Morgunblaðið - 21.06.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983
19
Orð páfa í Jasna Gora:
„Þjóðin
er þreytt
- en þó full trúnaðartrausts og vonar“
ÞEGAR Jóhannes Páll páfi II talaði til trúaðs fólks frá Szczecin, sem komið
var til Jasna Gora, gerðist hann berorðari um ástandið í Póllandi og hlutsk-
ipti þjóðarinnar undir járnhæl kommúnista en hann hafði fyrr verið í heim-
sókn sinni til landsins. Hér á eftir verður stiklað á stóru í ræðu hans:
„Kæru bræður og systur. Þið er-
uð fulltrúar vinnunnar, menning-
arlegs, andlegs og trúarlegs lífs í
þessu landi. Eg beini máli mínu til
ykkar, nemenda og kennara, til
ykkar, verkamannanna við skipa-
smíðastöðvarnar, hafnarverka-
mannanna, málmsmiðanna, verk-
smiðjuverkamannanna, sjómann-
anna og til ykkar, sem erjið land-
ið.
Þið hafið komið til fagnaðarins í
Jasna Gora með þrengingar þjóð-
arinnar og kirkjunnar í huga. Þið
hafið fengið að reyna margt, erfið-
leika eftirstríðsáranna og nú það,
sem við erum orðin vön að kalla
„hin síðustu ár“. Þið hafið komið
til Móðurinnar í Czestochowa með
sorg í hjarta, eða jafnvel fullir
reiði, og sjálf nærvera ykkar hér
er vitnisburður, sá vitnisburður,
sem allur heimurinn stóð agndofa
fyrir: þegar pólski verkamaðurinn
reis upp til að verja rétt sinn með
fagnaðarerindið í annarri hendi
og bænarorð á vörum. Myndirnar,
sem bárust út um heimsbyggðina
árið 1980, létu hjörtu mannanna
og samvisku ekki ósnert.
Nú á þessari stundu, þegar við
horfumst í augu og Móðir okkar í
Jasna Gora horfist í augu við
okkur, tárvot og sorgbitin en full
hlýju og móðurástar, þá get ég
ekki látið hjá líða að minnast
stuttlega á þrengingar fólksins í
þessu landi, sem þó eru mestar í
sálum þess. Þjóðin er þreytt, en
hún er'þó full trúnaðartrausts og
vonar. Eg vil eiga hlutdeild í þess-
um vitnisburði."
Samstaða í Poznan
Ein og hálf milljón manna fagnaði Páli páfa í borginni Poznan í Vestur-
Póllandi þegar hann messaði þar í gær. Borðum með nafni Samstöðu var
haldið hátt á loft og allur mannfjöldinn lyfti hendi á loft og myndaði
sigurmerkið, V-merkið, með fingrunum. ap.
Yasser Arafat. Moammar Khadafy
Arafat harðorður
í garð Khadafys
Segir hann standa fyrir samsæri gegn sér
Damaskus, 20. juní. AP.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsisfylkingar Palestínumanna (PLO), hélt í dag
fund með öðrum forystumönnum hreyfingarinnar, sem kann að ráða því,
hvort honum tekst að brjóta á bak aftur samsæri það gegn sér, sem hófst
fyrir sex vikum. Lýsti Arafat því yfir, að hann myndi berjast gegn allri
viðleitni annarra arabískra þjóða til þess að gera Palestínumönnum ókleift
„að ráða sjálfir örlögum sínum“.
„Ég veit, hve traustur sá
grundvöllur er, sem ég hef undir
fótum mér,“ sagði Arafat á fundi
með fréttamönnum í dag eftir sjö
klukkustunda fund i 13 manna
miðstjórn skæruliðahreyfingar-
innar Fatah, sem fram fór í Dam-
askus, höfuðborg Sýrlands, í dag.
„Ég er forseti Frelsisfylkingar
Palestínumanna. Ég er yfirmaður
herliðs hennar og það er skylda
mín að berjast fyrir því, að Palest-
ínumenn fái sjálfir að ráða örlög-
um sinum,“ sagði Arafat ennfrem-
ur.
Fundi miðstjórnar PLO, sem
fram fór fyrir luktum dyrum, lauk
með því að ákveðið var að kalla
saman sérstakan fund i 76 manna
byltingarráði Fatah-hreyfingar-
innar seinna í kvöld til þess að
taka þar endanlega ákvörðun um,
hvernig brugðizt skuli við sam-
særistilraunum þeim, sem Saed
Mous ofursti hefur staðið fyrir, en
hann er betur þekktur undir dul-
nefninu Abu Mousa.
Arafat var harðorður, er hann
ítrekaði fyrri áskanir í garð Khad-
afys, leiðtoga Líbýumanna, að sá
síðarnefndi hefði fyrirskipað
herdeild frá Líbýu, sem barizt hef-
ur í austurhluta Líbanon, að veita
uppreisnarmönnum innan PLO
herstuðning í árás þeirra á stöðv-
ar Fatah á laugardag með þeim
afleiðingum, að 3 menn biðu bana
og 10 særðust.
Strendur Barbados:
Mannlaust vopnabirgöa-
skip fannst á reki
Caracas, Venezúela, 20. júní. AP.
