Morgunblaðið - 21.06.1983, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983
29
lltotgmiltffifrft
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 230 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö.
Óþarfar áhyggjur
Dagbladsins-V ísis
Dagblaðið var enn við lýði
þegar ríkisstjórn Gunn-
ars Thoroddsen kom til sög-
unnar í febrúar 1980 og tók
blaðið þá skýra afstöðu með
stjórninni meðal annars
vegna niðurstöðu í skoðana-
könnun þess um álit almenn-
ings á ríkisstjórninni. Áhrifa
þessa stuðnings gætti greini-
lega í ritstjórnargreinum
Dagblaðsins-Vísis eftir sam-
einingu blaða með þessu nafni
undir einn hatt. Var ekki unnt
að líta öðrum augum á rit-
stjórnarskrif hins tvíeina
blaðs en það væri stjórnar-
blað allt framundir hið síð-
asta, þegar almenningur hafði
snúið baki við stjórninni og
stefna hennar reynst mis-
heppnuð í öllum meginatrið-
um. Eftir stjórnarskiptin er
málum þannig háttað að ann-
ar ritstjóra Dagblaðsins-Vísis
er ábyrgðarmaður ríkisstjórn-
ar Steingríms Hermannsson-
ar. Stóð ritstjórinn að öllum
ákvörðunum þingflokks sjálf-
stæðismanna í stjórnarmynd-
unarviðræðunum.
Því er þetta rifjað upp, að á
laugardag er í forystugrein
Dagblaðsins-Vísis lýst
áhyggjum yfir því að Morgun-
blaðið sé ekki nógu einarðlegt
í stuðningi sínum við nýju rík-
isstjórnina. Finnur Dagblað-
ið-Vísir að því að hér í blaðinu
skuli hafa verið gagnrýnt, að
ekki sé efnt til sumarþings.
Jafnframt tekur Dagblaðið-
Vísir upp þykkjuna fyrir Tím-
ann, málgagn Framsóknar-
flokksins, sem hefur varið
ákvarðanir ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar í
einu og öllu, svo sem kunnugt
er. Finnst Dagblaðinu-Vísi
ámælisvert að Morgunblaðið
skuli hafa lagt spurningar
fyrir Tímann vegna ábend-
inga ritstjóra Tímans um að
líklega sé heppilegast að
svipta forseta íslands forræði
í stjórnarmyndunarviðræðum
og fela það forseta alþingis.
Og enn telur Dagblaðið-Vísir
það óviðurkvæmilegt, að
Morgunblaðið svari rang-
færslum Tímans sem haldið
er á loft til að gera óskirnar
um að alþingi verði kallað til
sumarfunda tortryggilegar.
Raunatölu Dagblaðsins-Vísis í
forystugrein á laugardag lýk-
ur með þessari döpru niður-
stöðu: „Bræðin í rifrildi Morg-
unblaðsins og Tímans nú lofar
ekki góðu um framhaldið í
stjórnarsamstarfinu."
Hér verður ekki leitt getum
að því, að niðurstaðan í
Dagblaðinu-Vísi sé rökrétt af-
leiðing af reynslu blaðsins af
því að styðja ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsen. Það
treysti sér ekki til að styðja
stjórn Steingríms Her-
mannssonar úr því að það tel-
ur sig bara eiga samleið með
Tímanum en geti ekki gengið
að afstöðu Morgunblaðsins
vísri. Umvöndunartónninn í
forystugrein Dagblaðsins-
Vísis á laugardag í garð Morg-
unblaðsins verður ekki skilinn
á annan veg en þann, að rit-
stjórar Dagblaðsins-Vísis líti
svo á að sem eindregnir
stjórnarsinnar nú eins og áð-
ur hafi þeir fullt umboð til að
veita Morgunblaðinu ákúrur
og knýja það til stjórnarholl-
ustu.
