Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 26

Morgunblaðið - 21.06.1983, Page 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 In Memoriam: Jón E. Ragnars- son lögmaöur Fæddur 24. desember 1936. Dáinn 10. júní 1983. Með djúpum söknuði og trega er mætur vinur, Jón E. Ragnarsson, hæstaréttarlögmaður, kvaddur hinstu kveðju. Vordagar lífs hans voru bjartir og fagrir og stórmerki á lofti og fyrirheit, en sumarið leið alltof fljótt. Áður en varir er ævinnar dagur að kveldi. Þeim dómi verður ekki áfrýjað. Á sorg- arstund við dánarbeð æskuvinar er hollt að hugleiða ljóðlínur frænda hans Einars Benedikts- sonar skálds. „Og því er 08H erfitt að ds*ma þann dóm, aó dauðinn aé hyrggóarefni, þó IjÓNÍn slokkni og blikni blóm. — Er ei bjartara land fyrir stefni?" Jón Edwald Ragnarsson fæddist í Reykjavík á aðfangadag jóla árið 1936, en lést að heimili sínu, föstu- daginn 10. júní sl. langt um aldur fram á fertugasta og sjöunda ald- ursári. Hann hafði átt við erfiðan heilsubrest að stríða síðustu tvö ár, en aldrei brást baráttuviljinn og hugrekkið. Nafni kom af sjúkrahúsi að morgni miðviku- dags og var honum þá mikið brugðið. Hann var við málflutning í Hæstarétti fslands þann dag og eins á föstudeginum. Ekkert dró hann af sér og flutti málin af djúpri lögfræðilegri skarpskyggni en brá útaf venju sinni og vék nokkrum háttvisum orðum að öðru, er úrlausnarefni málsins varðaði ekki. Þar kom hann fram þakklæti sínu til stéttarbræðra sinna fyrir málefnalega rökræðu og ánægjulegt samstarf. Að kvöldi þess dags var hann allur. Slíkur eldhugi hlaut að falla að hætti hetjunnar að fornum sið, enda var nafna alls fjarri að öðlast langlífi með því að lifa rólega. Höfundur Hávamála meitlar þetta svo: „(ilaór ok reifr skyli i'umna hverr, unz sinn bíór bana.“ Á þessari stund reikar hugurinn að hugljúfum minningum um æskuheimili hans að Frakkastíg 12 — Grettisgötumegin, hér í borg. Það heimili var orðlagt fyrir gestrisni, rausn og myndarskap og viðmót húsráðenda mótaðist af slíkri velvild og höfðingsskap, að við skólafélagar Jóns E. urðum þar tíðir gestir. Foreldrar Jóns E. voru hjónin Ragnar H.B. Kristins- son, forstjóri, og Matthildur Eð- valdína Edwald. Ragnar var kjör- faðir Jóns, en hann lést 16. mars 1963. Ragnar var sonur hjónanna Þuríðar Guðmundsdóttur ættaðri frá Seli í Landeyjum og hins þjóð- kunna athafamanns Kristins Jónssonar vagnasmiðs. Fyrri kona Ragnars, Ruth Friðfinnsdóttir, ættuð úr Vopnafirði, lést 1937. Hún og Ragnar eignuðust tvær dætur, Þuríði Kristínu, sem gift er Guðbirni Snæbjörnssyni og Ruth, gift Sigurþóri Tómassyni, verk- fræðingi, og eru þau nú við störf í Kenya. Móðir Jóns, sem jafnan var nefnd ína Edwald, var fædd 16. mars 1909 á Gestsstöðum í Steingrímsfirði. Móðuramma Jóns var Matthildur Lýðsdóttir, bónda á Skriðnesenni í Bitru, Jónssonar. Lýður langafi Jóns E. var sagður mikill fyrir sér, en svo vinsæll, að hann var lengi allt í senn; hrepp- stjóri, oddviti og sýslunefndar- maður sveitar sinnar. Kona hans var Anna Magnúsdóttir, bónda í Hlíð í Þorskafirði, Jónssonar al- þingismanns Bjarnasonar, frá Ey- hildarholti. Matthildur Lýðsdóttir var fríð kona, vel gefin og vinsæl, en lést 1918 í blóma aldurs síns. Móðurafi Jóns E. var Jón Edwald Samúelsson, bónda Guðmundsson- ar, bónda að Gilsbrekku í Geir- dalshreppi og seinna í Búð í Hnífs- dal. Kona