Morgunblaðið - 21.06.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983
■»»
MorguibUM/GuAjii.
íslenzka lýðveldið er enn ungt að árum og því má segja að það sé við hæfi
að mynda stelpuna við fótstall frelsishetjunnar Jóns Sigurðssonar á
þjóðhátíðardaginn.
„Þakklátur fyrir þann
stuðning sem ég hlaut“
— segir séra Olafur Skúlason sem
tilnefndur hefur verið vígslubiskup
„ÉG VAR sérstaklega ánægður yfir
því hvað þetta var afgerandi, það
hefði verið leitt ef munað hefði mjög
litlu. Ég er mjög þakklátur fyrir
þann mikla stuðning sem ég hlaut,"
sagði séra Olafur Skúlason dómpró-
fastur, en hann hefur verið tilnefnd-
ur vígslubiskup Skálholtsdæmis hins
forna. Vígslubiskup verður vígöur
á Skálholtshátíð 24. júlí næstkom-
andi.
Séra Ólafur Skúlason hlaut 48
tilnefningar sem vígslubiskup, dr.
Þórir Kr. Þórðarson prófessor
hlaut 19, séra Guðmundur Óli
Ólafsson í Skálholti 16, séra Sig-
urður Sigurðarson á Selfossi sex,
séra Jónas Gíslason dósent þrjú og
séra Páll Pálsson á Bergþórshvoli
tvö.
Að sögn séra Ólafs hefur til-
nefningin engin áhrif á prestskap
hans í Bústaðasókn, en til álita
kæmi hvort hann gegndi áfram
Sr. Ólafur Skúlason.
dómprófastsembætti. Vígslubisk-
up er að venju staðgöngumaður
biskups og rekur þau erindi sem
biskup hefur fengið honum, en
hefur gegnt sínum starfa áfram.
Vígslubiskupaembættin voru
stofnuð 1909 og var fyrsti vígslu-
biskup syðra séra Valdimar Briem
á Stóranúpi, og vill svo til að séra
Ólafur Skúlason heitir eftir syni
hans, séra Ólafi Briem.
„Kona séra Ólafs var Katrín
Helgadóttir afasystir mín. Séra
Ólafur dó rétt áður en hann átti að
skíra mig, svo þá var ákveðið að ég
bæri nafn hans, að því er mér er
sagt,“ sagði séra Ólafur Skúlason.
Samkvæmt lögum um vígslu-
biskupa eru þeir skipaðir eftir til-
lögum prestastéttarinnar í við-
komandi vígslubiskupsdæmi. Alls
höfðu 101 rétt til tilnefningar,
sóknarprestar, prestar í sérþjón-
ustu og guðfræðikennarar Háskól-
ans. Bárust 95 tilnefningar, 94
voru gildar en ein ógild.
Eiginkona séra Ólafs Skúlason-
ar er Ebba Sigurðardóttir og eiga
þau þrjú börn.
Steingrímur um pólsku fiskiskipin:
Eiginlega búinn
að gleyma þeim
Spurt og svarað um
garðyrkju
LESENDIIM Morgunblaðsins er bent
á aó þátturinn Spurt og svarað um
garðyrkju, sem verið hefur í Morgun-
blaðinu undanfarnar vikur lýkur brátt
göngu sinni. Tekið verður við spurn-
ingum í dag og á morgun miðvikudag,
en eftir það verður ekki hægt að koma
spurningum á framfæri.
Lesendur, sem hafa einhverjar
spurningar er varða garðyrkju, eru
að hætta
því hvattir til þess að láta í sér
heyra. Síminn er 10100 og verða
spurningar teknar niður milli 11 og
12 hvorn daginn um sig. Þeim verð-
ur síðan komið á framfæri við Haf-
liða Jónsson, garðyrkjustjóra
Reykjavíkurborgar, sem svarar
þeim og verða svörin birt í Morgun-
blaðinu nokkrum dögum síðar.
