Morgunblaðið - 21.06.1983, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 33
Fyrsta bandaríska konan í geiminn með Challenger:
„Þykir miður að ferð mín setji
fjölmiðlana á annan endann,u
Fyrsta konan, sem send var út f geiminn, Valentina Tereshkova frá
Sovétríkjunum, t.v. og t.h. Sally K. Ride, sem nú dvelst um borð í
bandarísku geimferjunni Challenger.
GEIMFARARNIR fímm um borð í
bandarísku geimferjunni Chall-
enger hófu í dag vísindastörf úti í
geimnum eftir að hafa lokið við að
koma fjarskiptagervitunglum fyrir
á braut umhverfís jörðu. Rann-
sóknir geimfaranna í Challenger
eru mun umfangsmeiri en til þessa
hefur þekkst úti í geimnum. Stór
hluti tæknibúnaðarins, sem notað-
ur er við rannsóknirnar, er v-þýsk-
ur og geimferðastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, stendur að rannsókn-
unum í samvinnu við geimferða-
stofnun Evrópu.
A meðal geimfaranna fimm f
Challenger er fyrsta bandaríska
konan, sem fer í geimferð, Sally
Kristin Ride, 32 ára gömul. Hún er
þó ekki fyrsta konan til að fara í
geimferð því fyrir tveimur áratug-
um var sovésku konunni Valentinu
Tereshkovu skotið á loft í þar-
lendu geimfari.
Nokkurrar öfundar gætti í
umfjöllum bandarískra fjöl-
miðla í garð Sovétmanna á þeim
tíma og kom best fram í því að
lögð var á það áhersla, að Ter-
eshkova hefði aðeins verið í hlut-
verki farþega í geimferðinni og
ekkert átt við stjórntækin. Einn-
ig var nokkur óánægja ríkjandi
á meðal bandarískra kvenna,
sem höfðu hlotið langvarandi
þjálfun og staðist sérstakt þrek-
próf, sem geimfarar þurfa að
gangast undir. Óánægja þessi
braust inn í sali bandaríska
þingsins, þar. sem þingmenn
kröfðust þess að þegar í stað yrði
gerð gangskör að því að senda
bandaríska konu út í geiminn.
Tæpast hefur þó þingmennina
óánægðu grunað, að 189 karl-
menn, þar af 57 bandarískir, og
önnur sovésk kona, færu í geim-
ferðir áður en kæmi að fyrstu
bandarísku konunni. Sjálf getur
Sally þó vel við unað því hún
skaut manni sínum, sem einnig
er geimfari, ref fyrir rass. Hann
fær ekki að spreyta sig í geim-
ferð fyrr að níu mánuðum liðn-
um. Þá verður jafnframt önnur
bandarísk kona með í förinni.
Nú þegar Challenger er kom-
inn á loft beinist athyglin að
Sally Ride í engu minna mæli en
fyrir geimskotið. Sjálfri er Sally
lítið um frægðina gefið. Hún
segist ekki hafa ákveðið að ger-
ast fyrsta bandaríska konan til
að fara út í geiminn vegna
frægðarinnar einnar. Hins vegar
er þetta að hennar sögn
skemmtileg reynsla og kærkom-
in tilbreyting frá ströngum æf-
ingum. Draumur hennar var
alltaf að verða flugfreyja en
smæðar sinnar vegna, hún er að-
eins um 160 sm á hæð, uppfyllti
hún ekki grundvallarskilyrði.
Þrátt fyrir allt er óhætt að
segja, að hún hafi fengið draum
sinn uppfylltan, þótt á annan
hátt sé en hún gerði sér e.t.v. í
hugarlund fyrir 20 árum.
Þrátt fyrir yfirlýsingar henn-
ar um að hún vilji helst ekkert
tjá sig um sjálfa sig og sín hugð-
arefni voru fréttamenn stöðugt á
sveimi í kringum hana og fylgd-
ust með hverju skrefi hennar
fyrir geimskotið. „Mér finnst
það miður, að þjóðfélag okkar
skuli ekki vera komið lengra á
þróunarbrautinni en svo, að
geimferð mín skuli setja fjöl-
miðiaheiminn á annan endann,“
sagði hún á fundi með frétta-
mönnum fyrir skemmstu.
Fjölmiðlar hafa gert sér gíf-
urlega mikinn mat úr geimferð
Sally. Á forsíðum blaða um helg-
ina mátti lesa allt um hvernig
fatnað hún hafði með sér í hina
sex daga löngu geimferð og að
hún notaði engar snyitivörur í
ferðinni. Hefði aðeins tekið með
sér naglaskæri, engan vara-,
kinna- eða augnalit. Þá lét
eitthvert blaðanna þess getið, að
brjóstahaldara væri ekki þörf
þarna í háloftunum.
Sally þótti strax á unga aldri
efni í tennisstjörnu. Var hart
lagt að henni að gerast atvinnu-
maður í íþróttinni, en hún hafði
meiri hug á framhaldsnámi og
fór í Stanford-háskóla í Kali-
forníu.