BIRGÐASKIPIÐ „Skýið“, skráð í
Kýpur, fannst mannlaust á reki
skammt undan ströndum Barbados í
Karabíska hafinu í gær, en um borð
voru 5000 gámar af sovéskum fall-
byssuskotfærum.
Rafael Bartoelli Moreno, að-
stoðarflotaforingi í sjóher Vene-
zúela kvað það af og frá að skipið
hafi verið á leið til einhvers ríkis í
Mið-Ameríku með vopnin. Að
sögn Moreno var skipið á leið frá
Júgóslavíu til Nígeríu, en síðast
kom skipið til hafnar á Kanaríeyj-
um. Þessar upplýsingar fékk yfir-
maðurinn úr dagbók skipsins sem
var að hans sögn skilmerkilega
færð. í dagbókinni kom fram að
skipið var við Kanaríeyjar þann 6.
apríl síðastliðinn og síðast var
fært í bókina daginn eftir. Banda-
ríska strandgæslan bjargaði
mönnum af fleka 8. apríl á svipuð-
um slóðum og skipið var yfirgefið.
„Skýið“ er 73 metra langt flutn-
ingaskip, talsmenn sjóhers Vene-
zúela sögðu fréttamönnum að svo
virtist sem eldur hefði komið upp
um borð í skipinu, en að öðru leyti
væri allt á huldu um hvers vegna
skipið var yfirgefið þegjandi og
hljóðalaust. Utanríkisráðuneytið í
Venezúela hefur tekið málið í sín-
ar hendur og ætlar að freista þess
að komast til botns í málinu.
Noregur:
Hitabylgja syðst
en snjókoma nyrzt
O.sló, 20. júní. Frá frétUritara Mor^unblaósins, Jan Krik Lauré.
móti „sæmilegasta“ vetrarveður.
Þar lokaðist einn fjallvegur við
Tromsö sökum ófærðar í dag, er
þar gerði mikla fannkomu og skaf-
renning. Snjóplógar og önnur
snjóruðningstæki voru kölluð út,
en á aðeins nokkrum klukkustund-
um snjóaði þarna svo mikið, að
snjórinn var orðinn nær hálfs
metra djúpur, þegar stytti upp.
ÞAÐ eru engar ýkjur, þegar talað er
um margbreytilegt veður í Noregi
um þessar mundir. í dag var 32 stiga
hiti í forsælunni víða í Suður-Noregi
og gekk umferð og atvinnulíf þar
hægt og treglega sökum hitans. Allar
baðstrendur voru troðfullar, einkum
af skólabörnum, en nú er hafin
fyrsta vika sumarleyfis þeirra í Nor-
egi.
í Norður-Noregi var aftur á
írönsk yfirvöld:
Hengdu 16 Baháía
New York, 19. júní. AP.
TALSMAÐUR Baháítrúarsamtak-
ánna í New York greindi frá því í
gær, að yfirvöld í íran hefðu tekið af
lífi tíu konur sem tilheyrðu söfnuðin-
um. Þar með hefðu 16 aftökur á Ba-
háífólki farið fram í síðustu viku.
Konurnar voru frá 18 til 54 ára
gamlar og þeim var gefið að sök að
hafa neitað að afneita trú sinni og
gerast múhameðstrúar.
Konurnar tíu og karlmennirnir
sex sem líflátin voru fyrr í vikunni
voru úr hópi áttatíu sem hand-
teknir voru í október síðast-
liðnum. Hefur fólkið setið á bak
við lás og slá síðan og sætt „við-
amiklum yfirheyrslum og þrýst-
ingi“, eftir því sem talsmaðurinn
sagði. Hann sagði ennfremur að
150 Baháiiar séu í haldi í Iran
fyrir engar sakir aðrar en að vera
trúir trú sinni. Þá hefur 141 verið
líflátinn fyrir sömu sakir frá því
að Ayatollah Khomeini tók við
völdum í febrúar 1979. Baháíar
telja um 350.000 í íran.
Aftökurnar í síðustu viku hafa
vakið ugg í röðum Baháía og
óttast þeir að þær séu undanfari
harðnandi ofsókna. „Venjulega
hafa aðeins verið 2—3 aftökur í
einu, en 16 á einu bretti er ný
stefna og við óttumst framhaldið,"
sagði umræddur talsmaður Bahá-
ía.
Handþurrkur
í staðinn lyrii tvist og grisju
Tork á
Tork þurrkurnar eru
sérstaklega framleiddar
fyrir atvinnulífið, hvort
sem um er að rœða
olíuþurrkur, þurrkur lyrir
elektrónisk tœki, þurrkur
tyrir eldhús og mötu-
neyti, verkstœðisþurrkur
eða aírafmagnaðar
þurrkur fyrir tölvur, ljós-
nœma hluti og ljós-
myndatœki.
Hafðu samband við
söludeild okkar og fdðu
upplýsingar um Tork
þurrkur, sem hœfa
þínum vinnustað.
dk) asiacohf
Vesturgötu 2, P.O.
Box 826, 101 Reykjavfk
slmi 26733
VSQ