Morgunblaðið - 21.06.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983
13
Reykjavíkurborg:
Ársreikning-
urinn 1982
samþykktur
ÁRSREIKNINGUR borgarsjóds
Reykjavíkur og stofnana hans fyrir
árið 1982 var samþykktur í borgar-
stjórn á fimmtudagskvöld að lokinni
síðari umræðu.
Niðurstöðutölur ársreikningsins
eru 1 milljarður 56 milljónir 972
þúsund kr., en til eignabreytinga
var varið taepum 194 millj. kr.
Tekið upp stjórn-
málasamband við
Alsír og Indónesíu
RÍKISSTJÓRN íslands hefur tekið
upp stjórnmálasamband við Alsír og
Indónesíu.
Frá þessu segir í fréttatilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu.
Þar segir einnig að ekki hafi verið
ákveðið hvenær skipst verður á
sendiherrum.
Staögreiösla
Hötum kaupanda að góöri 4—5
herb. ibúð i blokk á Stór-
Reykjavíkursvæöinu, bílskúr
ekki skilyrði. Kaupverö greitt
viö undirritun samnings, fyrir
rétta eign.
Austurberg
Rúmgóð 4ra herb. íbúö á jarö-
hæö. Góðar innréttingar. Sér
lóö. Laus fljótlega. Verö 1.300
þús.
Heiðarás
Vandað 340 fm fokhelt hús. Til-
búiö til afhendingar. Möguleiki
á aö hafa tvær sér íbúðir í kjall-
ara. Skipti hugsanleg á sérhæö
eöa raöhúsi t.d. raöhúsi í Fella-
hverfi.
Kópavogur
160 fm parhús á tveimur hæð-
um meö innbyggöum bílskúr.
Afh. tb. aö utan, en ófrágengiö
aö innan. Teikn. á skrifstofunni.
Frostaskjól
Fokhelt endaraöhús á tveimur
hæöum. Innbyggöur bílskúr. Til
afh. strax. Æskileg skipti á íbúö
í vesturbæ.
Arnartangi
Gott 145 fm einbýli ásamt 40 fm
bílskúr. Falleg lóö. Bein sala.
Verð 2.250 þús.
Hrafnhólar
Góð 4ra herb. íbúð á 3. hæð í
lyftuhúsi. Snyrtileg og skipu-
lögð. Verö 1.350 þús.
Austurberg
Rúmgóö 4ra herb. íbúö á jarð-
hæö. Góðar innréttingar. Park-
et. Sér lóö. Laus fljótlega. Verö
1.300 þús.
Sumarbústaöur
Höfum vandaöan 50 fm nýlegan
sumarbústaö í Hraunborgum,
Ölfusi. Allar innréttingar nýjar
og húsgögn fylgja meö.
LAUFAS
SÍÐUMÚLA 17
Magnús Axelsson
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
Karítas Sigurðsson mun í sumar starfa um borð í ms. Eddu á vegum Ferðamálaráðs. Ljósm. Kristján Einarsson.
„Starfið leggst vel í mig“
„STARFIÐ verður fyrst og fremst
fólgið í landkynningu," sagði Kar-
itas Sigurðsson í samtali við Morg-
unblaðið, en hún mun í sumar
veita forstöðu upplýsingaþjónustu
um borð í m/s Eddu á vegum
Ferðamálaráðs, Náttúruverndar-
ráðs og ferðaskrifstofanna. Hún
sagði að markmiðið með þessari
þjónustu væri að auka skilning og
áhuga erlendra ferðamanna á við-
kvæmri náttúru landsins, hvetja þá
til góðrar umgengni og greina frá
þeim reglugerðum sem nýlega
hafa verið settar um ferðir er-
lendra hópa til landsins auk ann-
arra reglna sem gilda á þessu
sviði. Slík þjónusta verður einnig
um borð í „Norröna“, skipi
„Smiril-Line“.
