Morgunblaðið - 21.06.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.06.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 3 55,7% aukning á tóbaksinnflutningi Ronald F. Maryott Fundur í kvöld kl. 20.30: Viðfangs- efni varn- arliðsins SAMTÖK um vestræna samvinnu og Varðberg efna til fundar í Átt- hagasal Hótels Sögu kl. 20.30 í kvöld, þriðjudaginn 21. júní, þar sem Konald F. Maryott, aðmíráll, yfir- maður varnarliðsins á Keflavfkur- flugvelli, flytur erindi um viðfangs- efni varnarliðsins á líðandi stund. Ronald F. Maryott hefur starfað hér á landi í tæp tvö ár og hverfur bráðlega að öðrum verkefnum á vegum bandaríska flotans. Fyrir um það bil tveimur árum efndu Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg til fundar um svipað efni með forvera Maryotts, Rich- ard Martini, og vakti hann veru- lega athygli. Fundurinn er opinn félags- mönnum SVS og Varðbergs og gestum þeirra. Endurskoð- un á banka- kerfinu ljúki Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá viðskiptaráðuneytinu vegna nefndar um endurskoðun bankakerfisins: „Hinn 17. júlí 1981, skipaði þá- verandi viðskiptaráðherra nefnd „til að endurskoða allt bankakerf- ið, þar á meðal löggjöfina um Seðlabanka íslands og hlutverk hans með það markmið að mynda stærri og virkari heildir og ein- falda bankakerfið inna ramma heilsteyptrar löggjafar um við- skiptabanka." í nefnd þessa voru skipaðir þeir Lúðvík Jósepsson, Kjartan Jó- hannsson, Jón G. Sólnes, Matthías Á. Mathiesen og Halldór Ás- grímsson, sem var formaður nefndarinnar. Viðskiptaráðuneytið hefur ákveðið að óska eftir því að nefnd- in ljúki þeim verkefnum sem henni voru falin og skili tillögum til ráðuneytisins fyrir 15. sept. nk. Ráðuneytið leggur áherslu á, að með endurskoðaðri löggjöf um bankana verði reynt að koma í veg fyrir óæskilega útþenslu þeirra. Þar sem þeir Halldór Ásgríms- son og Matthías Á. Mathiesen hafa óskað eftir því að verða leyst- ir frá störfum 1 nefndinni, hefur viðskiptaráðherra í dag skipað í þeirra stað Björn Líndal lögfræð- ing og Þorstein Pálsson alþing- ismann, sem jafnframt hefur ver- ið skipaður formaður nefndarinn- ar.“ INNFLUTNINGUR á tóbaki, þ.e. vindlingum og „öðru tóbaki", jókst um 55,7% fyrstu fjóra mánuði ársins, þegar inn voru flutt samtals 204,9 tonn, borið saman við 131,6 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmætaaukningin milli ára er um 203%, eða 64 milljónir króna fyrstu fjóra mánuðina í ár, borið saman við 21,13 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Innflutningur á vindlingum jókst um 77,4% fyrstu fjóra mán- uðina, þegar inn voru flutt sam- tals 170,5 tonn, borið saman við 96,1 tonn á sama tíma I fvrra. Verðmætaaukning þessa innflutn- ings er um 248,5% milli ára, eða 55,9 milljónir króna, borið saman við liðlega 16 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Ef litið er á innflutning á „öðru tóbaki", þá hefur hann dregizt saman um 3,1% milli ára. Fyrstu fjóra mánuði þessa árs voru alls flutt inn 34,4 tonn, borið saman við 35,5 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmætaaukning innflutnings- ins milli ára er 59,2%, eða 8,1 milljón króna á móti 5,1 milljón króna í fyrra. í fylgd Bryndísar Schram Ein vika - 22. júní. - kr. 8.780 Er þetta ekki óskaferðin ykkar ? EINNIG BJÓÐUM VIÐ, SEM ENDRANÆR: Einnar viku hringíerð: Reykjavík - Newcastle - Bremerhaven - Newcastle - Reykjavík íyrir aðeins 9.110. í hringíerð þarítu engan erlendan gjaldeyri. eða: Reykjavík - Newcastle - Reykjavík kr. 10.600 - og bíllinn með. eða: Reykjavík - Bremerhaven - Reykjavík kr. 14.860 - og bíllinn með í íerðinni þann 22. júni verður Jazz-sport grúppan um borð og sýnir jazzfimleika á hverju kvöldi(3 prógröm). Enníremur kemur Robert Becker óperusöngvari íram fyrstu tvö kvöldin og syngur íyrir farþega. FARSKIP AÐALSTRÆTI 7 REYKJAVÍK SÍMI 2 5166

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.