Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983
15
Geigvænleg hljóð
hversdagstilveru
Leiklist
Jóhann Hjálmarsson
Ríkisútvarpið hljóðvarp:
ÚTILEGAN og 500 METRAR
eftir Steinunni Sigurðardóttur.
Leikstjórar: Viðar Víkingsson (Úti-
legan) og Arnar Jónsson (500
metrar).
Hinn nýi leiklistarstjóri út-
varpsins, Jón Viðar Jónsson,
hefur lýst yfir áhuga sínum á að
fá íslenska höfunda til að semja
leikrit fyrir útvarp. Er vonandi
að honum verði ágengt í því efni.
Ekki veit ég hvort Steinunn Sig-
urðardóttir hefur samið leikritin
Útileguna og 500 metra beinlínis
fyrir útvarp, en hún ríður á vað-
ið eftir því sem ég best veit. 500
metrar er fyrsta útvarpsleikritið
sem tekið er upp í stereó, en
tæknifróðir menn telja að sú að-
ferð muni skila betri árangri en
sú gamla.
Steinunn Sigurðardóttir er
enginn nýgræðingur í skáldskap
(að vísu kölluð það fyrir
skemmstu). Hún hefur fyrir
löngu skipað sér í röð athyglis-
verðra ljóðskálda, sent frá sér
prýðilegt smásagnasafn og látið
nokkuð að sér kveða í gerð sjón-
varpsleikrits. Nú notar hún út-
varpsmiðilinn eins og svo mörg
skáld hafa gert. Einkum í Þýska-
landi hefur útvarpsleikritið orð-
ið áhrifamikið og það er enginn
tilviljun að sá sem hefur náð
einna lengst þar er einmitt ljóð-
skáld, Gúnter Eich. Hann er nú
látinn. Af ljóðskáldum hér
heima sem að undanförnu hafa
samið útvarpsleikrit sem eftir
hefur verið tekið man ég einna
helst eftir Erlendi Jónssyni.
í Útilegunni eru Þingvellir
vettvangur vægast sagt óhugn-
anlegra atburða. Fólk sem í sak-
leysi sínu hefur tjaldað í Þjóð-
garðinum fær heimsókn varðar á
þyrlu, en hann reynist heldur
betur skeleggur í starfi sínu.
Hann hrekur hjónin með veikl-
aða dóttur út í regnvota og
hryssingslega nóttina. Þessi
hjón eru að því leyti óvenjuleg
að þau eiga ekki bíl eins og allir
hinir. Þótt verðinum sé boðið
upp á te og hann þiggi það eru
viðbrögð hans engu að síður
kaldranaleg. Hann segir hjónun-
um að þau megi ekki tjalda á
Steinunn Sigurðardóttir
þessum stað, þau séu ólögleg og
eigi að „koma sér á nóinu“. Þeg-
ar kindur (eiginlega ókindur)
gera innrás í þyrluna hans skýt-
ur hann á þær. Hjónunum ógnar
hann líka með byssu.
Það er ekki laust við að nýleg-
ir voðaatburðir rifjist upp við að
hlusta á Útileguna. Með þessari
blöndu fáránleika og hversdags
leika hlýtur Steinunn að vera að
vara við því að mönnum sé gefið
of mikið vald, ekki síst mönnum
sem eru vanþroskaðir að ein-
hverju leyti. Hnyttin smámynd
mætti kannski segja um leikrit-
ið, en ekki sannfærði það mig
verulega. Leikararnir fóru aftur
á móti vel með hlutverk sín:
Tinna Gunnlaugsdóttir, Harald
G. Haralds, Steinunn Þórhalls-
dóttir og Guðmundur Ólafsson.
500 metrar var meira í anda
gáska en Útilegan. Gamlir elsk-
endur hittast í sundlaugunum,
rifja upp liðna ævi og efna til
nýrra kynna. Svo smálegt var
þetta leikrit og orðræður veiga-
litlar að eiginlega skil ég ekki
ástæðuna fyrir að útvarpa því.
Það eina sem mér fannst áhrifa-
ríkt í leikritinu var tæming
laugarinnar og hvernig fólkið
var rekið upp úr gegnum hljóð-
nema. Það átti eflaust að minna
á það hvernig lífið kulnar út og
dauðinn tekur við að lokum.
Konan hafði verið skorin upp við
sjúkdómi sem óvíst var hvort
tekist hefði að lækna.