„ÞESSI skip koma samkvæmt við-
skiptasamningi viö Pólland sem gerð-
ur var um áramótin 1980—1981. Síð-
an hef ég ekkert heyrt á þetta minnst
og var satt að segja eiginlega búinn að
gleyma þessu — hélt að þetta hefði
kannski dottið upp fyrir vegna
ástandsins í Póllandi," sagði Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra, er Mbl. ræddi við hann í gær,
en frétt Mbl. á sunnudag um fyrirhug-
aða komu þriggja fiskiskipa til lands-
ins frá Póllandi hefur vakið furðu
meðal ráðherra og fékk fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra, núverandi
forsætisráöherra, fyrirspurn vegna
þessa á ríkisstjórnarfundi í gærmorg-
un.
mánuði nk., hin síðar. Kaupendur
eru Samtog í Vestmannaeyjum,
sem fær tvö skipanna, og Hrói í
Ólafsvík. Steingrímur sagði ekkert
geta komið I veg fyrir komu skip-
anna úr þessu, gerður hefði verið
bindandi samningur við Pólverja og
kaupendur greitt inn á samninginn.
Hann sagði í lokin: „Hins vegar hef
ég ekkert heyrt um þetta í ein tvö
ár svo það kom mér á óvart þegar
ég heyrði þetta núna.“
Áframhald raðsmíðaverkefna:
Fjórar stöðvar
fá eitt skip hver
Úrskurðaður í varðhald
vegna gruns um íkveikju
ÞRJÁTÍU og fjögurra ára gamall mað-
ur var á sunnudag úrskurðaöur í
gæzluvarðhald til 6. júlí vegna gruns
um íkveikju.
Maðurinn hefur viðurkennt að
hafa þann 18. júní síðastliðinn
kveikt í „Jakabóli”, æfingahúsi lyft-
Viðskiptaráðherra, Matthías Á.
Mathiesen, hefur ritað Seðlabanka
Islands bréf, þar sem hann lýsir þeim
vilja ráðuneytisins, að öðrum bönk-
um en þeim, sem nú þegar hafa leyfi
til gjaldeyrisviðskipta, verði veittar
heimildir til ákveðinna gjaldeyris-
viðskipta, svo sem afgreiðslu ferða-
gjaldeyris og opnun gjaldeyrisreikn-
inga, óski þeir eftir því.
Þá er það einnig vilji ráðuneytis-
ins að sparisjóðum verði veittar
sömu heimildir og bönkum og muni
ráðuneytið beita sér fyrir laga-
ingamanna í Laugardal og varð
talsvert tjón. Það var í annað sinn á
tiltölulega skömmum tíma að eldur
var lagður að húsinu. Maðurinn hef-
ur ekki áður komið við sögu Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
heimildum þar að lútandi, sé þeirra
þörf.
I fréttatilkynningu frá viðskipta-
ráðuneytinu segir að umrætt bréf
sé ritað í tilefni stefnuyfirlýsingar
núverandi ríkisstjórnar, þar sem
m.a. er gert ráð fyrir að frjálsræði
í gjaldeyrisverzlun verði aukið.
I fréttatilkynningunni segir, að
samkvæmt 19. grein laga númer
10/1961 um Seðlabanka íslands
hafi rétt til að verzla með erlendan
gjaldeyri, auk Seðlabankans,
Landsbanki íslands og Útvegs-
banki íslands. „Þá er samkvæmt
Steingrímur sagði að samningur-
inn við Pólverja hefði verið gerður
á sínum tíma vegna mikils þrýst-
ings og þá einnig verið samið um
kaup á mjöli o.fl. Hann sagði samn-
inginn hafa verið mjög hagstæðan á
þeim tíma hvað skipin varðaði og
kaupendur verið fyrir hendi. „Hins
vegar hefði verið gott að losna við
skipin, enda engin þörf fyrir þau,
enda veiði miklu minni núna,“ sagði
ráðherrann.
Eins og fram kom í frétt Mbl.
verður fyrsta skipið sjósett í júlí-
greininni bankastjórnum heimilað
að fengnu samþykki ráðherra að
leyfa öðrum bönkum svo og póst-
stjórninni að verzla með gjaldeyri
innan takmarka sem hún ákveður.