Enginn þarf að vera í vafa
um hug Morgunblaðsins til
ríkisstjórnar Steingríms Her-
mannssonar. Honum var lýst í
forystugrein Morgunblaðsins
sama daginn og stjórnin var
mynduð, fimmtudaginn 26.
maí. Þar sagði meðal annars:
„Spurningin er hins vegar sú,
hvort stjórnmálamönnunum
tekst að sannfæra þjóðina um
nauðsyn hins sameiginlega
átaks, nauðsyn þeirra fórna,
sem færa verður til að á ný
skapist hið æskilega iafnvægi
í þjóðarbúskapnum. í því efni
bíða hinnar nýju stjórnar
mikil verkefni, að upplýsa
þjóðina um alla þætti hins vá-
lega viðskilnaðar og segja rétt
frá í öllum greinum. Takist
ekki að koma þeim rökum til
skila til alls almennings, sem
eru forsendur hinna harka-
legu aðgerða er öll hin mikla
vinna sem stjórnmálamenn-
irnir lögðu á sig við myndun
ríkisstjórnarinnar unnin fyrir
gýg. í því efni hvílir sérstak-
lega rík skylda á framsóknar-
mönnum, sem setið hafa í rík-
isstjórn síðan 1971.
Hinni nýju ríkisstjórn
fylgja góðar óskir allra þjóð-
hollra manna. Það á að gefa
henni tækifæri til að takast á
við hina miklu erfiðleika í
þeirri von að hún geti laðað
fram alla bestu krafta meðal
landsmanna. Stjórnin verður
að sjálfsögðu dæmd af verk-
um sínum."
Framsóknarmönnum og rit-
stjórum Dagblaðsins-Vísis
kann að þykja að sér þrengt
með því sem segir innan
gæsalappanna. Hitt er víst að
Morgunblaðið hefur verið
sjálfu sér samkvæmt frá
fyrsta degi ríkisstjórnarinnar
og áhyggjur Dagblaðsins-
Vísis vegna þess eru óþarfar.
Stjórnarsamstarfið hefur
vonandi meira þanþol en rit-
stjórar blaðsins halda.
Þrjú fálkahreið-
ur rænd í vor?
Rætt við Ólaf Karl Nielsen fuglafræðing, sem kom að hreiðrunum tómum
AÐ ÖLLUM líkindum hefur eggjum
verið stolið úr þremur fálkahreiðrum
á Noröurlandi í vor. Ólafur Karl
Nielsen fuglafræðingur, sem vinnur
að rannsóknum á lifnaðarháttum
fálkans, kora að þessum hreiðrum
um 20. maí síðastliðinn. Þá voru ný-
legar slóðir við þrjú hreiður, sem öll
eru á kunnum fálkaslóðum á Norð-
urlandi, og hreiðrin tóm.
Eins og Mbl. skýrði frá fyrr í
þessum mánuði, höfðu landverðir I
Mývatnssveit heyrt um fálka-
eggjaþjófnað úr einu hreiðri, en
það var Ólafur sem varð fyrstur
var við þetta. Blm. náði tali af
ólafi vegna þessa máls, er báðir
voru fyrir skömmu staddir á
Húsavík. Vildi hann ekki fullyrða
að eggjunum hefði verið stolið úr
hreiðrunum, þó líklegt væri, og
sagði að fálkar hefðu sest f þau öll
í vor. Fálki hefði öruggiega orpið í
eitt hreiðrið, því hann hefði fundið
brotið egg fyrir neðan það og af
ummerkjum að dæma hefði lík-
lega einnig verið orpið í hin tvö í
vor. Þegar Ólafur kom að hreiðr-
unum voru fálkar ennþá við tvö
þeirra.