Samúels var Þuriður Ormsdóttir, bónda í Miðgröf í Steingrímsfirði. Móðurafi Jóns E. og nafni átti heima á ísafirði frá 1912 til æviloka, en hann lést 1935. Hann var duglegur kaupsýslumað- ur, í stjórn margra atvinnufyrir- tækja og aðalræðismaður Norð- manna. Hann var og seinustu ár ævinnar atkvæðamaður í bæjar- stjórn. ína, móðir Jóns E., giftist Ragn- ari Kristinssyni árið 1940. Eignuð- ust þau tvö börn, Röngu Láru, íþróttakennara, gifta Brynjólfi Björnssyni, verslunarmanni, og Kristin, arkitekt og formann sam- takanna Líf og Land, kvæntan Huldu Ólafsdóttur. ína varð ekkja 1963 og starfaði eftir það sem blaðamaður. Árið 1971 giftist ína Ragnari Þorsteinssyni, er kunnur er af ritstörfum og forystu sinni um slysavarna- og björgunarmál, en ína lést 22. ágúst 1975. fna var einstaklega skemmtileg kona, vönd til orðs og æðis. Hún var víð- lesin og margfróð einkum á sviði sígildra bókmennta. Var mjög kært með þeim mæðginum og var hún sérstakur vinur og velunnari okkar kunningja Jóns E. og bast við vini barna sinna heilsteyptri framtíðarvináttu. Faðir Jóns E. var Agnar Norð- fjörð, hagfræðingur, er lést 19. janúar 1982. Föðurafi Jóns E. var Jóhannes Jóhannesson Norðfjörð, úrsmíðameistari, og föðuramma kona hans Ása Jónsdóttir frá Ásmundarstöðum á Sléttu af svonefndri Lónsætt. Eiginkona Agnars var Jóhanna Ingibjörg Bernhöft g áttu þau 4 börn: Sverr- ir, arkitekt, kvæntur Alenu And- erlovu, arkitekt tékkneskrar ætt- ar, Kristín, lögfræðingur, gift Þor- valdi Búasyni, eðiisfræðingi, Ingi- björg Nanna, flugfreyja, og Agnar Óttar, viðskiptafræðingur, er starfað hefir við fyrirtæki föður síns, Agnar Norðfjörð & Co. hf. í Reykjavík. Mjög náin vinátta var með Jóni E. og föðurbróður hans, Hilmari Norðfjörð. Að Jóni E. Ragnarssyni, hrl., stóð ættstofn styrkur. Jón var líkt og frændi hans Pétur Zophaníus- son ættfróður, enda vel að sér í sögu lands og þjóðar, en af frænd- um hans má m.a. nefna til Jónas Hallgrímsson, skáld, Fjalla-Ey- vind og Árna Magnússon, prófess- or og assessor. Jón E. Ragnarsson kvæntist 3. maí 1969 Sigríði Ingvarsdóttur Vilhjálmssonar, útgerðarmanns í Reykjavík, og konu hans Áslaugar Jónsdóttur frá Hjarðarholti í Stafholtstungum. Jón E. og Sig- ríður slitu samvistir. Nafni varð stúdent frá MR 1957 og cand. juris frá Háskóla íslands í janúar 1966 með fyrstu einkunn. Hafði hann einnig verið við nám við Kölnarháskóla í þýsku og rétt- arheimspeki og sótti nokkur nám- skeið í félagsfræði og þjóðasam- skiptum í Svíþjóð og Bandaríkjun- um 1961—1965. Á námsárunum og síðar starfaði hann mikið fyrir Sjálfstæðisflokkinn og var blaða- maður á Morgunblaðinu. Hann varð héraðsdómslögmaður 17. mars 1966 og hæstaréttarlögmað- ur 27. febrúar 1973. Hann starfaði sem fulltrúi borgarstjórans í Reykjavík 1966—1969, varð fram- kvæmdastjóri Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar 1969—1970, en opnaði lögmannsstofu í Reykjavík 1969 og starfaði eingöngu við lögmanns- og málflutningsstörf frá mars 1970 til æviloka. Hann tók mjög virkan þátt f störfum Lögmannafélags fslands og var m.a. í stjórn félagsins. Þar var hann og mjög virkur fundarmaður og þátttakandi í samskiptum við erlenda stéttarbræður. Þá gegndi hann og fjölda trúnaðarstarfa s.s. í stjórn og varaform. SUS 1962—1969, í flokksráði Sjálfstæð- isflokksins 1964—1970, form. nor- ræna æskulýðsmótsins