Starfsemin fer annars þannig
fram að skrifstofa verður starf-
rækt í skipinu þar sem ferða-
— segir Karitas
Sigurðsson
sem í sumar
sér um land-
kynningu um
borð í Eddu
langar geta fengið upplýsingar
um ástand vega, færð og veðr-
áttu, ferðir á vegum ferða-
skrifstofanna, gististaði og aðrar
þær upplýsingar sem ferðamenn
biðja um varðandi land og þjóð.
Þá mun Karitas veita aðstoð við
skipulag ferða og efna til funda
með ferðalöngum, sýna lit-
skyggnur og landkynningar-
myndir á myndböndum.
Á leiðinni frá íslandi og til
Evrópu mun Karitas gangast
fyrir rabbfundum með erlendu
ferðamönnunum, fá fram við-
horf þeirra um dvölina hér á
landi o.s.frv. Einnig mun hún að-
stoða íslendinga sem þess óska
um ferðir, gistingu o.fl. í New-
castle og Bremorhaven.
„Þetta leggst n.jög vel í mig.
Hér gefst einnig tækifæri til að
nálgast þá ferðamenn sem ferð-
ast um fsland á eigin farartækj-
um,“ sagði Karitas að lokum.
Þess má geta að hún er dóttir
Níelsar P. Sigurðssonar, sendi-
herra, og Ólafar Rafnsdóttur.
Hún hefur dvalist erlendis und-
anfarin 16 ár og talar sjö tungu-
mál. Á sumrin hefur hún starfað
hér heima hjá Ferðamálaráði og
Eddu-hótelum.
Breytingar á rekstri
Fæðingarheimilisins:
Miða að
aukinni
nýtingu
heimilisins
ÁÆTLAÐUR kostnaður vegna
breytinga á Fæðingarheimili
Reykjavíkurborgar nemur 854 þús-
und kr. og búist er við að sú áætlun
muni standast. Þá er gert ráð fyrir
að verja þurfi um 2,7 millj. kr. til
tækjakaupa en í hluta fæðingar-
heimilisins er nú verið að útbúa
skurðstofu vegna kvensjúkdóma-
lækninga. Þetta kom fram í svari
borgarstjóra Davíðs Oddssonar við
fyrirspurn frá Kristjáni Benedikts-
syni borgarfulltrúa um þessi mál.
Varðandi fyrirspurn um kostn-
aðarþátttöku ríkisins í þessum
framkvæmdum gat borgarstjóri
þess að gert væri ráð fyrir að ríkið
bæri 85% kostnaðar eins og lög
gerðu ráð fyrir en hins vegar hefði
heilbrigðisráðuneytið synjað um
vilyrði fyrir þessum framkvæmd-
um daginn fyrir síðustu kosn-
ingar. Hins vegar kvaðst borgar-
stjóri nú búast við að leyfi fengist.
Um ástæður þessara framkvæmda
sagði Davíð að í þær væri ráðist til
þess að auka nýtingu fæðingar-
heimilisins en hún væri ekki næg
og stefndi í 6 millj. kr. halla á
næsta ári að öllu óbreyttu.
Kristján Benediktsson borgar-
fulltrúi átaldi þessar framkvæmd-
ir og sagði að samkvæmt áliti
ráðuneytisins myndi skurðstofan
ekki standast nútímakröfur. Taldi
hann að hér væri illa að verki
staðið.
Stykkishólmur:
Fyrsti sýslufundur
nýja sýslumannsins
Stykkishólmi, 10. júní.
AÐALFUNDUR sýslunefndar Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýslu var
haldinn í Stykkishólmi 7.-9. þ.m.
og lágu mörg mál fyrir fundinum.
I*etta er fyrsti sýslufundur sem
nýskipaður sýslumaður, Jóhannes
Árnason, heldur hér. Stýrði hann
fundi og bauð fulltrúa velkomna og
lagði fram í fundarbyrjun dagskrá
fyrir alla dagana.