Ólafur sagðist ekki vita hvort
sömu menn hefðu verið á ferð við
öll hreiðrin, en ummerki hefou
verið við þau eftir allt upp í þrjá
menn. Auk slóða við þessi þrjú
hreiður, sem að öllum lfkindum
hefur verið orpið í í vor, sagði
Ólafur að slóðir hefðu verið við
nokkur hreiður sem ekki hefði
verið orpið í á þessu vori.
Aðspurður um hvaða áhrif það
Ólafur Karl Nielsen fuglafræðingur.
Hann rannsakar lifnaðarhætti fálk-
ans og kom hann að þremur hreiðr-
um sem að öllum líkindum hafa ver-
ið rænd í vor.
hefði á fálkana þegar eggjum
þeirra væri stolið, sagði Ólafur að
eitt ár dytti örugglega úr varpi
hjá þeim, því þeir verptu ekki aft-
ur það vorið. Það væri slæmt, því
talið er að aðeins séu 200—400
fálkapör hér á landi og aðeins lítill
hluti þeirra verpir árlega. Sagði
hann að fálkarnir gætu flutt sig
og horfið og gæti þjófnaður úr
hreiðrum og umgangur við þau
orsakað það að fálkasetur legðust
í eyði.
Ölafur sagði einnig að erfitt
væri að flytja eggin úr landi án
þess að dræpist í þeim, unga þeim
út og ala ungana upp, en þeir sem
stunduðu þessa iðju væru fag-
menn sem hefðu kunnáttu, tæki og
aðstöðu til að framkvæma þetta
verk. „Ég vil endilega hvetja fólk
til að vera á verði gagnvart fólki
sem er að spyrjast fyrir um fálka
og gefa alls ekki upplýsingar um
fálkahreiður sem það þó kynni að
vita um,“ sagði Ólafur.
Annars sagði Ólafur að mjög
erfitt væri að verja fálkann, hann
væri dreifður um allt land og erf-
itt að standa þjófana að verki.
Sagði hann að hækka þyrfti sektir
við brotum og auka eftirlitið, sér-
staklega snemma á vori, bæði
heima í héraði og við tollskoðun á
farangri manna þegar þeir færu
úr landi. Þá sagði hann mikla þörf
á að uppfræða almenning betur
um fálkann því rannsóknir sýndu
að um þriðjungur þeirra fálka,
sem finnast dauðir á víðavangi
hér á landi, hefði verið skotinn.
Aðspurður um þá hugmynd sem
nefnd hefur verið við blm. að
kosta mætti aukið eftirlit með
fálkanum með því að taka tvö af
hverjum fjórum eggjum sem fálk-
inn venjulega yrpi árlega, unga
þeim út, ala upp ungana og temja
og selja síðan úr landi, sagði Ólaf-
ur: „Fálkatekja var mikil til forna
en ef ætti að taka það upp í dag að
nytja fálkann til að fjármagna
verndarstarfið væri það hættulegt
fordæmi, því vafasamt er að
stoppað yrði við það.“ Taldi Ólafur
þessa hugmynd fráleita, enda væri
Talið er að skipulagðir hópar fagmanna vinni að þvf að stela fálkaeggjum og
ungum þar sem til þeirra næst, m.a. á íslandi, enda svimandi upphæðir sem
fást fyrir fálka, sem seldir eru til Arabalanda, þar sem þeir eru tamdir og
notaðir til veiða, enda fálkinn frægur fyrir þrótt sinn og flugfimi. Þó fálkinn
sé alfriðaður og njóti sérstakrar verndar skv. lögum, virðist það duga
skammt. Myndin er af uppstoppuðum fálka og einu fálkaeggi, en fálkar
verpa um fjórum eggjum að meðaltali. MorgunblaðiA/Guðjón.
meðalfjöldi unga sem fálkapar
kæmi upp um það bil þrír, en oft
kæmi fálki fjórum ungum upp.