f Reykja- vík 1969, form. og varaformaður Varðbergs, félags um vestræna samvinnu, 1970—1972, varaforseti og landsforseti Junior Chamber of Commercs 1971—1973, í rann- sóknarnefnd alþjóðasamtaka stúdenta (ISC/cosec) f kynþátta- mismunun f Suður-Afríku 1962— 1964, í framkvæmdastjórn Atlant- ic Association of Young Political Leaders 1971—1974. Hann var nú formaður ráðs sjálfstætt starf- andi háskólamanna. Þegar í menntaskóla var hann mjög virk- ur í félagslífi nemenda, enda skemmtilegur og mælskur vel og rithagur. Fór hann þá einnig með hlutverk í Herranótt. Varð hann þjóðsaga þegar á stúdentsárum sínum og til eru af honum legíó sagna, merkilegar og skemmtileg- ar. Á háskólaárunum gegndi hann fjölda trúnaðarstarfa var m.a. formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands, formaður utanríkisnefnd- ar ráðsins, fulltrúi stúdenta í há- skólaráði, ritstjóri Vöku, blaðs lvðræðissinnaðra stúdenta, og Ulfljóts, tímarits laganema, jafn- framt varaformaður Orators, fé- lags laganema. Hann var nú fyrir tveim árum formaður Stúd- entafélags Reykjavíkur og hefur unnið mikið starf fyrir það merka félag. Lét hann jafnan málefni stúdenta og æðri menntunar mik- ið til sín taka. Hin rómantiska pólitík stúdentsáranna féll honum einkar vel enda var hann hrókur alls fagnaðar og málsnilld lék honum á tungu. Þarna naut mælskulist Jóns og orðsnilld sín og landsforseti Junior og í ræðum hans kom fram stjórnmálamaður- inn leiftrandi af frásagnargleði, fjöri og kímni. Hann höfðaði í máli sínu oft til hugsjóna Jóns forseta og Fjölnismanna, hvatti til forystuhlutverks menntamanna, minnugur þess, að það voru ís- lenskir stúdentar, sem hófu aftur á loft merki íslensks þjóðernis og tungu um miðja síðustu öld og voru síðan í fararbroddi í göngu þjóðarinnar til sjálfstæðis og end- anlegs fullveldis. Hann var snill- ingur fjörlegrar samræðu, sem hefur verið aðalsmerki ísienskra stúdenta, allt frá fyrstu sögnum af íslenskum stúdent, er Sæmundur Sigfússon hinn fróði nam artes li- berales í Svartaskóla í París á ofanverðri 11. öld. Við nafnar störfuðum mikið saman á þessum árum, bæði hér heima og erlendis og á Jónsmessu fyrir nítján árum vorum við full- trúar íslenskra stúdenta á Alþjóðaþingi stúdenta, er haldið var í Christchurch á Nýja-Sjá- landi. Vorum við þá nýkomnir úr lærdómsríkri ferð um Bandaríkin í boði utanríkisráðuneytisins bandaríska og tókum þá um vorið þátt í norrænu móti laganema hér á landi, en Jón E. var mjög virkur þátttakandi í slíku starfi. Þessi heimsreisa okkar nafna var stór- kostlegt ævintýri og viðburður hinn mesti. Jón hafði kynnt sér rækilega alþjóðleg stjórnmál og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir alþjóðasamtök stúdenta. Á þessum fundum okkar og ráð- stefnum kynntumst við nafnar mörgum fulltrúum erlendra stúd- entasamtaka. Margir þeirra eru nú áhrifamenn í sínu heimalandi eða á vegum alþjóðasamtaka. Formaður finnska stúdentaráðs- ins, Matti Niömistö, hagfræðing- ur, varð sérstakur vinur okkar nafna og sótti okkur nokkrum sinnum hingað heim og við hann til Helsinki. Af þessu tilefni stofn- uðum við með okkur sérstakt fé- lag, sem gegndi miklu og leynilegu hlutverki! Ekki var öðrum heimil- uð þátttaka í félaginu eða hafa nein afskipti af því. Matti vinur okkar lést fyrir nokkrum árum á ráðstefnu í Svíþjóð, en við nafnar höfðum þá nýverið