Að loknu lokaprófi við háskól-
ann fór áhugi hennar á vísindum
.vaxandi og sótti hún um að kom-
ast að hjá bandarísku geim-
ferðastofnuninni, NASA, árið
1977. Hún var ein 35 rúmlega
8.000 umsækjenda, sem fengu
starf. Þegar farið var að rann-
saka hvað hinir 35 umsækjendur
áttu allir sameiginlegt kom það
kynduga í ljós, að allir höfðu
svarað spurningu um, hvort þeir
hefðu einhverju sinni þjáðst af
minnisleysi, á sama hátt: „Ég
man það ekki.“
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Ellilífeyrisþegar
Kenni ensku. þýsku, spænsku
og dönsku. Ödýrara fyrir ykkur.
Kem heim ef óskaö er. Sími
21902.
þjónusta ^
Víxlar og skuldabréf
i umboössölu.
Fyrirgreiöslustofan, Vesturgötu
17, simi 16223. Þorleifur Guö-
mundsson, heima 12469.
Trésmiður til aöstoðar
Uppsetning á öllum innréttingum
og hurðum. Panel- og þllju-
klæöningar. Simi 40379.
Hilmar Foss
Lögg. skjalaþýö. og dómtúlkur.
Hafnarstr. 11, sími 14824.
Margskonar
aðstoðarstörf
Sími 23944 frákl. 7—11 f.h.
Fíladelfía
Almenn guösþjónusta kl. 20.30.
Ræöumaöur Lennart Tegnander
forstööumaöur frá Sviþjóö.
UTIVISTARFERÐIR
Þriðjudagur 21. júní
kl. 19.30 og 20.
Sólatööuferö í Viöey. Leiösögu-
maöur Lýöur Björnsson, sagn-
fræöingur. Verö 120 kr. Frítt f.
börn m. fullorðnum. Brottför frá
Sundahöfn (kornhlaðan). Sjá-
umst.
fflmhjnlp
Biblíuleshringur í kvöld kl. 20.30.
Samhjálp.
Húsmœðrafélag
Reykjavíkur
Sumarferöin veröur farin laug-
ardaginn 25. júni. Nánari uppl. i
símum 81759, Ragna, 14617
Sigríöur B. og 23630 Sigriöur J.
UTIVISTARFERÐIR
Fimmtudagur 23. júní
kl. 20.
Níunda Jónsmessunæturganga
Útivistar:
Kjalarnesfjörur — Torfhringur-
inn.
Torfhringurinn er byggöur sam-
kvæmt gömlum hleösluaöferö-
um. Byggingin er miöuð viö Keili
og Snæfellsjökul. Varöeldur og
súpa. Verö 150 kr. frítt f. börn.
Tryggvi Hansen útskýrir tilurö
byggingarinnar. Brottför fró BSi,
bensínsölu. Sjáumst.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Kvöldferðir FÍ
1. Þriöjudag 21. júní kl. 20. Miö-
næturganga á Esju — sumar-
sólstöður. Verö 150 kr. Farþegar
á eigin þílum velkomnir í hópinn.
2. Fimmtudaginn 23. júni kl. 20.
Jónsmessunæturganga. Ekiö aö
Kalmannstjörn (sunnan Hafna)
gengiö þaöan gamla þjóðleiö í
Staöarhverfi vestan Grindavtkur.
Létt ganga. Verö kr. 300.
Fariö frá Umferöarmiöstööinni,
austanmegin. Farmiðar viö bil.
Helgarferöi 24.—26. júní
1. Hagavatn — Jarlhettur —
Geysir Gist i sæluhúsi viö Haga-
vatn. Gönguferöir meö farar-
stjóra, Tryggva Halldórssyni.
2. Þórsmörk. Gist i sæluhúsi
Gönguferöir meö fararstjóra.
Ath. Miövikudaginn 29. júni
verður fyrsta feröin fyrir þá sem
óska aó dvelja milli feröa i
Þórsmörk.
Leitiö upþlýsinga á skrifstofunni
og kaupiö farmiöa í feröirnar.
Feröafélag íslands
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
Muniö árlega sumarferö safnaö-
arins dagana 25.-26. júní nk.
Farið verður til Vestmannaeyja.
Miöar seldir i Versluninni Brynju,
Laugavegi 29 til og meö 22. 6.
Tryggiö ykkur miöa strax vegna
takmarkaörar þátttöku. Uppl. i
símum 33454, 32872, 43465.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
húsnæöi óskast Herbergi meö eldhúsaögangi áskast fyrir reglusama konu. LJppl. í síma 26700 frá kl. 9—5. Leiguíbúö Óskum eftir 2ja til 3ja herbergja íbúö fyrir starfsmann vorn. Skilvísar greiðslur og reglu- semi. R. Sigmundsson hf. Tryggvagötu 8. S. 12238 — 12260. Heimasími 79080. |Her inn á lang ± flest heimili landsins!
LOKADá LAEGARDðGIJM í SIMAR
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og Kaupmannasamtök íslands vilja hér meö
minna neytendur á að samkvæmt kjarasamningi veröa verzlanir lokaöar á laugar-
dögum yfir sumarmánuðina frá 20. júní til ágústloka.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Kaupmannasamtök íslands