Auk þess myndi slíkt valda mikilli
truflun á fálkaslóðum sem skapað
gæti hættu á að fálkinn afrækti,
þ.e. hann hætti að liggja á eggjun-
um og þá dræpist í þeim. Taldi
hann að slík fjármögnunaraðferð
verndarstarfs myndi valda meira
tjóni en þeir yllu sem nú stela
fálkaeggjum.
Þetta er þriðja árið sem ólafur
fylgist með fálkanum og sagði
hann að þetta hefði verið hart vor
fyrir fálkann og varpið gengið illa,
það hefði bæði verið lítið og seint
á ferðinni. Sagði hann að þetta
væri lélegasta vorið hjá fálkanum
síðan hann hóf rannsóknir sínar.
Snæfellsnes:
Ófleygur
og illa á
sig kom-
inn fálki
fannst í
Breiðuvfk
Laugabrekku, Breiduvíkurhreppi, 20. júní.
FÁLKI fannst á Stóra-Kambi
í Breiöuvíkurhreppi síðdegis
á föstudag, 17. júní. Ingjaid-
ur Indriðason bóndi þar fann
fálkann stutt frá þjóðvegin-
um, austan við túnið.
Fálkinn var illa á sig kominn,
rennandi blautur og gat ekki
flogið. Ingjaldur náði fálkanum,
fór með hann heim og hjúkraði
honum eftir bestu getu. Lét
hann fálkann í búr og gaf hon-
um fugl og vatn en í fyrstu vildi
hann ekkert éta. En seint um
kvöldið og um nóttina fór hann
að kroppa í kjötið.
Fréttaritari fór að Stóra-
Kambi daginn eftir. Fálkinn var
þá orðinn þurr og allur að hress-
ast.
— Finnbogi.
Morgunblaðiö/ Finnbogi Lárusson.
Ingjaldur Indriðason bóndi á Stóra-Kambi í Breiðuvík með fálkann sem hann fann þar
skammt frá bænum, rennandi blautan og illa á sig kominn. Myndin er tekin daginn eftir að
fuglinn fannst og var hann þá heldur farinn að braggast.
Þríburarnir skírðir
á Djúpavogi 17. júní
ÞRÍBURARNIR sem þau hjónin
Guðmunda Brynjólfsdóttir og Reyn-
ir Arnórsson eignuðust í vetur voru
skfrðir í Djúpavogskirkju á 17. júní.
Séra Kristinn Hóseasson skírði
börnin og hlutu þau nöfnin Njáll,
Bryndís og Asdís.
„Þau eru öll hress og spræk,
taka rispu á kvöldin og grenja þá
öll í kór,“ sagði Guðmunda, þegar
Mbl. hafði samband við hana í
gær. „Þá er sannarlega í mörg
horn að líta, en sem betur fer eru
þau annars róleg. Ég er ein með
þau á daginn, Reynir og elsta dótt-
ir mín eru að vinna.
Okkur langar að þakka þeim
sem hafa sýnt okkur velvilja og
sent okkur gjafir, og sérstakar
þakkir viljum við flytja Gunnari
Kvaran og Milupa-umboðinu, en
þessi tvö fyrirtæki hafa séð okkur
fyrir barnamat og þurrmjólk
okkur að kostnaðarlausu og hefur
það verið mikil hjálp."
Lenging fæðingarorlofsins:
Er málinu á allan
hátt velviljaður
- segir Matthías Bjarnason heilbrigðis- og tryggingaráðherra
„UMSÓKN okkar til Tryggingar-
ráðs um lengingu á fæðingarorlofi
vegna þríburafæðingar, hefur verið
synjað vegna skorts á lagaheimild,"
sagði Svava Stefánsdóttir félags-
fulltrúi á Landspítalanum í samtali
við Mbl. í gær, en hún ásamt Þóru
Fischer kvensjúkdómasérfræðingi
hafa í samráði við foreldra þríbur-
anna sem fæddust á spítalanum í
vetur sótt um lengingu á fæðingar-
orlofi móðurinnar.