þegið boð hans að dvelja á hóteli, er hann hafði opnað í Lapplandi. Þá áttum við Jón E. ánægjulegar stundir í hin- um merkilega félagsskap Loka, er stofnsettur var í Munchen. Sömu- leiðis tók Jón mikinn þátt í lög- fræðilegri umræðu í Lögréttu. Heimili Jóns E. var hlýlegt og menningarlegt. Hann átti fallegt safn listaverka og fágætt og mikið safn góðra bóka. Hann hóf bóka- söfnun þegar á fermingaraldri og hafði næmt auga fyrir góðum bókmenntum. Á seinni árum lagði hann sig einkum fram um bóka- söfnun merkra lögfræðirita. Hann var unnandi góðrar tónlistar og sí- gildra menningarverka. — Nafni var höfðingi heim að sækja. Nærtækustu hugðarefni Jóns E. voru á sviði stjórnvísinda og sagnfræði, en hann var jafnframt vel menntaður lögfræðingur og eftir hann liggja fræðigreinar um ýmis svið lögvísinda einkum stjórnskipunar- og lagaskilarétt- ar. í lögmannsstörfum sínum gætti hann hagsmuna skjólstæð- inga sinna af festu og öryggi og hafði brennandi réttlætiskennd. Ræður hans einkenndust af sókn- arhörku og skarpskyggni, þar gætti ómfalls þungrar undiröldu, er beindi athyglinni fimlega að kjarna málsins. Snögg andsvör lágu honum létt á tungu og mál- flutningur markviss og rökvís. Við slíkan málflutning verður lög- fræðin músíkölsk, og sveiflan hjá nafna var há. Þá gildir gagnvart hinum júrídiska þankagangi að fylgja hinum réttu nótum rökvís- innar, er nafna var leikið. Hann bjó yfir mikilli þekkingu í fræði- grein sinni og var vel að sér í öðr- um klassískum og húmanískum fræðum. Einkum hafði hann um- fram aðra lögfræðinga aflað sér þekkingar í alþjóðalögum og engilsaxneskum rétti. Lögmanns- störf létu honum vel, einkum mál- flutningur. Við nafnar höfðum það oft í flimtingum að hittast með það í huga að rita eftirmæli hvor um annan þannig að báðir gætu rit- skoðað og andmælt. Hugðum við eiga þessar ritsmíðar á lager. Lín- ur þessar eru viðleitni i sama augnamiði, en jafnframt til að þakka nafna samfylgdina og vin- áttu hans. Hann var drengur góð- ur, framúrskarandi skemmtilegur og heillandi persónuleiki og hefði kunnað að njóta iengri lífdaga. Umræða okkar var lítt komin að svonefndum eilífðarmálum, enda töldum við okkur vera að fást við málefni líðandi stundar. Á marg- an hátt féll okkur vel formúla nafna okkar Prímusar. Þó umræð- an væri jafnan hröð og skoðanir oft á tíðum skiptar hygg ég, að við hefðum náð því samkomulagi að taka undir orð hins mikla Ciceró, er sagði: „Ég get ekki lýst því, en það er eins og einhver fyrirboði í hugum manna um aðra tilvist í framtíðinni. Og þetta er rótgrón- ast og augljósast hjá þeim, sem eiga mesta snilli og sálargöfgi til að bera.“ Við Valgerður Bára sendum systkinum og öðrum ástvinum hins framliðna vinar okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Jóns E. Ragnarssonar. Jón Oddsson. Skömmu eftir að ég hóf nám í Háskóla íslands kynntist ég Jóni E. Ragnarssyni. Sfðan kom það í minn hlut að taka sæti í stúdenta- ráði og sinna alþjóðlegum sam- skiptum á vegum þess. Fetaði ég þar að nokkru leyti í fótspor Jóns, sem á þessum tíma var óþreytandi við að reka erindi á vegum stúd- enta í útlöndum. Það var síður en svo erfitt að koma á stúdentaþing erlendis og hitta þar fyrir menn, sem átt höfðu samstarf við Jón. Alls staðar minntust menn hans með ánægju jafnvel mörgum ár- um eftir að þeir höfðu hitt Jón, og þær voru ófáar