auglýsa Toyota-bíla.
Björgvin og Þórdís urðu efst
ÞAU Bjðrgvin Þorsteinsson GA
og Þórdís Geirsdóttir GK urðu
langhæst ( stigamótum GSÍ (
golfi. Voru það fjögur mót sem
géfu stig og var þaö síöasta nú
um helgina, Datsun-Nissan-
keppnin hjé GR.
Að loknum þessum fjórum
mótum hafa 17 karlmenn og 7
konur fengið stig og skiptast þau
þannig:
KARLAR Stig Mót
1. Björgvin Þorsteinss., GA 73 4
2. Gylfi Kristinss., GS 44 4
3. Siguróur Sigurðs., GS 43 4
4. Sigurður Péturss., GR 37 4
5. Gytfí Garðarss., GV 36,5 4
6. Ragnar Ólafss., GR 33,5 4
7. Sveinn Sigurbergss., GK 31 3
8. Hannes Eyvindss., GR 30 4
9. Jón H. Guðlaugss., NK 24 2
10. Magnús Jónss., GS 17,5 3
11. Geir Svanss., GR 13 3
12. Gunnl. Jóhannss., NK 10,5 2
13. Óskar Sœmundss., GR 8 4
14. Sigbjörn Óskarss., GV 7,5 4
15. —16. Péll Ketilss., GS 3 3
15.—16. Hilmar Björgvinss., GS 3 1
17. Magnús I. Stefánss., NK 1,5 4
( stigamótum karla tóku
þátt á milli 30 og 40 kylfingar.
KONUR
1. Þórdís Geirad., GK 82 4
2. Kristín Þorvaldsd., GK 70 3
3. Ásgeröur Sverrisd., GR 59 3
4. Ágústa Dúa Jónsd., GR 51 3
5. Sólvsig Þorsteinsd., GR 35 2
6. -7. Kristín Pélsd., GK 9 1
6.-7. Sjöfn Guðjónsd., GV 9 1
í stigamótum kvenna tóku þétt 7
konur.
Stig þessi eru notuð til hliösjónar
við val á landsliðunum núna, sam-
kvæmt lögum GSf, en eru ekki bind-
andi við valió á þeim.
• McEnroe ekki á flæöiskeri staddur.
Héraðsmót UMSK í Kópavogi
Héraðsmót UMSK í frjálsum íþróttum fer fram í Kópavogi 19. og 20. júní.
Mótið hefst kl. 15.00 e.h. sunnudaginn 19. júní og kl. 19.00 e.h. þann 20.
júní.
Meðal keppenda er allt besta frjálsíþróttafólk UMSK úr Kópavogi og
Mosfellssveit.
Þjálfari UMF Breiðablik í Kópavogi og reyndar úrvalsliös UMSK í heild í
sumar er Ólafur Unnsteinsson íþróttakennari. Ólafur þjálfaöi UMSK 1969 en
þá var liðið í öðru sæti í 1. deild. Nú er UMSK í annarri deild. UMSK mun sjá
um bikarkeppni FRÍ í frjálsum íþróttum 16. og 17. júlí í Kópavogi. Tvö
sterkustu liðin fara upp í 1. deild.
UMSK stefnir nú að því að undirbúa sterkt lið til keppni á landsmótinu í
Keflavík næsta sumar.
Enska landsliðið
í Ástralíu
• ENSKA landsliöið sem er í
keppnisferö í Ástralíu hefur leikið
tvo leiki gegn landsliðinu þar og
leikur þriöja og síðasta leikinn í
þessari ferö á sunnudaginn.
Fyrsta leiknum lauk meö marka-
lausu jafntefli, og í hálfleik í þeim
seinni var staðan einnig 0—0, en
það stóð ekki lengi. Paul Walsh,
sem leikur með Luton skoraöi
eina mark leiksins snemma í síö-
ari hálfleik, eftir aö Englendingar
höfðu sótt nær látlaust aö marki
Ástralíu. Peter Shilton, fyrirliöi,
sagöi að leikirnir heföu verið
miklu erfiðari en þeir heföu búist
við, en leikurinn á sunnudaginn
yröi fjörugri og þá ætluöu þeir sér
að skora fleiri mörk.
Stúlkurnar
léku við
strákana
EINS OG SAGT var frá hér á síð-
unni í síöustu viku hélt kvenna-
landsliöiö okkar í æfingaferð til
Færeyja. Ekki unnu þær leikina,
en þær kepptu tvo leiki við
stráka.
Á laugardeginum kepptu þær
viö stráka 17—19 ára gamla (
Þórshöfn, þær töpuðu þeim leik
0—2. Á mánudegínum kepptu
þær viö stráka 16—18 ára gamla (
Klakksvík, þær töpuöu leiknum
0—8, í þeim leik var liöiö oröiö
mjög þreytt enda var þetta
ströng æfíngaferð. Veörið lék al-
deilis ekki við stelpurnar (
Klakksvík því þar var mjög mikiö
rok og erfitt var að berjast á móti
vindinum.
Sex milljónir
í ferðakostnað
SAMKVÆMT skýrslum aöildarfé-
laga UÍA fyrir sl. ár nam útlagður
ferðakostnaöur hreyfingarinnar á
Austurlandi kr. 1.559.000 á síð-
asta ári. Viö þetta má bæta þeim
kostnaöi sem einstaklingar
greiða úr eigin vasa, bæði feröir á
vegum fátækari félaga og uppi-
hald í feröum sem alfarið er greitt
af keppendum. Lauslega áætlað
er heildarkostnaöur vegna ferða-
laga austfirsks íþróttafólks um
3.000.000 kr. á liönu ári.
Meöalveröhækkanir á bensíni
og fargjöldum eru um 120% milli
ára. Þvi gæti þeasi feröakostnaö-
ur numiö 6 miiljónum kr. (ár. Hér
er ekki um neinar smáupphæðir
aö ræða. Það er því staðreynd að
íþróttahreyfingin er atvinnuskap-
andi, auk þess sem hún þroskar
og eflir ungt fólk, sem skilar sér
síðan í betra þjóðfélagi.