Morgunblaðið - 21.06.1983, Side 1

Morgunblaðið - 21.06.1983, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 137. tbl. 70. árg. 1‘RIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 l’rentsmiðja Morgunblaósins Eldsvoði um borð í Gunnjóni GK 506: Þrír ungir skipverjar fórust — sjö komust af Enn barizt viö eld um borð í bátn- um í nótt 1>RÍR ungir tnenn frá Keflavík, Njarðvík og Reykjavík fórust í eldsvoða um borð í Gunnjóni GK 506 frá Garði í gær. Tíu manna áhöfn var á bátnum og björguðust hinir sjö, en eldurinn kom upp í íbúðum skipverja aft- an til í skipinu. Mennirnir sem fórust voru á aldrinum 19—24 ára, tveir þeirra voru ókvæntir, en einn var kvæntur og áttu þau hjón ársgamalt barn. Eldurinn kom upp um borð í Gunnjóni á níunda tímanum í gærmorgun, en neyðarkall heyrð- ist frá bátnum laust fyrir klukkan níu. Skipverjarnir, sem fórust, komust ekki upp úr íbúðunum og reykkafarar af varðskipinu Þór komust ekki niður í íbúðirnar fyrr en eftir klukkan 18 í gær, en gátu ekkert aðhafzt vegna reyks og eit- urgufa. Slökkvistarf stóð enn um borð í Gunnjóni, þegar Mbl. hafði síðast fréttir klukkan eitt í nótt, en þá var ætlunin, að varðrkip færi með líkin til ísafjarðar, þegar það yrði unnt, en Bjarni Ólafsson AK tæki Gunnjón í tog til Njarðvíkur. Sjá baksíöu: Nafnlaus hjálparbeiðni heyrðist... Sovézkur andófsmaður fyrir rétt Moskvu, 20. júní. AP. YURI Tarnopolsky, 46 ára gam- all sovézkur vísindamaður af Gyðingaættum, sem um langt skeið hefur reynt að fá að flytjast frá Sovétríkjunum til ísrael, hef- ur fengið fyrirmæli um að mæta fyrir rétti í næstu viku í heima- borg sinni, Kharkov. Er honum gefið að sök að hafa dreift óhróðri um Sovét- ríkin, en sú refsing, sem þar er lögð við slíku, er þriggja ára nauðungarvinna eða fimm ára útlegð í afskekktari hluta Sov- étríkjanna. Kona hans sagði í símtali við vestræna fréttamenn í Moskvu í dag, að þessar ásakanir í garð manns hennar ættu örugglega rót sína að rekja til bréfa, sem fcann hefði skrifað til ættingja erlendis, þar sem lífinu í Sov- étríkjunum væri lýst eins og það er. Töluverð slagsíða var komin á Gunnjón í gærkvöldi, þegar Ragnar Axelsson Ijósmyndari Mbl. tók þessa mynd, en þá voru Gunnjón, Rjarni Olafsson og varðskipið Þór stödd 25—30 sjómílur norður af Horni. Þá voru skipstjóri og I. stýrimaður Gunnjóns um borð ásamt varðskipsmönnum, en fimm skipverjar af Gunnjóni voru um borð í Bjarna Ólafssyni. Afdráttarlaus áskorun Jóhannesar páfa: Pólsk stjórnvöld hefji viðræÓur við Samstöðu Katovice, 20. júní. AP. í ÁHRIFAMIKILLI ræðu, sem Jó- hannes Páll páfi II flutti í dag fyrir meiri mannfjölda en nokkru sinni fyrr á ferðalagi hans nú um Pólland, varði hann réttindi verkamanna og skoraði á stjórnvöld í landinu að taka sem fyrst upp viðræður við Samstöðu, samtök hinna frjálsu samtaka í stað þess að banna þau. Páfinn flutti þessa ræðu við bænarathöfn, sem fram fór á flugvellinum við komu hans til Katovice, en sú borg er eitt öflug- asta virki Samstöðu. Sagði páfinn, að eina leiðin til þess að leysa vandamál Póllands væri að gera það með „viðræðum milli stjórn- valda og samfélagsins". Þá skír- skotaði hann til umburðarbréfs, sem hann gaf út 1981, þar sem sagði: „Verkamenn eru málsvarar baráttunnar fyrir félagslegu rétt- læti.“ Síðan bætti páfi við: „Það var í þessum anda, sem ég talaði í janúar 1981 í áheyrn, sem veitt var sendinefnd frá Samstöðu." Var þetta í annað sinn í Póllands- AP-simamynd. Geysilegur mannfjöldi — nærri ein og hálf milljón manna — tók á móti Jóhannesi Páli páfa II. við komu hans til borgarinnar Kato- vice í gær, á fimmta degi Póllandsheimsóknar hans. Þessi borg er höfuðborg Slésíu, en það er mesta kola- og stáliðnaðarhérað Pól- lands. ferð páfa nú, sem hann nefnir Samstöðu með nafni. „Allur heimurinn hefur fylgzt með mikilli tilfinningu með þeim atburðum, sem gerzt hafa síðan í ágúst 1980,“ sagði páfinn enn- fremur í ræðu sinni, en í þeim mánuði kom Samstaða fyrst fram í miklum verkfallsaðgerðum, sem áttu sér stað í skipasmíðastöðvun- um í Gdansk. Geysilegur mannfjöldi — nærri ein og hálf milljón manna — tók á móti páfa við komu hans til Kato- vice og vakti ræða hans mikla hrifningu allra. Að ræðu hans lok- inni hrópaði fólkið i einum kón „Iængi lifi páfinn.“ Athöfnin i Katovice fór fram úti undir beru lofti og lét mannfjöld- inn hvorki rigningu né rok aftra sér frá því að hlýða á boðskap páfa til enda. Enn hefur ekki fengizt úr því skorið, hvenær og hvar Lech Wal- esa leiðtogi Samstöðu, fær að ræða við páfann. Er ekki talið ólíklcgt, að það verði í horginni Krakow á morgun, þriðjudag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.