Leikurinn i 500 metrum er
ekki umtalsverður. Leikurunum
var eiginlega vorkunn að þurfa
að flytja þennan texta. En þeir
sem léku voru Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson,
Þóra Friðriksdóttir, Sigríður
Þorvaldsdóttir, Kjartan Bjarg-
mundsson o.fl. Þeir sem léku
best (ef slíkt orðalag er við hæfi)
voru tæknimenn útvarpsins.
Þeir skiluðu verulega góðu verki
sem ástæða er til að fagna.
Hlutur tæknimannanna í Úti-
legunni var einnig með afbrigð-
um.
Sviffluga dregin á loft á Sandskeiði.
Sumarstarf
hafið hjá
svifflugmönnum
Svifflugmenn eru komnir á fulla
ferð á Sandskeiðinu, þar sem er
bækistöð svifflugs sunnan heiða. Á
hverju sumri eru námskeið fyrir þá
sem spreyta vilja sig á svifflugi og
eru þau öllum opin, segir í frétt frá
Svifflugfélaginu.
Svifflugkennsla hófst á Sand-
skeiði 1. júní sl. og er kennt á
kvöldin þegar veður leyfir. Um
helgar gengur annað flug fyrir á
Sandskeiði, en þó er kennsluflug
tekið inn á milli.
Svifflugfélag íslands rekur nú
tvær kennsluvélar, þrjár einsætur
og eina tveggja manna mótorsvif-
flugu. I frétt frá félaginu segir að
kennarar þess á Sandskeiði séu
reiðubúnir að svara spurningum
þeirra, sem fræðast vilja nánar
um svifflugið.
Vestur-
bræður í
Bústaða-
kirkju
í kvöld
KARLAKÓRINN Vesturbræður frá
Seattle í Bandaríkjunum heldur tón-
leika í Bústaðakirkju í kvöld og hefj-
ast þeir kl. 20.30. Þetta verða einu
tónleikar Vesturbræðra í Reykjavík í
þessari fyrstu ferð kórsins til ís-
lands, en svo sem kunnugt er, er
þessi kór skipaður Vestur-íslending-
um. Stjórnandi kórsins er Ernest
Anderson og einsöngvarar eru m.a.
Dr. Edward Palmason, Jon Palraa-
son og Delbert Anderson. Agnes
Löve er píanóleikari kórsins hér á
landi. Á þjóðhátíðardaginn söng kór-
inn á Elliheimilinu Grund og við
Menntaskólann í Reykjavík við
mjög góðar undirtektir áheyrenda.
Á tónleikaskrá kórsins eru t.d.
lög úr söngleikjunum Oklahoma,
Carousel, South Pacific og My
Fair Lady og einnig nokkrir
negrasálmar og hið þekkta lag
Amazing Grace i mjög fallegri út-
setningu. Þá syngja Vesturbræður
nokkur íslensk lög, þar á meðal
eftir Ragnar H. Ragnar á ísafirði,
sem var söngstjóri nokkurra kór-
félaga í Karlakór íslendinga i
Norður-Dakota fyrir mörgum ár-
um, og er Ragnar kominn til
Reykjavíkur til að hitta sína
gömlu vini og hlýða á söng þeirra.
Á morgun, miðvikudag, syngur
Karlakórinn Vesturbræður í
Logalandi í Reykholtsdal kl. 21.00
og á laugardaginn i Aratungu kl.
21.30.
- JAFNVEL HEILU VEGGIRNIR
Ótal möguleikar, sem gera húsið bæði fallegra
og þægilegra.
Unnt er t.d. að fá rennihurð með rafhituðum
þröskuldi fyrir svalirnar eða veröndina.
Við framleiðum einnig sjálfvirkar rennihurðir, sem
opnast um leið og einhver nálgast þær, — hafa
oft komið að góðum notum.
KYNNTU ÞÉR VERÐ OG GÆÐI.
RAFHA — VÖRURSEM ÓHÆTTERAD TREYSTA
---I72-X3Ljj-h-MJL----------
Verslunin Rafha, Austurveri, Háaleitisbraut 68.
Simar: 84445,86035. £
Hafnarfjörður, símar: 50022, 50023, 50322. £
PURINA kattafóðrið fæst í helstu
MATVÖRUVERSLUNUM
NÆRING VIÐ HÆFI - RANNSOKNIR TRYGGJA GÆÐI