kveðjurnar sem ég flutti honum við heimkomu. Jón E. Ragnarsson var einstak- lega skemmtilegur félagi á þessum árum. Hann var vel að sér um flesta hluti og hafði hæfileika til að sjá broslegar hliðar á tilver- unni. Hann fylgdist gaumgæfilega með framvindu þeirra mála sem gripu hug hans, vegna þess og mikilla persónulegra kynna hans við erlenda aðila kom maður aldr- ei að tómum kofanum hjá honum. Fyrir þetta vil ég þakka nú þeg- ar Jón É. Ragnarsson er kvaddur langt um aldur fram. En ég vil einnig flytja honum hinstu kveðju í nafni félaganna Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu. Jón E. Ragnarsson var ódeigur baráttumaður fyrir sjálfstæði ís- lensku þjóðarinnar meðal annars með störfum í þessum félögum. Var oft til hans kallað þegar mikið lá við og hann flutti fjölmargar ræður um varnar- og öryggismál, þegar harðast var barist, blöð og tímarit geyma einnig athyglis- verðar hugleiðingar hans um þessi mál. Jón E. Ragnarsson var for- maður Varðbergs þegar minnst var 10 ára afmælis félagsins sem hann gerði með glæsibrag. Við hittumst sjaldan hin síðari ár, en þegar svo bar við lét hann ekki hjá líða að nefna einhverja góða hugmynd málstaðnum til framdráttar. Áhugi hans á því að tryggja stöðu íslands sem best í samfélagi þjóðanna dofnaði aldr- ei. Blessuð sé minnig Jóns E. Ragn- arssonar. Björn Bjarnason Að stutt getur verið milli lífs og dauða er öllum kunnugt. En samt kom það eins og reiðarslag fyrir fjölskylduna þegar okkur barst sú fregn að morgni mánudagsins 13. júní, að látinn væri frændi okkar, Jón E. Ragnarsson. Ina Edwald, móðir Jóns, var að langfeðgatali komin af Eyrardals- ætt. Sú ætt var fjölmenn í Hnífs- dal við ísafjarðardjúp. Þar áttum við Jón heimili um tíma á bænum Bakka, en þar bjuggu afi minn og amma. ína Edwald hét fullu nafni Matthildur Eðvaldína Edwald. Maður hennar var Ragnar Krist- insson, forstjóri Vagnasmiðjunnar á Frakkastígnum í Reykjavík. Þar bjuggu þau ásamt börnunum fimm og var heimili þeirra rómað fyrir höfðingsskap. Jón var snemma sérstakur mað- ur og vakti á sér athygli. Engum kom það reyndar á óvart, enda átti hann ekki langt að sækja það þar sem móðir hans, ína Edwald, var skarpgreind kona, ákveðin og rausnarleg. Jón varð þegar á skólaárunum virkur þátttakandi í félagslífi. Félagsmálastörf Jóns voru meiri og víðtækari en rúma má í minningargrein. Stjórnmálaáhugi Jóns og áhugi hans á vestrænni samvinnu hvatti hann mjög til þessara starfa. Hann tók líka þátt í ýmsum fagfélögum sem tengdust störfum hans sem sjálfstætt starfandi hæstaréttarlögmanni, auk þess átti hann eitt besta bóka- safn í landinu um lögfræðileg efni og lagði hann mikla rækt við það. í félagsstörfum naut Jón þess að hann var eðlisgreindur og rökfim- ur með afbrigðum. Hann var drjúgur liðsmaður á málfundum og í kappræðum. Andstæðingar Jóns fengu skellinn þegar hann steig í ræðustól, enda var Jón bar- áttumaður með nánast óbilandi kjark, alveg sama hvaða andstæð- ingar áttu í hlut. En það sem efst er í huga er það skarð sem Jón skilur eftir í vina- hópi. Jón var gæddur ríkri kímni- gáfu og auk þess sjaldgæfri frá- sagnargáfu. Hann var leikinn að sjá hið spaugilega i lífinu og hafði ríka hæfileika til að miðla vinum sínum af þeirri list. Þannig munu flestir vinir Jóns minnast hans, sem mannsins sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.