Ákvæði þessi voru ítrekuð með 5.
grein laga númer 63/1979 um skip-
an gjaldeyris- og viðskiptamála.
Bankastjórnin veitti með samþykki
ráðherra Búnaðarbankanum heim-
ild til gjaldeyrisverzlunar sam-
kvæmt þessum ákvæðum," segir
ennfremur í fréttatilkynningunni.
Jafnframt þessu óskar ráðuneyt-
ið í bréfinu eftir tillögum Seðla-
Á ríkisstjórnarfundi í gær var sam-
þykkt tillaga frá Sverri Hermannssyni
iönaðarráðherra um áframhaldandi
raðsmíðaverkefni skipa í skipasmíða-
stöðvum. Tillagan felur í sér að eftir-
taldir staðir fá heimild til að smíða eitt
skip hvert: Slippstöðin Akureyri, Stál-
vík Garðabæ, Þorgeir og Ellert á Akra-
nesi og Vélsmiðja Seyðisfjarðar.
Að sögn Sverris gerði fyrrverandi
ríkisstjórn samþykkt þess efnis að
að þrjár skipasmíðastöðvar hæfu
smíði á svonefndum raðsmíðuðum
fiskiskipum, þ.e. smíði skipa sam-
bankans hér að lútandi, svo og til-
lögum um breytingar á viðkomandi
lögum og reglugerðum, ef nauðsyn
krefur. Þá segir að um frekari
breytingar á gjaldeyrismálum
muni viðskiptaráðuneytið hefja
viðræður við bankastjórn Seðla-
bankans á næstunni.
Þá hefur viðskiptaráðherra einn-
ig ritað Seðlabankanum bréf þar
sem óskað er eftir athugun bank-
ans á núverandi afurða og rekstr-
arlánakerfi með það fyrir augum,
að afurða- og rekstrarlán verði í
framtíðinni í ríkari mæli en áður á
vegum viðskiptabanka og spari-
sjóða.
kvæmt stöðluðum teikningum, án
þess að kaupendur væru fyrir hendi.
Stálvík og Skipasmíðastöð Þorgeirs
og Ellerts á Akranesi höfðu heimild-
ir til smíði eins skips hvor, en
Slippstöðin á Akureyri fyrir tveimur
skipum. Sverrir sagði að ríkisstjórn-
in hefði nú samþykkt að stöðvarnar
fjórar fengju fyrrgreind leyfi, þrátt
fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar að
stöðva allar skipasmíðar og reyna að
beina stöðvunum inn á ný verkefni,
en það hlyti að kalla á einhvern að-
lögunartíma.
Aðspurður um hvernig skipasmíð-
arnar væru fjármagnaðar sagði
ráðherrann, að samkvæmt tillögu
fyrri ríkisstjórnar væru smíðarnar
fjármagnaðar að 60% úr Fiskveiða-
sjóði, 20% úr Ríkisábyrgðarsjóði og
með 5% láni úr Byggðasjóði. Hann
kvað rétt vera að sjóðir þessir ættu
við fjárþröng að búa og auðvitað yrði
að taka erlend lán til fjármögnunar.
Höfuðkúpu-
brotinn eftir
umferðarslys
NÍTJÁN ára gamall piltur liggur nú
mikið slasaður í sjúkrahúsi eftir al-
varlegt umferðarslys á Suðurlands-
braut, fyrir framan veitingahúsiö Sig-
tún.
Slysið varð laust fyrir klukkan
hálffjögur aðfaranótt laugardags-
ins. Pilturinn varð fyrir sendibifrdlð
og mun höfuðkúpubrotinn og lær-
brotinn. Hann var fluttur í slysa-
deild Borgarspítalans.
Öllum bönkum og sparisjóð-
um heimiluð gjaldeyrisviðskipti
— segir m.a. í bréfi viðskiptaráðherra til Seðlabanka