„í lögum er gert ráð fyrir
þriggja mánaða fæðingarorlofi
fyrir konur og fjórða mánuðinum
ef um fleirburafæðingu eða veik-
indi móður eða barns er að ræða,“
sagði Svava.
„Enginn munur er gerður á tví-
bura- og þríburafæðingu, fjórir
mánuðir eru hámark og sama
hverjar aðstæður eru. í þessu til-
felli búa hjónin úti á landi og
þurfti konan að koma hingað til
Reykjavíkur í skoðun. Eftir að
börnin voru fædd dvaldist hún svo
hér í tvo mánuði þar til spítalinn
sleppti af þeim hendinni. Þau eiga
þrjú börn fyrir, yngst 4 ára og þar
sem þau búa er enga heimilishjálp
að fá.“
✓
Mbl. hafði samband við Matthí-
as Bjarnason heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra. Varðandi
þetta sagði hann að málið hefði
borist sér fyrst i gær og væri því
ekki langt á veg komið, en hann
væri því á allan hátt velviljaður.
Morgunbladið/Ingimar.
Séra Kristinn Hóseasson skírir þríburana í Djúpavogs' kju. Frá vinstri, Brynjólfur heldur
bróður sínum, Njáli, undir skírn, Kristbjörg Snjólfsdó r, móðir Reynis, heldur á Ásdísi og
Guðmunda heldur á Bryndísi.
Þrír af sjö fulltrúum íslands á ráðstefnunni. Talið frá vinstri: Ágúst Einarsson, Einar Jónsson og dr. Jakob
Sigurðsson. Þeir sem fóru á ráðstefnuna en ekki eru á myndinni eru: Jón Jónsson, Kristinn Pálsson, Óskar
Vigfússon og Ingólfur Falsson.
Fundur íslendinga og Grænlendinga:
Rætt um samvinnu í
sjávarútvegsmálum
Grænlendingar efndu til ráð-
stefnu dagana 31. raaí til 3. júní um
samvinnu á sviði sjávarútvegs á
meðal njrstu þjóða við N-Atlantshaf,
það er Island, Noregur, Færeyjar og
Grænland. Ráðstefnugestir sem
voru yfir 40 komu frá flestum
stærstu hagsmunafélögum um fisk-
veiðar á löndunum fjórum. Héðan
fóru fulltrúar frá: Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna, Sjómanna-
sambandi íslands, og Farmanna- og
fiskimannasambandi ísl.
Á ráðstefnunni var rætt ýmiss
konar samstarf, t.d. að grænlensk
skip væru sett í viðgerð á íslandi,
nugsanleg veiðafærakaup Græn-
lendinga hér og löndunarrétt, en
sem kunnugt er hafa Grænlend-
ingar landað rækju hér á landi og
báðir aðilar haft gagn af. Þá
ræddu Grænlendingar hugsanlega
tækni- og fjárhagsaðstoð ef á móti
kæmi veiðiheimildir í landhelgi
þeirra. Hér þyrftu þó aðgerðir
stjórnvalda að koma til. Ástæður
þessarar ráðstefnu má eflaust
rekja til komandi úrsagnar Græn-
lendinga úr Efnahagssambandi
Evrópu og að þeir eru í auknum
mæli að taka sín mál í eigin hend-
ur.
Fastráðning við Þjóðleikhúsið:
57 sækja um 6 stöður
ALLS sóttu 57 leikarar um fast-
ráðningu við Þjóðleikhúsið næsta
starfsár, en 6 slíkar stöður voru
auglýstar nýlega. Sagði Gísli Al-
freðsson verðandi Þjóðleikhús-
stjóri að þessi ráðning til eins árs
væri liður í nýju og sveigjanle^
samkomulagi á milli Þjóðleikhú
ins og Félags íslenskra leikara i
ráðningu leikara. Fjallað veri
um umsóknirnar á næsta fui
Þjóðleikhússráðs.