Morgunblaðið - 21.06.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983
31
jónsson og Ingimundur Sveinsson
urðu hlutskarpastir í þeirri sam-
keppni og var fyrsta skóflustung-
an að kirkjubyggingunni tekin á
pálmasunnudag í fyrra. Að sögn
safnaðarnefndar var hafður sá
háttur á að bjóða verkið ekki út,
heldur valdir menn sem byggðar-
nefnd og sóknarnefnd treystu til
vandaðrar vinnu. Nefndin sagðist
hafa ákveðið að byggja kirkjuna á
skömmum tíma og er hún nú eftir
eitt ár orðin fokheld. Nefndar-
menn sögðust fullvissir um að
aldrei síðan land byggðist hefði
tekist að reisa svo stórt guðshús á
svo skömmum tíma.
Varðandi fjáröflun fyrir kirkju-
byggingunni, sögðu nefndarmenn
að bæði hefði verið leitað til sókn-
arbarna og einnig hefðu verslanir
og fyrirtæki á svæðinu stutt
kirkjubygginguna, m.a. með sér-
stökum verslunardegi í fyrra, þar
sem 3 verslanir gáfu tíund af
viðskiptum dagsins til fram-
kvæmdanna. Lán hefðu verið tek-
in og veitti borgarráð borgar-
ábyrgð fyrir lánunum sem er ný-
lunda í kirkjubyggingum á fs-
landi, þar sem kirkjur eru ekki
taldar lánshæfar, að sögn Sveins
H. Skúlasonar, formanns sóknar-
nefndar.
Kirkjan sjálf er um 900 fer-
metrar að stærð, sem er svipað
stærð Bústaðakirkju. í kirkjunni
verða skrifstofur, ein kennslustofa
og fundarherbergi sem hægt er að
opna fram í kirkjuskipið sjálft, en
það rúmar um 310 manns í sæti.
Auk þessa er lítið bænaherbergi
við hliðina á skrifstofu prests, þar
sem sóknarbörn geta beðist fyrir í
einrúmi, en að sögn nefndarinnar
er þetta bænaherbergi einsdæmi á
landinu.
Nefndarmenn gátu ekki sagt
nákvæmlega til um hvenær kirkj-
an kemst í fullt gagn, en ætlunin
er að taka safnaðarheimilið í
notkun á næsta ári og síðan verð-
ur haldið áfram við að fullgera
kirkjuskipið og ganga frá lóð.
50 aðilar með
94% útflutningsins:
SH og SÍF
stærstir
útflytjenda
VGRÐM/ETI samanlagðs útflutn-
ings sl. ár var nálægt 8.480 milljón-
um króna (6.536 m.kr. 1981). Sam-
anlagt útflutningsverðmæti 50
stærstu útflytjendanna nam
7.985.2 m.kr. eða 94% af heildar-
útflutningi 1982.
Útflytjendur með yfir hundrað
milljóna fob-útflutning það ár
voru: Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna 1974, 3 m.kr.; Sölusamband
íslenzkra fiskframleiðenda 1.577,6
m.kr.; Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga 1.450,4 m.kr.; íslenzka
álfélagið 860,4 m.kr.; íslenzka um-
boðssalan hf. (sútuð skinn, skreið,
fiskur) 254,5 m.kr.; íslenzka járn-
blendifélagið 244,0 m.kr.; Síldar-
útvegsnefnd (saltsíld) 222,4 m.kr.;
Álafoss hf. (lopi, band, ullarvörur)
149.2 m.kr.; Sölustofnun lagmetis
134.2 m.kr. og Hvalur hf. (hvalaf-
urðir) 122,0 m.kr.
Útflutningsverðmæti frá árs-
byrjun til aprílloka 1983 reyndust
4.467,5 m.kr. Þar af var mest flutt
út til Bandaríkjanna eða fyrir
1.229 m.kr. Sjávarafurðir voru
75,9% útflutnings, íslenzkar iðn-
aðarvörur 21,9%, búvörur 1,3%,
ýmsar vörur 0,9% á fjórum fyrstu
mánuðum líðandi árs.
í iðnaðarútflutningi vó álið
þyngst eða 15,3% heildarútflutn-
ings, ullar- og skinnavörur 3,2%,
kísiljárn 1,7%, kísilgúr 0,9% og
annað 0,8%.
Ný flugskýli byggð
á Keflavíkurflugvelli
Vogum, 12. júní.
í SUMAR er ráðgert að gera fok-
held þrjú flugskýli fyrir Varnarlið-
ið. Byggingarframkvæmdir hófust
fyrir nokkru. Flugskýlin eru tæp-
lega 1000 m2 að flatarmáli, og um
5000 m3 íslenskir aðalverktakar
annast framkvæmdirnar, auk und-
irverktaka.
í byggingu flugskýlanna hvers
fyrir sig þarf 2000 m3 af steypu og
180 tonn af steypustyrktarstáli,
sem mun jafngilda steypumagni
og steypustyrktarstáli í tuttugu til
tuttugu og fimm einbýlishús.
Vegna smíði flugskýlanna hefur
verið keyptur til landsins sérstak-
ur búnaður vegna undirsláttar.
Eru það turnar úr járni, sem eru
sérstaklega búnir til nota við af-
réttingu lofta.
Við smíði flugskýlanna starfa
um 100 manns.
4*
30.000 kr. afslátt
af fyrstu sendingunni á Skoda ’83
Hefur bú efni á að bíða?
165000 kr Skoda
er pessa dagana
fáanlegur fyrir aöeins
135.000krJ
meðan lyrsta sendingin endist
Skoda 105 kr. 134.700
Skoda 120L kr. 147.900
Skoda 120LS kr. 163 400
Skoda 120GLS kr. 177.400
Skoda Rapid kr. 196.800
Verð miðað við tollgengi júnímánaðar.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
30%afsláttur
af flugfari
og
sérstaklega
ódýr gisting
fyrir
ljóðelska.
26.-30. júní bjóða Flug-
leiðir sértilboð á
innanlandsflugi í tengslum
við ljóðahátíð
í Reykjavík. Tilboðið
er bundið því skilyrði að
keyptur sé miði
á a.m.k. eina tónleika
Ljóðahátíðar, lágmarks-
dvöl sé 3 nætur
og hámarksdvöl 6 nætur.
Einnig býðst sérstaklega
hagstætt verð á
gistingu í tengslum við
hátíðina.
Hafið samband við skrif-
stofur okkar, umboðs-
menn eða ferðaskrif-
stofur.
FLUGLEIDIR
Gott fólk hjá traustu félagi M
Við fljúgum þér suður
2$targtsnI»lftMb
\t’fsti/uhík)(i Imrjum (í’gi.'