Nú þegar ljóst er að ólafsvík
hefir fengið kaupstaðarréttindi,
leiðir það af sjálfu sér að fulltrúi
þess sveitarfélags hættir þar
störfum, kom hreppsnefnd Ólafs-
víkur (nú bæjarstjórn) á fund
sýslunefndar og ræddi þessi mál
við nefndina. Það var í lokin sam-
þykkt að fulltrúi ólafsvíkur-
hrepps, sem nú er Ólafur
Kristjánsson verkstjóri, hefði rétt
til að mæta áfram á sýslufundum
með tillöguréttindum. Þá voru
rædd skipti milli sýslusjóðs og
ólafsvíkurkaupstaðar og kosin
nefnd til að ganga frá þeim skipt-
um.
Þá var lögð fram áætlun sýslu-
vegasjóðs og voru niðurstöðutölur
hennar kr. 1.855.813.- og um leið
ákveðið fjármagn í vegi hrepp-
anna. Fjárhagsáætlun sýslusjóðs
var einnig samþykkt á fundinum
og eru niðurstöður hennar kr.
968.000.-. Aðaltekjustofninn er
sýslusjóðagjald kr. 750.000.-.
Gjöld voru ákveðin sem hér seg-
ir: Til Amtbókasafnsins 150 þús.,
er það framlag móti Stykkis-
hólmshreppi. Til eyðingar refa og
minka kr. 137.000.-. Til byggða-
safns sýslunnar og Norskahússins
kr. 170.000.-.
Meðal annarra samþykkta sem
fundurinn gerði voru: 1. Sýslu-
fundur vill sem oft áður skora á þá
sem fjármagni ráða til vega-
framkvæmda í landinu að veita
meiru af fjármagni til nýbygginga
vega á Snæfellsnesi en verið hefir.
í því sambandi bendir fundurinn á
að óvíða á landinu muni vegakerf-
ið vera verra en á Snæfellsnesi,
þar miði nýbyggingu hægt og
viðhald sé ófullkomið.
2. Sýslunefndin skorar á stjórn-
völd að leiðrétta það misræmi sem
er í orkukostnaði milli lands-
svæða. Verði ekki skjót bót á ráð-
in, geti komið til stórfelldrar bú-
seturöskunar á landinu. 3. Sýslu-
nefndin vill benda á að á þessu
svæði hefir ekki fundist nýtanleg-
ur jarðhiti sem að gagni gæti
komið og vill því skora á Orku-
stofnun að ítarlegri jarðhitaleit
verði framkvæmd á Snæfellsnesi
svo úr því verði skorið hvort um
nýtanlegan jarðhita sé að ræða á
því svæði. Fólk sem hérna býr get-
ur ekki unað því lengur að þurfa
að greiða margfalt hærri upphæð
til upphitunar en þeir sem búa við
hitaveitur.
Fundurinn bendir á að á Snæ-
fellsnesi er greitt hærra raforku-
verð en víða annarsstaðar.
Fundurinn skorar á Rafmagns-
veitur ríkisins að gefa mönnum
kost á þriggja fasa rafmagni í öll-
um sveitum sýslunnar, þar sem
einfasa rafmagn veldur bændum
miklum aukakostnaði og torveldar
þeim að geta nýtt sér rafmagn
sem skyldi.
4. Útgáfa árbókar: Mikill áhugi
ríkti á fundinum á þessu máli og
var samþykkt að leita eftir því við
sögunefndina sem kjörin var á
seinasta aðalfundi að vinna áfram
að framgangi málsins.
Tveir sýslunefndarmenn höfðu
látist frá því seinasti aðalfundur
var haldinn. Voru það þeir ólafur
Bjarnason frá Brimilsvöllum sem
um áraraðir átti þar sæti og
Haukur Sigurðsson, Árnarstöðum,
en hann átti í nokkur ár sæti í
sýslunefnd. Minntist sýslumaður
þeirra á fundinum.
Þá kynnti sýslumaður fyrir
nefndinni hina miklu bóka og
listaverkagjöf sem Ketill Jónsson
frá Hausthúsum í Eyjahreppi arf-
leiddi sýsluna að.
{PfflKIKSISTOIK
"GÆTU VERIt) PIN6MENN1'
Fréttaritari.