Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 22

Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 íæ&ííí Helgistund og fagnaðar- hátíð haldin þar um helgina Jón Hannesson, sr. Hreinn Hjartarson, Höskuldur Jónsson, Valdimar Ólafsson, Elís R. Helgason, Einar S. Einarsson og Sveinn H. Skúlason við FeJla- og Hólakirkju. HELGISTUND og fagnaðarhátíft var haidin í Fella- og Hólakirkju um helgina. Við athöfnina söng kirkjukór Fella- og Hólasóknar en sr. Hreinn Hjartarson annaðist helgistund. Sveinn H. Skúlason formaður sókn- arnefndar bauð gesti velkomna og formaður byggingarnefndar, Jón Hannesson, rakti sögu kirkjubygg- ingarinnar og lýsti henni. Konur úr félaginu Fjallkonan sáu um veitingar fyrir gesti, en á fjórða hundrað manns var við athöfnina. Meðal gesta var biskupinn yfir íslandi, herra Pét- ur Sigurgeirsson, sr. Ólafur Skúlason og Markús Örn Antonsson, forseti borgarstjórnar. Árið 1975 var Fella- og Hóla- hverfi gert að sérstökum söfnuði og er hann í dag stærsti og barn- flesti söfnuður landsins. Kirkjuleg starfsemi sóknarinnar hefur farið að mestu leyti fram í húsi sem söfnuðurinn festi kaup á sama ár og söfnuðurinn var stofnaður, en bygging kirkju fyrir sóknina hófst í fyrra og er hún nú fokheld. Kirkjulegt starf hófst í Fella- og Hólahverfi árið 1973 er sr. Lárus Halldórsson byrjaði að messa í Fellaskóla. Þegar hverfið var gert að sérstökum söfnuði, kom sr. Hreinn Hjartarson til starfa fyrir söfnuðinn og sama ár voru fest kaup á húseigninni Keilufelli 1. Þar fór ýmis starfsemi sóknarinn- ar fram, en guðsþjónustur fóru þó enn fram í Fellaskóla þar til búið var að innrétta kapellu í safnað- arheimilinu að Keilufelli. Ári síð- ar var kapellan stækkuð og var byrjað að messa þar um jólin 1977. Hafa messur farið þar fram allt til farið var að messa í Menning- armiðstöðinni við Gerðuberg nú í maí sl.. I upphaflegu skipulagi var gert ráð fyrir tveim kirkjum I Fella- hverfi og í Hólahverfi, en safnað- arnefndin var einhuga um þá skoðun að byggja eina kirkju fyrir bæði hverfin. Lóð fékkst undir kirkjuna fyrir miðju hverfinu og strax og hún var fengin var efnt til samkeppni um teikningu að kirkju. Arkitektarnir Gylfi Guð- „Forsaga þessa máls er sú að ég hefi í gegnum árin safnað alls konar munum og fyrir fjórum árum ákvað ég að gefa Vestur-Barðastrandarsýslu safn mitt. Sýslan er nú búin að byggja yfir safnið, en að vísu dugir safnahúsið ekki fyrir nema hluta þess,“ sagði Egill. Vestur-Barðastrandarsýsla: Forsetinn opnar minja- safn að Hnjóti Munir úr búi ömmu og afa forsetans eru á safninu „Þarna er að finna muni sem fyrst og fremst tengjast sjávarútvegi og landsins hlunnindum,“ sagði Egill Ólafsson að Hnjóti í Rauða- sandshreppi, en þar opnar forseti íslands nýtt minja- safn á miðvikudag, og með- al muna í safninu eru munir sem verið hafa í eigu fjöl- skyldu forseta. með fullum seglum. Draupnir var smíðaður 1882. Þá er í safninu að finna ýmsa muni aðra, sem hvergi er að finna í öðrum íslenzkum minjasöfnum, að sögn Egils. Elzti hluturinn með ártali er frá 1634. Safnahúsið er 150 fer- metrar að flatarmáli, en loft er notað að hluta og gólfflötur því 200 fermetrar. Egill og kona hans Ragn- heiður Magnúsdóttir afhenda safnið formlega á miðvikudag. Hefur Egill ráðið uppsetningu og séð um hana, en uppistaðan í safninu er áraskipið Draupnir frá Bjarneyjum, sem þar er Hús minjasafnins að Hnjóti. Ljóam;nd Pétur Sveiiunon. Egill Ólafsson innan um ýmsa muni er tengjast sjávarútvegi. Hjónin Ragnheiöur Magnúsdóttir og Egill Ólafsson innan um muni f minjasafninu aö Hnjóti. Á veggnum hanga munir úr búi Magöalenu Jónsdóttur konu séra Þorvaldar f Sauölauksdal, en þau Magöalena og Þorvaldur voru afi og amma Vigdísar Finnbogadóttur forseta íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.